Muffins Uppskriftir

Page 1

Muffins


1 bolli: 200‐250 ml 1 bolli smjörlíki: 225 gr


Gulrótaköku Muffins Hráefni: − 2 bollar hveiti − 2 bollar sykur − 3 bollar gulrætur (rifnar niður) − 1 tsk lyftiduft − 1 tsk matarsódi − 1 tsk kanill − 1 bolli jurtaolía − 4 stór Egg

Aðferð: ¾ Hitið ofninn í 175°C og raðið formum á plötu ¾ Blandið saman þurrefnunum í skál ¾ Hrærið við lítin hraða og bætir olíu og egg varleg saman við (hrærið svo við mikin hraða í 2‐3 mín) ¾ Setjið deigið í formin (1/2‐2/3) ¾ Bakað í 20‐25 mín (styttri tími ef form eru lítil) ¾ Eru tilbúin þegar tannstöngull sem stungin er í köku kemur hreinn upp. ¾ Kælið niður og skreytið að vild, td. Með heimtilbúnu ostakremi eða BettyCrocker Frosting ¾ OSTAKREM: 250 gr rjómaostur og 300 gr flórsykur (og smá sítrónusafa) hrært saman.


Vanillu Muffins Hráefni: (12 kökur) − 113 gr smjörlíki (við herbergishita) − 130 gr sykur − 3 stór egg − 1 tsk vanilludropar − Börkur af 1 sítrónu (má sleppa) − 195 gr hveiti − 1 ½ tsk lyftiduft − ¼ tsk salt − 60 ml mjólk

Aðferð: ¾ Hitið ofninn í 175°C og raðið formum á plötu ¾ Blandið saman smjörlíki og sykri þangað til það er létt og samflétt ¾ Bætið við eggjunum, eitt í einu ¾ Vaniludropar og sítrónuberki bætt við ¾ Þurrefnið helt saman við á meðan deig er hrært saman ¾ Setjið deigið í formin (1/2‐2/3) ¾ Bakað í 18‐20 mín (styttri tími ef form eru lítil) eða þangað til kökur eru orðnar gullinbrúnar ¾ Góðar hreinar eða með smjörkremi


Súkkulaði Muffins Hráefni: (16 kökur) − 50 gr kakóduft (Dutch prosessing) − 240 ml soðið vatn − 175 gr hveiti − 2 tsk lyftiduft − ½ tsk salt − 113 gr smjörlíki (við herbergishita) − 200 gr sykur − 2 stór egg − 2 tsk vanilludropar

¾ Hitið ofnin í 180‐190°C, raðið upp 16 muffinsformum. ¾ Hrærið saman í lítilli skál sjóðandi heitu vatni og kakóduftinu. Látið kólna niður í herbergishitastig. ¾ Blandið saman í annari skál hveiti, lyftiduft og salt. ¾ Blandið saman í hrærivélaskál smjörlíki og sykur þangað til það er orðið létt og dúnkennt. Bætið við eggjunum, eitt í einu. Síðan er vanilludropum bætt við. ¾ Þurrefnunum bætt saman við og eingöngu hrært saman smá áður en kakó‐vatnið er bætt við og þá er deig hrært saman þangað til það er samflétt. ¾ Setti í formin (2/3) og bakað í 16‐20 mín. Látið kólna áður en krem er sett á


Bláberja Muffins Hráefni: (12 kökur) − 2 bollar bláber − 2 egg − 2 bollar hveiti − 1 bolli sykur − ½ bolli mjólk − ½ bolli smjörlíki (ca. 110‐115gr) − 1 tsk lyftiduft − 1 tsk vanilludropar − ½ tk salt

¾ Hitið ofnin í 175‐180°C ¾ Hrærið saman smjörlíki, eggi, salti og sykri ¾ Blandið saman hveiti og lyftidufti og því svo saman við eggjablönduna + mjólkin ¾ Bætið við vanilludropunum. Og í lokinn bætið bláberjanum saman við með skeið eða sleikju. ¾ Bakið í ca 25 mín (Fer eftir stærð)


Jarðaberja Muffins Hráefni: (7‐8 kökur) − ¼ bolli matarolía − ½ bolli mjólk − 1 egg − ½ tsk salt − 2 tsk lyftiduft − ½ bolli sykur − 1 ¾ bolli hveiti − 1 bolli jarðarber (skorin í bita)

¾ Hitið ofnin í 190°C ¾ Hrærið saman olíu, mjólk og egg léttilega ¾ Blandið saman hveiti, salt, lyftidufti og sykri. Bætið við jarðaberjunum og blandið þeim vel saman við hveitiblönduna. ¾ Bætið vökvanum saman við og blandið vel saman ¾ Sett í muffinsform ½‐ ¾ ¾ Bakið í 25 mín eða þangað til að múffan er gullinbrún og að prjónn sem stunginn er í múffuna kemur hreinn út.


Epla Muffins − 2 bollar hveiti − 1 tsk lyftiduft − ½ matarsódi − ½ tsk salt − ½ bolli smjörlíki (ca.115gr) − 1 bolli sykur − 2 egg − 1 ¼ stk vanilludropar − 1 ½ tsk epli skorin í litla bita − 1/3 púðursykur − 1 tsk hveiti − 1/8 tsk kanill − 1 tsk smjörlíki

¾ Hitið ofnin í 190°C ¾ Blandið saman i skál, hveti, lyftidufti, matarsóda og salti ¾ Hrærið vel saman smjörlíki, sykri og eggjum. Bætið svo vanillu út í, og eplunum ¾ Blandið þurrefnum saman við varlega. ¾ Setið blönduna í Muffinsformin.... ¾ Blandið saman púðursykri, hveiti og kanil. Klípið svo smjörlíkið ofan i og blandið saman. ¾ Sett ofan á Muffinsblönduna, i formin ¾ Bakað í 20 mín í forhituðum ofni eða þangað til að prjón sem stungin er í köku kemur hreinn út.


Kókosmjöl Muffins Hráefni: −

80 gr smjörlíki, brætt − 2/3 bolli sykur − 2 tsk vanilludropar − 1 egg − ½ tsk salt − 2/3 bolli kókosmjöl − 1 bolli hveiti − 1 tsk lyftiduft − 2/3 bolli mjólk

¾Hitið ofnin í 180°C

¾Blandið saman smjörlíkinu, sykri og vanilludropum ¾Egg, kókosmjöl, hveiti og mjólk blandað vel saman við ¾Set í muffinsform ¾Bakað í 10‐12 mín eða þangað til að þær eru bakaðar í gegn. Leyfið þeim að vera í formunum í 1 mín áður en teknar af til kælingar á rimlagrind. Kókosmjöl toppur 1 bolli kókosmjöl / 2 bolli flórsykur / 1 tsk smjörlíki, mjúkt / Bleikur matarlitur Blandið öllu saman (nema litnum) í skál. Bætið við ¼ bolla heitu vatni þangað til kremið er létt og þétt. Bandið matarltnum við. Sett á kökurnar og látið þorna.


Red Velvet Muffins Tilvalið fyrir jólin eða valentínusardag vegna litarins Hráefni: − 2 bolli hveiti m/1 tsk lyftiduti − 2 tsk kakó − ¼ tsk matarsódi − ¾ bolli mjólk m/1 tsk white vinegar (buttermilk) − 2 tsk rauður matarlitur − 120 gr smjörlíki, við herbergishita − 1 bolli + 1 tsk sykur − 2 stór egg, við herbergishita − ½ tsk vanilla

¾Hitið ofnin í 160‐170°C ¾ Hafið muffinsform tilbúin ¾ Blandið saman hveiti, kakói, matarsóda og salti ¾ Blandið saman smjörlíki, sykri og vanillu í hrærivél, þangað til að er létt og samflétt ¾ Bætið eggjum við, einu í einu –hrærið í 1 mín á milli eggja. ¾ Mælið mjólkina og bætið við matarlitnum ¾ Blandið saman þurrefnum við vökvana ¾ Setið í formin og bakið í um 12 mín. ¾ Betty Crocker Cream cheese frosting hentar vel á þessa gerð muffins.


Súkkulaði Muffins m/Hvítu súkkulaði bitum − 1 bolli hveiti − ½ bolli sykur − ¼ bolli kakó − 1 ½ tsk lyftiduft − ½ tsk kanill − 1 stórt egg − 1/3 bolli matarolía − 10 tsk mjólk (Nýmjólk) − 1 ¼ stk vanilludropar − ½ bolli hvítt súkkulaði (skorið í litla bita)

¾ Hitið ofnin í 190‐200°C ¾ Setjum í stóra skál; hveiti, sykur, kakó, lyftiduft og kanil ¾ Í litla skál eru eggið sett og hrært í því með gaffli, bætum svo mjólkinni, olíunni og vanilludropnum. Hrært vel saman ¾ Blöndunni bætt við þurrefnin. Blandað saman td. Með sleikju ¾ Bætið við súkkulaðibitunum. ¾ Sett í form ca.2/3 af forminu og bakað í 15 mín. ¾ Þegar múffurnar eru ný komnar úr ofninum er gott að setja þunna bita af hvítu súkkulaði á og látið bráðna, hægt að dreifa betur á með gaffli eða tannstöngli.


Krem og skraut


Súkkulaði Muffins ‐ Kremið Hráefni: − 120 gr súkkulaði, spænir eða aðrir litlir bitar − 150 gr smjörlíki (við herbergishita) − 160 gr flórsykur (sigtað) − 1 ½ tsk vanilludropar

Aðferð: ¾ Súkkulaði brætt í vatnsbaði. Tekið af hitanum þegar allt súkkulaðið hefur bráðnað og látið kólna aðeins. ¾ Smjörlíkið hrært í hrærivél (eða með handþeytara) þangað til létt og kremkennt (ca. 1 mín) ¾ Bættu við sykrinum og hrærið saman í 2 mín ¾ Vanilludropunum bætt við og svo súkkulaðinu bætt við á meðan krem er hrært við lítin hraða ¾ Hraði svo aukin í medium‐high og hrært saman þangað til að krem er orðið einlitt og létt (2‐3 mínútur)


Smjörkrem (td á vanillu muffins) Hráefni: (ath stór uppskrift) − 400 gr flórsykur (sigtaður) − 175 gr smjörlíki (við herbergishita) − 1 eggjarauða − 1 tsk vanilludropar − 2 tsk mjólk − Matarlitur eftir smekk

Aðferð: Hrærið smjörið í hrærivél (eða með handþeytara) þangað til það sé orðið létt Bætið við vanilludropum Blandið sykrinum smá saman saman við, hrært á meðan Eggjarauðinni bætt saman við og hrært með miklum hraða þangað til kremið er orðið létt og dúnkennt. (3‐4 mín) Bæta má við mjólk eða sykri eftir þörfum (of þykkt eða of þunnt) Matarlitur blanaður við # Skreyta með kökuskrauti, lakkrískurli, marsipan fígúrum eða kókos.


Skreytingarkrem – fyrir skrautgerð e. Royal Icing − Eggjahvítur (2 stór egg) − 2 tsk ferskur sítrónusafi (eða vanilludropar) − 3 bollar flórsykur − Matarlitur eftir list

¾ Blandið saman eggjahvítunum og sítrónusafanum með handþeytara eða í hrærivél ¾ Setið svo flórsykurinn út í og hrærið á meðan við lágan hraða, þangað til að blandan er létt og samfétt ¾ Nota þarf blönduna strax þar sem þetta skreytingarkrem harnar fljótt.


Clatronic Muffinsjárn (MM3336) Fæst í Elko www.elko.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.