Eystrahorn 41. tbl. 2015

Page 1

Eystrahorn 41. tbl. 33. árgangur

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Fimmtudagur 26. nóvember 2015

Fjárhagsáætlun Hornafjarðar 2016 - 2019 Húsnæði málefna fatlaðra þarfnast úrbóta. Fullnægjandi húsnæði vantar fyrir starfsemina, en í dag er hún bæði og lítil og dreifð um bæinn. Það er meðal annars horft til þess að sameining leikskólanna undir eitt þak gæti losað um ákjósanlegt húsnæði fyrir málefni fatlaða. Samningur sveitarfélagsins um rekstur heilbrigðismála rennur út í lok árs 2016, en unnið er að því að ná nýjum samningi um rekstur málaflokksins. Einnig er verið að þrýsta á stjórnvöld um að koma með fjármagn inní framkvæmdasjóð aldraðra til að hægt verði að byggja nýtt hjúkrunarheimili. Fjárhagsáætlun er mikilvægasta stjórntæki hvers sveitarfélags, en þar er mörkuð stefna um þær áherslur sem vilji er til að vinna að á komandi ári. Fyrri umræðan um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fór fram 5. nóvember síðastliðinn og seinni umræðan fer fram þann 3. desember næstkomandi. Rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi og fjárhagsleg staða þess er góð. Engu að síður er ekki hægt að neita því að reksturinn er að þyngjast og á það einnig við hjá mörgum öðrum sveitarfélögum um landið. Útgjöld hafa vaxið og verkefnum fjölgað en tekjuliðir hafa ekki fylgt þeirri þróun. Mikilvægt er að sveitarfélög fái aukna hlutdeild í heildarskatttekjum hins opinbera. Mikil fjölgun ferðamanna eykur vissulega möguleika til að skapa tekjur í heimabyggð, en á sama tíma kallar þróunin einnig á aukin útgjöld, bæði við ferðamannastaði og við ýmsa innviði samfélagsins. Framboð á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu er ekki mikið og er vöntun á leiguíbúðum og er því úrlausnarverkefni næstu mánaða að koma í gang uppbyggingu leiguíbúða. Þetta vandamál er til staðar í mörgum sveitarfélögum um landið. Vinna er í gangi á vegum ráðuneyta og stofnanna ríkisins með það að markmiði að draga úr byggingarkostnaði, en mikilvægt er engu að síður að ekki verði dregið úr gæðum á íbúðarhúsnæði. Sveitarfélagið Hornafjörður samþykkti að fella niður gjöld vegna nýbygginga á íbúðarhúsnæði á þessu ári til að reyna að gera sitt til að ýta undir nýbyggingar hér á svæðinu Á árinu 2015 var hafist handa við fyrsta áfanga í fráveitu framkvæmdum sem hefur það markmið að koma fráveitu þéttbýlisins í það horf sem best þekkist á Íslandi. Talsvert verk

er enn eftir til að ná þeim áfanga og verður næsta skref tekið í þeim málum á árinu 2016. Því er stór hluti af framkvæmdarfé sveitarfélagsins í fráveitu á árinu 2016 líkt og árið 2015, eða um 150 milljónir króna. Áætlaður heildarkostnaður við þessa framkvæmd er um 400 milljónir króna. Á árinu 2015 var lokið við hreinsivirki fráveitu í Nesjahverfi og er það komið í virkni. Á árinu var gerð skoðanakönnun um umgjörð leikskóla og samkvæmt niðurstöðum hennar var tekin ákvörðun um að sameina leiksskólana tvo í einn. Sú vinna er nú að hefjast og ætlunin að henni ljúki í ágúst 2017. Til að leiða þetta ferli hefur verið stofnaður starfshópur þar sem allir hagsmunaaðilar eiga fulltrúa, auk þess sem ráðinn verður sérfræðingur til að aðstoða við þetta ferli. Markmiðið með breytingunum er að búa ungum börnum sem allra besta uppeldisog námsskilyrði í samræmi við þroska og þarfir þeirra, með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Það er einnig vonin að með þessari samþættingu skapist framtíðar sátt um leikskólamál í bænum.

Jökulheimar hafa fengið umtalsverða umfjöllum í nefndum og ráðum sveitarfélagsins undanfarin tvö ár. Fram að þessu hefur stefnan verið að koma Jökulheimum fyrir í Miklagarði, en nú hefur verið ákveðið að kanna möguleika á aðkomu fjárfesta í að byggja upp Jökulheima og þá í nýrri byggingu. Það er mikill áhugi hjá bæjarstjórn Hornafjarðar að hrinda þessu verkefni í framkvæmd. Meginmarkmið með uppbyggingu Jökulheima er að skapa fjölbreytt menningarlíf á Höfn í Hornafirði þar sem Jökulheimar verða hryggjarstykkið í aðdráttarafli staðarins, miðlun, fræðslu og upplifun fyrir heimamenn sem gesti. Samhliða þessu var tekin ákvörðun um að Mikligarður verði gerður upp í eins upprunalegri mynd og kostur er, en í umfjöllun atvinnumálanefndar er hvatt til að þar þrífist fjölbreyttur atvinnurekstur svo sem veitingasala og skapandi greinar. Nauðsynlegt er því að klára að verja húsið þannig að það haldi vatni og vindum.

Nokkrar lykiltölur úr fjárhagsáætlun 2016 og þriggja næstu ára 2016

2017

2018

2019

Rekstrarniðurstaða (m.kr.)

159.019

186.801

188.335

186.789

Skuldir í hlutfalli af tekjum

62,80%

60,30%

62,73%

58,63%

Framkvæmdir (m.kr.)

350.000

245.000

300.000

225.000

Framlegð %

14,93%

16,02%

16,15%

16,15%

Veltufé frá rekstri (m.kr.)

323.261

354.189

357.707

359.038

Handbært fé í árslok (m.kr.)

148.827

160.687

239.017

250.152

Afborganir langtímalána

131.473

147.329

129.377

122.903

Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)

120.000

50.000

150.000

Langtímalán við lánastofnanir

683.714

624.247

669.895

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

629.695


2

Fimmtudagur 26. nóvember 2015

Hafnarkirkja Sunnudaginn 29. nóvember 1. sunnudagur í aðventu

Vaktsími presta: 894-8881 Hátíðarmessa og sunnudagaskóli bjarnanesprestakall.is

kl. 11:00 í upphafi afmælisárs Hafnarkirkju. Öll sóknarbörn Bjarnanesprestakalls boðin velkomin til messunnar. Prestarnir

Eystrahorn

Friðarljós Friðarljósin eru útikerti sem Hjálparstarf kirkjunnar selur í gegnum fjölda aðila víða um land. Kertin eru framleidd hjá Heimaey, vernduðum vinnustað. Kertin loga allt að 10 tíma við góð skilyrði. Kertin kosta 500 kr. og rennur hagnaður til reksturs Hjálparstarfsins vegna verkefna heima og erlendis. Hringið í síma 866-6253 (Brói). Heimsendingarþjónusta í boði.

Kaþólska kirkjan

Opnunartími Handraðans til jóla

Innilegar þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu er aðstoðuðu okkur og sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs sonar okkar og bróður,

Línuhappdrætti slysavarnakvenna

Sunnudagur 29. nóvember. Hittumst í kapellunni okkar. Messa kl. 12:00. Fögnum 1. sunnudegi í aðventu og blessum aðventukransinn. Hlakka til að hitta sem flesta. Pétur

Mánudaga til fimmtudaga kl. 12:00 – 18:00 föstudaga kl. 11:00 – 18:00 laugardaga kl. 11:00 – 16:00 Margt fallegt í jólapakkann. Verið velkomin

Slysavarnakonur á Hornafirði ætla að ganga í hús og selja Línuna dagana 26. – 29. nóvember.

Kára Kristjánssonar

Hlíðartúni 8 Höfn, Lone Jacobsen Kristján Þór Jónsson Björgvin Þór Kristjánsson Davíð Þór Kristjánsson

Eystrahorn Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: .............. albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: .............. Litlaprent ISSN 1670-4126

Línan kostar kr. 500,(ekki tekin kort). Dregið verður þriðjudaginn 1. desember. Eins og venjulega er fullt af góðum vinningum.

NETTÓ HÖFN Nettó GraNda

Nettóeftir starfrækir 11 lágvöruverðsverslanir landinu, þar af 4 á höfuðborgarsvæðinu. fáeiNar vikUr opNar NettóáNýja stórverslUN á GraNda, fiskislóð, við GömlU höfNiNa í reykjavík

nýju búðinni mun starfrækja 11 lágvöruverðsverslanir ViðMeðleitum aðNettó öflugu starfsfólki til framtíðarstarfa. á landinu, þar af 4 á höfuðborgarsvæðinu, þ.e.a.s. á Grandanum, í Mjódd, Hverafold og við Salaveg í Kópavogi.

• Starfsfólk í almenn afgreiðslustörf, hlutastörf og heilsdagsstörf. við leitUm að öflUGU starfsfólki til liðs við okkUr Umsóknir ásamt starfsferilskrá sendist á umsokn@netto.is. • Aðstoðarverslunarstjóri

Umsóknir ásamt starfsferilskrá sendist

• Umsjón grænmetis- og ávaxtadeildar • Umsjón kjötdeildar

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

á umsokn@netto.is. fyrir XX. júní. Allar•• Lagerstjórn nánari upplýsingar veitir Pálmi verslunarstjóri Allar Guðmundsson, nánari upplýsingar veitir Falur J. Harðarson, starfsStarfsfólk í almenn afgreiðslustörf, mannastjóri í síma 421-5400. hlutastörf og heilsdagsstörf í síma 896-6465

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. • Umsjón í mjólkurdeild • Umsjón með bakstri

Kræsingar & kostakjör

www.netto.is


Eystrahorn

Fimmtudagur 26. nóvember 2015

3

JóLaHáTíÐ á Höfn!

-prakkarastrik og púðurkellingar

Hin árlega jólahátíð verður haldin á Höfn 1. sunndag í aðventu, þann 29. nóvember n.k. Hátíðin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár þar sem markaðir verða opnir frá kl. 13:00 - 17:00 og fyrirtæki á svæðinu bjóða gestum og gangandi velkomin í notalega jólastemningu. Að venju verður jólalestin vinsæla á ferðinni og hver veit nema jólasveinarnir kíki til byggða! Hátíðardagskrá verður á sviðinu milli kl. 16:00 - 17:00 og lýkur henni með því að kveikt verður á bæjartrénu okkar á Heppunni. Á meðal þess sem verður í boði: Markaðsstemning í Pakkhúsinu og Gömlubúð, veitingasala 8. bekkjar og tombóla Samkórsins í Nýhöfn, jólaglögg og nýjar vörur í Millibör, jólaflóamarkaðsstemning í Gíslaverksstæði, heitt súkkulaði og jólavínyll í Dyngju og opið verður í Litla Listaskálanum hjá henni Gingó.

Hrekkjalómafélagið í Vestmannaeyjum varð landsfrægt fyrir prakkaraskap og frumleg uppátæki. Sjálfur bæjarstjórinn, forstjórar og ýmsir framámenn í Eyjum voru fundvísir á frumlega hrekki og létu ekkert tækifæri ónotað til að stríða samferðamönnum og gera tilveruna aðeins léttbærari. Blaðurfulltrúi félagsins, Ásmundur Friðriksson, leysir loksins frá skjóðunni.

Hrekkjalómur leynist undir rúmi brúðhjóna á brúðkaupsnóttinni. Halli í Turninum fær ís í tonnatali. Ráðherrahjónum er gert rúmrusk. Maggi Kristins útgerðarmaður „býður“ öllum bæjarbúum í afmæli. Geir Jón Þórisson lögregluþjónn handtekur formann Hrekkjalómafélagsins. Sjálfvirkur sleppibúnaður er kynntur til sögunnar með kjaftshöggi. Össur Skarphéðinsson skartar skófari á rassinum. Bæjarstjórinn prófar sjónvarpssíma. Aflaskipstjóri leikur á fakír og gengur berfættur yfir flöskubrot. Sýslumaður er flengdur með svipu á skötukvöldi. Frómakærir sómamenn eru kjörnir „Klámkóngar Eyjanna“. Þá fá lesendur að kynnast nokkrum hrekkjalómum utan félags og fræknum ýkjusagnameisturum.

Ásmundur Friðriksson

HREKKJALÓMAFÉLAGIÐ PRAKKARASTRIK OG PÚÐURKERLINGAR

HREKKJALÓMAFÉLAGIÐ

Í bókinni Hrekkjalómafélagið,prakkarastrik og púðurkerlingar, eftir Ásmund Friðriksson, þingmann Suðurkjördæmis, er rakin saga Hrekkjalómafélagsins í Vestmannaeyjum og lýsir hún þess utan vel þeim skemmtilega og góða anda sem ríkir á almennum vinnustöðum til sjós og lands og allir í sjávarbyggðarlögum þekkja svo vel. Þetta var í rauninni einstakur félagsskapur og létu meðlimir hans ekkert tækifæri ónotað til að koma er bók sem hver öðrum Þetta á óvart og hugsuðu kitlar svo sannarlega þá ekki alltaf út í afleiðingarnar hláturtaugarnar! sem urðu stundum alvarlegri en menn héldu í upphafi.

Ásmundur Friðriksson

Hrekkjalómafélagið

20 ára saga

Dagskrá á sviði frá kl. 16:00 - 17:00 • Lúðrasveit Hornafjarðar kemur okkur í rétta jólaskapið • Leikskólabörn syngja jólalög • Kvennakór Hornafjarðar • Jólahugvekja • Kveikt á jólatrénu

Í bókinni segir meðal annars frá því þegar: •

Halli í Turninum fær ís

Ráðherrahjónum er gert rúmrusk

Maggi Kristins „býður“ öllum í afmælið sitt

Geir Jón handtekur Tóta rafvirkja

Sjálfvirkur sleppibúnaður er kynntur til sögunnar

Össur Skarphéðinsson skartar skófari á rassinum

Guðjón Hjörleifs prófar sjónvarpssíma

Logi Snædal gengur berfættur yfir flöskubrot

Þá fá lesendur að kynnast nokkrum hrekkjalómum utan félagsins og ber þar hæst sögur af Jóni Berg Halldórssyni og Didda í Svanhól.

Hvetjum alla til að taka myndir á Instagram og merkja þær #JólaHöfn2015. Sjáumst hress og kát í jólaskapi! Jólanefndin

Opið hús – Basar

Bókaútgáfan Hólar

Félagsstarf í EKRUNNI Félagsvistin í kvöld fimmtudaginn 26. nóvember. Þriðja og síðasta kvöldið í félagsvistinni er í kvöld kl. 20:00. Spennan er í hámarki og við hvetjum alla til að koma og spila. Hverjir sigra? jólasamveran nálgast!

Félags eldri Hornfirðinga

Almennur bæjarmálafundur Laugardaginn 28. nóvember: kl. 12:30 í Sjálfstæðishúsinu. Súpa í boði. Dagskrá: 1. Framkvæmdir 2016 2. 3ja ára áætlun 3. Önnur mál. Allir velkomnir Bæjarfulltrúar og stjórnin

Opið hús- basar verður í dagdvöl aldraðra Ekrunni miðvikudaginn 2. desember milli klukkan 14:00 og 17:00. Kaffi og vöfflur seldar á staðnum. Hvetjum sem flesta til að kynna sér starfsemina og fjárfesta í hlýjum og ódýrum jólagjöfum!

Föstudagshádegi í Nýheimum kl. 12:15 Soffía Auður Birgisdóttir kynnir bók sína „Ég skapa – þess vegna er ég“, um skrif Þórbergs Þórðarsonar. Allir velkomnir!


4

Fimmtudagur 26. nóvember 2015

Aðventan á Humarhöfninni

Eystrahorn

Jólavínyll og heitt súkkulaði í Dyngju Opið hús sunnudaginn 29. nóvember á milli kl.14:00 og 17:00. Heitt súkkulaði og jólavínyll. Allir velkomnir.

Nú erum við á Humarhöfninni komin í jólaskap með nýtt þak og seríu næstum allan hringinn. Í því tilefni ætlum við að bjóða upp á nýjan matseðil Jóhönnu eðalkokks á aðventunni frá fös. 27. nóv til og með sun. 13. des. Þá verður á boðstólnum „A la carte“ matseðill með jólalegu ívafi þar sem boðið verður upp á gamla klassíkera eins og hornfirska álinn, andalærin gómsætu og púrtvínslegnar fíkjur ásamt ýmsu öðru ilmandi góðgæti. Humarhöfnin er opin alla daga frá 12.00 – 21:00 til 13. des. en þá munum við loka vegna endurbóta og viðhalds innanhúss þar til um miðjan janúar.

Rannsóknarþing Nýheima Rannsóknarstarfsemi í Þekkingarsetrinu Nýheimum 26. nóvember 2015 kl. 16:00 – 18:00

Samkoman hefst kl. 15:45 með kaffiveitingum Fundarstjóri: Davíð Arnar Stefánsson, verkefnastjóri Nýheima 16:00 Þingsetning

Upplýsingar og borðapantanir í síma 478-1200 og 846-1114. Gleðilega aðventu.

16:05

Rannsóknarsetur HÍ Allt milli himins og jarðar verkefni rannsóknasetursins á Hornafirði Þorvarður Árnason, náttúrufræðingur

Ég skapa – þess vegna er ég. Um skrif Þórbergs Þórðarsonar Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur

16:30 Náttúrustofa Suðausturlands Yfirlit yfir valin verkefni Náttúrustofu Kristín Hermannsdóttir, forstöðumaður

Jólaseðill

Forréttir

27., 28. og 29. nóvember 2015

Síld – karrýsíld, marineruð síld heimagert rúgbrauð Stökk hörpuskel /hvítlaukur, sætur laukur Reyklaxatartar /sesamkex, capers

Aðalréttir

Andalæri confit döðlur,rauðrófa,soðsósa Grísa purusteik hvítkál,sykraðar kartöflur Léttreykt lamb jurtakartöflumús,villisveppasósa

Eftirréttir

Ris ala mandle Kirsuberjasósa Mjúkkjarnasúkkulaðikaka kókosís Snikkers skyrfrauð hindber

kr. 1690 kr. 1990 kr. 1490

kr. 4950 kr. 3990 kr. 4350

kr. 1490 kr. 2200 kr. 1990

Borðapantanri í síma 478-1240

Jöklabreytingar í ljósi gamalla mynda Snævarr Guðmundsson, sviðsstjóri Niðurstöður fjarlægðamælinga á fastastjörnu frá Höfn í Hornafirði. Snævarr Guðmundsson, sviðsstjóri

17:00

Þekkingarsetrið Nýheimar Borgaravitund og valdefling ungmenna á landsbyggðinni Margrét Gauja Magnúsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur

17:10

Hornafjarðarsöfn Rannsóknir og uppbygging innan Hornafjarðarsafna – fornleifarannsóknir og skráning menningaminja Vala Björg Garðarsdóttir, forstöðumaður

17:30 Framhaldsskólinn í Austur – Skaftafellssýslu Rannsóknarstarf í FAS Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari 17:40

Kirkjubæjarstofa og Friður og frumkraftar Brunasandur – mótun lands og samfélags og rannsókn á heimildum um þjóðleiðir og fornar ferðaleiðir í Skaftárhreppi Ólafía Jakobsdóttir, forstöðumaður

Rannsókn á sögu matar og þolmörk ferðamannastaða í Skafárhreppi Þorbjörg Ása Jónsdóttir, verkefnastjóri

17:50

Meistaraverkefni Hvernig nýtast Nýheimar námsmönnum? Hugrún Harpa Reynisdóttir, umhverfisog auðlindafræðingur

18:00 Þinglok


Dagskrá á svidi kl.16.00 - 17.00

Lúðrasveitin Leikskólakrakkar syngja Kvennakór Hornafjarðar Hugvekja Tendrað á jólatrénu

MARKAÐIR ÚT UM ALLAN BÆ

Jólasveinar

Bjarni Hákonar ehf.

#JólaHöfn2015


JÓL

á Austurlandi!

ókn heims í u a d Kom ve n t u n ð a u ð f li ! og upp stfirðingum u með A

5. desember - Jólafriður 2015 - Neskaupstaður Annað árið í röð verða jólatónleikarnir Jólafriður haldnir í íþróttahúsinu í Neskaupstað. Í ár koma fram stórsöngvararnir Guðrún Gunnardóttir, Páll Rósinkranz og Eiríkur Hauksson og syngja saman nokkrar vel valdar jólaperlur sem koma gestum í hátíðarskapið.

Héraðsprent

12. desember - Jólamarkaður Barra - Fellabær Jólatré og skógarafurðir, kakó og vöfflur, austfirskt handverk og ljúffengur matur. Kíktu við og finndu jólaskapið og jólagjafirnar á þessum stórkostlega árlega jólamarkaði sem haldinn er sem fyrr í Barra, Valgerðarstöðum í Fellum. Haldinn nú í tíunda sinn! 12. desember - Jólatónleikar með Pálma Gunnars og Ragnheiði Gröndal - Egilsstaðir Í ár eru 30 ár liðin frá útgáfu hinnar klassísku jólaplötu Friðarjól með Pálma Gunnars og er hún órjúfanlegur hluti af jólaundirbúningnum á fjölmörgum heimilum. Lögin af plötunni verða flutt á tónleikum í Valaskjálf og það er aldrei að vita nema ný jólalög líti dagsins ljós í tilefni afmælisins.

Þetta er einungis hluti af því sem verður boðið upp á fyrir austan um jólin. Fylgstu með viðburðadagatalinu okkar á East.is og fáðu nánari upplýsingar um það helsta sem Austfirðingar hafa upp á að bjóða í desember. Á East.is er líka finna upplýsingar um alla helstu gistimöguleika á Austurlandi. Hlökkum til að taka á móti þér!

VISIT EAST ICELAND www.east.is / # easticeland


Eystrahorn

Fimmtudagur 26. nóvember 2015

7

Ársþing SASS

Hornafjarðarsöfn auglýsa eftir verkefnastjóra innan rannsóknarsviðs safnsins Óskað er eftir verkefnastjóra á sviði fornleifafræði, landfræði og/eða jarðfræði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Starfslýsing:

Ársþing SASS 2015 var haldið í Vík í Mýrdal í lok október. Þar hittust fulltrúar allra 15 sveitarfélaganna á Suðurlandi. Þingið var starfsamt og skemmtilegt og viðgjörningur góður hjá Mýrdælingum, eins og þeirra er von. Eitt helsta verkefni hvers ársþings er að fara yfir samþykktir SASS og senda frá sér ályktanir og helstu áherslur. Ef dregnar eru út þær ályktanir sem snúa að Hornfirðingum má nefna að Ársþing SASS 2015 bendir ríkinu á að; •

tryggja fé til rannsókna á Grynnslunum

útrýma þarf tvíbýlum á HSu (HSSA)

brýnt er að styrkja sjúkraflug þannig að viðbragðstími sé innan ásættanlegra viðmiðunarmarka.

Viðkomandi þarf að hafa reynslu og þekkingu á:

Ársþingið hvetur ríkisvaldið til að tryggja fjármuni til reksturs sjúkraflutninga á svæðinu

fækka einbreiðum brúm og efla umferðaröryggi

Landupplýsingakerfi (t.s. Qgis-Arc-gis), uppmælingartækjum (t.d. Trimble), SARP skráningargagnagrunnur, FileMaker.

tryggja fjármagn til menningartengdrar starfsemi á Suðurlandi til framtíðar, svo sem Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

að ríkisvaldið sjái til þess að sveitarfélög fái virðisaukaskatt af fráveituframkvæmdum endurgreiddan

Heimildaöflun og skráning, uppmælingar og úrvinnsla á menningar- og náttúruminjum, kortagerð, miðlun á vefsíðu og kortasjá Hornafjarðarsafna, samskipti við opinberar stofnanir, aðstoð og samvinna við aðrar deildir safnsins er varðar miðlun og skráningu menningar- og náttúruminja Hornafjarðar.

Laun samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 15.12.2015 og skulu umsóknir sendar á rafrænu formi á netfangið vala@hornafjordur.is Frekari upplýsingar um starfið veitir Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna í síma 8639199, eða á netfangið vala@hornafjordur.is

Auk þess má nefna ályktanir um almenningssamgöngur, ljósleiðaravæðingu sem er forsenda byggðarþróunar og atvinnulífs í dreifðari byggðum, að sækja þarf fram í skólamálum og efla skólastofnanir á landbyggðinni, ekki öfugt eins og nú stefnir í að verði með aldurstakmörkun í framhaldsskólum og tilfærslu háskóla inn til höfuðborgarinnar. SASS þingið 2015 þrýstir á að efla fæðingarþjónustu í heimabyggð eða að veita fjárstyrk til hlutaðeigandi og koma þannig til móts við kostnað sem hlýst af því að hafa hana ekki. Efla þarf löggæslu og auka tekjuhlutdeild sveitarfélaga í skattstofnum sem renna til ríkis. Nánar má lesa um ályktanir SASS þingsins 2015 á vefnum www.sass.is Sæmundur Helgason, fulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar í stjórn SASS

Bon appetit! Nýheimum Verð með opið fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember, frá kl. 13:00 – 18:00 með góðri Jólahuggu. Kaffi, brauð, kökur, kakó, gos og jólaglögg.

Menningarverðlaun Hornafjarðar 2015 Óskað er eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar 2015 Þeir sem vilja tilnefna vinsamlegast sendið inn tillögur í bréfaformi í móttöku Ráðhús Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið vala@hornafjordur.is, einnig er hægt að hringja í síma 4708050. Vinsamlegast sendið inn tilkynningar eigi síðar en 15.desember 2015.


8

Fimmtudagur 26. nóvember 2015

Upphaf kirkjuársins og afmælisár

Með 1. sunnudegi í aðventu, 29. nóvember nk. hefst nýtt kirkjuár. Eins og fram kemur í messuauglýsingu prestanna þá munum við að hefja kirkjuárið með hátíðarmessu og minna um leið á afmælisár Hafnarkirkju en á næsta ári verða liðin 50 ár frá vígslu kirkjunnar. Sóknarnefnd, prestarnir og starfsfólk kirkjunnar munu standa fyrir ýmsum viðburðum til að minnast tímamótanna s.s. með sérstakri hátíðarmessu á vordögum, sýningu, tónleikum, fræðslu o.fl. Lögð verður áhersla á framlag heimamanna en sömuleiðis að fá hornfirskt listafólk búsett utan héraðs til að taka þátt í viðburðum og vonandi fáum við jafnframt þekkt listafólk til liðs við okkur. Rétt er að geta þess að Bjarnarneskirkja fagnar sömuleiðis tímamótum á næsta ári þ.e.a.s. 40 ára vígsluafmæli og munum sóknirnar vera í samstarfi með viðburði o.fl. eftir því sem það á við. Ég vil hvetja fólk til að taka þátt í starfinu og mæta á viðburði og annað sem boðið verður uppá á afmælisárinu. F.h. Sóknarnefndar Hafnarsóknar, Albert Eymundsson formaður

Eystrahorn

Nýr samningur

Á dögunum var undirritaður samstarfssamningur milli Rauða kross deildarinnar á Hornafirði, Slysavarnarsveitarinnar Framtíðar á Höfn og Neyðarmiðstöðvar Rauða krossins, um samstarf aðila í neyðarvörnum. Tilgangur samstarfsins er að tryggja mönnun fjöldahjálparstöðva í sveitarfélaginu á hættu- og neyðartímum.Samkomulagið var undirritað að loknu námskeiðinu „inngangur að neyðarvörnum“ þar sem tíu þátttakendur fengu undirbúningsfræðslu Rauða krossins fyrir starf að neyðarvörnum félagsins. Samningurinn tekur til fjölbreyttrar fræðslu og þjálfunar sem Rauði krossinn lætur í té og stuðnings Slysavarnarsveitarinnar Framtíðar við öflun sjálfboðaliða til að starfa að neyðarvörnum og taka þátt í æfingum og aðgerðum og munu sjálfboðaliðarnir verða skráðir í boðunargrunn Neyðarlínunnar. Þetta samstarf milli aðila er að mörgu leyti tímamótasamningur, þar sem tvær viðbragðseiningar ákveða með skriflegu samkomulagi sín á milli að starfa saman að neyðarvörnum í sínu byggðalagi. Vonandi verður samkomulagið fyrirmynd að svipuðum samningi milli viðbragðsaðila í öðrum byggðalögum þar sem erfitt getur verið að afla sjálfboðaliða þegar félögin eru mörg sem starfa að skyldum verkefnum. Því er samstarfssamningur sem þessi aðilum mikilvægur og styrkir starfið og viðbrögð á neyðartímum.

Breytt starfsemi Hornafjarðardeildar RKÍ Jafnframt verða breytingar á starfsemi Hornafjarðardeildar RKÍ og mun verkefnum fækka og sérstaklega einblínt á neyðarvarnir og skyndihjálp auk þess að fatagámarnir verða á sínum stað. Rauða kross búðinni verður lokað um áramót og hvetjum við fólk til að versla vel fram að þeim tíma. Lokunin verður auglýst hér í Eystrahorni þegar nær dregur.

Sveitabúðin í Nesjum verður opin kl. 12:00-17:00 nk. laugardag.

Hamborgarhryggur, bæjonskinka, bacon, bjúgu og margt fleira frá Miðskersbúinu. Ferkst grænmeti, konfekt, pestó og heilsusnakk frá Hólabrekkuafurðum, Laufey í Lóninu verður með skómarkað. Súpa, brauð, kaffi og vöfflur í veitingaskálanum. Verið velkomin. Anna og Anna


AT V I N N U V E G A - O G N Ý S KÖ P U N A R R Á Ð U N E Y T I Ð

SAMTÖK F E R Ð A ÞJ Ó N U S T U N N A R

#samferda

ferdamalastefna.is

Samferða OPINN FUNDUR UM NÝJAN VEGVÍSI Í FERÐAÞJÓNUSTU

með Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar Miðvikudaginn 2. desember

H Ö F N Í H O R N A F I R Ð I / Hótel Höfn kl. 12

Sjá nánar á ferdamalastefna.is Allir velkomnir


BLACK

FR. -I29D. NAÓV.Y 26

40% AFSLÁTTUR

GRÍSARIF FULLELDUÐ Í BBQ-MARINERINGU

LAMBASVIÐ - FROSIN VERÐ ÁÐUR 498 KR/KG

299

KR KG

VERÐ ÁÐUR 698 KR/KG

30%

489

AFSLÁTTUR

NETTÓ KJÚKLINGABRINGUR FERSKAR

HÁTÍÐARBLANDA - 0,5 L

VERÐ ÁÐUR 2.098 KR/KG

VERÐ ÁÐUR 98 KR/STK

1.888

69

KR KG

40%

AFSLÁTTUR

35% AFSLÁTTUR

HEILL LAX REYKTUR / GRAFINN

259

KANELSNÚÐUR

VERÐ ÁÐUR 3.998 KR/KG

VERÐ ÁÐUR 398 KR/KG

2.399

KR KG

KR STK

40%

AFSLÁTTUR

KJÚKLINGAVÆNGIR NETTÓ - FERSKIR

KR KG

VERÐ ÁÐUR 198 KR/STK

119

KR KG

KR STK

50%

42%

AFSLÁTTUR

AFSLÁTTUR

ÓDÝR ÍS - 900 ML

markhönnun ehf

M. SÚKKULAÐI-, JARÐARBERJAEÐA VANILLUBRAGÐI VERÐ ÁÐUR 359 KR/PK

259

KR PK

COOP WC PAPPÍR 16 RÚLLUR VERÐ ÁÐUR 1.198 KR/PK

699

NÓA SÚKKÚLAÐI POPP 250 G VERÐ ÁÐUR 390 KR/STK

KR PK

Tilboðin gilda 26. – 29. nóvember 2015

netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

195

KR STK


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.