ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS
5 TBL. 2011
MAÍ/JÚNÍ
VERÐMÆTIR FULLTRÚAR ERLENDIS Nýlega hófust Smáþjóðaleikarnir í Liechtenstein. Er þar um að ræða fjölgreinamót ríkja í Evrópu með færri en eina milljón íbúa, og eru þjóðirnar nú níu talsins eftir að Svartfjallaland fékk sjálfstæði og bættist í hópinn. Mótið er haldið annað hvert ár, undir verndarvæng Ólympíuhreyfingarinnar, og uppfyllir allar kröfur og hefðir ólympískra leika. Þrátt fyrir nafngiftina er hér um býsna stóran viðburð að ræða, og er þetta stærsta einstaka verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Að þessu sinni fer um það bil 140 manna hópur á vegum ÍSÍ og þeirra sérsambanda sem þátt taka í leikunum. Þrátt fyrir að vera fjarri því stærsta þjóðin hefur Ísland ávallt verið á meðal sigursælustu þjóðanna á leikunum. Auk þess að vera góður vettvangur fyrir okkar keppendur þá er hér jafnframt mikill menningarviðburður á ferð þar sem samskipti ríkjanna eru bæði mikil og góð. Íþróttamálaráðherrar þjóðanna hafa komið saman til fundar samhliða leikunum, og hefð er fyrir því að þjóðhöfðingjar ríkjanna sæki leikana heim. Það hefur verið full ástæða til að sýna
ÓLYMPÍUFJÖLSKYLDA ÍSÍ
SIDE-
MEÐAL
EFNIS:
Smáþjóðaleikar 2011 Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ Hjólað í vinnuna Nýir formenn Fræðsluviðburðir ÍSÍ
stolt yfir bæði árangri og framkomu íslenskra keppenda á þessum leikum – þeir hafa í senn verið landi og þjóð til sóma og góð landkynning almennt fyrir Ísland og íslenskt samfélag. Hið sama má raunar segja um fjöldann allan af íslenskum keppendum sem taka þátt í æfingum og keppni erlendis allt árið um kring í hinum ólíkustu íþróttagreinum – svo ekki sé minnst á þá einstaklinga sem hafa íþróttina að atvinnu sinni erlendis. Hvað skyldu þeir atvinnuleikmenn og þjálfarar sem Ísland á erlendis koma fram í mörgum viðtölum í fjölmiðlum í hverri viku? Hvað skyldi oft hafa verið vísað til Íslands eða „Íslendingsins― í þeim viðtölum? Hvað skyldu margir erlendir ferðamenn hafa komið til Íslands af þeirri ástæðu einni saman að kynnast af forvitni þessari stoltu smáþjóð sem hefur lagt íþróttasamfélaginu til svo hlutfallslega marga afreksmenn. Þá er ótalinn sá fjöldi erlendra gesta sem kemur – á eigin kostnað – beint eða óbeint til Íslands vegna viðburða
innan íþróttahreyfingarinnar, hvort sem um er að ræða æfingar, mótahald, einstaka leiki eða keppnir, ráðstefnur eða fundi. Vissulega væri fróðlegt að taka allar þessar upplýsingar saman, og þá fjárhagslegu hagsmuni sem þeim fylgja. Það eina sem segja má með nokkurri vissu er að þeir fjármunir eru margföld sú fjárhæð sem íslensk stjórnvöld leggja íþróttahreyfingunni til. Framlög rikisins til íþróttamála byggja á umgjörð og uppbyggingu starfseminnar, en hvergi er að finna skilgreinda fjármuni til að standa straum af því mikla landkynningarstarfi sem íþróttahreyfingin stendur fyrir. Hefur íþróttahreyfingin reyndar aldrei farið fram á slíkt – en ljóst má vera að við ákvörðun fjárhæða til íþróttastarfs er ekki annað en sanngjarnt að taka tillit til þeirra staðreynda sem felast í viðamiklu landkynningarstarfi og tekjumyndun fyrir íslenskt samfélag. Gleymum því ekki að Smáþjóðaleikarnir verða haldnir á Íslandi árið 2015. Ólafur E. Rafnsson forseti ÍSÍ
HJÓLAÐ Í VINNUNA 2011—ÞÁTTTÖKUMET SLEGIÐ Hjólað í vinnuna 2011 hófst formlega í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík og á Glerártorgi, Akureyri miðvikudaginn 4. maí sl. Þátttakendum var á báðum stöðum boðið að hjóla við, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp. Hjólað í vinnuna fór vel af stað og mikill fjöldi vinnustaða skráði sig til leiks fyrstu daga átaksins. Var þátttökumetið fyrir fjölda vinnustaða slegið strax þann 5. maí. Þá höfðu 599 vinnustaðir skráð til leiks, 48 fleiri vinnustaðir en allan tímann í fyrra. 9. maí höfðu svo öll þátttökumet verið slegin, þá höfðu 662 vinnustaðir, skráð 1432 lið með 9.449 liðsmönnum. Miðvikudaginn 18. maí var þátttakendum boðið að hjóla við í kaffihúsatjöldum Hjólað í vinnuna á 5 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Í tjöldunum var boðið uppá ilmandi kaffi frá Kaffitár, Egils Kristal frá Ölgerðinni og á þremur stöðum voru viðgerðarmenn frá reiðhjólaversluninni Erninum sem buðu uppá léttar viðgerðir á hjólunum. Í tjöldunum voru einnig aðilar frá helstu hjólreiðafélögum landsins sem spjölluðu við gesti og kynntu sig og sín félög. Mikill fjöldi hjólaði við, enda var veðrið yndislegt, sólin skein og lítill sem enginn vindur – besti dagurinn í átakinu þetta árið.
Stefnt var að því að ljúka átakinu þriðjudaginn 24. maí, en vegna eldgossins í Grímsvötnum var ákveðið að bæta við einum degi og var því miðvikudagurinn 25. maí síðasti keppnisdagurinn. Lokatölur voru þær að samtal s sk ráðu 69 4 (551) vinnustaðir 1.628 (1.347) lið til leiks með 11.271 (9.451) liðsmanni til leiks, samtals 19,25 % þátttökuaukning frá 2010. Alls voru hjólaðir 830.485,81 km eða 620,23 hringir í kringum landið. Með átakinu hafa því sparast um 150 tonn af útblæstri CO2 , 15 milljónir króna í bensín og brenndar voru um 28 milljónir kaloría, sé miðað við 80 kg mann sem ekur á fólksbíl. Ferðamáti var í 73,33% (72,58%) tilfella á hjóli, 24,46% (25,55%) gangandi, 1,77% (1,55%) með strætó, 0,06% á línuskautum og í 0,38% (0,26%) ferða nýttu þátttakendur eigin orku á annan hátt. Tölurnar í svigunum eru frá 2010.
Föstudaginn 27. maí fór fram verðlaunaafhending í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem veittar voru viðurkenningar í öllum 7 keppnisflokkunum, fyrir annars vegar hlutfall daga og hinsvegar hlutfall kílómetra. Hér að ofan má sjá verðlaunahafa Hjólað í vinnuna 2011. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslanda þakkar öllum fyrir samstarfið, þátttökuna og aðstoðina þetta árið og hvetur alla til að halda áfram að nýta eigin orku í allt sumar. Svo minnum við á að á næsta árið verður Hjólað í vinnuna 10 ára og hvetjum við alla til að vera með að ári og keppa að nýju markmiði.
Þátttakendur voru duglegir að senda inn myndir, reynslusögur og myndbönd en hægt er að skoða það nánar á www.hjoladivinnuna.is. Hér að neðan má sjá frá liðinu Nobbarar sem tók þátt fyrir Alcoa Fjarðarál. Þeir hjóluðu frá Neskaupsstað inn Norðfjarðarsveit, yfir Oddskarð, niður í Eskifjörð, yfir Hólmaháls og í álver Alcoa Fjarðaráls í Reyðarfirði. Myndin er tekin í 680 metra hæð við göngin í gegnum Oddskarð.
ÞJÁLFARAMENNTUN ÍSÍ — FJARNÁM Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs lauk nú nýverið. 16 nemendur luku námi á 1. stigi og 19 nemendur á 2. stigi. Á næstunni verður auglýst sumarfjarnám ÍSÍ á sömu stigum. Námsefnisgerð fyrir 3. stig stendur nú yfir og standa vonir til þess að hægt verði að bjóða upp á nám á því stigi vorið 2012. Allar upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri fræðslusviðs á vidar@isi.is eða í síma 460-1467.
SMÁÞJÓÐALEIKAR—LIECHTENSTEIN 2011
5. TBL. 2011
14. Smáþjóðaleikar Evrópu voru settir mánudaginn 30. maí sl. Að þessu sinni voru keppendur í öllum 10 íþróttagreinunum sem keppt er í á leikunum. Þær eru frjálsíþróttir, sund, júdó, skotíþróttir, tennis, borðtennis, blak, strandblak, skvass og hjólreiðar. 95 Íslendingar keppa á leikunum, en auk þ e s s er u þ j álf ar ar , lið s s tj ó r ar , sjúkraþjálfarar, sálfræðingur og læknir með í för, að ógleymdum dómurum og fararstjórn. Í allt telur því hópurinn um 140 manns, sem er fámennari hópur en farið hefur á síðustu Smáþjóðaleika. Mótshaldarar höfðu áhyggjur af því að íslenska liðið kæmist ekki á leikana vegna eldgoss í Grímsvötnum, en sem betur fór hindraði það ekki för íslenska hópsins. Íslenski hópurinn stefnir eins og alltaf á að standa sig vel á leikunum, en Ísland hefur unnið flest gullverðlaun á leikunum frá upphafi, þó að Kýpur hafi unnið flest verðlaun í heildina. Frá upphafi þessara leika, árið 1985, hafa átta þjóðir tekið þátt í leikunum. Á le ik unum í Lie c hte ns te in te k ur Svartfjallaland í fyrsta sinni þátt, en þeir eru opnir fyrir Evrópuþjóðir með sjálfstæða Ólympíunefnd og íbúafjölda undir einni milljón. Svartfjallaland mun án efa styrkja keppnina í mörgum greinum, en þjóðin er sterk í flestum þeim greinum sem fram fara á Smáþjóðaleikum.
Setningarhátíðin var hin glæsilegasta og var þema hennar sirkus. Fjölmenni var á Rheinpark Stadium, jafnt í stúkum sem á vellinum sjálfum. Forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar, Jacques Rogge, forseti Evrópusambands Ólympiunefnda Patrick Hickey voru meðal gesta ásamt íþróttamálaráðherrum Smáþjóða Evrópu og fulltrúum Ólympíunefnda.
Fánaberi íslenska hópsins við setningarathöfnina var Jakob Jóhann Sveinsson sundmaður. Jakob Jóhann keppir nú á sínum sjöundu leikum, fyrstu leikarnir hans voru einmitt í Liechtenstein árið 1999.
LEIKAR 2011
SMÁÞJÓÐALEIKAR EVRÓPU
30. MAÍ – 4. JÚNÍ
Hópurinn í Liechtenstein heldur úti facebook síðu í tengslum við leikana. Ber hún nafnið Smáþjóðaleikar og er þar að finna nýjustu úrslit og myndir frá leikunum.
ÓLYMPÍUHÁTÍÐ EVRÓPUÆSKUNNAR
24.– 29. JÚLÍ
ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 514 4000 Fax: 514 4001 Netfang: isi@isi.is
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) varð til við sameiningu Íþróttasambands Íslands og Ólympíunefndar Íslands árið 1997. ÍSÍ er landssamband héraðssambanda/íþróttabandalaga og sérsambanda og er einu heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. ÍSÍ er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu samkvæmt íþróttalögum. Félagsaðildir í íþróttahreyfingunni eru rúmlega 200 þúsund og fjöldi virkra iðkenda er um 85 þúsund.
ÍSÍ fréttir ● 5. tbl. 2011 ● Ábyrgðarmaður: Ólafur E. Rafnsson ● Ritstjóri: Andri Stefánsson ● Myndir: Úr safni ÍSÍ
NÝIR FORMENN SAMBANDSAÐILA Á ársþingi Austur Húnvetninga (USAH), þann 6. mars sl., var Aðalbjörg Valdimarsdóttir kosin nýr formaður USAH. Ungmennasamband VesturSkaftellinga (USVS) hélt ársþing sitt þann 26. mars sl. Ragnheiður Högnadóttir var kosin formaður USVS. Ársþing Borðtennissambands Íslands (BTÍ) var haldið þann 31. mars sl. Sigurður Valur Sverrisson var kjörinn formaður BTÍ, en hann var formaður sambandsins á árunum 1994-2004.
Badmintonsamband Íslands (BSÍ) hélt ársþing sitt þann 13. maí sl. Kristján Daníelsson var kjörinn nýr formaður.
Héraðsþing Ungmennas am b and s ins Ú lf lj ó ts (USÚ) var haldið þann 14 apríl sl. Matthildur Ásmundardóttir var kosin nýr formaður. Þing Héraðssambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) fór fram þann 13. apríl sl. Hermundur Pálsson var kjörinn nýr formaður.
Ársþing Taekwo ndo sambands Íslands (TKÍ) fór fram þann 26. maí sl. Richard Már Jónsson var kjörinn formaður.
Tennissamband Íslands (TSÍ) hélt ársþing sitt þann 19. apríl sl. Helgi Þór Jónsson var kjörinn nýr formaður.
MYND MÁNAÐARINS Frá setningarhátíð XIII Smáþjóðaleika Evrópu í Liechtenstein 1999.
AFMÆLISDAGAR 6. maí ÍBV— stofnað 1945, 66 ára 14. maí HSK— stofnað 1910, 101 árs 17. maí FRÍ— stofnað 1968, 43 ára ÍF— stofnað 1979, 32 ára 18. maí DSÍ— stofnað 2000, 11 ára 19. maí HHF— stofnað 1905, 106 ára 25. maí UÍF— stofnað 2009, 2 ára 29. maí ÍRB— stofnað 1996, 15 ára
Á heimasíðu ÍSÍ má finna frekari upplýsingar um viðburði ársins 2011, Ólympíuleika, Lífshlaupið og fjölmargt annað um íþróttir á Íslandi.
www.isi.is