Fréttabréf FT - 81. tbl., febrúar 2010

Page 1

Fréttabréf Félags tónlistarskólakennara

NÓTAN - uppskeruhátíð tónlistarskóla Fréttir frá yfirstjórn uppskeruhátíðar tónlistarskóla. Yfirstjórn uppskeruhátíðar tónlistarskóla hefur rætt heiti á uppskeruhátíðinni og eru fulltrúar í stjórninni samhljóða um heitið „NÓTAN – uppskeruhátíð tónlistarskóla“. Verðlaunagripir fyrir uppskeruhátíðina munu endurspegla heiti hátíðarinnar en Svafa Björg Einarsdóttir mun hanna gripina. Svafa rekur gler- og keramikverkstæði í Hafnarfirði. Lokatónleikar uppskeruhátíðar tónlistarskóla Eins og fram hefur komið í kynningu á fyrirkomulagi uppskeruhátíðar tónlistarskóla, bæði á svæðisþingum tónlistarskóla sl. haust og í útsendingu yfirstjórnar í nóvember sl., sér yfirstjórn um að skipuleggja þriðja hluta uppskeruhátíðarinnar, sem felst í tónleikum á landsvísu. Undirbúningur gengur vel og hér á eftir fylgja upplýsingar um fyrirkomulag lokatónleika uppskeruhátíðarinnar þar sem valdir nemendur af svæðisbundnu tónleikunum koma saman.

Lokatónleikar uppskeruhátíðarinnar fara fram í Langholtskirkju laugardaginn 27. mars. Að hámarki getur fjöldi atriða á tónleikunum orðið tuttugu og sjö og fer flutningur þeirra fram á milli kl. 10.00-14.00. Útfærsla tónleikanna skýrist þegar svæðisbundnu tónleikarnir hafa farið fram út um land og ljóst er hvaða atriði mynda dagskrá lokatónleikanna (lengd og fjöldi). Lokaathöfn fer fram kl. 16.00 þann 27. mars þar sem veittir verða verðlaunagripir fyrir framúrskarandi tónlistaratriði og þeir nemendur sem fá slíkar viðurkenningar flytja sín verk. Kynnir á lokatónleikunum verður Pétur Grétarsson og valnefnd fyrir lokatónleikana skipa: Arndís B. Ásgeirsdóttir, Gunnar Þórðarson og Guðni Franzson. Yfirstjórn uppskeruhátíðar skipa: Sigrún Grendal, FT, formaður, Árni Sigurbjarnarson, FT, Snorri Örn Snorrason, FÍH, Sigurður Flosason, FÍH, Theodóra Þorsteinsdóttir, STS, Sigurður Sævarsson, STS. Framhald á baksíðu

Uppbygging meistaranáms í hljóðfæra- og söngkennslu í Listaháskóla Íslands Á fundi 8. maí 2009, sem formaður og varaformaður Félags tónlistarskólakennara, FT, áttu með Hjálmari H. Ragnarssyni, rektor Listaháskóla Íslands, LHÍ, og Mist B. Þorkelsdóttur, deildarforseta tónlistardeildar LHÍ, fögnuðu formenn félagsins áformum LHÍ um að setja á laggirnar meistaranám í hljóðfæra- og söngkennslu. Enda um brýnt hagsmunamál fyrir tónlistarkennara og -fræðslu að ræða. Fulltrúar FT lýstu yfir áhuga á því að myndaður yrði starfshópur með fulltrúum hagsmunaðila sem fengi aðkomu að umræðu um inntak fyrirhugaðrar menntunar tónlistarskólakennara. Þá þegar hafði rektor LHÍ ákveðið að skipa slíkan hóp. Slíkt samráð er liður í að skapa sem mesta sátt um kennaranámið og stuðla að því að námið sé sem best í takt við samfélagsþróun og þarfir tónlistarskólanna. Jafnframt líta fulltrúar FT á það sem hagsmuni tónlistarfræðslu í víðum skilningi að efla tengsl tónlistarskólakerfisins og Listaháskóla Íslands.

Samþykkt FT um menntun tónlistarskólakennara kynnt Á fundinum var kynnt samþykkt ársfundar Félags tónlistarskólakennara sem haldinn var 14. febrúar 2009 þess efnis að stjórn félagsins „beiti sér fyrir því að menntun tónlistarskólakennara hér á landi verði aðlöguð alþjóðlegu umhverfi og samræmdum viðmiðum. Í því samhengi verði stuðlað að því að fimm ára háskólamenntun tónlistarskólakennara með fullgildum lokaprófum verði komið á og námslok miði við meistaraprófsgráðu eða sambærilega menntun.“ Vinnuhópur hefur skilað af sér tillögum Hjálmar H. Ragnarsson greindi frá því á svæðisþingi tónlistarskóla á Akranesi síðast liðið haust að skipaður hefði verið starfshópur til að teikna upp og gera tillögur um meistaranám í hljóðfæra- og söngkennslu.

Febrúar 2010 · tölublað 81

Framhald í opnu


Frá Listaháskóla Íslands — Í vinnuhópnum voru: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari og formaður hópsins, Kjartan Óskarsson, klarínettuleikari og skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík og Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, píanóleikari og formaður Félags tónlistarskólakennara. Hópurinn skilaði af sér tillögum og greinargerð 15. janúar sl. og mun Listaháskólinn nú vinna úr tillögunum. FT hefur rætt við rektor LHÍ um að standa sameiginlega fyrir málþingi um fyrirhugað meistaranám þegar nær dregur vori.

Úr erindum fulltrúa Listaháskóla Íslands á svæðisþingum tónlistarskóla Á fundi FT með fulltrúum Listaháskólans 8. maí 2009 var auk kennaramenntunar rætt um Opna Listaháskólann og tengsl listaháskólans við grasrótarstarfsemi á sviði tónlistarfræðslu. Þá spurðu fulltrúar FT út í „Könnun á afdrifum útskrifaðra nemenda Listaháskólans og viðhorfum þeirra til námsins og stofnunarinnar.“ Þá var þess farið á leit við Hjálmar H. Ragnarsson að Listaháskólinn hefði aðkomu að svæðisþingum tónlistarskóla haustið 2009 og skiptu þau Hjálmar og Mist með sér að mæta á öll sex þingin. Á þingunum gerðu þau framangreindum atriðum skil ásamt því að fara yfir skipulag og starfsemi tónlistardeildar LHÍ. Hér á eftir fylgir samantekt úr erindum þeirra á þingunum. Sjö námsbrautir í tónlist Listaháskóli Íslands var stofnaður 1998 en tók til starfa 10. september 1999. Tónlistardeildin var stofnuð 2001 og henni er stýrt af Mist B. Þorkelsdóttur, deildarforseta. Fimm deildir eru starfandi við skólann þar sem boðið er upp á alls 17 námsbrautir þar af er boðið upp á sjö mismunandi námsbrautir í tónlist.  Hljóðfæraleikur/söngur  Tónsmíðar  Kirkjutónlist (mjög lítil braut, sérhæfingin fer fram í Tónskóla Þjóðkirkjunnar)  Mennt og miðlun (tónmenntakennarasviðið) 

Meistaranám í tónsmíðum Meistaranám í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi

Diplóma í hljóðfæraleik

Námið við skólann er að mestu leyti á bakkalárstigi en einnig á meistarastigi. Í tónlistardeildinni eru veittar tvær gráður á bakkalárstigi, B.Mus. og B.A. gráða. B.Mus. gráðan er flytjendagráða og er hún minna fræðileg en B.A. gráðan. Á meistarastigi eru veittar M.A. gráður. Einnig er í boði diplóma nám í hljóðfæraleik sem tekur tvö ár. Það nám gerir nemendum, sem eru að ljúka framhaldsskóla, kleift að stunda nám við skólann. Flestir kjósa að halda áfram eftir að hafa lokið stúdentsprófi og taka þá tvö ár til viðbótar og klára bakkalárgráðu. Fjöldi nemenda Nemendur við skólann eru 470 og þar af eru 81 í tónlistardeildinni. 73 nemendur eru á bakkalárstigi og 8 eru í meistaradeildinni. Alls hafa 98 nemendur útskrifast frá tónlistardeildinni frá stofnun hennar. Inntökuskilyrði Stúdentspróf er meðal inntökuskilyrða í LHÍ en einstaka undan-

tekningar hafa verið gerðar þar sem um mjög góðar umsóknir hefur verið að ræða og ef nemandi hefur lokið 100 einingum í framhaldsskóla. Miðað er við að umsækjandi hafi lokið framhaldsprófi í tónlist en ekki er sjálfgefið að nemandi komist inn þó hann hafi lokið því prófi. Um 97% nemenda sem fara inn í LHÍ ljúka námi, sem er mjög hátt hlutfall miðað við aðra skóla. Bakkalárstig – Framtíðarsýn Í umfjöllun um framtíðarsýn kom fram hjá Hjálmari og Mist að ekki væri á stefnuskránni að stofna nýjar brautir við skólann enda væru ekki fjárframlög fyrir hendi. Undanskilið er þó rytmískt nám en LHÍ hefur átt í viðræðum við Tónlistarskóla FÍH um hugsanlegt samstarf þar að lútandi með samskonar hætti og er á milli Listaháskólans og Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Tónskóli Þjóðkirkjunnar veitir nám í því sem viðkemur kirkjunni en það tónlistartengda er kennt í tónlistardeildinni. Kennarar brautarinnar fara í gegnum mat hjá tónlistardeild LHÍ. Í máli Hjálmars og Mist kom fram að þau vilja efla samvinnu við tónlistarskólana. Margir möguleikar eru fyrir hendi, finna þarf fleiri samstarfsfleti milli skólanna og skoða hvernig hægt er að efla samstarf við landsbyggðina. Forsvarsmenn LHÍ hafa óskað eftir því að mega fjölga nemendum við tónlistardeildina en að þeirra mati væru 120 nemendur ákjósanleg stærð. Meistarastig - Framtíðarsýn Í undirbúningi er ný námsbraut á meistarastigi: „Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf”“ „Námið er tveggja ára nám til 120 eininga og ljúka nemendur að jafnaði 30 einingum á önn. Nemendur í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi ljúka námi með M.A. - gráðu. Listaháskólinn stefnir að því að hefja rekstur samevrópsku meistaranámsbrautarinnar haustið 2010. Nám í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi er nýtt nám á meistarastigi sem Listaháskólinn ásamt fjórum öðrum evrópskum tónlistarháskólum hafa undirbúið í sameiningu. Enska heitið er „Joint Music Master for New Audiences and Innovative Practise.“ Námið er rekið í samvinnu skólanna og ýmissa stofnana utan þeirra. Samstarfsaðilar á Íslandi eru Tónlistarskólinn á Ísafirði og Háskólasetur Vestfjarða. Á annarri önn stunda nemendur námið við einn af hinum fjórum erlendu skólum. Markmiðin eru að þróa og framkvæma skapandi verkefni við mismunandi aðstæður og efla með þeim áræði og dug til að gerast leiðtogar á sínu sviði. Nemendur fást við fjölbreytta tónsköpun og flutning, og þróa í því skyni nýjar aðferðir. Þeir fá þjálfun í listrænni stjórnun, verkefnastjórnun, frumkvöðlastarfi í tónlist og aðgerðatengdum rannsóknum. Unnið er að samstarfsverkefnum milli ólíkra tónlistarstíla, listgreina og hvers konar hópa samfélagsins og aukin með því almenn tónlistariðkun og nýir áheyrendahópar myndaðir. Sérhæfing er möguleg í samspili (Ensembles), samstarfsverkefnum (Collaborative Practice) eða starfi með margskonar samfélagshópum (Cross-sector Settings)“. Með námi í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi er komið til móts við kröfur hins alþjóðlega tónlistarsamfélags þar sem m.a. ný tækni, ný atvinnutækifæri, vaxandi gæðakröfur og fjölþjóðamenning eru áhrifavaldar. Á svæðisþingum tónlistarskóla var bent á að þetta nám gæti til að mynda hentað skólastjórum tónlistarskóla vel.


— á svæðisþingum tónlistarskóla - frh. af forsíðu Á svæðisþingunum var einnig kynnt þverfaglegt nám „Deiglan“ sem er í undirbúningi hjá Listaháskóla Íslands en víða eru námsbrautir í svipuðum dúr og þessi að koma fram. „Deiglan er þverfaglegt nám sem er ætlað að auka fjölhæfni og víðsýni nemandans ásamt því að fjölga möguleikum hans til starfa í fjölbreyttu listalífi samtímans.

Endurmenntun Hjálmar og Mist enduðu erindi sín með því að opna umræðu um endurmenntun tónlistarskólakennara. Í máli þeirra kom fram að Listaháskólinn hafi fram til þessa ekki einbeitt sér sérstaklega að endurmenntun en að þau telji að skólinn geti haft miklu hlutverki að gegna í þeim málaflokki. Þau sögðu endurmenntun vera meðal brýnustu verkefna dagsins í dag og lýstu yfir vilja skólans til samstarfs en um leið sögðu þau að leiðbeiningin þyrfti að koma frá fólkinu sjálfu.

Markmiðið er að þjálfa einstaklinga til þess að vera frumkvöðlar á sviði lista og koma auga á nýjar leiðir til að mynda Þau sögðu að spyrja þyrfti ýmissa spurntengsl milli ólíkra sviða innan sam- inga eins og til hvers endurmenntunin félagsins. væri, hver væri þörfin, hvers konar nám ætti þetta að vera og fyrir hverja, hver Nemendur koma úr ólíkum áttum og er borgar kostnaðinn, hvaðan á frumkvæðið þeim teflt saman með það að markmiði að koma o.fl. Þá vörpuðu þau einnig fram að nýjar hugmyndir kvikni og þróast við spurningum um fyrirkomulag, hvaða það að þeir takast á við sömu viðfangsleiðir væru æskilegar fyrir kennara á efni út frá mismunandi sýn.“ landsbyggðinni með tilliti til árs- eða sumarnámskeiða, helgarnámskeiða eða styttri kúrsa.

búa við þann veruleika að ferðakostnaður er hindrun fyrir stóran hóp stéttarinnar til að sækja sér endurmenntun. Bent var á fyrirmynd af slíku fjarnámi í Finnlandi.

Hjálmar benti á að hann teldi þetta þurfa að vera skilgreint nám sem næði yfir lengri tíma en sem næmi einu námskeiði, þannig að fólk hefði lokið einhverju tilteknu að afstöðnu námi.

Almennar umræður Í umræðum var það fyrirkomulag rætt að kennarar í Listaháskólanum bjóði upp á mastersklassa í skólum út á landi og einnig að duglegum nemendum út á landi væri boðið í heimsókn í Listaháskólann.

Þátttakendur bentu á það starfsumhverfi sem blasir við tónlistarskólakennurum út á landi, þeir þurfa bæði að kenna á mörg hljóðfæri (mörg fög) og geta gert ólíkum tegundum tónlistar skil þar sem vaxandi eftirspurn er eftir rytmísku námi og spuna. Rætt var um fjarnám sem óhjákvæmilegan hluta af því að koma á og þróa endurmenntun fyrir tónlistarskólakennara sem

Þá var nokkur umræða um það að kennarar skiluðu sér ekki út á land og kom fram hugmynd þess efnis að nemendur í kennaranámi færu að hluta til í æfingakennslu út á land. Þannig fengju þeir að kynnast starfsumhverfinu þar, sem hugsanlega gæti haft þau áhrif að einhverjir skiluðu sér frekar þangað.

Mist Þorkelsdóttir, deildarforseti tónlistardeildar Listaháskóla Íslands

Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands

Nokkrir þátttakendur nefndu að sumarnámskeið væri leið sem tónlistarkennarar gætu nýtt sér og voru þar nefnd sem dæmi námskeið í útsetningum og forritavinnu.

Könnun á afdrifum útskrifaðra nemenda Vorið 2009 gerði Listaháskólinn könnun á afdrifum útskrifaðra nemenda og sendi spurningalista til 200 nemenda sem útskrifuðust árin 2006 og 2007.

deildar og kennaranáms. Viðhorf nemenda var almennt jákvætt en í öllum framangreindum spurningum skorar tónlistardeildin hvað hæst af deildum skólans.

Í könnuninni var spurt um hvernig námið við Listaháskólann hefði almennt nýst í verkefnum og störfum eftir útskrift og svöruðu 100% nemenda úr tónlistardeildinni því til að námið hefði nýst mjög vel eða frekar vel. Um 93% svarenda sögðu námið í tónlistardeildinni hafa nýst mjög vel eða frekar vel í þeirra faglegu störfum (s.s. í listsköpun og kennslu).

Í könnuninni var skoðað hvað stór hluti útskrifaðra nemenda hefur farið í framhaldsnám og kom í ljós að um 35% nemenda úr tónlistardeild fóru í nám sem var framhald af náminu sem stundað var í LHÍ, 10% útskrifaðra nemenda höfðu farið í annað listnám eða hönnunarnám. Enginn úr deildinni hafði farið í framhald eða frekara nám sem var óskylt náminu við LHÍ.

Spurt var um hvernig námið hefði nýst sem grunnur til frekara náms og sögðu um 80% svarenda úr tónlistardeild að námið hefði nýst þeim mjög vel eða frekar vel.

Könnunin sýndi að námið virðist nýtast vel. Um helmingur útskrifaðra nemenda voru sjálfstætt starfandi, flestir tónlistarmenn fá vinnu við grunnskóla og tónlistarskóla, konur voru líklegri til að fara í kennslustörf, en almennt virðist námið skila nemendum vel út á vinnumarkaðinn. Í vetur stendur til að gera sambærilega könnun á tveimur öðrum útskriftar árgöngum við skólann.

Könnunin náði til allra 5 deilda skólans: Hönnunar- og arkitektúrsdeildar, leiklistardeildar, myndlistardeildar, tónlistar-


NÓTAN - frh. af forsíðu Svæðisbundnir tónleikar uppskeruhátíðar tónlistarskóla Svæðisbundnir tónleikar, sem eru annar hluti uppskeruhátíðar tónlistarskóla, fara fram á fjórum stöðum á landinu. Hér á eftir eru upplýsingar um hvar og hvenær tónleikarnir fara fram auk upplýsinga um undirbúningshópa á hverjum stað. Norður- og Austurland Undirbúningshóp skipa:  Kolbrún Jónsdóttir, Tónlistarskólanum á Akureyri  Gillian Haworth, Tónlistarskóla Reyðar- og Eskifjarðar  Lísa McMaster, Tónlistarskóla Húsavíkur Staðsetning: Ketilhúsið, Akureyri. Dagsetning: Laugardagur 13. mars. Vesturland og Vestfirðir Undirbúningshóp skipa:  Margrét Gunnarsdóttir, Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar  Gunnar B. Ringsted, Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Sigríður Havsteen Elliðadóttir, Tónlistarskólanum á Akranesi Staðsetning: Félagsheimilið á Hólmavík. Dagsetning: Laugardagur 13. mars kl. 14.00. 

Suðurland og Suðurnes Undirbúningshóp skipa:  Róbert Darling, Tónlistarskóla Árnesinga  Karen J. Sturlaugsson, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Staðsetning: Versalir, Ráðhúsið á Þorlákshöfn. Dagsetning: 13. mars kl. 13.00. Höfuðborgarsvæðið Undirbúningshóp skipa:  Össur Geirsson, Skólahljómsveit Kópavogs  Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Söngskóla Sigurðar Demetz  Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, Tónlistarskóla Álftaness Staðsetning: FÍH salur, Reykjavík Dagsetning: Laugardagur 13. mars.

Ráðningarsamningar Um þessar mundir eiga sér víða stað breytingar á ráðningarsamningum og starfshlutföllum kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Ástæða er til að hvetja alla félagsmenn til að fylgja eftir ákvæði í kjarasamningi um gerð skriflegra ráðningarsamninga: Í kjarasamningi segir í grein 9.2: „Gera ber skriflegan ráðningarsamning við tónlistarskólakennara og ber í þeim samningi að virða reglur um ákveðnar lágmarksupplýsingar, sbr. efnisákvæði tilskipunar ESB 91/533. Í ráðningarsamningi skal tilgreina hvaða kennslugreinar megi fela tónlistarskólakennara.“ Einnig er rétt að benda á að breytingar á ráðningarkjörum, umfram það sem leiðir af lögum eða kjarasamningum, skal einnig staðfesta með skriflegum hætti. Breytingar á vinnuskýrslu er aðeins hægt að gera með samþykki bæði kennara og stjórnanda eða með uppsögn á ráðningu með lögmætum uppsagnarfresti. Varðandi tímabundnar breytingar verður að vera Félag tónlistarskólakennara Laufásvegi 81, 101 Reykjavík. Heimasíða á www.ki.is.

sýnilegt með afdráttarlausum hætti hvað fellur brott af vinnuskýrslu/stundatöflu og skal gæta þess að fram komi með skýrum hætti hvenær breytingin gengur til baka. Félagið hefur ekki gert athugasemdir við að smávægilegur munur sé á raun starfshlutfalli og tilgreindu starfshlutfalli í ráðningarsamningi milli ára. Ef munurinn er viðvarandi og/eða verulegur er þó rétt að gera um það skriflegt samkomulag/ nýjan ráðningarsamning.

Meiri lækkun félagsgjalda! Í tilefni af lækkun félagsgjalda þann 1. janúar 2010 biðjum við félagsmenn FT um að fylgjast með því á launaseðlum sínum hvort gjöldin hafi ekki örugglega lækkað hjá þeim. Félagsgjöldin eru komin niður í 1%.

Námslaun Umsóknarfrestur um námslaun úr Starfsmenntunarsjóði tónlistarskólakennara fyrir skólaárið 20102011 er til 15. febrúar 2010. Umsóknareyðublað Starfsmenntunarsjóðsins er á rafrænu formi á vefslóðinni www.viska.is/stms/. Eftir að rafræn umsókn hefur verið send skal senda fylgigögn í umslagi merktu með númeri umsóknar: Starfsmenntunarsjóður tónlistarskólakennara Rauðagerði 27 108 Reykjavík

Miðpróf í tónfræði

Félag tónlistarskólakennara, FÍH og Launanefnd sveitarfélaga hafa gefið út staðlað form af ráðningarsamningi fyrir tónlistarskóla og eintak af honum má nálgast á heimasíðu FT (á www.ki.is – smellið á FT – kjaramál – ráðningarsamningur). Einnig er hægt að fá eyðublaðið sent (sem pdf- eða excel skjal) hjá starfsmanni FT (s. 595-1111 og hafdis@ki.is).

Samræmt miðpróf í tónfræðagreinum verður lagt fyrir í þriðja sinn nú í vor. Tónlistarskólar geta valið um þrjá prófdaga: 23. mars 2010, 25. mars 2010 eða 15. apríl 2010. Tilkynna þarf um nöfn próftaka til Prófanefndar tónlistarskóla eigi síðar en 22. febrúar 2010 á þar til gerðu eyðublaði. Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Prófanefndar, www.profanefnd.is.

Skrifstofa félagsins er opin milli kl. 9.00 og 13.00 alla virka daga. Sími: 595-1111 og fax: 595-1112. Netfang: ft@ki.is.

Ábyrgð og umsjón fréttabréfsins: Sigrún Grendal, formaður FT, og Hafdís D. Guðmundsdóttir, starfsmaður FT.

Hvað stundakennara varðar skal einnig ráða þá með ráðningarsamningi en þó ekki lengur en til árs í senn (sjá grein 9.3).


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.