Eystrahorn 35. tbl. 2015

Page 1

Eystrahorn 35. tbl. 33. árgangur

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Fimmtudagur 15. október 2015

Vel heppnað góðgerðarkvöld á Smyrlabjörgum Það er samdóma álit allra sem komu að hátíðinni „Til sjós og lands“ sem haldin var á Hótel Smyrlabjörgum síðastliðinn laugardag að hún hafi tekist mjög vel. Hráefni í matinn og vinna var öll gefin og þeir sem fram komu um kvöldið gáfu sína vinnu. Þarna ríkti mikil gleði og góð stemning. Í lok samkomunnar var síðan upplýst hversu mikið hefði safnast. Enn eru að berast framlög inn á söfnunarreikninginn (0172-26-526 kt. 3010522279). Foreldrar Eydísar Diljár þau Joanna og

Ágúst tóku við gjafabréfi í lok kvöldsins. Eydís Diljá var viðstödd með foreldrum sínum og bróður, en hún hafði heillað veislugesti með fjöri og glaðværð allt kvöldið. Við sem stóðum að þessari samkomu viljum þakka öllum þeim fjölmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem veittu okkur frábæran stuðning og gerðu með því, þessa fjáröflunarsamkomu að veruleika. Laufey Helgadóttir, Halldóra Bergljót Jónsdóttir, Haukur Helgi Þorvaldsson og Ásmundur Friðriksson

Í samtali við foreldra Eydísar Diljár kom fram að hún er með mjög sjaldgæft og alvarlegt heilkenni sem nefnist CFC syndrome og m.a. hefur áhrif á hjartað. Aðeins tvö börn á Íslandi eru greind með þetta heilkenni nú og talið er að aðeins séu 100 – 200 önnur börn í heiminum í sömu aðstæðum. Þessi börn þurfa mikla umönnun og eftirlit. Fjölskyldan er á leið til Englands að hitta aðra foreldra víða að úr heiminum sem eiga börn með sama heilkenni. Joanna og Ágúst vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til allra sem stóðu að góðgerðarkvöldinu og tóku þátt í að veita þeim þennan ómetanlega styrk. Á myndinni eru þau Ágúst Már Ágústsson og Joanna Skrzypkowska ásamt börnum sínum þeim Daníel Má, Eydísi Diljá og Lilju Dögg.

Björgunarfélag Hornafjarðar 50 ára

Í tilefni 50 ára afmælis Björgunarfélags Hornafjarðar ætla meðlimir sveitarinnar að bjóða íbúum í heimsókn sunnudaginn 18. október nk. kl. 14:00. Allir Hornfirðingar eru hvattir til að líta við í húsnæði félagsins og kynna sér starfsemina, aðstöðu og tæki sveitarinnar.

Bleikur október Föstudagurinn 16. október er bleikur dagur í tilefni af bleikum október. Því hvetjum við alla til að klæðast eða skreyta sig með einhverju bleiku þennan dag. Þriðjudaginn 27. október verður síðan kvennafræðslukvöld á Hótel Höfn kl 20:00. Elín Freyja Hauksdóttir læknir flytur erindi og Hulda Laxdal jógakennari leiðbeinir um núvitund og slökun. Boðið verður upp á kaffi og með því. Konur eru hvattar til að taka kvöldið frá. Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórn Krabbameinsfélags Suðausturlands

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is


www.eystrahorn.is

Fimmtudagur 15. október 2015

Eystrahorn

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

Minnum á dansinn og vöfflurnar í Ekrunni sunnudaginn 25. október kl. 16:00. Allir velkomnir. Samverustundin verður föstudaginn 23. október 60 ára + velkomnir. Minnum á leikfimi í sal á þriðjudögum og í sundlaug á fimmtudögum. Lesið vetrardagskrána í síðasta Eystrahorni.

Skyndihjálp - endurlífgunarnámskeið Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla. Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu Rauða krossinum. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár. Nýheimar, 26. okt. kl. 17:00-21:00. Verð: 9500.Leiðbeinandi: Elín Freyja Hauksdóttir læknir.

Skyndihjálp - grunnnámskeið Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp. Þátttakendur þurfa að kaupa bókina „Skyndihjálp og endurlífgun” ef þeir eiga hana ekki á kr. 3.450.Nýheimar, 4. og 5. nóv. kl. 17:00-21:00 Verð: 15.500.Leiðbeinandi: Elín Freyja Hauksdóttir læknir.

Skráning: nina@hfsu.is s: 560 2050

Eystrahorn Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: .............. albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: .............. Litlaprent ISSN 1670-4126

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Frá Ferðafélaginu

Aurar í Suðursveit

Sunnudaginn 18. október Lagt af stað kl. 9:00 frá tjaldstæði Hafnar. Gengið á Hólmafjall sem er austan við Fell og fyrri innan Reynivelli í átt að Fellsárjökli. Hækkun ca. 440 m. Skemmtilegt svæði, og við munum fá staðkunnuga til að ganga með okkur. Göngutími ca. 6 klst. Munið nesti, verð 1000 kr. og 1500 kr. fyrri hjón. Frítt fyrir yngir en 16 ára. Séu hundar með skulu þeir vera í ól. Frekari upplýsingar hjá Rögnu. 662-5074

Íbúð óskast Óska eftir 2-3 herbergja íbúð til leigu, helst langtímaleigu. Er reyklaus og skilvísum greiðslum heitið. Endilega hafið samband í síma 866-1814. Haukur.


Eystrahorn

Fimmtudagur 15. október 2015

Guggur í Pakkhúsinu

www.eystrahorn.is

Föstudagshádegi Eyrún Unnur Guðmundsdóttir, verkefnastjóri fræðsluskrifstofu, verður með kynningu um samspil menntunar og atvinnulífs og kynnir meðal annars hugmyndir þátttakenda frá ráðstefnunni í september sl. Kynningin verður föstudaginn 16. október kl.12:15 í Nýheimum.

Allir velkomnir

Föstudaginn 16. október verða tónleikar með Guggunum í Pakkhúsinu og hefjast þeir kl. 21:00. Fjölbreytt lagaval að vanda. Guggurnar eru nýkomnar úr tónleikaferð frá Vopnafirði þar sem móttökurnar voru með því besta sem gerist. Tónleikarnir voru haldnir í Miklagarði sem er samkomuhúsið á staðnum og náðum við að fylla húsið og stemningin var gríðarleg. Fyrr um daginn spiluðum við fyrir öll grunnskólabörnin og virtust þau skemmtu sér konunglega. Okkur finnst mikilvægt að ungdómurinn sjái að það geta allir verið í hljómsveit hvort sem það eru konur eða karlar. Einu sinni höfum við spilað fyrir Grunnskóla Hornafjarðar og verður örugglega ekki langt að bíða þar til það verður gert aftur. Vonumst við til að sjá sem flesta í Pakkhúsinu á föstudagskvöldið. Guggurnar www.n1.is

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. október. Það er löngu kominn tími til að dusta Hótel Höfn kuskið af gömlu 23:00 - 03:00 sparilörfunum Laugardagskvöld 18 vetra aldurstakmark 2.500 rammíslenskar krónur

facebook.com/enneinn

Þú færð vetrardekkin hjá okkur

ÍSLENSKA/SIA.IS ENN 76340 10/15

2015

Grípandi munstur

Hörkugrip án nagla

Öruggt og neglanlegt

Michelin Alpin A5 er mikið skorið, naglalaust og endist þér aukavetur.

Cooper SA2 er óneglanlegt og míkróskorið fyrir mýkri vetrarakstur.

Kumho WI31 mikið skorið og frábært í hálku sem snjó.

Verslun N1 Vesturbraut 1, Höfn, 478 1490

Opið mánudaga til föstudaga kl. 08-18


STÓRTÓNLEIKAR Í HEILAN DAG!

Kötlumót 2015 Kötlumót 2015 - Á fimm ára fresti Reykjanesbæ laugardaginn 17. október Miðaverð kr. 4.900 Miðasala á Midi.is og við innganginn

18 kórar - Um 700 söngmenn

Þú Velur úr 18 tónleikum Kl. 13:00 til 15:30

Hljómahöll / Ytri- Njarðvíkurkirkja Nesvellir - Reykjanesbæ

Karlakórinn Kári Stykkishólmi

Karlakór Hreppamanna Flúðum Karlakór Rangæinga Hvolsvelli Karlakór Selfoss Selfossi

Karlakórinn Söngbræður Borgarnesi

Þú Upplifir 700 manna risakarlakór

Karlakórinn Svanir Akranesi Karlakór Kjalnesinga Kjalarnesi

Kl. 16:30 til 18:00

Karlakór Keflavíkur Söngsveitin Víkingarnir Reykjanesbæ

Stjórnandi: Guðlaugur Viktorsson

Karlakór Kópavogs Kópavogi

Atlantic Studios - Ásbrú – Reykjanesbæ Þú Hlustar á Stórhljómsveit Stjórnandi – Karen Sturlaugsson

Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Þú Heyrir einsöngvara Jóhann Smári Sævarsson o.fl.

KATLA

SAMBAND SUNNLENSKRA KARLAKÓRA

KARLAKÓR KEFLAVÍKUR

Karlakórinn Þrestir Hafnarfirði Drengjakór íslenska lýðveldisins Hafnarfirði

Karlakórinn Jökull Höfn Karlakórinn Stefnir Mosfellsbæ Karlakór Reykjavíkur Reykjavík Karlakórinn Fóstbræður Reykjavík

Raddbandafélag Reykjavíkur Reykjavík

Karlakór Grafarvogs Reykjavík Karlakórinn Esja Reykjavík


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.