Kennsluáætlun 8.bekkur haust 2016

Page 1

Kennsluáætlun 8.bekkur Haustönn 2016

Kennsluáætlanir eru ávallt birtar með fyrirvara um breytingar


Kennsluáætlun Enska, haust 2016 8. bekkur, 2 x 60 mín á viku Kennari: Karólína M. Jónsdóttir, Þorsteinn Alexandersson Hæfniviðmið eru í samræmi við Aðalnámskrá Grunnskóla 2014 Hlustun: Getur skilið daglegt mál er varðar hann sjálfan og hans nánasta umhverfi þegar talað er skýrt. Lesskilningur: Getur lesið og skilið texta með grunnorðaforða daglegs lífs um efni sem tengist þekktum aðstæðum og áhugamálum. Getur lesið sér til gagns og gamans stuttar bækur. Munnleg tjáning: Getur haldið uppi samræðum með stuðningi frá viðmælanda með eðlilegum framburði og áherslum á lykilorðaforða. Ritun: Getur skrifað stuttan samfelldan texta um efni sem tengist honum persónulega, tengt saman einfaldar setningar, stafsett flest algengustu orðin og notað algengustu greinarmerki, eins og punkta og spurningarmerki. Geti þýtt einfalda texta, bæði úr íslensku á ensku og öfugt. Námsleiðir Til þess að ná hæfniviðmiðunum er notast við eftirfarandi námsgögn:  Spotlight 8, lesbók og vinnubók  Ritunarverkefni  Hlustunaræfingar, s.s. kvikmyndir og tónlist.  Hraðlestrarbækur  Margmiðlunarefni  Þverfaglegt hópverkefni  Aukaverkefni: Málfræði, ritun, krossgátur, lesskilningsverkefni o.fl.  Quizlet; orðalistar Námsmat Virknimat kennara í tímum. Workbook og önnur verkefni yfirfarin og metin. Hraðlestrarverkefni metin. Munnlegt próf. Kaflapróf. Þverfaglegt hópverkefni. Notast verður að hluta til við sjálfsmat og jafningjamat í þemavinnu vetrarins. Nánara vægi einstakra verkefna má sjá í verkefnabók í Mentor. Kennarar áskilja sér rétt til breytinga ef breytingar verða á verkefnum nemenda og tilkynna um slíkt eins fljótt og auðið er.


Unnið verður í lotum og eru þrjár lotur á hvorri önn. Gera má ráð fyrir því að einhverjar breytingar geti orðið á eftirfarandi áætlun. Kennarar tilkynna um allar slíkar breytingar eins fljótt og auðið er.

Tímabil

Lota

Efni

Verkefni

Ágúst /september

1. lota 22.ágúst til 30. september

Október /nóvember

2. lota 3.október til 11. nóvember

Spotlight 8 – kafli 1

Lesbók: bls. 6-17

Spotlight 8 – málfræði

Vinnubók: bls. 6-21

Diary

Málfræði: bls. 137-141

Quizlet

Ritunarverkefni í Diary

Spotlight 8 – kafli 1-2

Lesbók: bls. 18-28

Spotlight 8 – málfræði

Vinnubók: bls. 21-33

Quizlet

Málfræði: bls. 141-149 Aukaverkefni

Nóvember / desember

3. lota 14. nóvember til 19. desember

*Allir bekkir lesa hraðlestrarbók á skólaárinu.

Spotlight 8 – kafli 2

Lesbók: bls. 29-37

Þverf. hópverkefni

Vinnubók: bls. 34-49

Hraðlestrarbækur

Málfræði: bls. 150-155

Quizlet

Þverf. hópaverkefni


Kennsluáætlun, danska, haust 2016 8. bekkur, 2 vikustundir Kennari: Þórunn Rakel Gylfadóttir, Svava Árnadóttir, Guðrún Kristín Þórisdóttir Markmið: Hlustun:  Getur skilið einfalt og skýrt talmál um efni sem varða hann sjálfan og nánasta umhverfi hans.  Skilur einföld fyrirmæli sem kennari gefur í kennslustund. Lesskilningur:  Getur lesið og skilið stutta, létta texta með grunnorðaforða daglegs lífs um efni sem tengist þekktum aðstæðum og áhugamálum.  Getur hraðlesið stuttan texta og skilið aðalatriðin.  Getur lesið sér til gagns og gamans stuttar, einfaldar bækur.  Hefur lesið a.m.k. eina léttlestrarbók (u.þ.b. 30 – 40 bls.). Munnleg tjáning:  Getur sagt frá sjálfum sér, áhugamálum og fjölskyldu á einfaldan hátt.  Getur tekið þátt í einföldum samræðum tveggja.  Getur haldið stutta kynningu um sjálfan sig og nánasta umhverfi. Ritun:  Getur skrifað stuttan samfelldan texta um efni sem tengist honum persónulega.  Getur tengt saman einfaldar setningar, stafsett flest algengustu orðin og notað algengustu greinarmerki s.s. punkta og spurningarmerki. Kennsluhættir: Lögð er áhersla á fjölbreytni í kennsluháttum þar sem tekið er mið af mismunandi námsnálgun og stöðu nemenda. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu nemenda. Unnið er jöfnum höndum með meginþætti tungumálsins; lestur, hlustun, talað mál og ritun. Í kennslustundum er unnið með lesbók og vinnubók sem tengist textanum. Auk þess lesa nemendur eina léttlestrarbók. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér mismunandi lestraraðferðir s.s. nákvæmnislestur, leitarlestur og hraðlestur. Nemendur eru þjálfaðir reglulega í að hlusta á mælt mál og vinna verkefni sem prófa skilning þeirra á málinu. Málfræði verður samþætt lestri og ritun með áherslu á nafnorð, töluorð og sagnorð. Fjölbreytt ritunarverkefni fylgja vinnubók og tengjast því efni sem fengist er við hverju sinni. Komið verður upp smiðjum þar sem nemendur fást við fjölbreytt verkefni. Lögð verður áhersla á færniþætti aðalnámskrár með áherslu á skapandi starf. Nemendur kynnast dönsku samfélagi, menningu og siðum með aðstoð kvikmynda, tónlistar og netsins. Námsefni: Notast er við eftirfarandi námsgögn:  Tænk, lesbók eftir Ásdísi Lovísu Grétarsdóttur og Ernu Jessen.  Tænk vinnubók (lesbók og vinnubók unnar saman).  Léttlestrarbók.  Dönsk málfræði fyrir 8.bekk – fjölfaldað hefti. Unnið með nafnorð  Danskar kvikmyndir og námsspil.


Námsmat: Nemendur taka nokkur skyndipróf á önninni ásamt því að vinna þeirra er metin jafnt og þétt. Frekari upplýsingar má finna á Mentor þar sem vægi hvers þáttar kemur fram. Í lok vetrar ( á vorönn) fá nemendur eina einkunn sem er byggð á vægi þessara þátta. Verður sú einkunn gefin í bókstöfunum A-D samkvæmt nýrri aðalnámsskrá. Á haustönn eru tveir kaflar lesnir, Rend og hop med din krop og Dig, mig og vi to. Nemendur lesa valdar blaðsíður úr köflunum og vinna samsvarandi blaðsíður í vinnubók. Auk þess vinna nemendur þemaverkefni, lesa léttlestrarbók, horfa á danskar bíómyndir og vinna valin verkefni í málfræði. Áætluð yfirferð á haustönn: Tímabil

Efni

Verkefni

ágúst -desember

Tænk, les- og vinnubók.

Kaflinn Rend og hop med din krop, ásamt vinnubók. Kaflapróf úr Rend og hop med din krop. Málfræði – nafnorð, óákv. og ákv. greinir, eintala og fleirtala nafnorða. Könnun úr nafnorðaheftinu. Kaflinn Dig, mig og vi to, valdar blaðsíður, ásamt vinnubók. Hraðlestrarbók sem prófað verður úr. Kaflapróf úr Dig, mig og vi to. Þemapróf úr kaflanum Rend og hop þar sem fléttað verður inn verkefni úr þáttunum ,,Klassen“.

Málfræðihefti (nafnorð)


Samfélagsfræði – 8. bekkur, haustönn 2016 Markmið náms í samfélagsfræði er að stuðla að skilningi nemenda á mörgum þeim hugmyndum og hugsjónum sem liggja til grundvallar viðhorfum okkar til umhverfis, auðlinda, menningar og sögu. Námið í 8. bekk skiptist þannig að fyrir jól verða nemendur í landafræði og eftir jól í sögu. Haustönninni verður skipt upp í þrjár lotur sem hér segir: Lota 1 Tímabil

Hæfni

23.8-30.9 Að nemendur skilji hugtakið sjálfbær þróun og hvaða máli sjálfbærni skiptir fyrir umhverfi, samfélag og efnahag.

Viðfangsefni

Námsmat

Kennslubókin Um víða veröld

Maður og náttúra

Kortaverkefni – Heimsálfur

Hvað er landafræði? bls. 4-5 Að nemendur geri sér grein fyrir nýtingu auðlinda og verndunar þeirra með hliðsjón af sjálfbærri þróun.

Heimsálfurnar bls. 6-8 Gróðurfar og landnýting. bls. 9-11

Hópverkefni Þúsaldarmarkmið

Mannréttindi Að nemendur átti sig á því hvernig mannkynið hefur mótað og breytt umhverfi sínu og búsetuskilyrðum.

bls. 18-25

Að nemendur átti sig á ólíkum lífskjörum fólks og þróun mannréttinda. Virknimat kennara


Lota 2 Tímabil

Hæfni

Viðfangsefni

Námsmat

Að nemendur skoði heimsálfurnar; íbúa þeirra, landslag, náttúrufar, auðlindir og helstu einkenni.

Asía bls. 36 - 57

Ferðalag til lands í Asíu - ferðadagbók

1.10-31.10

Að nemendur auki færni sína til að tjá skoðanir bæði munnlega og skriflega og að miðla þekkingu sinni til annarra.

Hópverkefni.

Skil á hópverkefni – land í Asíu.

Að nemendur þjálfist í að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra. Virknimat kennara Að nemendur geti aflað upplýsinga í margvíslega miðla á ábyrgan hátt.

Afríka bls. 58-70 Landslag bls. 61 Sahara bls. 63 Níl bls. 70 Suður – Afríka bls. 75 Austur Kongó bls. 72


Lota 3 Tímabil

Hæfni

1.11-19.12

Námsefni

Norður – Ameríka

Námsmat Skil á vinnubók

Bls. 80-107 Að nemendur auki færni sína í að afla upplýsinga á kortum og gröfum.

Eyjaálfa Landslag bls. 135-137 Ástralía bls. 138-141 Kyrrahafseyjar bls. 142-147

Suðurskautslandið

Virknimat kennara

Landslag, náttúrulíf og dýralíf bls. 150-155

Miðsvetrarpróf

Námsmat: Virknimat 5% Vinnubók 10% Hópverkefni 7,5% Ferðabók 7,5% Miðvetrarpróf 20% Námsmat eftir áramót verður 50% af námsmati skólaársins í samfélagsfræði


Íslenska – 8. bekkur, haustönn 2016 Markmið náms í íslensku er að gera nemendur að öflugri málnotendum, sem þekkja móðurmálið sitt og geta beitt því af öryggi. Móðurmálið er lykill að öflun og miðlun upplýsinga og því byggir nám í 8. bekk fyrst og fremst á því að þjálfa málnotkun, lestur, munnlegar kynningar og ritun. Tímabil

Námsefni

Viðfangsefni

Námsmat

Smásagnasmáræði

Nemendur lesa fjórar valdar sögur í Smásagnasmáræði og vinna verkefni tengd þeim.

Lokaverkefni um eina af sögunum fjórum

1.lota 22. ágúst-9. september

Virknimat kennara í tímum.

Tímabil

Námsefni

Viðfangsefni

Námsmat

2. lota

Málið í mark

Virknimat kennara

12.september – 14. október

Orðbragð

Nafnorð og lýsingarorð

Gagnapróf í málfræði

-fallbeyging, stofn, kyn, tala og fall, stigbreyting, sterk og veik beyging Stafsetningarverkefni Kveikjur

Stór og lítill stafur, reglur um -n og -nn

Undirbúin stafsetningaræfing

Tímabil

Námsefni

Viðfangsefni

Námsmat

3. lota

Kveikjur

Læsi

Virknimat kennara

24. október- 9. desember

Orðbragð

Framsögn

Nemendur kynna verkefni

Ritun Stafsetning

-að byggja upp ritgerð

Málið í mark

-að skrifa heilar málsgreinar

Ég-ritgerð

Stafsetningarkönnun

Reglur um y, ý og ey

Hæfni- og matsviðmið hverrar lotu má finna á mentor.is auk nánari lýsingar á verkefnum.


Kennsluáætlun Náttúrufræði haust 2016 8. bekkur, 2 x 60 mín á viku Kennarar: Hanna Þorgerður Vilhjálmsdóttir, Sigrún Elva Einarsdóttir Námsefni ,,Lífheimurinn“ úr kennslubókaflokknum ,,Litróf náttúrunnar“. Námsmat (haustönn) - Próf - Vinnubók - Skýrsla - Ástundun Gera má ráð fyrir því að einhverjar breytingar geti orðið á eftirfarandi áætlun. Kennarar tilkynna um allar slíkar breytingar eins fljótt og auðið er.

Lotur

23. ágúst – 9.sept

Efni

Verkefni

Lokið

Kafli 1 Lífið á jörðinni (Sleppa bls. 12-14)

Bakteríuræktun

Kafli 2 Bakteríur og veirur

12. sept – 6. okt

Kafli 3 Þörungar og frumdýr

Frumdýraskoðun

Kafli 4 Sveppir og fléttur Miðannarpróf

10. okt - 28. okt

Kafli 5 Plöntur (Sleppa bls. 59)

Verkefni um plöntur

31. okt - 19.des

Kafli 6 Dýr Kafli 7 Atferlisfræði

Verkefni um hryggleysingja Verkefni um hryggdýr

Lokapróf í janúar


Stærðfræði – 8. bekkur, 2016-2017 Markmið náms í stærðfræði er að nemendur öðlist alhliða hæfni til að nota stærðfræði sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Í stærðfræðinámi þurfa nemendur að þróa með sér hæfni til að setja fram og leysa viðfangsefni, ígrunda ólíkar aðferðir og líkön sem nýtast við lausnir þeirra og leggja mat á niðurstöður. ATHUGIÐ: Námsmatið er ekki komið inn á þessa áætlun.

Kafli 1 Tölur og talnareikningur Tímabil

Hæfni

Viðfangsefni

Námsmat

Að nemandi geti lesið upplýsingar úr stærðfræðitexta og valið viðeigandi aðferð við lausn viðfangsefnanna.

Hugarreikningur, slumpreikningur og blaðareikningur.

Hópverkefni.

Deilanleiki og þáttun.

Kaflapróf

25/8-9/10

Að nemandi geti notað hugtök og táknmál stærðfræðinnar til að setja fram, tákna og leysa hversdagsleg og fræðileg vandamál

Neikvæðar tölur Veldi.


Kafli 2 Rúmfræði Tímabil 12/1020/11

Hæfni

Viðfangsefni

Námsmat

Að nemandi geti reiknað ummál, horn, flatarmál, yfirborðsflatarmál, rúmmál, tíma, hraða og breytt mælikvarða

Punktar, línur, ferlar, hálflínur og strik.

Kaflapróf

Að nemandi geti kannað og lýst eiginleikum og einkennum tví- og þríviðra mynda og notað eiginleikana og einkennin í tengslum við rúmfræðiteikningar og útreikninga

Þekkja og nota eiginleika topphorna, grannhorna, lagshorna, einslægra horna, réttra horna, hvassra horna og gleiðra horna.

Mæla og teikna horn.

Reikna út hornastærðir í þríhyrningum og ferhyrningum. Hnitakerfið. Speglun , hliðrun, snúningur og samhverfur.

Verkefni


Kafli 3 Almenn brot, tugabrot og prósent Tímabil

Hæfni

Námsefni

Námsmat

23/11 ´15 29/1 ´16

Að nemandi geti borið saman og reiknað með tölum, sem skráðar eru á mismundandi formi, þ.e. með heilum tölum, tugabrotum, almennum brotum, prósentum, og tölum á staðalformi.

Almenn brot, teljari, nefnari og blandin tala. Eiginlegt brot, óeiginlegt brot og jafngild brot. Tugabrot.

Kaflapróf

Breyta almennu broti í tugabrot og öfugt

Verkefni

Prósent. Breyta almennum brotum og tugabrotum í prósent og öfugt.


Kafli 4 Tölfræði Tímabil

Hæfni

Viðfangsefni

Að nemandi geti raðað gögnum og flokkað þau, fundið og rökrætt um miðgildi, tíðasti gildi, meðaltal og spönn.

Flokka gögn og búa til tíðnitöflur

Námsmat

1/2-18/3

Að nemandi geti gert kannanir og notað gagnabanka til að leita að og greina töluleg gögn og beitt heimildarýni.

Kynna gögn með súluritum, skífuritum, línuritum og stuðlaritum Finna hlutfallstíðni Reikna út gildi s.s. meðaltal, miðgildi og tíðasta gildi Skipuleggja tölfræðilega könnun

Hópverkefni

Kaflapróf


Kafli 5 Algebra og jöfnur Tímabil

Hæfni

Námsefni

Námsmat

30/3-10/5 Að nemandi geti þáttað og einfaldað algebrustæður og tengt þær við aðstæður í daglegu líki.

Bera kennsl á mynstur sem form, myndir og tölur mynda

Að nemandi geti reiknað með formúlum

Setja úrlausnarefni eða verkefni úr daglegu lífi fram með bókstöfum og tölum

Að nemandi geti leyst fyrsta stigs jöfnur og ójöfnur og jöfnur með tveimur óþekktum stærðum og notað aðferðina til að leysa fræðileg og hagnýt verkefni

Reikna gildi stæðna Reikna með bókstöfum Leysa jöfnur Nota jöfnur til að leysa verkefni úr daglegu lífi

Námsefni: Skali 1A, Skali 1B Námsmat: Í vinnslu

Kaflapróf


Kennsluáætlun Leiklist haustið 2016 8. bekkur, 1 vikustund hálfan veturinn, hálfur bekkur. Kennari: Sigríður Birna Valsdóttir Helstu markmið: hæfniviðmið -

að styrkja sjálfsmynd og öryggi nemenda að virkja hæfni nemenda í skapandi ferli í samvinnu við aðra að þjálfa hæfni nemenda til skapandi hugsunar og athafna að kynna fyrir nemendum grunnhugtök í leiklist

Kennslutilhögun Í leiklistartímum er lögð áhersla á samvinnu og virðingu. Kennslan byggir á leikjum, spuna og ýmiss konar leiklistaræfingum. Lögð er áhersla á að leysa ímyndunaraflið úr læðingi um leið og stuðlað er að tillitsemi við aðra. Gert er ráð fyrir að nemendur hreyfi sig og taki þátt í öllum tímum. Hæfniviðmið: - að nemandi hlusti á og virði það sem aðrir hafa fram að færa - að nemandi geti unnið með öðrum í einföldum spuna og leikþáttum - að nemandi geti tjáð sig í gegnum einfaldar leiklistaræfingar - að nemendur geti beitt grunnreglum í spuna - að nemandi geti útskýrt hugtökin „fókus”, „hlustun”, „rými”, „látbragð” og „fjórði veggurinn”. Námsmat Nemendur í leiklist eru metnir út frá mætingu, þátttöku í tímum, vinnubrögðum og framförum yfir veturinn. Beitt er símati og sjálfsmati. Gefin verður einkunn og umsögn í lok vetrarins. 8. bekkur Tímabil

Efni

Verkefni

september

Hópefli, traust og samvinna.

Október

Áhersla á samvinnu og að styrkja sjálfsmynd nemenda.

Nemendur fara í leiki og gera verkefni sem hrista hópinn saman, efla samvinnu og skapa traust. Nemendur vinna með einfaldar spunaog leiklistaræfingar.

Nóvember desember

Áhersla á samvinnu og að efla skapandi hugsun og athafnir. Spunavinna.

Nemendur þjálfa framkomu og þor í gegnum leik og spuna. Á vorönn verður foreldrum 8.bekkjar boðið á leiklistar/leikjakvöld sem bekkurinn undirbýr með kennara.

Lokið


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.