Raunfærnimat í stuttu mál Raunfærnimat er fyrir einstaklinga sem hafa öðlast færni og þekkingu í gegnum störf sín á vinnumarkaði.
Hefur þú starfað við framreiðslu og vilt ljúka námi í faginu?
Í raunfærnimatinu er staða einstaklinga greind, færni metin og gefnir möguleikar á að ljúka náminu. Þátttakendur eiga þess kost að láta meta færni sem þeir hafa aflað sér utan skólakerfisins með raunfærnimati. Nánari upplýsingar er að finna á www.idan.is og í síma 590 6400. Einnig má senda tölvupóst á netfangið radgjof@idan.is
Ef þú starfar við framreiðslu og vilt ljúka námi í greininni þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig.
idan@idan.is - www.idan.is
DAGSVERK.IS / IDAN 0314
Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur og getur mögulega hjálpað þér að ljúka námi.
Hvað er raunfærnimat? Raunfærnimat er mat á þeirri færni og þekkingu í faginu sem þú hefur fengið í starfi og frítíma. Raunfærnimat getur mögulega stytt nám þitt. Að loknu raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að útskrifast. Raunfærnimat er á engan hátt tilslökun á þeim kröfum sem gerðar eru samkvæmt aðalnámskrá.
Inntökuskilyrði í raunfærnimat í framreiðslu eru: • 25 ára aldur. • 5 ára starfsreynsla, staðfest með opinberum gögnum t.d. lífeyrissjóðsyfirliti.
Ferill einstaklings í raunfærnmati Kynningarfundur • Nánari upplýsingar um ferlið. • Viðtal bókað hjá náms- og starfsráðgjafa. Viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa • Gögnum skilað s.s. staðfestingu á vinnutíma og námsferli. • Farið yfir gögn. Færniskráning • Skráning á fyrra námi, námskeiðum og annarri þekkingu sem einstaklingur býr yfir. • Gátlistar – einstaklingur leggur mat á hæfni sína miðað við gildandi námskrá. Matsviðtal hjá fagaðila • Færni og þekking metin. Áætlun um námslok • Náms- og starfsráðgjafar skoða næstu skref með einstaklingi. • Nám samkvæmt námsáætlun. • Sveinspróf.