Eystrahorn 26. tbl. 2015

Page 1

Eystrahorn Fimmtudagur 13. ágúst 2015

25. tbl. 33. árgangur

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Flugeldasýning á Jökulsárlóni Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 15. ágúst klukkan 23:00. Flugeldasýningin er árlegur viðburður og er þetta í fimmtánda sinn sem sýningin er haldin. Fjöldi áhorfenda hefur farið stigvaxandi með ári hverju og undanfarin ár hafa á annað þúsund manns komið ár hvert til að njóta sýningarinnar. Uppruna flugeldasýningarinnar má rekja til uppskeruhátíðar starfsfólks við Jökulsárlón, og smám saman vatt hún upp á sig. Undirbúningur fyrir sýninguna hefst fyrr um daginn þegar menn á gúmmíbáti fara um lónið og raða 150 friðarkertum á ísjaka. Um kvöldið er kveikt á kertunum og síðan skotið upp flugeldum á nokkrum stöðum á lóninu. Sýningin varir í u.þ.b. 40 mínútur. Upplýstir ísjakarnir eru baðaðir í litum og birtu frá stórkostlegri flugeldasýningu í magnaðri umgjörð náttúrunnar sem skapar einstaka upplifun fyrir áhorfendur. Ferðaþjónustan Jökulsárlóni og Björgunarfélag Hornafjarðar standa að sýningunni í samstarfi við Ríki Vatnajökuls. Aðgangseyrir er 1000 krónur og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði rennur til Björgunarfélags Hornafjarðar. Sætaferðir verða frá Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri, Skaftafelli og Freysnesi.

Kirkjudagur á Brunnhóli

Næsta sunnudag þann 16. ágúst höldum við kirkjudag á Brunnhóli. Hann hefst með messu í Brunnhólskirkju kl. 14:00. Eftir messuna er kirkjugestum boðið að þiggja kaffiveitingar í Holti sem konur í kvenfélaginu Einingu reiða fram af sínum alkunna myndarskap. Við þetta tækifæri munu söngvinnir Mýramenn taka lagið. Enginn aðgangseyrir verður innheimtur en gestum er boðið að leggja í fjárhirslu kirkjunnar eftir efnum og ástæðum. Eins og sést þarf kirkjan á umhyggju að halda og þráir viðhald. Til að mynda eru tímabærar endurbætur á kirkjutröppunum en margt annað mætti nefna. Hér er tækifæri til að krækja í andlega næringu í messunni og síðan líkamlega á eftir auk þess að láta nokkuð af hendi rakna til kirkjunnar sem án efa gefur góða líðan í sálartetrið.

Sýning um 100 ára sögu kvenréttindabaráttu á Ísland

Í tilefni að því að í ár eru liðin 100 ár frá því konur á Íslandi fengu kosningarrétt ákvað Kvenréttindafélag Íslands að setja upp sýningu til heiðurs þeim merka viðburði sem skyldi ferðast um landið milli 12 sveitarfélaga. Sveitarfélagið Hornafjörður fékk þann heiður að hafa sýninguna í ágústmánuði, en þar segir frá kvenréttindabaráttunni allt frá lokum 19 .aldar og til dagsins í dag. Við hvetjum alla til þess að mæta og kynna sér þessa merku sögu. Sýningin verður opin út ágústmánuð hér á Höfn í Ráðhúsi Hornafjarðar og er opin alla virka daga frá klukkan 9-15. Opnun sýningarinnar var 10.ágúst síðastliðinn og var vel mætt enda fróðleg sýning með eindæmum.


www.eystrahorn.is

Fimmtudagur 13. ágúst 2015

Eystrahorn

Ólöf K. Ólafsdóttir augnlæknir

verður með stofu á Heilsugæslustöð Hornafjarðar dagana 25. - 27. ágúst nk. Tímapantanir í síma 470-8600 virka daga. ATH ekki er tekið við kortum.

Kirkjudagur á Brunnhóli

Sunnudaginn 16. ágúst Messa í Brunnhólskirkju kl. 14:00 Kaffiveitingar og söngskemmtun í Holti eftir messu Tekið er á móti framlögum til Brunnhólskirkju Styrktaraðilar eru: Kvenfélagið Eining á Mýrum Sveitarfélagið Hornafjörður o. fl. Sóknarnefndin og prestarnir

Menntastoðir Nýttu tækifærið til náms í heimabyggð!

Fræðslunetið býður uppá nám í Menntastoðum næsta vetur. Námið er metið til eininga á framhaldsskólastigi og veitir réttindi til að hefja nám á háskólabrú eða í frumgreinadeildum háskóla. Um er að ræða dreifnám með staðlotum, og hentar því fólki á öllu Suðurlandi allt frá Höfn í Hornafirði til Þorlákshafnar. Námið hefst með staðlotu á Selfossi í september 2015. Fyrir hvern? Námið er ætlað þeim sem ekki hafa lokið framhaldsskóla.

Stafafellskirkja

Minnum á árlegan kirkjudag í Stafafellskirkju 23. ágúst kl. 14:00. Kirkjukaffi í Fundarhúsinu eftir messu. Prestarnir

Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Helstu kennslugreinar eru: íslenska, enska, danska, stærðfræði, bókfærsla og upplýsingatækni.

Hvar Á öllu Suðurlandi (dreifnám) Hvenær Veturinn 2015 - 2016 Verð 128.000 - ath. styrki stéttarfélaganna Lengd 660 kennslustundir

JASPIS Fasteignasala

Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: .............. albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: .............. Litlaprent ISSN 1670-4126

Snorri Snorrason lögg. fasteignasali Litlubrú 1 780 Höfn 478-2000 snorri@jaspis.is

Nýtt á skrá

Hæðagarður

Til sölu 113,4m² einbýlishús og 33,6 m² bílskúr, 3 svefnherbergi, laust fljótlega.

Nýtt á skrá

Kirkjubraut

Mikið endurnýjað 121,0 m² einbýlishús ásamt 33,1 m² bílskúr, samtals 154,1 m², nýtt eldhús, 2 verandir.

hrísbraut

til sölu

Rúmgott 145 m² einbýlishús ásamt 42,5 m² sólstofu, um 21 m² viðbyggingu og 33,4m² bílskúr, samtals 241,9 m². Frábær lóð með garðhúsi, getur losnað fljótlega.


Eystrahorn

Fimmtudagur 13. ágúst 2015

www.eystrahorn.is

Viltu ung leg ra ú t li t , slé t t a ri h ú ð o g hr a ust ari lík a m a ? Kíktu þá á kynningu á Jeunesse húð- og bætiefnalínunni þriðjudagskvöldið 18. ágúst og miðvikudagskvöldið 19. ágúst, sem hefst bæði kvöldin kl. 20:00 í Slysavarnarhúsinu. Húðvörulínan heitir Luminesce og skilar ótrúlegum árangri í að hreinsa, þétta og endurnýja húðina, þannig að hrukkur grynnka, sólarskemmdir hverfa, svo og rósroði, exem og psoriasis. Gjafaprufur af Instantly Ageless kreminu, sem gerir þig 10 árum yngri á 2 mínútum, fyrir alla sem mæta. Bætiefnalínan veitir aukna orku, meira úthald, aukna kynorku, betri nætursvefn og gerir okkur í raun yngri að innan. Allir velkomnir á kynninguna sem er á vegum Hársnyrtistofunnar Flikk. Vinsamlegast tilkynnið mætingu í síma 478-2110 hjá Birnu Sóley.

Guðrún Bergmann heilsuráðgjafi og rithöfundur og Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir snyrtifræðimeistari sjá um kynninguna.

www.n1.is

facebook.com/enneinn ÍSLENSKA/SIA.IS ENN 75599 08/15

N1 á Höfn óskar eftir kraftmiklu og áreiðanlegu starfsfólki til framtíðarstarfa Við leitum að þjónustufúsu fólki sem er lipurt í mannlegum samskiptum. Stundvísi, reglusemi, snyrtimennska og kurteisi eru skilyrði. Reynsla af störfum í verslun og þjónustu er mikill kostur. Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Þórarinn Birgisson í síma 820 9078.

Helstu verkefni

Hæfniskröfur

• Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini

• Þjónustulund

• Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni

• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

• Samskiptafærni

• 18 ára eða eldri

Hluti af atvinnulífinu VR-15-025


www.eystrahorn.is

Fimmtudagur 13. ágúst 2015

Frá Ferðafélaginu

Fjölskylduferð - sullumbusl

Eystrahorn

Lausar lóðir gatnagerðargjöld felld niður

Tröllatjörn í Geithellnadal í Álftafirði Laugardaginn 15. ágúst

Lagt af stað frá tjaldstæðinu kl. 10:00 og ekið að Múla, genginn hringur með viðkomu í Tröllatjörn sem er flott náttúrusmíð, þar er hægt að vaða, sulla og synda í tjörninni. Ferðatími um 5-6 tímar. Muna eftir nesti, klæðnaði eftir veðri og handklæði. Verð 1000 kr. fyrir 18 ára og eldri. Séu hundar með skal hafa ól meðferðis. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Ragna í síma 662-5074.

Næstu ferðir: - 29. ágúst - Grasgiljatindur í Hoffellsdal - 26. september - Hvannagil - Bæjardalur í Lóni

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 9. apríl að fella niður gatnagerðargjöld, lóðahafar fá lóðirnar endurgjaldslaust. Þær lóðir sem eru lausar á Höfn eru merktar inn á myndina með fréttinni. Lóðirnar eru fyrir 18 einbýli 8 fjölbýli og eitt parhús. Lóðaumsóknir fara fram í gegn um íbúagátt sveitarfélagsins https://ibuagatt.hornafjordur. is. Reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda og gjaldskrá embættis bygginga- og skipulagsfulltrúa má finna á heimasíðunni. Nánari upplýsingar má nálgast í síma 470 8000 eða í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Viltu vera hluti af hópnum?

Starfsfólk óskast í eftirfarandi stöður á Hótel Höfn: - Umsjónarmann í þvottahúsi hótelsins - Pizzabakara - Pizzabílstjóra

Ef þú ert hress og jákvæður og hefur áhuga endilega hafðu samband við okkur annaðhvort í síma 478 1240, með því að senda tölvupóst á netfangið hotelhofn@hotelhofn.is eða komdu á staðinn og hittu á okkur.


Fimmtudagur 13. ágúst 2015

Ljótt að sjá

NÝTT - NÝTT

Vorum að fá vinsælu Tulipop barnavörunar. Í þeim var að koma glænýjar og frábærar vörur fyrir skólann sem hefur bæst við sístækkandi ævintýraheim Tulipop.

www.eystrahorn.is

Flestir flokka samviskusamlega í endurvinnslutunnurnar en það eru alltaf einhverjir sem bregðast. Það sem er á disknum á myndinni á ekki að sjást í endurvinnslutunnunum. Stöndum saman um úrbætur í mikilvægu umhverfismáli.

Vörurnar sem um ræðir eru fallegar og litríkar skólatöskur, sundpokar og pennaveski. Verið velkomin

Húsgagnaval

Opið virka daga kl. 13 - 18 478-2535 / 898-3664

Næstu heimaleikir

Eystrahorn

1. deild kvenna - Sindravellir Laugardaginn 15. ágúst kl. 14:00 Sindri – Völsungur TM tryggingar bjóða frítt á leikinn Sunnudaginn 16 ágúst kl. 14:00 Sindri – Höttur Hótel Höfn býður frítt á leikinn 4. deild karla - Mánavöllur Laugardaginn 15. ágúst kl. 16:00 Máni – Léttir 4. flokkur kvenna - Sindravellir Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 17:00 Máni – Höttur

Endurvinnslan

leitar að nýjum umboðsaðila

Endurvinnslan hf. auglýsir eftir áhugasömum aðila til að taka að sér móttöku á skilaskyldum drykkjarumbúðum á Höfn á Hornafirði. Umboðsaðilar þurfa að taka við drykkjarumbúðum, greiða út skilagjald og koma drykkjarumbúðum áfram til flutningsaðila. Umboðsaðilar okkar eru ýmist einstaklingar, félagasamtök eða fyrirtæki. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu Endurvinnslunnar í síma 588-8522 eða á netfangið evhf@evhf.is

HVER FLASKA SKIPTIR MÁLI


1.495 kr.

Stór ostborgari

1.745 kr.

Steikarsamloka

franskar, lítið Prins Póló og 0,5 l Coke í dós

franskar og 0,5 l Coke í dós

Veitingatilboð 199 kr.

Ís í brauð­ formi Lítill

239 kr.

299 kr.

Ís í brauð­ formi Lítill með dýfu

Pylsa með öllu

N1 Höfn Sími: 478 1940

Spennandi störf hjá Sveitarfélaginu Hornafirði

Hornafjörður er blómstrandi 2200 manna samfélag sem byggir á sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Öflugt menningar- og félagslíf er í sveitarfélaginu. Fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni. Nýheimar þekkingarsetur er mennta- og fræðastofnun þar koma saman Rannsóknasetur Háskóla Íslands, Náttúrustofa Suðausturlands, Framhaldskóli, Hornafjarðarsöfn, Matís og Fræðslunet Suðurlands. Stuðningur við frumkvöðla t.d. FAB LAB smiðja er í Vöruhúsi. Öll almenn þjónusta er til staðar í sveitarfélaginu og má þar nefna tónskóla, líkamsrækt, knatthús, sundlaug og heilbrigðisstofnun. Samgöngur til Hafnar eru greiðar, beint flug og strætó.

Sveitarfélagið leitar að öflugu starfsfólki sem vill starfa á skemmtilegum og fjölskylduvænum vinnustað

▪ Skipulagsstjóri

▪ Verkefnastjóri Heimaþjónustudeild

▪ Ljósmóðir HSU Hornafirði

▪ Heimaþjónustudeild

▪ Hjúkrunardeild HSU Hornafirði

▪ Húsvörður Nýheimum

Yfirmaður skipulags- og tæknisviðs

Mæðra- og ungbarnavernd

Sjúkraliðar og aðhlynning

Þroskaþjálfi eða sambærileg menntun

Frekari liðveisla og félagsleg heimaþjónusta

Almenn húsvarsla, viðhald og þrif

▪ Leikskólar

Leikskólakennarar og starfsfólk á deild

Nánari upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is/atvinna eða í síma 470 8000. Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst.

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.