SPANHELLUR Í stóreldhúsum og mötuneytum eru spanhellur útbreiddar vegna hinna mörgu kosta sem þær bjóða upp á. Eftirspurn einkaaðila hefur stigaukist á sama tíma. Spanhelurnar hafa ótrúlega fljótan upphitunartíma og svara breytingum á stillingum jafn hratt og örugglega og gas. Eina skilyrðið er að potturinn sé með botni sem leiðir segul. Með svona fljótlegri og nákvæmri hitun er hægt að: Bræða súkkulaði án vatnsbaðs, haldið heitu án þess að hætta sé á að matur brenni við og haldið hita á allri pönnunni þegar eldað er á Wok pönnu.
Spanhelluborð EIT 695 C Slípaður kantur Mál (HxBxD): 6×60×51 sm
Lítil orkunotkun Mun meiri hluti orkunnar er nýttur þegar spanhelluborð er notað en þegar hefðbundin helluborð eru notuð og því eru þau mun ódýrari í notkun. Varmatap er ekkert þar sem eingöngu potturinn hitnar. Ef potturinn er tekinn af hellunni, fer hún sjálfkrafa í svefnham og svo slokknar alveg á henni eftir 1.mín.
Spanhelluborð INP 72 Slípaður kantur Mál (HxBxD): 6,4×77×51 sm
Hvað er span? Lögmálið bak við Span var uppgötvað af H.Lenz, L.Foucault og J.Joule og á heimssýningunni í París árið 1889 sýndu þeir fram á að ef straumur er sendur í gegnum spólu myndast segulsvið sem hægt era ð stjórna með aðstoð straumsins.
Nýting 100%
90% 60%
55%
50%
0%
Span
Keramik
Steyptar hellur
50%
Tækniþróun síðustu ára hefur nú gert okkur kleyft að nýta þessa hugmynd við matartilbúning. Span er ekki síst mikið notað í stóreldhúsum og veitingahúsum vegna allra þeirra kosta sem taldir eru upp hér á síðunni.
Gas
Nýting Með spani næst fram mesta nýting vegna þess að botn pottsins er hitaelementið og því verður nýtingarstuðullinn mun hærri. Ekki þarf fyrst að hita upp element og svo hellulna en við það tapast mikil orka. Hitun 10
9
5
4,46
0
span
keramik
9,5 8,18
Steyptar hellur
Spantæknin Raf span gjafinn (1) framleiðir segulsvið (2) sem breytir botni pottsins í hitaelement (3) og innihald pottsins hitnar Sjálf spanhellan hitnar einungis óbeint við hitann frá pottinum.
Gas
Fljót að hitna. Mun fljótlegra er að ná upp hita með spani en keramik, steyptum hellum eða gashellum. Vatn sýður einnig mun fljótar en í hraðsuðukatli.
Auðvelt og þægilegt Þar sem spanhellan hitnar ekki eins og hefðbundnar hellur er mun auðveldara að þrífa hana. Ef sýður upp úr er einfaldlega þurrkað af helluborðinu, það brennur ekki fast.
Fljót að kólna. Þegar slökkt er á spanhellu eru viðbrögðin eins og við gaseldun. Ef t.d. er verið að hita mjólk, sýður hún fljótlega og venjulega er potturinn dreginn af hellunni. Þegar notað er spanhelluborð er einfaldlega slökkt á hitanum og árangurinn sést strax, suðunni lýkur og loftbólurnar falla.
Tímastillingar Á sumum helluborðunum er hægt að stjórna með tímastilli. Með honum er stillt hversu lengi maturinn á að sjóða og þegar sá tími er liðinn, heyrist viðvörunarhljóð og sjálfkrafa slökknar á hellunni.
Öryggi – hitastig 390
400
Power-boost aðgerðin Með notkun á Gorenje Power-Boost aðgerðinni aukast afköstin allt að 50%. Með Power Boost virkninni eru tvö svið samþjöppuð í eitt og með næst upp afl allt að 3000w pr. Svæði. Þessi aðgerð sparar mikinn tíma ef t.d. þarf að sjóða mikið vatn í flýti.
340
300
270
200 100
100 0
Span
Keramik
Steyptar hellur
Gas
Öryggi Hellunar á spanhelluborðinu er eingöngu hægt að nota ef á henni stendur pottur – það er ekki hægt að kveikja á henni án potts eða segulleiðara. Þetta dregur úr slysahættu. Viðvörunarljós fyrir hverja hellu lýsir upp þegar hún er orðin heitari en 60°. Þegar slökkt er á hellunni slökknar ljósið ekki fyrr en hitastig er komið niður fyrir 60°. Þar sem spanhellan hitnar einungis óbeint frá pottinum hitnar hún ekki eins mikið og aðrar tegundir hitaplatna. Að auki eru Gorenje spanhelluborðin með skynjara sem gerir það að verkum að straumur rofnar sjálfkrafa ef tómur pottur er á hellunni. Einnig er hitunarhraðinn forritaður í borðið þannig að ef hitunin verður of mikil lækkar borðið hitastigið sjálfkrafa til að fyrirbyggja slys.
Nákvæmar stillingar Spanhelluna er hægt að lækka niður í 50w sem þýðir að hægt er að bræða súkkulaði beint í potti (án vatnsbaðs) og hækka upp í 3200w sem er u.þ.b. tvöfalt á við hefðbundnar hellur og gashellur. Þarna á milli er hægt að velja á milli 9 eða 12 hitastillinga og sérstkalega er hægt að stilla neðri hitastigin nákvæmlega svo matur kraumi við rétt hitastig. Skjár í borðinu sýnir hvaða orkumagn er verið að nota. Stærð potts miðað við hellu er orðið aukaatriði þar sem einungis innihald pottsins hitnar. Þannig að jafnvel þó notaður sé minni pottur en hellan er hitnar eingöngu sá hluti hellunnar sem potturinn stendur á og því verður ekkert varmatap.
www.gorenje.is