Swagtron T1 svifbretti - Íslenskar leiðbeiningar

Page 1

T1-Ă? sl enskarl ei Ă°bei ni ngar


SVIFBRETTI SWAGTRON® T1 NOTENDALEIÐBEININGAR Þakka þér fyrir að kaupa SWAGTRON® T1 Handfrjáls svifbretti af SWAGTRON®! Þú ert að fara að taka næsta skref í þróun flutninga. SWAGTRON® er með skemmtunina á hjólabretti, vellíðan rafmagnshlaupahjóls og toppar það með auka sveiflu. Til að tryggja öryggi þitt og öryggi annarra, vinsamlegast lestu og fylgdu leiðbeiningunum í þessari notendahandbók vel og vandlega fyrir og á meðan þú hjólar. Góða skemmtun við að hjóla! -SWAGTRON® hópurinn

1.2 HVAÐ ER Í KASSANUM


+ SWAGTRON® T1 svifbretti + Hleðslutæki / millistykki + Notendahandbók + Gúmmístuðari

EIGINLEIKAR VÖRUNNAR 2.1 SWAGTRON®T1 YFIRLIT

2.3 KENNLSUSTILLING OG STAÐALSTILLING SWAGTRON® felur í sér tvær stillingar til að veita bæði nýjum og sérfræðingum í að hjóla bestu reynslu. Kveiktu á SWAGTRON® með því að ýta á straumrofann og sleppa rofanum til að skipta á milli kennslustillingar og staðalstillingar. Meðan á einingin era ð fara í gang er stutt á straumrofann í annað sinn. Þú munt heyra staðfestingu frá því að SWAGTRON® hafi breytt stillingum. Fylgdu sömu skrefum til að breyta til og frá bæði kennslustillingu og venjulegri stillingu. Stilling Athugasemd Kennslustilling Tilvalið fyrir nýja eða óreynda hjólara. Stýrir hámarkshraða SWAGTRON® svo þú getur æft jafnvægi og almenna hreyfingu. Staðalstilling

Aðeins reyndir reiðmenn. Þetta fjarlægir takmörkun kennslustillingar og gerir SWAGTRON® kleift að ná hámarkshraða. III -HVERNIG Á AÐ HJÓLA Vertu tilbúinn að hjóla með sveiflu! Neðangreindar leiðbeiningar tryggja að þú hafir þægilega og örugga reiðreynslu með SWAGTRON® einingunni þinni. Vinsamlegast lestu þær vandlega þar sem þessar upplýsingar eru mjög mikilvægar.

3.1 ÞREP VIÐ NOTKUN Áður en þú byrjar að nota skaltu hlaða SWAGTRON® eininguna með meðfylgjandi rafmagnshleðslutæki. Hleðslutími getur tekið allt að 2-3 klukkustundir. Nánari upplýsingar um hvernig á að hlaða SWAGTRON®, sjá kafla 5.1 1. Ýttu á STRAUM (POWER) hnappinn til að kveikja á SWAGTRON® einingunni.


2. Stígðu á eitt FÓTSTIG til að kveikja á fótrofanum. Kerfið fer í sjálfjafnvægisstillingu. Stígðu síðan á hitt fótstigið með hinum fætinum. 3. Stattu uppréttur en afslappaður. Ekki gera neinar skyndilegar eða snöggar hreyfingar.

SWAGTRON® er með 4 skynjara undir fótstigunum. Þegar stigið er á fótstigin mun SWAGTRON® laga sig að jafnvægi sjálfkrafa. Ef SWAGTRON® fer ekki í sjálfjafnvægisstillingu þegar kveikt er á fótrofanum kviknar á viðvörunar LED. EKKI nota SWAGTRON® við þessar aðstæður. Vinsamlegast slökktu á einingunni og kveiktu aftur á henni. Ef þetta tekst ekki skaltu kvarða SWAGTRON® með því að fylgja leiðbeiningunum í kafla 3.3. Ef þú ert í brekku skaltu færa SWAGTRON® á slétt svæði. Ef þú ert enn að fá viðvörunarljós, hafðu strax samband við söluaðila SWAGTRON®. ATH.: Þegar þú hjólar á SWAGTRON® verður þú að ganga úr skugga um að báðir fæturnir snerti fótstigin til að greina það rétt. Ekki setja aðra hluti á fótstigin þar sem það gæti valdið því að kerfið læsist eða ekur sjálft.

ATH.: + Ekki halla fram eða aftur yfir 10 gráður þar sem einingin getur bilað. + SWAGTRON® mun ekki virka ef einingunni er snúið á hvolf. + Forðist misjafnt eða grýtt yfirborð þar sem SWAGTRON® virkar ef til vill ekki. +Varastu brekkur eða halla sem er með meira en 30 gráðu halla + Þegar stjórnandinn fer yfir hámarkshraðann mun SWAGTRON® senda frá sér viðvörun.

3.2 YFIRLIT YFIR NOTKUN SWAGTRON® finnur jafnvægi og hreyfist vegna kraftmikils jafnvægis. Þetta er myndað með því að breyta líkamsþyngd þinni og notar innri gíróáttavita með hröðunartæki til að hreyfa sig miðað við þyngdarpunkt þinn. Þegar þú hallar þér fram, mun SWAGTRON® skynja aðgerðir þínar og hraða sér. Þegar þú þarft að snúa, hægðu á og færðu þyngdina varlega á vinstri eða hægri fæti til að snúa í gagnstæða átt. FÆRA SIG ÁFRAM Færið þyngdina fram til að komast beint áfram. STÖÐVA Færðu líkama þinn í upprétta, beina stöðu. SNÚA TIL VINSTRI Færið þyngdina örlítið af HÆGRA FÓTSTIGI til að beygja til vinstri. SNÚA TIL HÆGRI Færið þyngdina örlítið af VINSTRA FÓTSTIGI til að beygja til hægri.


. STIGIÐ AF SWAGTRON® Gakktu úr skugga um að SWAGTRON® sé alveg stöðvað, stígðu síðan af með ráðandi fæti og stígðu síðan fljótt af stað með hinum fætinum. Gæta skal sérstakrar varúðar þegar þú ert að stíga af í fyrsta skipti!

AFTUR Á BAK Færið þyngdina aftur á bak innan við 10º

STÖÐVA Færðu líkama þinn í upprétta, beina stöðu.

ÁFRAM Færið þyngdina áfram innan við 10º.

ATH.: + Forðastu að snúa skyndilega þegar þú hjólar hratt þar sem það getur valdið slysum. + Forðastu að hjóla til hliðar eða snúa í brekku. Sjálfsjafnvægisskynjararnir geta bilað og kunna að krefjast kvörðunar. + Ekki stíga á miðjan snúningspunkt SWAGTRON®. + Ef T1 snýst á hvolf eða snýst meira en 180º verður mótor og aksturshæfni óvirk. Til að endurheimta eðlilegar aðgerðir skaltu slökkva á tækinu og kveikja á aftur á því. Haltu áfram að hjóla eins og venjulega.

3.3 KVÖRÐUN Ef þitt SWAGTRON® virðist toga til vinstri eða hægri á meðan þú ekur, gætir þú þurft að kvarða skynjarana aftur. Ferlið þarf flatt, stöðugt yfirborð og mögulega hallamál (fæst í hvaða byggingavöruverslun sem er.) 1. Slökktu á SWAGTRON®. 2. Snúðu SWAGTRON® þar til bæði hjólin eru jöfn við jörðu. Við mælum með að nota hallamál fyrir besta árangur. 3. Meðan SWAGTRON® er enn í jafnri stöðu, haltu STRAUM-HNAPPI niðri til að kveikja á einingunni og haltu áfram að halda hnappinum niðri. 4. Bíddu í 3 sekúndur til viðbótar og þú heyrir eitt hljóðmerki. Slepptu STRAUM hnappi og LED ljósin að framan munu byrja að blikka. 5. Ýttu á STRAUM hnappinn til að slökkva á SWAGTRON®. 6. Ýttu aftur á STRAUM (POWER) hnappinn til að kveikja á ný kvörðuðu SWAGTRON einingunni. Ef SWAGTRON®. er enn ekki kvarðaður rétt, endurtakið skref 1 ~ 6 eða hafðu samband við söluaðila varðandi viðbótaraðstoð.

V – UPPLÝSINGAR UM RAFHLÖÐU Hlutur Gerð rafhlöðu Hleðslutími Spenna Þyngd Vinnuhitastig Hitastig við hleðslu Stærðir Rakastig við geymslu

Upplýsingar Lithium-Ion Rafhlöðupakki 2~3 klst 37V < 1,2 kg -15°C ~ 50°C 0°C ~ 40°C 158 x 88,5 x 59,5 mm 65±20%RH

5.1 SWAGTRON® HLAÐIÐ Til að tryggja sjálfan þig og aðra og til að lengja endingu rafhlöðunnar, vertu viss um að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum. 1. Settu hleðslutækið í jarðtengdan innstungu (100V-240V; 50-60Hz). 2. Gakktu úr skugga um að græna ljósið sé á, og tengdu síðan hinn enda hleðslutækisins inn í SWAGTRON®. 3. Ef hleðsla er á meðan snjallborðið er á, mun hleðsluljósið blikka appaelsínugult og hætta að blikka þegar hleðslu er lokið. Ef hleðsla er á meðan slökkt er á brettinu loga engin ljós. 4. Heildarhleðslutími er um það bil 2-3 klukkustundir. Ef þú hefur tapað hleðslutækinu, týnt því eða skemmt hleðslutækið, hafðu samband við söluaðila. Við notkun, ef kerfið lendir í villu eða er rangt notað, mun SWAGTRON® láta stjórnandann vita með viðvörun og stöðuljósunum. ATH.: + Þegar rafhlaðan er fullhlaðin, vinsamlegast HÆTTU hleðslu og aftengdu tækið. + Vinsamlegast hafðu umhverfi hleðslu hreint og þurrt. +Ef op hleðslutengis er rakt eða það er einhver vökvi í því skaltu EKKI hlaða SWAGTRON®. + Til þess að rafhlaðan noti hámarks skilvirkni, forðastu að hlaða SWAGTRON® í mjög heitu eða mjög köldu umhverfi. Ekki hlaða rafhlöðuna í eftirfarandi tilvikum: + Það er mikil lykt eða hiti. + Leki eða sýnilegt tjón. Að taka í sundur rafhlöður og viðhald rafgeyma skal aðeins framkvæma af viðurkenndum fagaðila. EKKI snerta eða neyta neinna efna sem leka út úr rafhlöðunni. Ekki leyfa börnum og dýrum að snerta eða neyta rafhlöðunnar.


5.2 VÍSUN Á STIG RAFHLÖÐU Þegar rafhlöðuvísirinn er á lægsta stigi eða byrjar að blikka, VERÐUR að hætta notkun SWAGTRON® strax. ATH.: +Ekki er hægt að slökkva á gaumljósum. Hættu strax að hjóla á SWAGTRON® ef viðvörunarljósið blikkar. Þegar SWAGTRON® er með lítið afl getur verið að einingin geti ekki náð sjálft jafnvægi. + Ef rafhlaðan er ofhlaðin er hitastig hennar orðið of heitt. Stutt hljóðmerki heyrist kerfisvísirinn byrjar að blikka. Hægðu smám saman, farðu af og slökktu á einingunni til að láta kólna. Þegar rafhlaðan og einingin hafa haft tíma til að kólna mun hún fara í gang eins og venjulega. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu ekki hjóla á eininguna og hafa strax samband söluaðila.

5.3 SVIÐ Á HLEÐSLU Meðalvegalengd sem þú getur hjólað með SWAGTRON á fullri hleðslu er á bilinu 11,2 til 19 kílómetrar. Hins vegar þarf að huga að mörgum þáttum þegar raunverulegt svið á hleðslu er ákvarðað. Þáttur Hraði og stíll þegar hjólað er Landslag Þyngd Hitastig

Athugasemd Haltu hraða í meðallagi, stöðugum hraða. Tíð gangsetning, stopp, hröðun og hraðaminnkun dregur úr sviðinu. Gróft landsvæði eða brekkur geta minnkað svið þitt vegna notkunar mótors. Hjólaðu á sléttum eða jöfnum vegum fyrir hámarksárangur. Þyngd þess sem hjólar getur haft áhrif á vegalengdina. Forðist of heitt eða of kalt umhverfi, þar sem mótorinn mun draga úr afli til að verja sig.

Ef spenna rafhlöðu er of lág eða of mikil meðan á notkun stendur mun SWAGTRON® fara í slökkta stillingu eftir 15 sekúndur til að verja innri íhluti fyrir skemmdum.

VI – VIÐHALD Það þarf að viðhalda þínu SWAGTRON® til að veita bestu upplifun. Fylgdu eftirfarandi ráðum og áminningum hér að neðan til að halda SWAGTRON TM gangandi í toppstandi. ATH.: + Vertu alltaf viss um að SLÖKKT sé á STRAUM og ekki sé verið að hlaða eininguna meðan á viðhaldi stendur. + Tilraun til að gera við eða breyta SWAGTRON® þínum getur ógilt allar ábyrgðir. Aðeins viðurkenndar viðgerðarstöðvar mega opna og þjónusta SWAGTRON®.

6.1 HREINSUN Rétt þrif á SWAGTRON® geta stuðlað að lengri líftíma og betri upplifun við notkun. + Þurrkaðu ytri hluta / skel SWAGTRON með mjúkum, þurrum örtrefjaklút. + Athugaðu í kringum hjólin og vertu viss um að það sé engin hindrun. Hönnun SWAGTRON® gerir kleift að auðvelda viðhald á hjólum. + SWAGTRON® þolir skvettur. Hins vegar skaltu ekki sökkva SWAGTRON® í vatn. + Ekki láta vatn og vökva komast í rafmagnshluta eða rafhlöðu SWAGTRON®.

6.2 GEYMSLA Hér að neðan eru nokkur ráð sem þarf að hafa í huga þegar SWAGTRON® einingin er geymd. + Áður en SWAGTRON® er geymt skaltu hlaða rafhlöðuna að fullu til að forðast afhleðslu vegna notkunarleysis. + Afhlaðið og hlaðið rafhlöðuna að minnsta kosti á 3ja mánaða fresti einu sinni í mánuði + Geymið SWAGTRON® innandyra við þurrt og viðeigandi hitastig við -10 ° C til 50 ° C. Geymið EKKI í óhituðum bílskúr eða skúr.

VII – SWAGTRON® T1 TÆKNILÝSING Hlutur

Upplýsingar

Nettó þyngd Stærðir Hæð á grind Hæð á fótstigi Efni í grind Efni í hjólbörðum Hámarkshraði Snúningsradíus

10 kg 58,4 x 10,1 x 17,8 cm 2,99 cm 10,9 cm Tvöföld úr varanlegu efni með UL samþykktu efni Gegnheil gúmmídekk / álfelgur 12,8 km/klst 0°


Klifurgeta Hámarksbyrði Lágmarksþyngd Afl Gerð rafhlöð Hlíf yfir rafhlöðu Spenna hleðslutækis

30° 100 kg 20 kg 100V – 240V Endurhlaðanleg Lithium-Ion rafhlaða ADC10 álhús 42Vdc, 2A Gerð SPS-T844202000-C8 framleitt af SHENZHEN DOKOCOM ENERGY TECHNOLOGY CO LTD (E307126) Inntak:100-240Vac,50/60Hz, úttak:42Vdc,2A Gerð AOI-08420200DD1 framleitt af DONGGUAN AOI ELECTRONIC TECHNOLOGY CO LTD (E361957) Inntak:100-240Vac,50/60Hz +Uttak:42Vdc,2A

SHENZEN ZHOUWU TECHNOLOGY C. LTD

EB SAMRÆMISYFIRLÝSING FRAMLEIÐANDI: SHENZHEN ZHOUWU TECHNOLOGY CO., LTD. 2TH FLOOR BLOCK C GETAILONG INDUSTRIAL PARK NO.227 BULONG ROAD BANTIAN LONGGANG, SHENZHEN, GUANGDONG, KÍNA TÆKNILEG GÖGN VORU BÚIN TIL AF: SHENZHEN ZHOUWU TECHNOLOGY CO., LTD. 2TH FLOOR BLOCK C GETAILONG INDUSTRIAL PARK NO.227 BULONG ROAD BANTIAN LONGGANG, SHENZHEN, GUANGDONG, KÍNA HÉR MEÐ ER ÞVÍ LÝST YFIR AÐ VARAN SEM LÝST ER HÉR AÐ NEÐAN: NAFN: Svifbretti GERÐ: T1 Pro VÖRUMERKI: RAÐNÚMER: FRAMLEIÐSLUÁR: 2019 ER Í SAMRÆMI VIÐ EFTIRFARANDI TILSKIPANIR: Tilskipun um vélar: MD 2006/42/EB Lágspennutilskipun: LVD 2014/35/EB OG ER Í SAMRÆMI VIÐ EFTIRFARANDI STAÐLA: EN ISO 12100:2010 EN 60204-1:2018 Nafn og heimilisfang aðila sem má sækja tækniskjölin Fullt nafn: Guðni Kristjánsson Fyrirtæki: Actus ehf Heimilisfang: Norðlingabraut 4, 110 Reykjavík, Ísland

Gert í: Kína, þann 24.12.2019


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.