Olfus

Page 1

FLOKKUN TIL FRAMTÍÐAR í Sveitarfélaginu Ölfusi


Til íhugunar • Um 91% Íslendinga flokka úrgang til endurvinnslu: 19% flokka alltaf 37% flokka oft 35% flokka stundum eða sjaldan (Úr könnun Capacent Gallup fyrir Úrvinnslusjóð í sept. 2008)

• Urðun á hverju tonni af pappír krefst tveggja til þriggja rúmmetra rýmis á urðunarstað og veldur miklum gróðurhúsalofttegundum. • Endurvinnsla á hverju tonni af pappír sparar u.þ.b. 4000 kWh af raforku miðað við venjulega framleiðslu pappírs. Þetta er álíka mikið og meðalheimili í Ölfusi notar af rafmagni á hverju ári.

• Meðal markmiða í landsáætlun Íslands fyrir meðhöndlun úrgangs fyrir 2004-2016 er: Frá og með 1. júlí 2013 skal lífrænn heimilis- og rekstrarúrgangur sem berst til urð• Ísland raðast í 17. sæti (ekki aðeins í Eurounarstaða hafa minnkað niður í 50% af vision) meðal 32 Evrópuþjóða hvað varðar heildarmagni (miðað við þyngd) þess lífræna endurvinnsluhlutfall úrgangs árið 2010. úrgangs sem til féll árið 1995.) Hinar Norðurlandaþjóðirnar eru í 6., 8., 9. og 15. Sæti. Gerum betur! (Heimild EEA • Á Íslandi berast um 100 kg af dagblöðum og Report no. 2/2013) fjölpósti inn á hvert heimili á ári að jafnaði.

• Orkan sem sparast við endurvinnslu einnar áldósar samsvarar orkunotkun sjónvarpstækis heilt kvöld.

• Það tekur allt að 500 ár fyrir sumt plast að brotna niður á urðunarstað.

(Heimild: Skýrslan „Pappírsfjallið” frá árinu 2003)

• Endurvinnsla á 20 tveggja lítra gosdrykkjarflöskum úr plasti dugar til framleiðslu á einni meðalflíspeysu.

• Gott líf felst í því að gera þá hluti vel sem maður getur gert vel.

2

(Aristóteles)


Ágætu íbúar Ölfuss Upphaf blátunnuvæðingar í Sveitarfélaginu Ölfusi var á fyrri hluta árs 2010 og raunar fór sveitarfélagið þar í fararbroddi sveitarfélaga á Suðurlandi. Á þessum tíma var það val íbúa að nýta sér þjónustuna og aðeins um helmingur heimila hafði kost á henni þar sem fleiri tunnur voru ekki til úthlutunar. Nú er komið að því að halda áfram með þetta brýna verkefni en öll heimili í sveitarfélaginu verða frá 1. mars 2014 komin með tvær 240 l. tunnur. Önnur tunnan, grá tunna með gráu loki er fyrir óflokkaðan úrgang eins og verið hefur. Hin tunnan er grá með bláu loki (Blátunna) og í hana á að setja þurrt, hreint efni til endurvinnslu eins og ítarlega er útskýrt í þessum bæklingi. Reynslan sem fengist hefur frá upphafi

verkefnisins árið 2010 er mjög góð en tilgangurinn er að koma endurvinnanlegum blaða- og pappírsúrgangi til endurvinnslu. Með þessu er dregið verulega úr því magni heimilisúrgangs sem fer til urðunar sem er um leið beinn fjárhagslegur ávinningur fyrir samfélagið okkar. Með því að endurvinna pappírinn sparast hráefni, kemísk efni og orka sem annars þarf í meira mæli þegar pappír er unninn úr trjám og því er verkefnið líka umhverfisvænt. Það er von mín að íbúar sveitarfélagsins taki þessum breytingum vel og þeir íbúar sem ekki hafa flokkað áður takist á við verkefnið með umhverfið, hag sveitarfélagsins og þar með íbúanna allra að leiðarljósi. Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri

3


Öll heimili með tvær tunnur Tunna fyrir endurvinnsluefni

Tunna fyrir óflokkaðan úrgang til urðunar Tunnurnar verða tvær (240 l) við hvert heimili. Önnur er fyrir óflokkaðan úrgang, grá tunna með gráu loki. Hin tunnan er grá með bláu loki (Blátunna). Í hana á að setja þurrt, hreint efni til endurvinnslu: Skrifstofupappír, blöð og tímarit, sléttan pappa, bylgjupappa og fernur. Tunnan fyrir óflokkaðan úrgang verður losuð á tveggja vikna fresti en tunnan fyrir endurvinnsluefni á fjögurra vikna fresti.

Tunnufestingar

Hámark 15 m Íbúar, vinsamlega sjáið um að greið leið sé að sorptunnum. Moka þarf snjó frá tunnum ef þörf krefur. Mikilvægt er að flokkunin takist vel en með henni næst mikill umhverfislegur ávinningur. 4

eins og þessar fást hjá verktaka. Sími 535 2510 og á gamar.is.

Sorphirðudagatal

verður aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins: olfus.is og á heimasíðu Gámaþjónustunnar: gamar.is


Til förgunar og endurvinnslu er meðal annars flokkað í:

Gámasvæði Ölfuss Gámasvæði sveitarfélagsins við Hafnarskeið verður rekið lítillega breytt með sama opnunartíma og verið hefur. Sveitarfélagið stefnir að uppbyggingu á nýju gámasvæði innan Þorlákshafnar á næsta ári og mun þá öll aðstaða batna til muna . Íbúar eru hvattir til að taka höndum saman við verktaka og sýna aðgát við komu á svæðið vegna þrengsla. Sími á gámasvæði er 483 3817 á opnunartíma.

Óendurvinnanlegt efni

Grófur úrgangur

Grjót og jarðvegur

Málmar og brotajárn

Bylgjupappi

Spilliefni

Plastefni

Gras og garðaúrgangur

Raf- og rafeindatæki

Rafgeymar

Hjólbarðar

Kælitæki

Málað timbur

Ómálað timbur

Nytjahlutir

Opnunartímar: Mánud.- föstud. kl. 13:00–18:00 Laugardaga kl. 13:00–16:00 Sunnudaga Lokað

Móttaka skilagjaldsumbúða er að Nesbraut 8, Þorlákshöfn.

Á gámasvæði Ölfuss er tekið við endurnýtanlegum fatnaði fyrir Rauða krossinn.

5


Ný tækni - tvískiptur söfnunarbíll

Við sorphirðu í Sveitarfélaginu Ölfusi verða notaðir tveggja hólfa söfnunarbílar. Þannig er hægt að safna tveimur flokkum af sorpi í sömu ferð og í því felst verulegt hagræði.

Flokkunarílát

til notkunar innan húss

2 x 40 l. á vagni

2 x 60 l. á vagni

2 x 90 l. á vagni

Mál: 38 x 66/66 cm.

Mál: 56 x 56/66 cm.

Mál: 84 x 56/66 cm.

FLOKKUNARBARIR

ÁSINN

TVISTURINN

ÞRISTURINN

Fáanlegir í mörgum litum. Mál: 38 x 39/93 cm.

2 x 10 l. á sleða + karfa Mál: 25 x 38/35 cm.

2 x18 l. á sleða Mál: 31 x 46/36 cm.

2 x 14 l. + 1 x 8 l. á sleða Mál: 31 x 46/36 cm.

Allar upplýsingar í síma 535 2510

EITT HÓLF 20 l.

2 x 11 l.

3 x 11 l.

1 x 8 l. KARFA

Með snerti/pedalopnun. Mál: 26/59 cm.

Mál: 25 x 31/44 cm.

Mál: 25 x 47/44 cm.

Fyrir lífræna söfnun Mál: 18 x 22/22.

Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is

6


Heyrúlluplast

Í Ölfusi fellur til töluvert af heyrúlluplasti sem er nýtanlegt til endurvinnslu sé rétt á málum haldið. Gámaþjónustan leggur áherslu á söfnun heyrúlluplasts og hefur gefið út bækling um geymslu og meðferð þess. Það er mjög áríðandi að plastið sé hreint og laust við aðskotahluti!

Flokkum til framtíðar!

Ábyrg og örugg endurvinnsla eru einkunnarorð Gámaþjónustunnar og dótturfélaga hennar um allt land. Við notum þau til að fullvissa viðskiptavini okkar um áreiðanleika við afsetningu endurvinnsluefna og ábyrgjumst að flokkað efni frá heimilum og fyrirtækjum fari í réttan

farveg til endurvinnslufyrirtækja sem nýta þau í ýmiss konar framleiðslu. Ekki leikur nokkur vafi á því að kröfur um flokkun eiga enn eftir að aukast á næstu árum. Verum í fararbroddi með Gámaþjónustunni í þeirri þróun.

BÆTT UMHVERFI - BETRI FRAMTÍÐ! 7


21.925/02.14

Setjum umhverfið í fyrsta sæti

Hafnarbergi 1 • 815 Þorlákshöfn S: 480 3800 • olfus@olfus.is Sími þjónustumiðstöðvar er: 483 3803.

S: 535 2500 • gamar.is Rekstraraðili sorphirðu.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.