Eystrahorn 33. tbl. 2015

Page 1

Eystrahorn Fimmtudagur 1. október 2015

33. tbl. 33. árgangur

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Uppskeruhátíð fótboltans

Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildar Sindra var haldin 19 september. Um morguninn mættu yngri flokkarnir í Báruna, farið var í leiki, veittar viðurkynningar og að lokum voru svo grillaðar pylsur. Um kvöldið gerðu svo meistaraflokkar Sindra upp sumarið og bauð stjórnin upp á veislu í Slysavarnahúsinu.

Viðurkenningar Fyrsti meistaraflokksleikur: Aðalheiður Ármannsdóttir Freyja Sól Kristinsdóttir Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir Regielly Oliveira Rodrigues Thelma Ýr Sigurðardóttir Ylfa Beatrix N. Stephensdóttir Ási Þórhallsson

Guðjón Bjarni Stefánsson Ísar Svan Gautason Róbert Marvin Gunnarsson

Mikilvægasti leikmaður meistaraflokks kvenna: Inga Kristín Aðalsteinsdóttir.

100 leikir með mfl.:

Bestu leikmennirnir:

Ingvi Ingólfsson.

Ingibjörg Valgeirsdóttir og Einar Smári Þorsteinsson.

Efnilegustu leikmennirnir: Ólöf María Arnardóttir og Ívar Örn Valgeirsson.

Bleika slaufan Krabbameinsfélag Suð-Austurlands verður með fræðslukvöld fyrir konur þriðjudagskvöldið 27. október 2015 í tengslum við bleikan október. Nánar auglýst síðar. Í tengslum við bleiku slaufuna í október skorum við á öll heimili, skóla, stofnanir og fyrirtæki í sveitarfélaginu til að taka þátt í verkefni sem felst í því að búa til bleika slaufu og láta hana hanga utan á húsinu allan október mánuðinn. Slaufurnar geta verið í ýmsum stærðum og gerðum. Fjölskyldan, skólar, stofnanir og starfsfólk fyrirtækja geta tekið sig saman og unnið að verkefninu saman. Hægt er að búa til slaufur úr allskonar efni, mála, prjóna, hekla, vefja, rafsjóða, smíða, leira, skera út, saga, klippa, kasta ljósi á vegg. Hægt er að nota plast, tré, járn, tau, gler, blóm, perlur, seríu, hvað sem hverjum og einum dettur í hug, bara að útkoman verði BLEIK SLAUFA. Síðan takið þið mynd af slaufunni og sendi okkur á netfangið eyraxe@simnet.is. Með fyrirfram þökk fyrir þátttökuna. Krabbameinsfélags Suð-Austurlands.

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is


2

Fimmtudagur 1. október 2015

Frá Samkór Hornafjarðar Nýir söngfélagar eru velkomnir í Samkór Hornafjarðar. Framundan eru spennandi verkefni á afmælisári Hafnarkirkju og Bjarnaneskirkju: Aðventutónleikar við upphaf afmælisársins á 1. sunnudegi í aðventu, 29. nóvember, afmælistónleikar laugard. 28. maí og annað tengt afmælisárinu. Ókeypis raddþjálfun er í boði fyrir kórfélaga. Æfingar eru á þriðjudögum kl. 20:00 - 22:00 í Hafnarkirkju. Áhugasamir hafi samband við Stefaníu í síma 661-7525 eða Kristínu í síma 860-2814 eða mæti á æfingu.

Frjálsar íþróttir Æfingar í frjálsum íþróttum: - Mánudaga klukkan 18:00 - Miðvikudaga klukkan 19:30 - Fimmtudaga klukkan 18:00 Mæting á æfingar er fyrir aftan íþróttahúsið. Þjálfari er Hilmar Kárason. Helgina 9.-11. október verða haldnar æfingabúðir í frjálsum íþróttum á Höfn og mun Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari ÍR koma til okkar og sjá um þær. Við fáum einnig gesti frá ÚÍA til að vera með okkur í æfingabúðunum. Nánari dagskrá helgarinnar verður auglýst síðar.

Tippstofan Sindrahúsinu Opin alla laugardaga kl. 11:00 – 13:00. - Heitt á könnunni. - Leikir á skjánum. - Milljónir í boð. Styrkjum Sindra! Getraunarnúmerið er 780.

Eystrahorn Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: .............. albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: .............. Litlaprent ISSN 1670-4126

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Andlát

Helgi Björnsson Helgi Björnsson fæddist á Kvískerjum í Öræfum 2. febrúar 1925. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu á Höfn sunnudaginn 27. september 2015. Foreldrar hans voru Björn Pálsson f. 22. 3. 1879, d.14.5.1953 og Þrúður Aradóttir f. 11.5.1883 d. 5.2.1968. Helgi var næst yngstur þrettán systkina. Þau eru Flosi Þorlákur f. 1906, d. 1993. Guðrún f. 1908, d. 1991. Ari f. 1909, d.1982. Guðrún f. 1910, d. 1999. Páll f. 1913, d. 1913. Páll f. 1914, d. 1993. Óskírður drengur f. 1916, d. 1916. Sigurður f. 1917, d. 2008. Jón Arnljótur f. 1919, d. 1919. Ingimundur f. 1921, d. 1962. Óskírð stúlka f. 1922, d. 1922. Hálfdán f. 1927. Einnig ólst upp á Kvískerjum Finnbjörg Guðmundsdóttir f. 1941, d. 2002. Helgi ólst upp á Kvískerjum og bjó þar alla tíð. Snemma komu í ljós hæfileikar hans á mörgum sviðum. Hann var laghentur á flestum sviðum, góður smiður, hönnuður og teiknari og liggja eftir hann margir gripir og uppfinningar. Þeir bræður á Kvískerjum í félagi við móðurbróðir sinn Helga Arason keyptu fyrsta vörubílinn sem kom í Öræfin 1942. Helgi Björnsson var mjög áhugasamur um bílinn, fannst gaman að keyra og var hrifinn af þeim möguleikum sem bíllinn veitti. Hann vann á skurðgröfu í Öræfum þegar farið var að ræsa fram mýrar og rækta tún og var mikill áhugamaður um virkjanir og raflýsingu. Fyrsta rafstöðin var sett upp á Kvískerjum 1927, síðar var hún bæði flutt og endurbætt að hætti Helga og var stöðin hans áhugamál fram á síðasta dag. Hann var í eðli sínu mikill náttúruunnandi og hafði glöggt auga fyrir jarðfræði. Það var hans líf og yndi að fara í fjallgöngur og njóta náttúrunnar. Helgi dvaldi síðustu tvö ár á Hjúkrunarheimilinu og naut þar góðrar umönnunar. Útför Helga fer fram frá Hofskirkju laugardaginn 3. október kl 14:00.

Austur-Skaftfellingar athugið! Frá 1. október nk. mun opnunartími umboðs Tryggingastofnunar ríkisins og Sjúkratrygginga Íslands hjá embætti sýslumannsins á Suðurlandi á Höfn, breytast og mun umboðið vera opið frá þriðjudegi-fimmtudags, kl. 9:00-14:00. Vakin er athygli á að þetta er breyting frá fyrri opnunartíma umboðsins. Sýslumaðurinn á Suðurlandi


Eystrahorn

Fimmtudagur 1. október 2015

Blak – Blak - Blak

3

RAFBYLGJUMÆLINGAR OG VARNIR! Kem á staðinn og framkvæmi fyrstu mælingu ókeypis. Upplýsingar gefur Garðar Bergendal í síma 892 3341 Leitið upplýsinga á www.gardar.info

Nú eru blakæfingar komnar á fullt í íþróttahúsinu.

Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum. •

4.-7. bekkur, þriðjudaga kl. 17:00 og fimmtudaga kl. 16:10 kk. og kvk.

8. bekk - 1. FAS, þriðjudaga kl. 18:00 og fimmtudaga kl. 17:10 kk. og kvk.

Mfl. kk. þriðjudaga kl. 19:00 og fimmtudaga kl. 19:15.

Mfl. kvk. þriðjudaga kl. 20:30 og fimmtudaga kl. 18:00.

Allir velkomnir í blak. Blakdeild Sindra.

Dagforeldrar í Suðursveit og Öræfum Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir áhugasömum aðilum sem vilja gerast dagforeldrar í Öræfum eða Suðursveit. Um er að ræða daggæslu í heimahúsi, en heimilt er að rækja starfið í öðru húsnæði eftir samkomulagi og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Dagforeldrar geta verið með 4-5 börn í gæslu í einu og er dvalartími alla virka daga allt að 9 tímar á dag, sveitarfélagið niðurgreiðir til foreldra allt að 8 tíma á dag. Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi. Félagsmálanefnd Hornafjarðar veitir starfsleyfi til dagforeldra og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni en býður einnig fram stuðning til að uppfylla ákvæði laga og reglna um daggæslu í heimahúsum og útvega faglega ráðgjöf við dagforeldrana. Í dag vantar vistun fyrir þrjú börn í Öræfum og fjögur börn í Suðursveit, öll börnin eru á leikskólaaldri. Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóra í s. 470-8000 eða í netfangið jonkr@hornafjordur.is

Garðar byrjaði að mæla rafbylgjur úr jörðu og rafbylgjur sem kom úr tenglum, tölvum, gsm símum og ljósum. Allar þessar bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur og geta valdið ýmsum kvillum, svo sem: - Mígreni - Höfuðverk - Svefntruflunum - Vöðvabólgu - Exemi - Þurrk í húð vegna tölvu Lamba- og ærdauði gæti verið út frá rafmagni.

- Fótverkjum - Júgurbólgu - Myglusvepp - Skepnudauða - Fósturskaða í dýrum

ðum Verð á Egilsstö næstu daga

Hundaeigendur athugið Hundaeigendum er bent á að í gildi eru reglur um hundahald í sveitarfélaginu, þar kemur fram að; Hundur skal ávallt bera ól um hálsinn með plötu sem er skráningarnúmer dýrsins og símanúmer eiganda hans. Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa nema á afmörkuðum svæðum t.d. á Höfn í Lyngey. Hundar skulu ávallt vera í taumi utanhúss Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar vera í hæfilegri fjarlægð frá aðaldyrum hússins Hundaeiganda ber ávallt að fjarlægja saur eftir hundinn Eigendum hunda sem fluttir er í hundageymslu skal greiða gjald skv. gjaldskrá sveitarfélagsins áður en hundurinn er afhentur. Sé hundur ekki örmerktur skal eigandi hans greiða fyrir örmerkingu og skráningu áður en hundurinn er afhentur.


4

Fimmtudagur 1. október 2015

Til sjós og lands Dúett í þágu góðs málefnis að Smyrlabjörgum 10. október 2015

Laugardaginn 10. október kl. 19:30 verður haldið góðgerðarkvöld á Hótel Smyrlabjörgum. Þar verður borðað til góðs og skemmtiatriði í þágu góðs málefnis. Allur hagnaður af kvöldinu rennur til verkefna í þágu fatlaðra í sveitarfélaginu að höfðu samráð við félagsmálayfirvöld. Styrkirnir verða afhentir í lok dagskrárinnar um kvöldið, að öllum gestum viðstöddum. Það verður boðið upp á glæsilegan matseðil; Kótilettur, saltfisku og meðlæti, ís í eftirrétt. Glæsileg skemmtidagskrá verður í boði og þar koma m.a. fram: •

Atriði frá Tónskóla A-Skaftafellssýslu.

Hagyrðingar

Páll Rúnar Pálsson söngvari frá Heiði í Mýrdal.

Harmonikkubræður

Hilmar og fuglarnir

Andri Páll Guðmundsson ungur söngvari

Hermann Árnason eftirherma

Brottfluttir Hornfirðingar eru hvattir til að mæta. Tryggið miða með því að greiða 4,000 kr. á mann inn á reikning 0172-26-526 kt. 3010522279. Tilboð; Matur, gisting og morgunmatur 8,000- kr. á mann, 16,000.- kr. fyrir hjón. Nánari upplýsingar á Smyrlabjörgum í síma 478 1074. Matur, skemmtikraftar og öll vinna er framlag fyrirtækja og einstaklinga til góðs málstaðar. Helstu stuðningsaðilar góðgerðakvöldsins eru:

Eystrahorn Seljavellir - kartöflur

Almennur félagsfundur Boðað er til almenns félagsfundar í Framsóknarfélagi A.- Skaft. fimmtudaginn 1. okt. kl. 20:00 í húsnæði félagsins við Álaugarveg. Dagskrá: 1. Bæjarmálin. 2. Kjör fulltrúa á Kjördæmisþing. 3. Önnur mál. Stjórnin

Eystrahorn

Bútasaumur og önnur handavinna

Nú er bútasaumsfélagið Ræmurnar að hefja sitt 17. starfsár. Stefnt að því að fara á handavinnusýningu til útlanda og læra þar ýmislegt nýtt, sem við getum svo miðlað með hverri annarri. Einnig ætlum við að hitta konurnar sem búa austan við okkur eftir áramót og eyða með þeim helgi. Sá hittingur verður líklega á Breiðdalsvík. Félagið er með aðstöðu á efri hæð í Verkalýðshúsinu og hittast ýmist á fimmtudögum frá kl. 18:00 og sunnudögum frá kl. 9:00. Áætlað er að hittast 4. og 22. október svo mánaðarmótin 30. október til 1. nóvember, löng saumahelgi frá föstudagskvöldi fram á sunnudag, svo 19. nóvember og 3. desember. Við ætlum að vera með opinn handavinnu hitting sunnudaginn 4. okt. þar sem þeir sem eru að gera annarskonar handavinnu en bútasaum eru boðnir velkomnir með sína handavinnu. Svo tökum við glaðar á móti nýjum félögum. Nanna Gunnarsdóttir, Sigrún Ingólfsdóttir og Valdís Kjartansdóttir

Opinn fundur Sjálfstæðisfélag A-Skaft. heldur almennan opinn fund mánudaginn 5. október kl. 17:30 á Hótel Höfn. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður ræðir um hagræðingu í ríkisrekstri Skapti Örn Ólafsson upplýsingafulltrúi Samtaka í ferðaþjónustu ræðir málefni ferðaþjónustunnar. Allir velkomnir Stjórnin


Eystrahorn

Fimmtudagur 1. október 2015

5

Endurvinnum meira Kæfisvefn Kæfisvefn var fyrir örfáum áratugum talinn sjaldgæfur enda var tækjabúnaður til greiningar fágætur og vanþróaður. Með aðgengilegri greiningu finnst sjúkdómurinn nú æ oftar og ekki síður vegna sterkra tengsla við sykursýki og offitu sem herja á vestræn þjóðfélög af vaxandi þunga. Kæfisvefn einkennist af hrotum, svefnröskunum, og öndunarhléum sem talin eru marktæk ef þau vara í 10 sekúndur eða lengur, þótt oftast séu þau lengri. Öndunarhléunum fylgir svo fall í súrefnismettun blóðrauðans, aukinn hjartsláttur og hækkun blóðþrýstings enda er kæfisvefn algeng ástæða hjartsláttartruflana svo sem gáttatifs auk háþrýstings Þegar öndunartruflanir koma fyrir 5 sinnum eða oftar á klukkustund telst kæfisvefn vera til staðar. Þegar öndunartruflanir eru 15-30 á klukkustund er kæfisvefn á meðalháu stigi og á háu stigi þegar öndunartruflanirnar fara yfir 30 á klukkustund. Öndunarhléin í kæfisvefni stafa oftast af þrengslum eða lokun einhvers staðar í efri hluta öndunarvegarins frá koki að nefi. Algengi kæfisvefns er um 4% meðal karla en 2% meðal kvenna í vestrænum þjóðfélögum en rannsóknir benda þó til að algengið sé hærra hérlendis. Helstu áhættuþættir eru offita, óeðlilegir mjúkvefir efri loftvega, erfðir og reykingar. Helmingur þeirra sem hafa líkamsþyngdarstuðul yfir 30 hafa kæfisvefn. Sjúklingar með kæfisvefn sofa illa vegna endurtekinna svefnraskana og eru þar af leiðandi sjaldnast úthvíldir þegar þeir vakna og auk þess gjarnan mjög syfjaðir þreyttir að degi til. Dánarlíkur fullorðinna með kæfisvefn eru tvö til þrefaldar á við jafnaldra sem ekki eru með sjúkdóminn vegna blóðrásartengdra vandamála, slysahættu og annarra ástæðna. Svefnrannsóknir í heimahúsum voru hafnar haustið 2013 á vegum sjúkrasviðs HSU. Til þessa hafa verið framkvæmdar 120 rannsóknir sem lesið er úr á sjúkrahúsinu á Selfossi. Áttatíu einstaklingar hafa greinst með kæfisvefn þar af 15 með sjúkdóminn á háu stigi og 28 á meðalháu stigi. Flestir þeirra hafa nú fengið svefnöndunartæki sem kemur í veg fyrir öndunarhléin og skaðlegar afleiðingar sjúkdómsins. Fh. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Björn Magnússon yfirlæknir sjúkrasviðs HSU á Selfossi

Föstudagshádegi Margrét Gauja Magnúsdóttir mun vera með fyrirlestur n.k. föstudag 2.október kl. 12:15 í Nýheimum um Plastlaust Ísland!

Allir hjartanlega velkomnir!!

Nú er kominn nýr farvegur fyrir blandað umbúðaplast til endurvinnslu. Þessi breyting byggir m.a. á breyttri gjaldskrá/endurgreiðslu frá Úrvinnslusjóði. Ný flokkun: •

Við getum núna leyft allt umbúðaplast frá heimilum í þennan flokk, blandað umbúðaplast.

Þetta plast verður að vera umbúðaplast frá heimilum, ekki iðnaðarplast.

Flokkum því ekki lengur í mjúkt og hart umbúðaplast.

Nýjar umbúðir sem núna eru leyfðar eru t.d. áleggsbréf (samsettar plastfilmur) og kaffipokar úr plasti.

Best að láta litaða plastfilmu fara með þessum flokk.

Plastumbúðirnar verða áfram að vera skolaðar og/eða lausar við óhreinindi.

Má ekki fara með:

Iðnaðarplast

Heimilisplast sem ekki eru umbúðir, t.d. garðstólar og garðhúsgögn, vatnsrör o.fl.

ATH. PIZZAKASSAR á að tæma og þeir mega vera með fitu. Sveitarfélagið Hornafjörður

Afmælisboð Í tilefni 50 ára afmælis Björgunarfélags Hornafjarðar ætla meðlimir sveitarinnar að bjóða íbúum í heimsókn sunnudaginn 18. október nk. Hvetjum við Hornfirðinga til að líta við hjá okkur í húsnæði félagsins og kynna sér starfsemina, aðstöðu og tæki sveitarinnar. Björgunarsveitarfólkið


ÓMAR GUÐJÓNSSON TÓMAS R. EINARSSON BRÆÐRALAG

Föstudagskvöld 2. október Höfn - Pakkhúsið kl. 21:00

Tónleikaferðalag - Ný plata Sunnudagskvöld 27. sept.

Miðvikudagskvöld 7. okt.

Garðabær - GARÐAHOLT kl. 20.30

mývatnssveit - reykjahlíðarkirkja kl. 20.30

Mánudagskvöld 28. sept.

Fimmtudagskvöld 8. okt.

reykjanesbær -BERG/HLJÓMAHÖLLIN kl. 20.30

Húsavík - GAMLI BAUKUR kl. 20.30

FORMLEG OPNUN FAB LAB SMIÐJUNNAR Þriðjudagskvöld 29. sept.

Föstudagskvöld 9. okt.

Grindavík - BRYGGJAN kl. 21.00

Akureyri - DEIGLAN kl. 21.00

Miðvikudagskvöld 30. sept.

Laugardagskvöld 10. okt.

Þorlákshöfn - RÁÐHÚS kl. 20.30

Siglufjörður - alþýðuhúsið kl. 21.00

Fimmtudagskvöld 1. okt. Kirkjubæjarklaustur - SYSTRAKAFFI kl. 20.30

Föstudagskvöld 2.okt. Höfn - PAKKHÚSIÐ kl. 21.00

Laugardagskvöld 3. okt. Djúpivogur - langabúð kl. 21.00

Sunnudagskvöld 4. okt. Neskaupsstaður - BRJÁN kl. 20.30

Mánudagskvöld 5. okt. Vopnafjörður - KAUPVANGSKAFFI kl. 20.30

Þriðjudagskvöld 6. okt. Þórshöfn - EYRIN kl. 20.30

Þar sem smiðjan okkar er orðin fullgild Fab Lab Sunnudagskvöld 11. okt. - BORGIN kl.og 20.30 smiðja, viljumSkagaströnd við fagna þeim áfanga opna hana Mánudagskvöld 12. okt. með formlegum hætti miðvikudaginn 30. september Hólmavík - RIIS kl. 20.30 kl. 16:20 til kl.Þriðjudagskvöld 17:00 í Vöruhúsinu. Haldin verða 13.okt. fjörleg erindi um verkefnið og helstu markmið þess. Ísafjörður - EDINBORGARHÚSIÐ kl. 20.30 Miðvikudagskvöld 14. okt.

Boðið verður upp á kaffi, kökur leiserBúðardalur - DALAKOT kl.og 20.30 Fimmtudagskvöld 15. okt. rastaðar lummur. Verið öll hjartanlega Reykjavík - IÐNÓ kl. 20.30 velkomin ungir sem aldnir.

MIÐJA SKAPANDI GREINA Á HORNAFIRÐI

Vöruhúsið Hafnarbraut 30 - www.voruhushofn.is - vilhjalmurm@hornafjordur.is


Örfá sæti laus!

1.495 kr.

Bearnaise-borgari

franskar, lítið Prins Póló og 0,5 l Coke í dós

695 kr.

Mozzarella ostastangir og sósa

Veitingatilboð 2.995 kr.

Fjölskyldutilboð

fjórir ostborgarar og franskar

N1 Höfn Sími: 478 1940

25% afsláttur af ís úr vél


kræsingar & kostakjör

Verðsprengja! Frábært verð! bayonneskinka

paprika

-50%

kjötsel

998 KR/KG

rauð

299 Áður 598 kr/kg

Ferskt alla daga! grísasnitsel

nautgripaHakk

ferskt

ferskt

1.598

1.189

Áður 1.998 kr/kg

Áður 1.450 kr/kg

Namminamm! kjúklingbringa

í appelsínumarineringu

-35%

emmess skafís

illy kaffi

3 teg, 1 l

capsules, 2 teg

1.907

398

1.899

Áður 2.384 kr/kg

kr/stk

Áður 1.999 kr/stk

gulrótabrauð nammi namm

389 Áður 598 kr/stk

-50%

berlínarbolla

wc pappír

65 gr

16 rúllur, coop

100

998

Áður 199 kr/stk

Áður 1.239 kr/pk

Tilboðin gilda 1. okt – 4. okt 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.