Fréttabréf Félags tónlistarskólakennara
„Tónlistin og lífið“ Ráðstefna í tilefni af opnun Hörpu Í tilefni af opnun Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu verður haldin ráðstefna undir yfirskriftinni „Tónlistin og lífið“ laugardaginn 7. maí kl. 13:00-17:00 í salnum Kaldalóni í Hörpu. Við þessi tímamót er okkur ljúft og skylt að nýta tækifærið og halda á lofti merki tónlistar sem hornsteins í íslenskri menningu. Ráðstefnustjóri: Ævar Kjartansson, dagskrárgerðarmaður Tónlistaratriði: Havanaise eftir Camille Saint Saëns Sólveig Steinþórsdóttir, nemandi við Tónlistarskólann í Reykjavík, leikur á fiðlu Meðleikur á píanó: Anna Guðný Guðmundsdóttir Hátíðarerindi: „Tónlistin og lífið“ Dr. Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus við Háskóla Íslands Tónlistaratriði: Beyond the Seven Hills eftir Michael Sweeney B-sveit Skólahljómsveitar Kópavogs, stjórnandi: Össur Geirsson Stutt kaffihlé
Tónlist fyrir alla? Þórdís Sævarsdóttir, tónmenntakennari og tónlistarskólakennari
Væntingar tónlistarnemenda á 21. öld? Greta Salóme Stefánsdóttir, tónlistarnemandi við Listaháskóla Íslands
Kaffihlé Tónlistaratriði: Kyle´s song / Chikende eftir Kyle Williams / þjóðlag frá Zimbabwe Marimbasveit frá Tónlistarskóla Hafralækjarskóla, meðleikur á hristur og stjórnandi: Mauricio Weimar Pallborðsumræður Tónlistaratriði: Fönn eftir Unni Birnu Björnsdóttur, ljóð eftir Sigríði Birnu Guðjónsdóttur Unnur Birna Björnsdóttir syngur og leikur á píanó, Valdimar Olgeirsson leikur á kontrabassa Ráðstefnuslit
„Hlutverk tónlistar í umbreytingu menntunar á 21. öld?“ Eftirtaldir sex aðilar halda tíu mínútna löng framsöguerindi sem tengjast yfirskriftinni „Hlutverk tónlistar í umbreytingu menntunar á 21. öld?“ Að þeim loknum taka við pallborðsumræður með þátttöku framsögumanna.
Ráðstefnan er haldin að frumkvæði Félags tónlistarskólakennara og Félags íslenskra hljómlistarmanna í samstarfi við Tónmenntakennarafélag Íslands, Rannsóknarstofu í tónlistarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, og Mennta- og menningarmálaráðuneytið sem styrkir ráðstefnuna.
Listmenntun, nauðsynlegur hluti almennrar menntunar Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri stefnumótunar- og þróunardeildar mennta- og menningarmálaráðuneytis
Hlutverk listaháskóla Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands
Áhrif tónlistarrannsókna á menntun Helga Rut Guðmundsdóttir, formaður Rannsóknarstofu í tónlistarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Í takt við tímann Guðni Franzson, tónlistarmaður
Maí 2011 · tölublað 88
„Tónlistin og lífið“ í Hörpu Sýnum samstöðu og afl stéttarinnar - sjáumst í Hörpu! Félag tónlistarskólakennara og Félag íslenskra hljómlistarmanna hvetja félagsmenn sína til að nýta tækifærið til að vekja jákvæða athygli á tónlist, tónlistarmenntun og um leið öðrum málefnum stéttarinnar, við opnun Hörpu. Á umbrotatímum hafa tónlistarskólar, skólastjórnendur, kennarar og nemendur ekki farið varhluta af efnahagsþrengingum þjóðarinnar en það hefur sýnt sig að með tónlistina að vopni getur stéttin haft áhrif á gang mála. Má þar t.d. nefna mótmælafundinn „Samstaða um framhald tónlistarskólanna“ sem fram fór í febrúar s.l. fyrir framan Ráðhús Reykjavíkur. Óvissa ríkir þó enn um málefni sem varða stéttina s.s. hugmyndir um niðurskurð, kostnaðarskiptaviðræður ríkis og sveitarfélaga á sviði tónlistarfræðslu og kjarasamningaviðræður sem eru yfirstandandi.
Ráðstefnan er liður í því að vinna málefnum stéttarinnar jákvætt fylgi. Til að það gangi eftir verða félagsmenn að sýna samstöðu og afl stéttarinnar með því að fylla salinn Kaldalón í Hörpu. Hér þurfum við á ykkar stuðningi að halda - sjáumst í Hörpu 7. maí! Skráning á ráðstefnuna fer fram á netfanginu: ft@ki.is fyrir 6. maí. Skráningargjald er 1.200 kr. og veitingar eru innifaldar í gjaldinu. Skráningargjald leggist inn á reikning: 1175-26-9297. Kennitala: 501299-3329. Vinsamlegast setjið nafn í skýringu með greiðslu og/eða sendið póst á ki@ki.is.
NÓTAN
uppskeruhátíð tónlistarskóla 2011
Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskóla var haldin öðru sinni á yfirstandandi vorönn. Svæðistónleikar hátíðarinnar fóru fram á þremur stöðum, í Stykkishólmi, á Eskifirði og í Reykjavík, og tókust þeir allir mjög vel til, skipulagning var góð og atriðin fjölbreytt og s ke m mt i l e g . Á l o ka t ó n l e i k u m Nótunnar var í orðsins fyllstu merkingu fullt út úr dyrum í Langholtskirkju og stemmingin var frábær þar sem saman fór spilagleði, metnaður og eftirvænting. Á svæðistónleikunum voru veittar sérstakar viðurkenningar fyrir framúrskarandi flutning og ákveðinn fjöldi atriða fékk verðlaunagrip hátíðarinnar sem veitti þátttökurétt á lokatónleikum hátíðarinnar. Tónlistarþjóð Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, flutti ávarp á lokaathöfn Nótunnar og ræddi meðal annars um gildi tónlistar fyrir lífið sjálft og mikilvægi tónleika eins og Nótunnar til að sýna kraftinn í íslenskum tónlistarskólum. Í máli hans kom fram að hann teldi ekki síður ástæðu til að kalla Íslendinga tónlistarþjóð en bókmenntaþjóð. Stuðningur við Nótuna Hjálmar sá um afhendingu viðurkenningarskjala og verðlaunagripa á lokatónleikunum en einnig fengu verðlaunahafar styrk frá Ítalska félaginu á Íslandi og
Ítalska sendiráðinu í formi gjafabréfa hjá Tónastöðinni. Pamela De Sensi, formaður Ítalska félagsins á Íslandi og Pétur Björnsson, ræðismaður Ítalíu á Íslandi, afhentu handhöfum „Nótunnar“ styrkinn og færa aðstandendur Nótunnar þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn. Einnig færa skipuleggjendur Tónastöðinni bestu þakkir fyrir stuðning við hátíðina. Myndir og upptökur á www.notan.is Myndir frá öllum tónleikum Nótunnar má sjá á heimasíðu uppskeruhátíðarinnar www.notan.is. Upptökur frá þremur tónleikum eru komnar inn á síðuna og síðustu upptökurnar verða settar inn á síðuna á næstu dögum. Skólum er frjálst að nýta efni heimasíðunnar að vild á sínum vefsíðum. Sjónvarpsþáttur um Nótuna Heimasíða hátíðarinnar kom að góðum notum við að ná til fjölmiðla en í kjölfar lokatónleika hátíðarinnar tók RUV upp þau níu atriði sem fengu „Nótuna 2011“ og unnið er að gerð sjónvarpsþáttar um Nótuna. Samfélagstengsl og sýnileiki Þegar farið var þess á leit við RUV að koma að Nótunni kom fram að vitneskja manna um starfsemi tónlistarskóla var lítil og efasemdir voru um að gæði efnisins stæðust kröfur. Það er gaman frá því að segja að tónlistarnemendurnir sýndu upptökuliði sjónvarpsins fram á annað og að loknum upptökudegi var starfslið RUV
upp til hópa uppnumið yfir frammistöðu nemenda. Þetta áminnir okkur um að huga má betur að tengslum og sýnileika tónlistarskóla í samfélaginu. Merki hátíðarinnar prýðir verðlaunagripi Nótunnar Merki Nótunnar sem valið var í samkeppni meðal nemenda í Listaháskóla Íslands á síðasta ári, var greipt í verðlaunagrip hátíðarinnar í ár. Hrefna Sig-
urðardóttir átti vinningstillöguna og eins og árið 2010 var það Svafa Björg Einarsdóttir, listakona, sem sá um hönnun gripanna. Rýnifundur Yfirstjórn Nótunnar mun á næstunni funda með fulltrúum úr undirbúningsnefndum á hverju svæði til að fara yfir framkvæmd hátíðarinnar. Farið verður yfir athugasemdir og ábendingar frá undirbúningsnefndum og valnefndum sem nýst geta við skipulagningu á næstu uppskeruhátíð tónlistarskóla.
NÓTAN - uppskeruhátíð tónlistarskóla Verðlaunahafar á lokatónleikum hátíðarinnar
Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík Einleikur / grunnnám Polonaise - Óður til föðurlands Michal Kleofas Oginski Baldvin Fannar Guðjónsson, píanó
Tónlistarskóli Hafralækjarskóla Samleikur / grunnnám Kyle´s song / Chikende Kyle Williams / þjóðlag frá Zimbabwe Marimbasveit Stjórnandi: Mauricio Weimar
Skólahljómsveit Kópavogs Samleikur / grunnnám Beyond the Seven Hills Michael Sweeney B sveit Skólahljómsveitar Kópavogs Stjórnandi: Össur Geirsson
Tónlistarskólinn á Akranesi Einleikur / miðnám Le Petit Berger Claude Debussy Elva Björk Magnúsdóttir, þverflauta Meðleikur á píanó: Anna Snæbjörnsdóttir
Skólahljómsveit Austurbæjar Samleikur / miðnám The Blues Brothers Revue Ýmsir höfundar / Úts. Jay Bocook C - sveit Skólahljómsveitar Austurbæjar Stjórnandi: Vilborg Jónsdóttir
Tónlistarskólinn í Reykjavík Einleikur / framhaldsnám Havanaise e. Camille Saint-Saëns Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla Meðleikur á píanó: Anna Guðný Guðmundsdóttir
Tónlistarskóli FÍH Frumsamið verk / framhaldsnám Fönn e. Unni Birnu Björnsdóttur Ljóð: Sigríður Birna Guðjónsdóttir Unnur Birna Björnsdóttir, söngur og píanó Valdimar Olgeirsson, kontrabassi
Allegro Suzukitónlistarskóli Samleikur / framhaldsnám Czárdás f. þrjár fiðlur e. Michael McLean Alma Katrín Einarsdóttir, fiðla Júnía Lin Hua Jónsdóttir, fiðla Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, fiðla Meðleikur á píanó: Brynhildur Ásgeirsdóttir
Þátttakendum er skipað í flokka eftir áfangaskiptingu aðalnámskrár tónlistarskóla þ.e. í grunnnám, miðnám og framhaldsnám og veittar eru viðurkenningar í eftirfarandi viðurkenningarflokkum: einleiks-/einsöngsatriði, samleiks-/samsöngsatriði, frumsamin tónverk/eða frumleg atriði. Valnefndir horfa til þessa grunnskipulags hátíðarinnar við val á framúrskarandi atriðum en ávallt er það þó faglegt mat, byggt á viðmiðum úr aðalnámskrá tónlistarskóla, sem ræður niðurstöðum valnefnda.
Tónlistarskóli Stykkishólms Samleikur / framhaldsnám Samba - Alla Turca W.A. Mozart / Úts. P.R. Buttall Sylvía Ösp Símonardóttir, píanó Berglind Gunnarsdóttir, píanó
Niðurstöður úttektar á umfangi og gæðum list- og menningarfræðslu á Íslandi komnar út á íslensku Mennta- og menningarmálaráðuneytið réðst í umfangsmikla úttekt á umfangi og gæðum list- og menningarfræðslu á Íslandi árin 2008 - 2009. Á vef ráðuneytisins kemur fram: „Í úttektinni voru lagðar til grundvallar eftirfarandi spurningar:
Hvað er gert í listfræðslu og hvernig er það gert?
Hver eru gæði listfræðslu á Íslandi?
Hvaða möguleikar liggja í listfræðslunni nú og í framtíðinni og hverjar eru áskoranirnar?
Úttektin tók hálft ár og beitt var bæði eigindlegum og megindlegum aðferðum. Horft var til framboðs á list- og menningarfræðslu bæði í formlega jafnt sem óformlega skólakerfinu. Á Íslandi felur þetta í sér bæði list- og menningarfræðslu innan skóla sem utan, svo sem tónlistarog listnáms, og fræðslu og náms á vegum safna og leikhópa. Rannsóknin tók einnig til leikskólaaldurs og til þess sem í boði er fyrir börn með sérþarfir. Framkvæmd skólastarfs og aðgengi að námi var kannað auk þess sem horft var til kennaramenntunar og þeirra möguleika sem
Ný forysta í Kennarasambandinu Á 5. þingi Kennarasambands Íslands sem fram fór 5.-7. apríl síðast liðinn tók við ný forysta í Kennarasambandinu. Þórður Hjaltested hefur nú tekið við störfum af Eiríki Jónssyni sem formaður KÍ en áður gegndi hann starfi varaformanns í Félagi grunnskólakennara. Björg Bjarnadóttir tók við starfi varaformanns Kennarasambandsins af Elnu Katrínu Jónsdóttur. Áður hafði Björg gegnt starfi formanns Félags leikskólakennara og til skamms tíma starfi þjónustufulltrúa KÍ. Á þinginu var fráfarandi formönnum þakkað fyrir velunnin störf fyrir Kennara-
sambandið og nýjum formönnum óskað velgengni í störfum sínum. FT hefur í gegnum tíðina notið góðs af víðtækri þekkingu og reynslu Eiríks Jónssonar á sviði kjara- og réttindamála sem og á fleiri sviðum og hefur samstarfið verið mikið og gott í alla staði. Félagið kvaddi hann með viðhöfn og færði honum táknræna gjöf við þessi tímamót. Þingfulltrúar FT sungu kveðjubrag í fimmundum við lagið Ísland farsælda frón og afhentu Eiríki forláta Ukulelle að gjöf. Eiríkur er liðtækur gítaristi og getur nú nýtt frítíma sinn við að útvíkka þekkingu sína á sviði tónlistar!!
kennarar og listamenn hafa til endurog símenntunar. Að auki var litið til hlutverks og framlags skapandi listog menningargreina í ljósi nýlegra hræringa í efnahagslegu og pólitísku umhverfi á Íslandi.“ Niðurstöður úttektarinnar eru komnar út á íslensku og félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þær. Ekki er ólíklegt að fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins á ráðstefnunni „Tónlistin og lífið“ muni koma inn á inntak hennar í erindi sínu. Skýrsluna má nálgast á vef félagsins www.ki.is undir skýrslur, greinar og kannanir: List- og menningarfræðsla á Íslandi Anne Bamford.
Samningamál Frá því að viðræðuáætlun milli FT/FÍH og samninganefndar sveitarfélaga var undirrituð þann 2. desember sl. vegna kjarasamningsviðræðna aðila hafa alls sjö samningafundir verið haldnir. Á fundunum hafa áhersluatriði FT og FÍH verið til umfjöllunar en samninganefnd sveitarfélaga hefur ekki lagt fram nein áhersluatriði önnur en þau að þar á bæ er lögð áhersla á samning til þriggja ára. Kennarasambandið í heild sinni hefur hins vegar ályktað í þá veru að engar forsendur séu fyrir því að gera kjarasamninga til lengri tíma en eins árs. Launaliðurinn hefur lítið sem ekkert verið ræddur og enda legið í loftinu að samið verði við stærri hópa en tónlistarskólakennara og stjórnendur fyrst, eins og oft áður. Formenn aðildarfélaga KÍ sem gera kjarasamninga við samninganefnd sveitarfélaga eru í reglulegu sambandi um stöðu mála og er verulegrar óþreyju farið að gæta í hópnum.
Þórður Hjaltested formaður KÍ
Björg Bjarnadóttir varaformaður KÍ
Félag tónlistarskólakennara Laufásvegi 81, 101 Reykjavík. Heimasíða á www.ki.is.
Skrifstofa félagsins er opin milli kl. 9.00 og 13.00 alla virka daga. Sími: 595-1111 og fax: 595-1112. Netfang: ft@ki.is.
Trúnaðarmenn félagsins verða upplýstir um gang mála um leið og einhverra hreyfinga gætir. Ábyrgð og umsjón fréttabréfsins: Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara