Utilegukortid2016 isl

Page 1

Ferðafélaginn þinn


Sjóvá

440 2000

Á vindakorti okkar færðu rauntímaupplýsingar um vindasama staði á landinu. Þú getur farið inn á sjova.is/vindakort og séð hvaða staðir eru erfiðir fyrir húsbíla og tengivagna.

sjova.is


Efnisyfirlit

ÚTILEGUKORTIÐ

Skýringar á táknum 8 VESTURLAND 10 Akranes 12 Varmaland 14 Eldborg 16 Ólafsvík 17 Hellissandur 18 Laugar 19 VESTFIRÐIR 20 Grettislaug 21 Flókalundur 22 Tálknafjörður 23 Þingeyri 24 Bolungarvík 26 Tungudalur 27 Drangsnes 28 NORÐURLAND 30 Hvammstangi 31 Skagaströnd 32 Sauðárkrókur 34 Siglufjörður 36 Ólafsfjörður 38 Húsabakki 39 Lónsá 40 Heiðarbær 42 Fjalladýrð 44 Þórshöfn 45 KORT 46–47 AUSTURLAND 48 Seyðisfjörður 50 Norðfjörður 51 Eskifjörður 52 Reyðarfjörður 53 Fáskrúðsfjörður 54 Stöðvarfjörður 55 SUÐURLAND 56 Kleifar-Mörk 57 Vík í Mýrdal 58 Langbrók 59 Brautarholt 60 Árnes 61 Álfaskeið 62 Skjól 63 Stokkseyri 64 Þorlákshöfn 66 T-bær 67 Grindavík 68 Sandgerði 70

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

3


ÚTILEGUKORTIÐ

Skilmálar

Réttindi og notkunarreglur 1. 2.

3. 4.

5.

4

6. 7. 8. 9.

Útilegukortið tekur gildi þegar kaupandi hefur skrifað nafn sitt aftan á Útilegukortið. Kortið veitir tveim fullorðnum og allt að 4 börnum upp að 16 ára aldri fría gistingu á 41 tjald­­svæði sem eru talin upp í bæklingi þeim sem fylgir með Útilegukortinu árið 2016. Eigandi verður ætíð að framvísa korti. Framvísa ber Útilegukortinu ásamt persónu­skil­ ríkjum við komu á tjaldsvæði og er merkt inná kortið þá gistinótt sem gist er í hvert sinn. Útilegukortið gildir 28 gistinætur fyrir einingu fyrir hvert gildisár þess. Gistinæturnar má nýta hvenær sem er á meðan tjaldsvæði eru opin innan hvers starfsárs. Þegar 28 gistinætur hafa verið skráðar á kort telst það fullnýtt og er um leið ógilt. Útilegukortið veitir ekki aðgang að annarri þjón­ ustu sem tjaldsvæði kann að veita og velur að taka gjald fyrir eða er að öllu jöfnu ekki innifalið í nætur­­gjaldi s.s. aðgangur að rafmagni. Í öllum til­­ fellum er aðgangur að salerni og rennandi vatni, sé sú þjónusta til staðar. Virða ber reglur tjaldsvæða á hverjum stað. Umsjónaraðilum tjaldsvæða er heimilt að vísa hand­­höfum Útilegukortsins frá tjaldsvæði vegna brota á umgengnisreglum. Kortið gildir á viðkomandi tjaldsvæðum á meðan tjaldsvæðin eru opin fyrir almenning út árið 2016. Heimilt er að gista á hverju tjaldsvæði í fjóra sam­­­fellda daga í senn.

10. Engin takmörk eru á því hve oft má gista á hverju tjaldsvæði yfir sumarið. 11. Umsjónaraðilum tjaldsvæða er heimilt gera kort upptækt hafi korthafi ekki skrifað nafn sitt á viðkomandi reit aftan á Útilegukortinu sbr. 1.mgr hér að ofan. 12. Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu. 13. Útilegukortið er ekki forgangskort. Ef fullt er á tjald­­svæði þegar komið er á tjaldsvæðið þá veitir framvísun Útilegukortsins ekki forgang. 14. Listi yfir þau tjaldsvæði sem veita fría gistingu á tjald­ svæði sínu gegn afhendingu Útilegu­ kortsins getur hugsanl­ega tekið breytingum yfir sumarið. Af þeim sökum er endan­legur og réttur listi ávallt sá sem er á heimasíðu Útilegu­­kortsins www.utilegukortid.is en EKKI í bæklingnum sem fylgir með Útilegukortinu. Endurgreiðsla Útilegukortið fæst ekki endurgreitt. Glatað kort fæst ekki endurgreitt né bætt. Misnotkun Misnotkun á Útilegukortinu getur orðið til þess að það verður gert upptækt. Ábyrgð Útilegukortið ehf. getur ekki tekið ábyrgð á því ef tjaldstæði er lokað tímabundið eða hættir starfsemi af einhverjum orsökum.


Útilegukortið – ferðafélaginn þinn Sumarið 2014 kemur Útilegukortið út í áttunda sinn og verður það með 43 tjaldsvæðum í sumar. Eftirfarandi tjaldsvæði koma ný inn fyrir sumarið 2014: Sauðárkrókur, Systragil, Skjól og Brautarholt. Haustið 2013 áttum við gott spjall við mörg af þeim tjaldsvæðum sem í kortinu eru. Niðurstaðan af þeim viðræðum var sú að nauðsynlegt yrði að takmarka notkun kortsins við ákveðin fjölda gistinátta. Við miðum því við að hvert kort gildi í 28 gistinætur á hverju sumri. Við vildum tryggja áframhaldandi ábata af kortinu líkt og verið hefur og er það staðföst trú okkar að þessi takmörkun á gistináttum muni ekki draga úr gildi kortsins. Í ár líkt og síðasta ár mun afsláttarkorti frá Skeljungi og Orkunni verða dreift frítt með Útilegukortinu. Afsláttur reiknast frá dæluverði Orkunnar og Skeljungs eins og það er á hverjum

stað. Afsláttur til korthafa er 7 kr. hjá Skeljungi og 6 kr. hjá Orkunni. Einnig er veittur 15% afsláttur af smurningu og annarri þjónustu hjá Skeljungi. Það er von okkar að korthafar muni nýta sér þessa afslætti enda má spara stórar fjár­hæðir árlega með því. Rétt er að benda á að afsláttar­ kortin gildir allt til ársins 2015. Útilegukortið þakkar viðtökurnar undanfarin ár. Það er ykkur að þakka að kortið hefur getað stækkað og dafnað með hverju árinu. Það er von okkar að þið nýtið kortið vel og að sumarið verði fullt af sólskini og gleði. Með kveðju, Útgefandi.

Útgefandi: Útilegukortið ehf. Umbrot: Hjá Skaparanum Prentun: Litróf Forsíðumynd: Reyðarfjörður Rit þetta er ætlað til dreifingar með Útilegukortinu sumarið 2015

Hluti af fjölskyldunni

5


Útilegukortið fagnar tíu ára afmæli

6

Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því Útilegukortið kom fyrst út sumarið 2007. Íslensk ferðaþjónusta hefur gjörbreyst og sam­félagið líka. Við þökkum ykkur kærlega fyrir samfylgdina á undan­­förnum áratug. Í sumar eru 41 tjaldsvæði í Útilegukortinu. Reglu­­lega fáum við ábendingar frá ykkur um tjald­­­ stæði og við kunnum að meta þær. Það er þó rétt að benda á að ef við fjölgum tjaldsvæðum eða tökum inn dýrari tjaldsvæði verðum við að hækka verðið á kortinu. Gildi Útilegukortsins er verulegt og má spara háar fjárhæðir að því gefnu að korthafi nýti kortið sem mest. Hvað er betra en að ferðast með fjölskyldu og vinum á hin ýmsu tjaldsvæði og skoða fallega staði sem landið okkar hefur að bjóða.

Í ár líkt og síðasta ár mun afsláttarkorti frá Skeljungi og Orkunni verða dreift frítt með Útilegu­­kortinu. Afsláttur reiknast frá dæluverði Orkunnar og Skeljungs eins og það er á hverjum stað. Afsláttur til korthafa er 7 kr. hjá Skeljungi og 6 kr. hjá Orkunni. Einnig er veittur 15% afsláttur af smurningu og annarri þjónustu hjá Skeljungi. Útilegukortið þakkar viðtökurnar undanfarin ár. Það er ykkur að þakka að kortið hefur getað stækkað og dafnað með hverju árinu. Það er von okkar að þið nýtið kortið vel og að sumarið verði fullt af sólskini og gleði. Með kveðju, Útgefandi.

65 bensínstöðvar um land allt! Bolungarvík Ísafjörður

Húsavík

Súðavík

Árskógssandur Sauðárkrókur

Bíldudalur

Akureyri Mývatn Hvammstangi Skjöldólfsstaðir

Egilsstaðir

Seyðisfjörður

Neskaupstaður Eskifjörður

Grundarfjörður

Hallormsstaður

Stykkishólmur

Ólafsvík

Reyðarfjörður

Fáskrúðsfjörður Hreðavatnsskáli

Húsafell

Borgarnes

Akranes Úthlíð Reykjavík Sandgerði

Keflavík Airport Grindavík

Njarðvík

Hveragerði

Selfoss Þorlákshöfn

Stokkseyri

Freysnes (Skaftafell)

Hvolsvöllur

Vestmannaeyjar

Útgefandi: Útilegukortið ehf. · Prentun: Litróf · Forsíðumynd: Tungudalur Rit þetta er ætlað til dreifingar með Útilegukortinu sumarið 2016.

Vík í Mýrdal


LYF NÝTTÐ VI MI F O NÆ

7

Of mikið sumar ? HVÍ TA HÚS IÐ / SÍA / Act avis 612 062

Flynise – 24 klukkustunda virkni við ofnæmi Notkun: Flynise inniheldur virka efnið deslóratadín 5 mg og er ætlað til að draga úr einkennum ofnæmisnefkvefs og ofsakláða. Lyfið veldur ekki syfju. Skömmtun: Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 1 tafla á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Töfluna má taka með eða án fæðu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Flynise skal nota með varúð ef um er að ræða alvarlega skerta nýrnastarfsemi. Notkun lyfsins er ekki ráðlögð á meðgöngu og/eða við brjóstagjöf. Aukaverkanir: Lyfið þolist almennt vel en eins og á við um öll lyf geta komið fram aukaverkanir en það gerist þó ekki hjá öllum. Algengustu aukaverkanirnar umfram lyfleysu eru þreyta (1,2%), munnþurrkur (0,8%) og höfuðverkur (0,6%). Eftir að lyf hefur fengið markaðsleyfi er mikilvægt að tilkynna aukaverkanir sem grunur er um að tengist því. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. Janúar 2016


SKÝRINGAR Á TÁKNUM

8

Tjald / Tent

Verslun / Supermarket

Hjólhýsi / Caravan

Veitingahús / Restaurant

Aðgengi fyrir fatlaða / Wheelchair accessible

Vínveitingar / Alcohol

Upplýsingar / Information

Kaffihús / Coffeehouse

Salerni / Toilets

Grillaðstaða / BBQ facilities

Kamar / Outhouse

Opinn eldur bannaður / Open fire forbidden

Heitt vatn / Hot water

Heitir pottar / Hot tubs

Kalt vatn / Cold water

Sundlaug / Swimming pool

Gámar fyrir rusl / Waste

Innisundlaug / Indoor pool

Klóaklosun f. húsbíla / Motorhome waste disposal

Golf / Golf

Þvottavél / Washing machine

Fjallasýn / Mountain view

Þurrkari / Dryer

Gönguleiðir / Hikes

Rafmagn / Electricity

Íþróttavölllur / Sports field

Almenningssími / Telephone

Leikvöllur / Playground

Sturta / Shower

Bátaleiga / Boat rental

Hundar í bandi leyfðir / Dogs on a leash allowed

Hestaleiga / Horse rental

Bensín / Gasoline

Hestaaðstaða / Horse facilities

Eldunaraðstaða / Cooking facilities

Veiði / Fishing

Bekkir & borð / Chairs & Tables

Heilsugæsla / Hospital


N N I I T Ú ER

Ekki láta veðrið stoppa þig, farðu og uppgötvaðu heiminn. Ekki hanga inni. Vertu útivera. Inni er úti. Úti er inn. www.cintamani.is | Bankastræti 7 | Austurhraun 3 | Smáralind | Kringlan


LAUGAR

HELLISSANDUR ÓLAFSVÍK ELDBORG

VARMALAND

AKRANES

10

MOSFELLSBÆR

SANDGERÐI

VESTURLAND

ÞRASTARLUNDUR ÞORLÁKSHÖFN

ÁLFASKEIÐ STOKKSEYRI

GRINDAVÍK T-BÆR

LANGBRÓK

Um landshlutann Á Vesturlandi er að finna tvo stærstu flóa Íslands, Faxaflóa og Breiðafjörð. Í Breiðafirði er slíkur fjöldi eyja að lengi hefur verið talið óvinnandi verk að festa tölu á þeim öllum. Mikil sumarhúsabyggð er á

HVOLSVÖLLUR Vesturlandi. Á Vesturlandi er að finna átta kaupstaði og kauptún og er Akranes þeirra stærst. Hæsta fjall landshlutans er hinn tignarlegi Snæfellsjökull á Snæfellsnesi.

Akranes

12

Varmaland

14

Eldborg

16

Ólafsvík

17

Hellissandur

18

Laugar

19


GAS

ALLS STAÐAR

20% AFSLÁTTUR FYRIR HANDHAFA ÚTILEGUKORTSINS Á EFTIRTÖLDUM SÖLUSTÖÐUM ÍSAGA

Þú getur slakað á og upplifað öryggi við grillið með AGA gas.

Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggisleiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas.

Sölustaðir ÍSAGA ehf:

Reykjavík: ÍSAGA, Breiðhöfða 11, s. 577 3000. Selfoss: Vélaverkstæði Þóris, s. 482 3548. Vestmannaeyjar: Bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, s. 481 3226. Sauðárkrókur: Byggingarvörudeild Kaupfélags Skagfirðinga, s. 455 4626. Ísafjörður: Þröstur Marsellíusson hf, s. 456 3349. Akureyri: Sandblástur og málmhúðun hf, s. 460 1515.


VESTURLAND

12

Akranes

Um svæðið Akranes er tilvalinn áfangastaður ferðamanna enda gefast fólki fjölmörg tilefni til að heimsækja bæinn – allan ársins hring. Á Akranesi er margt skemmtilegt hægt að bralla og óvíða í bæjarfélögum má finna eins margar útivistarperlur og á Akranesi – ýmist innan eða við bæjarmörk. Nægir þar að nefna Akrafjallið sem dæmi en það fallega fjall laðar að sér fjölda fólks á hverjum degi. Gönguferð út með sjó inn að Elínarsæti á sólbjörtu sumarkvöldi er einnig ógleymanleg, ekki síst vegna hins fjölskrúðuga fuglalífs sem þar er og þá er útsýnið á þessum slóðum afar fallegt. Vitarnir á Breið, njóta gríðarlegra vinsælda en þar er hægt að njóta listviðburða, útsýnis og norðurljósa­ dýrðar þegar veðurfarið býður upp á það á vetrartíma. Þá er vinsælt að leika sér á Langasandi sem er Blá­ fána­­ vottuð baðströnd með skeljasandsfjöru. Þaðan er stundað sjósund og á sólardögum er ströndin oft þéttsetin fólki. Fleiri afþreyingarsvæði eru á Akranesi, t.d. er hægt að skella sér í sund en í laugum okkar er vatn úr Deildatunguhver. Auðvelt er að gera sér glaðan dag í Garðalundi, þar sem m.a. er hægt að grilla, fara í strandblak, frisbígolf, fótbolta og ýmislegt fleira. Við hliðina á Garðalundi er Garðavöllur, sem er glæsilegur 18 holu golfvöllur með æðislegu æfinga­svæði. Á Akranesi er í boði fjölbreytt þjónusta fyrir ferða­ menn, verslanir og veitingahús og tíðar og reglu­­­­legar ferðir Strætó bs. á milli Akraness og Reykjavíkur gefa

Heimilisfang: Kalmansvík, 300 Akranes Sími: 894 2500 Heimasíða: www.visitakranes.is Netfang: info@akranes.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 42 km / 643 km Opnunartími: 13. maí – 15. september

möguleika á fjölbreyttum dags­ferðum ferða­manna þarna á milli. Nánari upplýsingar: www.visitakranes.is www.facebook.com/Visitakranes Athugið að Útilegukortið gildir ekki á Írskum dögum 30. júní til 3. júlí.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Skemmtilegt á Akranesi í sumar! Fullt af afþreyingu í boði!

Matar- og antíkmarkaður á laugardögum í sumar!

Sjóstangaveiði

Byggðasafnið Eldsmíði, sýningar og tímaflakk

Margskonar afþreying

Garðalundur Grillaðstaða, frisbígolf og leiktæki

Írskir dagar

Kaffihús og kruðerí ÍRSKIR DAGAR

Glæsilegt tjaldsvæði og öll þjónusta í göngufæri!

Komdu í strandferð

Akranesviti

Langisandur náttúruleg baðströnd!

Opinn í allt sumar, tónlist og sýningar

Einn af flottustu golfvöllum á landinu Komdu í gólf! www.visitakranes.is / www.akranes.is Finndu okkur á Twitter, Facebook og Instagram

Hestaleiga

Akranes –fjölbreytt skemmtun


VESTURLAND

14

Varmaland

Um svæðið Tjaldsvæðið að Varmalandi er staðsett í útjaðri þétt­ býlis­ kjarnans í kringum jarðhitasvæðið Stafholts­ tungur í Borgarbyggð í Borgarfirði, á tungu milli Hvítár og Norðurár. Við Varmaland er staðsett íþróttamiðstöð og er hún opin frá seinni hluta júní fram í miðjan ágúst. Við Íþróttamiðstöðina er sundlaug sem alla jafna er vel nýtt af gestum tjaldsvæðisins. Tjaldsvæðið að Varmalandi er stórt og rúmgott og fer vel um hópa sem og fjölskyldur þar. Leiktæki eru á svæðinu en vert er að benda á frábæra möguleika til göngutúra og skemmtilegra leikja í svæðinu um kring. Fyrir ofan svæðið gnæfir klettur sem gaman er að ganga uppá og virða fyrir sér fallegt útsýni yfir svæðið og Borgarfjörðinn. Stutt er í alla helstu þjónustu í Borgarnesi ef þess er þörf. Tjaldsvæðið að Varmalandi er fyrst og fremst fjölskyldusvæði og því eru ferðalangar beðnir um að takmarka akstur um svæðið og sýna öðrum tillitssemi. Ölvun og háreysti veldur tafarlausri brottvísun. Ef stærri hópar en 4–5 einingar óska eftir að nýta sér aðstöðuna að Varmalandi þarf skilyrðislaust að hafa sambandi við umsjónarmann og athuga fyrst með laust pláss og fá í framhaldi úthlutað plássi af honum.

Heimilisfang: Varmaland, 311 Borgarnes Sími: 775 1012 Heimasíða: www.visitakranes.is Netfang: varmaland.camping@gmail.com Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 99 km/ 591 km Opnunartími: 5. júní–1. september

Leiðarlýsing Hringvegur 1 er ekin að Baulu þá er beygt inn Borgar­­fjarðarbraut (50) og ekið að Varmalandsvegi (um 2,5 km) og beygt þar til vinstri. Ekið um 2,5 km þangað til komið er að Varmalandi. Tjaldsvæðið er við enda byggðarinnar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Kort og lyklar veita afslátt á bensínstöðvum Skeljungs og Orkunnar* 57 stöðvar um land allt • 48 Orku-stöðvar • 9 Skeljungs-stöðvar

* Afsláttur er ekki veittur á X-stöðvum Orkunnar


VESTURLAND

16

Eldborg

Um svæðið Tjaldsvæðið á Hótel Eldborg er rekið á sumrin í Laugar­ gerðisskóla á Snæfellsnesi, við hinar lands­­­ þekktu Löngufjörur. Aðstaðan hentar vel einstakl­ ingum, fjölskyldum og hópum. Einnig er staðurinn vin­­sæll til ættarmóta. Hótel Eldborg er miðsvæðis fyrir ferðalög um Vestur­ land. Á svæðinu er sparkvöllur og leiktæki. Í nánasta ná­­grenni er fjöldinn allur af áhugaverðum stöðum s.s. heitar laugar, hellar, vötn til að veiða í, selalátur, breiðasti stuðlabergsveggur landsins og ölkelda, svo dæmi séu tekin. Við tjald­svæðið er sundlaug sem opin er gestum eftir sam­komu­­lagi. Á staðnum er hesta­ leiga, í boði eru hálf­dags­­ferðir um Löngufjörur en þar eru taldar bestu reið­­­leiðir sem Ísland hefur upp á að bjóða. Þær þarf að bóka með fyrirvara því sæta þarf sjávarföllum. Góð veitingaaðstaða Við bjóðum máltíðir þar sem lögð er áhersla á íslenskt hráefni og persónulega þjónustu. Tjaldsvæðisgestir eru velkomnir í glæsilega morgunverðahlaðborðið okkar. Í boði er netsamband fyrir viðskiptavini veit­ inga­­hússins. Ekki má svo gleyma barnum sem oft er líf­­legur á kvöldin.

Heimilisfang: Laugagerðisskóla, 311 Borgarnes Sími / gsm: 897 1089 Veffang: www.hoteleldborg.is Netfang: hoteleldborg@hoteleldborg.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfjörður: 124 km / 651 km Opnunartími: 20. maí – 20. ágúst

Hvernig rata ég? Hótel Eldborg er u.þ.b. 120 km. frá Reykjavík. Ekið er í gegnum Borgarnes og beygt til vinstri við hringtorgið, uppá Mýrarnar vegur 54. Þaðan eru 50 km. á Hótel Eldborg. Hafið í huga að göngu­ leiðin á Eld­­borgina er merkt 10 km áður en þú kemur að tjaldstæðinu, ekki taka þá beygju ef þú ætlar til okkar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Ólafsvík

Heimilisfang: Ólafsvík, 355 Ólafsvík Sími / gsm: 433 6929 Veffang: www.snb.is Netfang: info@snb.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfjörður: 195 km / 691 km Opnunartími: 15. maí – 15. september

Um svæðið Ólafsvík er stærsti þéttbýliskjarninn í Snæfellsbæ með um 1000 íbúa. Sjávarútvegur og stór höfn móta bæjarmyndina í Ólafsvík. Bæjarstæði er óvíða fegurra en í Ólafsvík. Fossar steypast af fjallsbrúnum að baki byggðinni og vatnsfarvegir hafa fengið að halda upprunalegu svipmóti sínu í bænum. Í Ólafsvík hefur verið komið upp skemmtilegu

VESTURLAND

17 verslurnar- og verkháttasafni í „Pakkhúsinu“, gömlu verslunarhúsi sem reist var árið 1844 og stendur í hjarta bæjarins. Þar er líka handverkssala íbúa Snæfellsbæjar. Í Ólafsvík eru bensínstöðvar, verslanir, sundlaug, safn, heilsugæsla, pósthús og önnur nauðsynleg þjónusta. Tjaldsvæðið í Ólafsvík er við austari enda bæjarins og er því strax þegar komið er að bænum frá Fróðárheiði/Grundarfirði/Reykjavík. Þar er að­ staðan nokkuð góð en lítið þjónustuhús er á miðju svæðinu með heitu og köldu vatni, sturtum og salerni. Rafmagnstenglar eru á svæðinu en hægt er að leigja aðgang að rafmagni. Leiktæki eru einnig á svæðinu. Svæðið er nokkuð slétt og er girt af. Tjaldstæðið er skjólgott og er í 10 mín. göngufæri frá miðbæ Ólafsvíkur, 15 mín. ganga er í sundlaugina og pósthúsið. Margar góðar gönguleiðir eru frá tjald­svæðinu í Ólafsvík. Tjaldsvæðið er í umsjón Upplýsinga­mið­ stöðvar Snæfellsbæjar sem er staðsett í Ólafsvík. Athugið að Útilegukortið gildir ekki á bæjar­ hátíðum Snæfellsbæjar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


VESTURLAND

18

Hellissandur

Um svæðið Mjög gott tjaldsvæði er á Hellissandi, en það opnaði sumarið 2011. Tjaldsvæðið er vestan megin við Sjó­ manna­garðinn, eða á vinstri hönd þegar komið er inn í bæinn frá Rifi. Á Hellissandi er bensínstöð, safn, verslanir og önnur nauðsynleg þjónusta er innan seilingar. Tjaldsvæðið er staðsett í fallegu hrauni er kallast Sandahraun. Á svæðinu er þjónustuhús með sal­erni (einnig fyrir fatlaða), sturtum og vaskarými. Raf­ magns­tenglar eru á svæðinu en hægt er að leigja aðgang að rafmagni. Skemmtilegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni, fallegar fjörur með öllum þeim ævintýrum sem þær bjóða uppá. Sólsetrin við Breiðafjörð séð frá Sandahrauni eru óviðjafnanleg og Þjóðgarðurinn Snæfells­ jökull er næsti nágranni við tjaldsvæðið. Tjald­­svæðið er í umsjón upplýsingamiðstöðvar Snæ­ fells­­bæjar sem er staðsett í Ólafsvík, sem er í 9 km. fjarlægð frá Hellissandi.

Heimilisfang: Hellissandur, 360 Hellissandi Sími / gsm: 433 6929 Veffang: www.snb.is Netfang: info@snb.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 204 km / 700 km Opnunartími: 15. maí – 15. september

9 KM

38 KM

15 KM

38 KM

Athugið að Útilegukortið gildir ekki á bæjar­ hátíðum Snæfellsbæjar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Laugar

Heimilisfang: Laugar, 371 Búðardalur Sími: 444 4930 Heimasíða: www.hoteledda.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 172 km / 578 km Opnunartími: 3. júní – 28. ágúst

VESTURLAND

Um svæðið Tjaldsvæðið við Laugar í Sælingsdal er frábær staður til að slaka á í sveitasælunni. Sæling­s­dalur er umluktur lágum fjöllum til norðvesturs frá botni Hvammsfjarðar. Í næsta nágrenni við tjaldsvæðið er 25 metra útisundlaug og heitur pottur. Margt er að skoða í nánasta umhverfi. Byggða­­ safn Dalamanna á Laugum geymir ýmsa merka muni úr héraðinu og upplagt er að fara í ökuferðir fyrir Strandir, um Fellsströnd út í Klofning og Skarðsströnd til baka um Svínadal. Einnig má benda á safn Leifs Eiríkssonar á Eiríksstöðum í Hauka­­ dal sem er hið glæsilegasta og þar svífa andar víkinga yfir vötnum. Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

19


BOLUNGARVÍK

TUNGUDALUR

ÞINGEYRI

TÁLKNAFJÖRÐUR

DRANGSNES FLÓKALUNDUR

GRETTISLAUG

VESTFIRÐIR Um landshlutann Á Vestfjörðum er að finna eina strjálbýlustu byggð Íslands enda er landshlutinn gerður úr miklum fjöllum og djúpum fjörðum. Vestfirðir eru ásamt Austfjörðum elsti hluti landsins. Á Vestfjörðum er að finna 11 þorp sem flest hafa byggt afkomu sína

á sjómennsku. Lítið er um trjágróður á Vestfjörðum og er þar aðallega að finna skógarkjarr og runna. Vestfirðir hafa sérstakt útlit og yfirbragð og eru fjöllin þar brött og tignarleg.

Grettislaug

21

Flókalundur

22

Tálknafjörður

23

Þingeyri

24

Bolungarvík

26

Tungudalur

27

Drangsnes

28


Grettislaug á Reykhólum

Heimilisfang: Grettislaug á Reykhólum, 380 Reykhólahreppur Sími: 434 7738 Heimasíða: www.reykholar.is Netfang: grettislaug@snerpa.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 228 km / 634 km Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst

15 KM

15 KM

15 KM

15 KM

Um svæðið Tjaldsvæðið við Grettislaug á Reykhólum við Breiða­fjörð er í litlu, fallegu þorpi með fjölbreyttri þjónustu. Frá tjaldsvæðinu eru léttir göngustígar að fuglaskoðunarhúsi við Langavatn, steininum Grettistaki og hvernum Einireykjum. Reykhólar og Reykhólahérað koma víða við sögu Íslands, m.a.

VESTFIRÐIR

í Grettissögu og Þorskfirðingasögu, og þar eru mörg örnefni sem minna á dvöl Grettis sterka á Reykhólum og aðra viðburði í fornritum. Á miðöldum voru Reykhólar auðugasta höfuðból Íslands enda einstök hlunnindajörð, einkum vegna sjávar­ fangs, æðarvarps og annarra náttúrunytja, og fjöl­­ margar eyjar fylgdu. Landbúnaður er helsti atvinnuvegurinn í sveitabyggðum Reykhólahrepps. Upp úr 1970 myndaðist þorp á Reykhólum og búa þar nú um 130 manns. Skammt frá þorpinu er Þörungaverksmiðjan hf. sem veitir mörgum vinnu og hefur verið nefnd einhver náttúruvænasta stóriðja í heimi. Aðrir starfa við leikskólann, grunnskólann og dvalarheimili aldraðra og við þjónustu af ýmsu tagi. Þjónusta við ferðafólk fer stöðugt vaxandi í Reyk­ hóla­hreppi. Þar er m.a. að finna hótel, gistiheimili, ferða­ þjónustu bænda, upplýsingamiðstöð, verslun, veitinga­stað, þaraböð og bílaviðgerðir. Síðast en ekki síst má nefna Báta- og hlunninda­ sýninguna á Reykhólum þar sem fólk fær m.a. að kynnast æðarfuglinum á nýjan hátt. Grettislaug á Reyk­hólum er 25 m útisundlaug með heitum pottum og í Djúpadal er notaleg innilaug með heitum potti. Í Reykhólasveit er afar fjölskrúðugt fuglalíf og eitt allra besta fuglaskoðunarsvæði hérlendis og miklar líkur að sjá Haferni. Þar eru ótalmargar fallegar göngu­­ leiðir og margir athyglisverðir og sögufrægir staðir. Á sumrin er haldin hátíð sem nefnist Reykhóla­dagar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

21


VESTFIRÐIR

22

Flókalundur

Um svæðið Tjaldsvæðið er stutt frá Hótel Flókalundi og þaðan er gott útsýni yfir Vatnsfjörðinn. Þar er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna og fellihýsi. Hægt er að komast í rafmagn og í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturtur og aðstaða fyrir uppvask. Á hótelinu er boðið upp á tauþvott. Tjaldsvæðið er opið frá 1. júní til 10. september. Á svæðinu er bensín­ stöð og verslun og á hótelinu er veitingasalur.

Heimilisfang: Vatnsfjörður, 451 Patreksfjörður Sími: 456 2011 Heimasíða: www.flokalundur.is Netfang: flokalundur@flokalundur.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 339 km / 745 km Opnunartími: 1. júní – 10. september

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Tálknafjörður VESTFIRÐIR

Heimilisfang: Sveinseyri, 460 Tálknafjörður Sími: 456 2639 Heimasíða: www.talknafjordur.is Netfang: sundlaug@talknafjordur.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 400 km / 806 km Opnunartími: 1. júní – 1. september

Um svæðið Kauptúnið Tálknafjörður er ungt snyrtilegt sjávar­ pláss í skjóli fyrir norðanáttinni. Það stendur við norðan­­vert Hópið, sem er innsti hluti Tálknafjarðar. Áður fyrr var kauptúnið ýmist nefnt Sveinseyri eða Tunguþorp enda í landi þeirra jarða. Sveinseyraroddi lokar þessum hluta fjarðarins. Skjólsælt er fyrir úthafsöldu og mikið aðdýpi gerir Hópið að frábærri höfn frá náttúrunnar hendi. Þessu kynntust útlendingar sem stunduðu fiskveiðar hér við land. Meðal annarra höfðu Hollendingar þar aðstöðu fyrr á tímum og gengu svo langt að gefa firðinum nýtt nafn inn á kort sín. Við Tálknafjörð að norðanverðu er víða töluverður jarðhiti sem nýtist vel. Ferðalangar geta notið heita vatnsins í góðri sund­ laug á Tálknafirði, sem opin er árið um kring. Einnig er ylurinn nýttur við fiskeldi í fjarðarbotninum. Segja má að Tálknafjörður liggi þægilega miðsvæðis á sunnanverðum Vestfjörðum, þar er gott að vera á þægilegu tjaldsvæði og fara svo þaðan í skoðunar­ ferðir á daginn, koma til baka að áliðnum degi, fara í sund og grilla á eftir.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

23


VESTFIRÐIR

24

Þingeyri

Um svæðið Tjaldsvæðið á Þingeyri er u.þ.b. 0.8 ha í stærð. Þingeyri við Dýrafjörð á sér ríka sögu. Skammt utan bæjarins er Haukadalur þar sem Gísla saga Súrssonar gerðist að stórum hluta. Þingeyringar hafa á síðustu árum byggt upp víkingatengda ferðaþjónustu, smíðað víkingaskip sem siglir með ferðamenn á sumrin og halda árlega svokallaða Dýrafjarðardaga þar sem vígakappar skylmast, milli þess sem þeir grilla ofaní ferðamenn. Sundlaug líkamsræktarstöð, íþróttahús, strand­ blakvellir og nokkrir veitingastaðir eru meðal þeirrar þjónustu sem er í boði fyrir þá tjaldsvæðagesti sem heimsækja Þingeyri.

Heimilisfang: Tjaldsvæði Þingeyrarodda, 470 Þingeyri Sími: 450-8470 Heimasíða: www.isafjordur.is Netfang: tjald@isafjordur.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 409 km / 813 km Opnunartími: 15. maí – 15. september

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu. 3 KM

5 KM


25

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


VESTFIRÐIR

26

Bolungarvík

Um svæðið Bolungarvík er myndarlegur útgerðarbær við utanvert Ísafjarðardjúp að vestanverðu. Staðurinn fékk kaup­ staðar­réttindi árið 1974 og íbúafjöldi er þar um 900. Víkin sem byggðin dregur nafn af snýr til norðausturs og afmarkast af Óshyrnu að sunnan og Traðarhyrnu að norðan. Vestan Bolungarvíkur heitir Stigahlíð og eru þar hamrar miklir og brattlendi, svo að erfitt er um að fara. Tveir grösugir dalir ganga upp frá víkinni og milli þeirra gnæfir fjallið Ernir. Höfuðbólið og kirkjustaðurinn Hóll stendur fyrir framan mynni dalanna. Tjaldsvæði Bolungarvíkur er við hliðina á íþrótta­ miðstöðinni Árbæ á fögrum stað í svokölluðum Lamb­ haga við bakka Hólsár. Tjaldsvæðið blasir við þegar ekið er inn í bæinn. Á Tjald­svæðinu er vel búið að gestum, þar er aðgangur að rafmagni, þvottavél, þurrkara og útigrilli. Sund­laugin sem er með notalegum sundlaugargarði heitum pottum, vatnsrennibraut og frábærri sólbaðs­ aðstöðu er við tjaldsvæðið. Á Tjaldsvæði Bolungarvíkur gefst ferðalöngum tæki­­ færi til að dvelja á skjólgóðum og friðsömum stað í mögnuðu vestfirsku umhverfi við jaðar bæjarins þar sem fjölbreytt þjónusta og afþreying er í göngufæri.

Heimilisfang: Bolungarvík, við sundlaugina 415 Bolungarvík Sími: 456 7381 / 696 7316 Heimasíða: www.bolungarvik.is Netfang: sundlaug@bolungarvik.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 468 km / 862 km Opnunartími: 1. maí – 30. september

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Tungudalur VESTFIRÐIR

Heimilisfang: Tungudalur, 400 Ísafirði Sími: 864 8592 Heimasíða: www.gih.is Netfang: tjald@gih.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 454 km / 848 km Opnunartími: 15. maí – 15. september

700 M

700 M

700 M

Um svæðið Tjaldsvæðið í Tungudal er á fallegum stað inn af Ísafirði sem stundum er kallaður paradís vestursins. Staðurinn er einstaklega skjólsæll og fagur, Bunár­ foss gnæfir yfir tjaldsvæðinu og áin rennur í gegnum svæðið og skiptir því í tvo hluta, annar hlutinn er ætl­ aður húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum og hinn hlutinn er ætlaður tjöldum. Tvö þjónustuhús eru á svæðinu, í þeim er að finna móttöku, snyrtingar, sturtur, skiptiborð, þvottaaðstöðu, eldhús og þráðlaust netsamband. Aðgengi að salerni og sturtu er fyrir hreyfihamlaða. Á svæðinu má finna leiktæki fyrir börn og grill­ aðstöðu. Gestir geta notið náttúrunnar með göngu um dalinn eða Tunguskóg sem liggur við tjaldsvæðið. Þá er 9 holu golfvöllur í túnfætinum. Tjaldsvæðið er í um 4ra kílómetra fjarlægð frá mið­ bæ Ísafjarðar þar sem stutt er í stórmarkaði, sundlaug og bensínstöðvar. Vinsamlega athugið að Útilegukortið gildir ekki um verslunarmannahelgina.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

27


VESTFIRÐIR

28

Drangsnes

Tjaldsvæðið á Drangsnesi er staðsett fyrir ofan þétt­ býlis­­kjarnann Drangsnes í Strandasýslu við norðan­ verðan Steingrímsfjörð. Góð hreinlætis­­ aðstaða og sturtur eru við tjaldstæðið. Rafmagn er víða á svæðinu og ættu flestir að komast í rafmagn. Íþrótta­völlur er við tjaldstæðið. Á Drangsnesi er sundlaug og heitur pottur við hana ásamt barnalaug, gufubaði og líkamsrækt. Sundlaugin er alla jafna vel nýtt af gestum. Ekki má gleyma heitum pottum sem eru í fjörunni 300 m fyrir neðan tjaldstæðið en þar er einnig góð hreinlætisaðstaða og sturtur. Tjaldsvæðið á Drangsnesi er fyrst og fremst fjöl­ skyldu­­svæði því eru ferðalangar beðnir um að tak­­­ marka akstur um svæðið og sýna öðrum tillitsemi. Ölvun og háreysti veldur tafarlausri brottvísun. Ef stærri hópar en 4–5 ein­­ingar óska eftir að nýta sér aðstöðuna á Drangsnesi þarf að hafa sambandi við umsjónarmann og athuga fyrst með laust pláss og fá í framhaldi úthlutað plássi af honum. Góðar gönguleiðir eru í nágrenni við Drangsnes, t.d. merkt gönguleið á Bæjarfell sem er 345 m yfir sjó og þaðan er mjög víðsýnt yfir Húnaflóa og norður Strandir. Skemmtilegar fjörur eru skammt undan sem er ævintýri fyrir unga sem gamla. Verslun er á Drangs­nesi ásamt veitingasölu og góðri gistiaðstöðu. Afþreying er í boði t.d. ferðir út í Grímsey en þar er náttúruparadís. Mikið fuglalíf og er Lundinn þar í þúsunda tali. Boðið er upp á siglingu og sjó­ stangaveiði.

Heimilisfang: Drangsnes, 520 Drangsnes Sími: 844 8701 Heimasíða: www. drangsnes.is Netfang: drangur@drangsnes.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 264 km / 665 km Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Varahlutir sem þú getur treyst á! • Stýrishlutir • Pakkningasett • Ventlar • Vatnsdælur • Tímareimar • Knastásar • Legur • Stimplar

Túrbínur í flestar gerðir bíla Frábært verð

VÉLAVERKSTÆÐIÐ Varahlutaverslun Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com


ÞÓRSHÖFN

SIGLUFJÖRÐUR ÓLAFSFJÖRÐUR HÚSABAKKI HEIÐARBÆR SKAGASTRÖND

LÓNSÁ SAUÐÁRKRÓKUR

FJALLADÝRÐ HVAMMSTANGI

NORÐURLAND Um landshlutann Norðurland er frekar þéttbýlt sé miðað við aðra landshluta og er stærsti þétt­ býlis­ staðurinn höfuðstaður Norðurlands Akur­eyri. Hrossarækt er mikil á svæðinu einkum við Skagafjörð og Húnavatns­ sýslu. Fjölmargar náttúruperlur er að finna

á Norðurlandi og má þar nefna klettinn Hvítserk, eitt stærsta hverasvæði lands­ ins Hvera­ velli, eyjuna þjóðsagna­ kenndu Drangey og við Mývatn eru hinar dulmögnuðu Dimmuborgir.

Hvammstangi

31

Skagaströnd

32

Sauðárkrókur

34

Siglufjörður

36

Ólafsfjörður

38

Húsabakki

39

Lónsá

40

Heiðarbær

42

Fjalladýrð

44

Þórshöfn

45


Hvammstangi

Heimilisfang: Kirkjuhvammur, 530 Hvammstangi Sími / GSM: 615 3779 / 899 0008 Netfang: hvammur.camping@gmail.com Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 197 km / 494 km Opnunartími: 15. maí – 15. september

NoRÐURLAND

Um svæðið Tjaldstæðið er í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Það er staðsett aðeins 6 km frá Þjóðvegi 1, miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar. Tjaldsvæðið er einstakt í skjólgóðum hvammi fyrir ofan bæinn, með fínu þjónustuhúsi og góðri þjónustu fyrir tjald- og húsvagna. Góðar gönguleiðir eru fyrir ofan svæðið í fallegri náttúru. Hvammstangi er stærsti þéttbýlisstaður í Húnaþingi vestra. Hann er tilvalinn áfangastaður ferða­manna, þar er mjög góð sundlaug, verslanir, veitinga­staður, söfn, gallerí og önnur nauðsynleg þjónusta. Frá Hvammstanga er stutt að keyra út á Vatnsnes sem hefur að geyma fjölmarga sögustaði, fallegt lands­­­­lag og síðast en ekki síst selalátur í þægilegu göngu­færi og klettinn Hvítserk.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

31


NoRÐURLAND

32

Skagaströnd

Um svæðið Tjaldsvæðið á Skagaströnd er á skjólsælum og ró­ legum stað rétt austan við byggðina og horfir á móti sólu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg. Á tjaldsvæðinu er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóð. Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægilegt umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, felli­ hýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn, spenn­ andi náttúrulegt umhverfi og leiktæki. Í þjónustuhúsinu er sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til að matast innanhúss fyrir þá sem það vilja og vaskur til uppþvotta. Þar má einnig fá margvíslegar upplýsingar fyrir ferðamenn m.a. veg­ lega bæklinga um gönguleiðir á náttúruperluna Spá­­konu­fellshöfða og á fjallið Spákonufell. Þarna er einnig gestabók og eru ferðalangar beðnir um að rita nöfn sín í hana. Ferðafólk er beðið um að ganga vel um og skilja þannig við bæði tjaldsvæðið og þjónustuhúsið að aðrir geti líka notið dvalarinnar.

Heimilisfang: Hólabraut 35, 545 Skagaströnd Símanúmer: 848 7706 Heimasíða: www.skagastrond.is Netfang: skagastrond@skagastrond.is Opnunartími: 1. júní – 10. september Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 244 km / 436 km

0,5 KM

0,5 KM

1 KM

20 KM

0,5 KM 0,5 KM

0,5 KM 3 KM

1 KM

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


SVEITARFÉLAGIÐ SKAGASTRÖND

Velkomin á Skagaströnd www.skagastrond.is

Skagaströnd er einstakur bær. Þar er að finna lífstakt hins dæmigerða sjávarþorps þar sem höfnin er lífæðin og iðar af athafnasemi á góðum afladegi. Menningin er blómleg og lifandi.

nýprent

03/2015

Í Nes listamiðstöð dvelur fjöldi gestalistamanna sem auðga mannlíf og menningu. Gönguleið hefur verið stikuð á tind Spákonufells, (640 m) og á Spákonufellshöfða er einnig vinsælt útivistarsvæði en gönguleiðalýsingar hafa verið gefnar út fyrir þessar náttúruperlur. Háagerðisvöllur er níu holu golfvöllur um fjóra kílómetra norðan við byggðina. Kaffihúsið Bjarmanes er fallegt hús í gömlum stíl sem stendur á sjávarbakkanum með útsýni yfir höfnina. Gistingu er hægt að fá í Snorrabergi, fallegu sumarhúsi og í Sæluhúsunum undir klettum Höfðans eða í Skíðaskálanum við rætur Spákonufells.

Tjaldsvæðið er afar þægilegt og nóg pláss fyrir tjaldvagna, húsbíla og hjólhýsi. Sundlaugin er lítil og notaleg. Þar getur ferðalangur fundið ró og hvíld eftir áfanga dagsins.

Fjölbreytt úrval matvöru er að fá í Samkaupum. Árnes er elsta hús bæjarins. Það er dæmi um húsnæði og lifnaðarhætti á fyrri hluta 20. aldar. Í Spákonuhofi er skemmtileg sýning um Þórdísi spákonu, sem uppi var á síðari hluta 10. aldar og fróðleikur um spádóma og spáaðferðir. Í Olís–skálanum er boðið upp á þjónustu og næringu bæði fyrir farartæki og fólk. Borgin veitingastaður er í bjálkahúsinu einstaka. Þar eru í boði veitingar af bestu gerð og andi sjávarþorpsins dregin fram í myndum og viðmóti staðarins.


NoRÐURLAND

34

Sauðárkrókur

Um svæðið Tjaldsvæðið á Sauðárkróki er staðsett á Flæðunum við Sundlaug Sauðárkróks. Í Skagafirði er margt hægt að gera í fríinu. Vinsælt er að heimsækja söfn og sögustaði, fara í útreiðatúr eða sjá hestasýningar. Víða er hægt að renna fyrir fisk, fara í gönguferðir og fjallgöngur í fallegri náttúru og slaka svo á í sundlaugum og heitum pottum á eftir. Fljótasigling á jökulánum eða sigling útí Drangey er upp­lifun sem seint gleymist, sem og að spila golf í góðra vina hópi. Á vorin er notalegt að sitja í kyrrð við spegilsléttan vantsflöt og fylgjast með tilhugalífi fuglanna.

Heimilisfang: Sauðárkrókur, 550 Sauðárkróki Símanúmer: 899 3231 Heimasíða: www.tjoldumiskagafirdi.is Netfang: tjaldstaedi@gmail.com Opnunartími: 15 maí – 15 sept. Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 291 km / 420 km

1 KM

Aðstaðan Nýtt þjónustuhús er við tjaldsvæðið þar sem er heitt og kalt vatn, sturtur, salerni, þvottavél og aðgengi fyrir fatlaða. Hægt er að kaupa rafmagn og losa ferða­­salerni. Stutt er í helstu þjónustu s.s. sundlaug, verslanir, söfn, veitingastaði, golfvöll o.þ.h.

1 KM 500 m

2 km

Útilegukortið gildir ekki fyrir gesti á skipulögð íþrótta­mót, Landsbankamótið 24.–26. júní og Króks­mótið 5.–7. ágúst.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


17

20% afsláttur á skoðun ferðavagna ef þú kemur fyrir 16. júní 2016. Gildir í skoðunarstöðvum Frumherja um allt land.

Ferð í lagi!

Keyrum öruGG um veGi landsins oG látum sKoða vaGninn þar sem reynslan er mest!

2 0 % afsláttu r

ef þú kem ur me í skoðun fy ð ferðavagninn Gildir ekki rir 16. júní 2016. með öðrum tilboðum.

FrÍtt Wi

Fi oG rJÚKand i GÆða K aFFi Það er metnaður okkar hjá Frumherja að veita góða þjónustu og hagstæð kjör á skoðunum.

Sími: 570 9090 · Netfang: frumherji@frumherji.is · www.frumherji.is

öruGG biFreiðasKoðun um allt land


NORÐURLAND

36

Siglufjörður

Um svæðið Tjaldsvæði bæjarins er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5–10 mínútna göngufæri. Fjallasýn er mjög falleg. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í heshúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ.

Heimilisfang: Gránugötu 24, 580 Siglufjörður Sími: 464 9100 Heimasíða: www.fjallabyggd.is Netfang: fjallabyggd@fjallabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 386 km / 415 km Opnunartími: 15. maí – 15. sept.

Ýmsir viðburðir eru skipulagðir á svæðinu í sumar og þar má nefna: • 4.–5. júní Sjómannadagshátíð • 18. júní – 3. júlí Reitir, alþjóðleg listasmiðja www.reitir.com • 24.–25. júní Blúshátíð • 6.–10. júlí Þjóðlagahátíð www.folkmusik.is • 23.–29 júlí Síldardagar • 29. júlí – 1.ágúst Síldarævintýri á Siglufirði http://sildaraevintyri.fjallabyggd.is • Fjölskylduhátíð um verlsunarmannahelgina • 6.–7. ágúst Pæjumót í knattspyrnu www.kfbolti.is • 18.–21. ágúst Berjadagar – klassísk tónlistarhátíð

Stutt er í gönguferðir fyrir fjallagarpa, fjölbreyttar gönguleiðir. Nánari upplýsingar eru á: www.fjalla­byggd.is og www.visittrollaskagi.is ATHUGIÐ að Útilegukortið gildir ekki á Síldar­ævintýrinu á Siglufirði 29. júlí til 1. ágúst.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR SJÓMANNADAGSHÁTÍÐ Í ÓLAFSFIRÐI

ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐ Á SIGLUFIRÐI

BLUE NORTH MUSIC FESTIVAL Í ÓLAFSFIRÐI

SÍLDARÆVINTÝRI Á SIGLUFIRÐI

REITIR, ALÞJÓÐLEGT SAMVINNUVERKEFNI SKAPANDI FÓLKS

TÓNLISTARHÁTÍÐIN BERJADAGAR Í ÓLAFSFIRÐI

4. - 5 JÚNÍ

24. - 25 JÚNÍ

6. - 10. JÚLI

29. JÚLÍ - 1. ÁGÚST

FJALLABYGGÐ 1/1 in til Siglufjarðar & Ólafs 18. JÚNÍ - 3. JÚLÍ

Velkom

FJALLABYGGD.IS FJALLABYGGD.IS VISITTROLLASKAGI.IS VISITTROLLASKAGI.IS

18. - 21. ÁGÚST

fjarðar


NORÐURLAND

38

Ólafsfjörður

Um svæðið Tjaldsvæðið er við Íþróttamiðstöðina í Ólafsfirði og þar er lítil tjörn með miklu fuglalífi og smásílum sem vinsælt er að veiða hjá yngri krökkunum. Einnig er 9 holu golfvöllur aðeins um 2 km frá tjaldsvæðinu og stutt er í veiði, hvort heldur sem er á bryggjuna, eða í silung í Ólafsfjarðarvatni. Seld eru veiðileyfi í Fjarðará sem er inn af vatninu.

Heimilisfang: Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfjörður Sími: 464 9200 / 466 4044 Heimasíða: www.fjallabyggd.is Netfang: fjallabyggd@fjallabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 403 km / 352 km Opnunartími: 15. maí – 15. september

Ýmsir viðburðir eru skipulagðir á svæðinu í sumar og þar má nefna: • 4.–5. júní Sjómannadagshátíð • 18. júní – 3. júlí Reitir, alþjóðleg listasmiðja www.reitir.com • 24.–25. júní Blúshátíð • 6.–10. júlí Þjóðlagahátíð www.folkmusik.is • 23.–29 júlí Síldardagar • 29. júlí – 1.ágúst Síldarævintýri á Siglufirði http://sildaraevintyri.fjallabyggd.is • Fjölskylduhátíð um verlsunarmannahelgina • 6.–7. ágúst Pæjumót í knattspyrnu www.kfbolti.is • 18.–21. ágúst Berjadagar – klassísk tónlistarhátíð

Stutt er í gönguferðir fyrir fjallagarpa og kajakog árabátasiglingar á vatninu í kvöldkyrrðinni. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Fjallabyggðar: www.fjallabyggd.is og www.visittrollaskagi.is ATHUGIÐ að Útilegukortið gildir ekki á Blue North Music Festival 24. til 25. júní.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Húsabakki NORÐURLAND

39

Heimilisfang: Húsabakki, Svarfaðardal, 620 Dalvík Sími: 859 7811 Heimasíða: www.husabakki.is Netfang: husabakki@husabakki.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 415 km / 338 km Opnunartími: frá maí til fyrstu snjóa

Þjónusta í boði: Rafmagn, sturtur, þvottavél og þurrkari, grill, aðstaða til að elda og vaska upp með bæði heitu og köldu vatni, seyrulosun, leiksvæði aðgangur að interneti og hægt að kaupa morgunmat og máltíðir.

5 KM

5 KM 100 M

2.5 KM

2.5 KM 500 M

5 KM

5 KM

Um svæðið Húsabakki er staðsettur á fallegum stað í miðjum Svarfaðardal 5 km frá Dalvík í u.þ.b. 30 mínútna akstri frá bæði Akureyri og Siglufirði. Við bjóðum upp á fjölbreytta aðstöðu með góðu þriggja stjörnu tjaldsvæði miðsvæðis á Norður­ landi. Góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og þá sem vilja njóta náttúrunnar í fallegu umhverfi.

Afþreying: Gott leiksvæði fyrir börn og fullorðna, Minígolf, íþróttavöllur, og bálstæði og aðstaða til að grilla í gróðurreit staðarins. Auðveldar gönguleiðir í Friðlandi Svarfdæla, fuglaskoðun og fuglaskoðunarhús. Á Húsabakka er sýningin Friðland fuglanna (sjá www.birdland.is). Í næsta nágrenni má einnig finna golfvöll í 2,5 km fjarlægð, hestaleigu 3 km, sundlaug 5 km, hvalaskoðun 5 km, kanóleigu 4 km, og fjölmargar gönguleiðir sem hægt er að fara í með eða án leiðsagnar. Allir helstu ferðamannastaðir á Norður­landi eru í innan við tveggja tíma aksturs­ fjarlægð. Við leggjum áherslu á notalegt andrúmsloft og persónulega þjónustu við gesti. Athugið að Útilegukortið gildir ekki yfir Fiskidagshelgina.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


NORÐURLAND

40

Lónsá

Um svæðið Tjaldsvæðið að Lónsá var opnað í ágúst 2015, stað­ sett norðanmegin við Akureyri og eru km 3 km í mið­­­­ bæ Akureyrar.

Heimilisfang: Lónsá, 601 Akureyri Sími: 462 5037 / 691 7227 Heimasíða: www.lonsa.is Netfang: lonsa@simnet.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 388 / 291 km Opnunartími: 31. maí – 15. september

Tjaldsvæðið er skjólsælt og rólegt fyrir tjöld, húsbíla og ferðavagna. Rafmagn, upphituð salerni og fín að­ staða til uppvöskunar undir berum himni. Stutt er í alla þjónustu, upplýsingar um afþreyingu og þjónustu má finna á heimasíðunni www.visitakureyri.is

1 KM

2,5 KM

2,5 KM

3,5 KM

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Gæða Merino ullarfatnaður Á góðu verði!

Frábært úrval

Á alla JANUS 1/1 fjölskylduna

www.ullarkistan.is Laugavegi 25 Reykjavík

Glerártorgi Akureyri


NORÐURLAND

42

Heiðarbær

Heimilisfang: Heiðarbær Reykjahverfi, 641 Húsavík Sími / GSM: 464 3903 / 864 0118 Heimasíða: www.heidarbaer.is Netfang: heidarbaer@simnet.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 476 km / 227 km Opnunartími: 1. júní – 10. september

Um svæðið Heiðarbær er staðsettur á milli Húsavíkur og Mývatns við þjóðveg nr. 87 í 20 km fjarlægð frá Húsavík. Við Heiðar­bæ er vel staðsett tjaldsvæði ásamt stæðum fyrir tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla. Á tjaldstæðinu er ágæt leikaðstaða og minigolf. Boðið er upp á alhliða veitingar og mat samkvæmt matseðli, léttvín, kaffi og meðlæti. Í Heiðarbæ er auk tjaldstæðis boðið upp á svefn­­pokagistingu fyrir allt að 30 manns í hólfuðum sal. Svefnpokagistingu fylgir ágætis eldunaraðstaða og hentar vel hópum. Einnig er boðið upp á gistingu í uppbúnum rúmum. Seld eru veiðileyfi í Langavatn og Kringluvatn sem eru í um 6 –13 km fjarlægð frá Heiðarbæ. Heiðarbær er einnig kjörinn dvalarstaður fyrir veiðimenn í nærliggjandi veiðiám. Í Heiðarbæ er sundlaug með tveimur heitum pottum sem er opin júní, júlí og ágúst frá kl. 11:00 –22:00 alla daga vikunnar. Heiðarbær í Reykjahverfi er vel stað­settur fyrir þá sem skoða vilja austurhluta norður­ landsins, njóta dvalar í góðu veðri og slappa af í rólegu umhverfi. Frá Heiðarbæ er stutt í flesta vinsælustu áninga­­­staði ferðamanna á svæðinu eins og Mývatn, Goða­­foss, Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur og Laxá í Aðaldal. Frá Heiðarbæ eru 20 km til Húsavíkur. Frá Húsavík eru daglegar hvalaskoðunarferðir yfir sumarmánuðina og einnig söfn s.s. hvalasafn og minjasöfn ásamt ýmsum áhuga­­verðum skoðunarstöðum. Í júlí er til­ valið fyrir gesti tjaldsvæðisins að skella sér á Mæru­­

20 KM

15 KM

20 KM

20 KM

6 KM

20 KM

daga á Húsavík sem haldnir verða síðustu helgina í mánuðinum. Þjónusta fyrir og eftir auglýstan opnunartíma fer eftir tíðarfari og því hægt er að hafa samband í síma 464 3903 fyrir utan opnunartíma ef fólk er á ferðinni. Ef haldin eru ættarmót eða samkoma á vegum félagasamtaka þar sem samið er um sérstakan pakka, þá gildir Útilegukortið ekki til frádráttar frá umsömdu verði.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


43

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


NORÐURLAND

44

Möðrudalur – Fjalladýrð

Um svæðið Ferðaþjónustan Fjalladýrð Möðrudal á Fjöllum er stað­­sett miðja vegu milli Mývatns og Egilsstaða við veg 901. Fjalladýrð býður gestum sínum uppá fjöl­ breytta þjónustu í kyrrlátu umhverfi. Staðurinn er rómaður fyrir fagra fjallasýn og víðsýni til allra átta, en þar má sjá drottningu íslenskra fjalla – Herðubreið gnæfa tignarlega yfir umhverfi sitt, Kverk­­fjöll rísa úr Vatnajökli og Víðidalsfjöllin baða sig í kvöld­­sólinni. Fjallakaffi er snotur burstabær sem býður uppá þjóð­legar veitingar og hefur getið sér gott orð fyrir kraft­­mikla kjötsúpu og gómsætar kleinur. Einnig er þar íslenskt handverk til sölu, auk hefðbundinnar ferða­­sjoppu. Gistiaðstaðan er í rómantískum baðstofum í gamla stílnum sem henta vel fyrir pör, fjölskyldur eða minni hópa. Einnig er boðið uppá 1–4 manna herbergi í uppábúnum rúmum eða í svefnpoka. Tjaldstæðið er búið öllum helstu þægindum fyrir tjaldgesti jafnt sem húsbílaeigendur, þar sem til staðar er rafmagn. Sparkvöllur og frispygólf er til staðar fyrir fjölskylduna. Gönguleiðir eru margar skemmtilegar út frá Möðru­ dal og eru þær kortlagðar, vel merktar og stikaðar. Jeppa­­ferðir og gönguferðir um náttúruperlur norður há­lendisins t.d. á Herðubreið, í Öskju, Herðubreiðar­ lindir, Kverkfjöll, Hafrahvammagljúfur eða sérsniðnar ferðir að óskum. Eldsneytissala í torfbæ – komið og upplifið skemmti­­­ legri áfyllingu á bílinn!

Heimilisfang: Möðrudalur, 601 Mývatn Sími / GSM: 471 1858 / 894 8181 Heimasíða: www.fjalladyrd.is Netfang: fjalladyrd@fjalladyrd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 560 km / 130 km Opnunartími: 20. maí – 10. september

Nýjung: Bjóðum uppá þyrluferðir frá Möðrudal um Holuhraun, Öskju og Kverkfjöll. En þess má geta að Möðrudalur er einungis í 60 km fjarlægð frá Holuhrauni. Athugið að Útilegukortið gildir ekki 19.–21. ágúst á Möðrudalsgleði sem er hluti af Ormsteiti. Nánari upplýsingar á www.east.is.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Þórshöfn NORÐURLAND

Heimilisfang: við Miðholt, 680 Þórshöfn Sími / GSM: 468 1220 Heimasíða: www.langanesbyggd.is Netfang: sund@langanesbyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 638km / 228km Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst

0,5 KM

0,5 KM

0,5 KM 0,5 KM

10 KM

Um svæðið Tjaldsvæðið okkar er ofarlega í þorpinu á kyrrlátum og notalegum stað. Þaðan er öll þjónusta í þorpinu í göngufæri. Aðstaða á tjaldsvæðinu er góð. Þar eru borð og bekkir, salernis- og sturtuaðstaða og gott rými fyrir hjólhýsi og húsbíla með aðgangi að rafmagni. Í íþróttahúsinu Verinu er aðstaðan til fyrir­myndar, þar er stór innisundlaug og heitir

45 pottar, íþrótta­salur og líkamsrækt. Þar er einnig upp­lýsinga­miðstöðin staðsett og ýmis önnur að­ staða fyrir ferða­menn, t.d. þvottavél. Við íþrótta­­ húsið er spark­völlur þar sem oftar en ekki er hægt að finna bæði með- og mótspilara. Hjarta Þórshafnar slær í takt við sjávarföllin, þar hefur útgerð og fiskvinnsla verið aðalatvinnu­ vegurinn og því er gaman að rölta niður að höfn og kíkja á mannlífið. Þá er gaman að ganga um lystigarðinn og heilsa upp á Valda vatns­ bera. Þjónusta á Þórshöfn er mjög góð, þar er heilsu­ gæsla og apótek, verslun, veitinga­staður, grill­skáli, íþróttahús og sundlaug, sparisjóður, pósthús, bensín­stöð, bílaverkstæði o.fl. Áhugaverðir staðir í nágrenni Þórshafnar eru t.d. Langanes, Bakkafjörður og Rauðanes. Flugfélag Íslands er með daglegt flug frá Reykjavík með milli­­lendingu á Akureyri. Bílaleiga Akur­eyrar er með útibú á Þórshöfn og býður m.a. uppá hent­ uga bíla til ferða útá Langanes. Einnig er Hertz bílaleiga á Þórshöfn með allar tegundir bíla. Strætó bs. er með áætlunarferðir frá Þórshöfn til Akureyrar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


BOLUNGARVÍK SIGLUFJÖRÐUR TUNGUDALUR

ÓLAFSFJÖRÐU

HÚSA ÞINGEYRI SKAGASTRÖND SAUÐÁRKRÓKUR TÁLKNAFJÖRÐUR

DRANGSNES FLÓKALUNDUR

GRETTISLAUG HVAMMSTANGI

LAUGAR

HELLISSANDUR ÓLAFSVÍK ELDBORG

VARMALAND

AKRANES

SKJÓL

SANDGERÐI ÁRNES ÁLFASKEIÐ BRAUTARHOLT ÞORLÁKSHÖFN GRINDAVÍK T-BÆR

STOKKSEYRI LANGBRÓK

VÍK Í MÝRDAL


ÞÓRSHÖFN

UR

ABAKKI HEIÐARBÆR LÓNSÁ

FJALLADÝRÐ SEYÐISFJÖRÐUR NORÐFJÖRÐUR REYÐARFJÖRÐUR

ESKIFJÖRÐUR

FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR

STÖÐVARFJÖRÐUR

KLEIFAR - MÖRK


SEYÐISFJÖRÐUR NORÐFJÖRÐUR REYÐARFJÖRÐUR

ESKIFJÖRÐUR

FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR

STÖÐVARFJÖRÐUR

AUSTURLAND KLEIFAR--MÖRK MÖRK KLEIFAR

Um landshlutann VÍKÍ ÍMÝRDAL MÝRDAL VÍK

Eitt helsta einkenni Austurlands eru hinir fjölmörgu firðir sem liggja eftir strandlengjunni allri. Kaupstaði á Austfjörðum er að finna við flest alla firði sem allir hafa sín sérkenni. Því er aldrei langt í afþreyingu

og þjónustu á landshlutanum öllum. Eina hreindýrastofn Íslands er að finna á Aust­­fjörðum og geta ferðamenn oft séð þeim bregða fyrir að leið sinni um landshlutann.

Seyðisfjörður

50

Norðfjörður

51

Eskifjörður

52

Reyðarfjörður

53

Fáskrúðsfjörður

54

Stöðvarfjörður

55


REYKJAVÍK Skútuvogi 12 460 3003

REYKJAVÍK Skeifunni 5 460 3002

Holta

Mik

vegu

r

labr aut

egur

sásv

Gren

r vo

Fáka

gur

Lan

gh

olt

s ve

Kleppsmýrarvegu

n

fen

Faxa fe

Sæbraut

gu

r

iða

ifan

Skútuvogur

S ke

S ke

r

rsíð a

ata isg upn Dra

t au br ar íð Hl

ta s ga

stu

rg á

Fag

als br Lyngás aut

rad

Þverklettum 1 700 Egilsstaðir 460 3001

/dekkjahollin

www.dekkjahollin.is

t

Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar:

au

rbr

Draupnisgötu 5 600 Akureyri 460 3000

ar

lni Fjö

Au

vegur

Við erum á fjórum stöðum á landinu!

ut arbra Tjarn Tjarnarás

s lett

nd Þverk

rla fjarðar

ðu

t Seyðis

Su

u bra


AUSTURLAND

50

Seyðisfjörður

Um svæðið Seyðisfjörður kúrir á milli hárra fjalla í samnefndum firði einungis 26 km frá Egilsstöðum, tjaldsvæðið er í hjarta bæjarins umgirt háu kjarri sem veitir gott skjól. Að aka yfir Fjarðarheiði á góðum sumardegi er öllum ógleymanlegt sem það upplifa, af mörgum er heiðarvegurinn talin vera einn fegursti fjallvegur landsins og þó víðar væri leitað. Á svæðinu er stórt þjónustuhús með eldunaraðstöðu og setustofu fyrir gesti, þar er auk þess þvottavél, þurrkari, wc og sturtur fyrir konur, karla og fatlaða. Stutt er í alla þjónustu fyrir ferðamenn, stikaðar gönguleiðir og afþreyingamöguleika sem eru fjölmargir. Húsbílastæði eru á tveimur stöðum fyrir ca. 100 bíla, þvottaaðstaða, rafmagn og losunaraðstaða fyrir ferðasalerni er á svæðinu. Upplýsingar um þjónustu og afþreyingarmöguleika í nágrenni tjaldsvæðisins er að finna á heimasíðunni www.visitseydisfjordur.com

Heimilisfang: Ránargata 5, 710 Seyðisfjörður Sími / GSM: 472 1521 / 861 7789 Heimasíða: www.visitseydisfjordur.com Netfang: ferdamenning@sfk.is / camping@sfk.is Fjarlægð frá Reykjavík: 681 km Opnunartími: 1. maí – 30. september

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Norðfjörður

Heimilisfang: Víðimýri, 740 Neskaupstað Sími / GSM: 470 9000 Heimasíða: www.fjardabyggd.is Netfang: fjardabyggd@fjardabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 715 km / 105 km Opnunartími: 1. júní – 15. september

600 M 6 KM

6 KM

600 M

600 M

600 M

600 M

1 KM

1 KM

Um svæðið Tjaldsvæðið er á fallegum útsýnisstað við snjó­ flóða­ varnargarðana í Drangagili, ofan við Víði­ mýri. Á svæðinu eru sturtur, snyrting, rafmagn, leik­­­svæði og strandblakvöllur. Ganga má upp á varnar­­garðana og njóta stórkostlegs útsýnis yfir bæinn, fjörðinn og fjöllin. Upplýsingamiðstöð fyrir

AUSTURLAND

51 ferðamenn er í anddyri Sundlaugar Norðfjarðar og er hún opin allt árið. Safnahúsið í Neskaupstað er í fallega uppgerðu húsi við gömlu höfnina í miðbænum. Þar eru þrjú frá­ bær söfn til húsa; Málverkasafn Tryggva Ólafssonar, Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar og Náttúrugripasafnið í Neskaupstað. Hinum megin götunnar er Kaupfélagsbarinn, sem er með glæsilegri veitingastöðum og Nesbær, rótgróið kaffihús og bístró. Sundlaug Norðfjarðar er flott útilaug með fallegri fjallasýn, heitum pottum og tveimur stórum rennibrautum. Önnur þeirra nefnist Dóri rauði og er með lengstu sundrennibrautum landsins. Í næsta nágrenni sundlaugarinnar er síðan Lystigarðurinn í Neskaupstað. Skorrahestar eru í Norðfjarðarsveit, rétt innan við bæinn, með hestaleigu og útreiðar og enn innar rekur Golfklúbbur Norðfjarðar skemmtilegan níu holu golfvöll. Fólkvangur Neskaupstaðar liggur rétt utan við bæinn, í austurhluta Norðfjarðarnípunnar og er leiðin út í Páskahelli á meðal þekktari göngu­ leiða staðarins. Þrjár stórar sumarhátíðir eru haldnar á Norðfirði. Sjómannadagurinn er þriggja daga hátíð fyrstu helgina í júní, aðra helgina í júlí fer fram tónlistar- og rokkhátíðin Eistnaflug og um verslunar­ mannahelgina er haldin fjölskyldu- og útihátíðin Neista­flug ásamt Barðsneshlaupinu. Neskaupstaður er einn af sex bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


AUSTURLAND

52

Eskifjörður

Um svæðið Tjaldsvæðið er í skógarreit við Bleiksána, rétt við innkeyrsluna í bæinn. Þar eru sturtur, snyrting, raf­ magn og leiksvæði fyrir börnin. Upplýsinga­miðstöð fyrir ferðamenn er í anddyri Sundlaugar Eskifjarðar og er hún opin allt árið. Gömlu, rauðmáluðu sjóhúsin gefa strandlengjunni á Eskifirði einstakt svipmót og tilvalið er að renna fyrir fiski í firðinum. Sundlaug Eskifjarðar er við inn­keyrsluna í bæinn, stutt frá tjaldsvæðinu, með heitum pottum, vaðlaug og rennibrautum. Aðrir vin­­ sælir viðkomustaðir eru Sjóminjasafn Austur­ lands, sem gerir atvinnusögu svæðisins vönduð skil og Verkstæði Kötu, sem er lítið og skemmti­ legt glerlistagallerí. Í Randulffssjóhúsi er glæsi­ legur veitingastaður og auk þess gömul verbúð frá millistríðsárunum, sem gaman er að skoða. Í þessu upprunalega sjóhúsi er einnig rekin báta- og veiðistangaleiga á sumrin. Stór útiverönd Kaffi­ hússins á Eskifirði nýtur sín vel í sumarblíðunni og í menningarhúsinu Dahlshúsi eru oft haldnar áhuga­ verðar sýningar. Alþjóðlega vegaskiltið við ferða­þjónustuna Mjó­ eyri, skammt utan við bæinn, er kjörinn staður fyrir nokkrar „selfies“ og utar með firðinum er Helgustaðar­náma, ein stærsta og þekktasta silfur­ bergs­ náma Evrópu. Byggðar­ holtsvöllur, skemmti­ legur 9 holu golfvöllur, er rétt innan við þéttbýlið.

Heimilisfang: Strandgötu, 735 Eskifirði Sími / GSM: 470 9000 Heimasíða: www.fjardabyggd.is Netfang: fjardabyggd@fjardabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 692 km / 80 km Opnunartími: 1. júní – 15. september

800 M

200 M 100 M

6 KM

200 M

100 M

100 M

600 M

1 KM

1.5 KM 500 M

Á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar er Hólmanes friðland með merktum göngu­leiðum og Hólma­­ borginni, helsta griðar­stað íslenska berg­dúfu­ stofnsins. Eski­ fjörður er einn af sex bæjar­ kjörnum Fjarða­byggðar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Reyðarfjörður

53

Heimilisfang: Búðareyri, 730 Reyðarfirði Sími / GSM: 470 9000 Heimasíða: www.fjardabyggd.is Netfang: fjardabyggd@fjardabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 677 km / 67,8 km Opnunartími: 1. júní – 15. september

800 M

1 KM

100 M

400 M

400 M

1 KM

1 KM

AUSTURLAND

1 KM

400 M

Um svæðið Tjaldsvæðið er á fallegum stað við Anda­ pollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við inn­ keyrsluna í bæinn. Á svæðinu eru sturtur, salernis­­ aðstaða, þvottavél og rafmagn, en losun fyrir húsbíla er hjá þjónustumiðstöð Olís, skammt frá tjaldsvæðinu. Upplýsingamiðstöð

fyrir ferðamenn er opin á sumrin í Íslenska stríðsárasafninu við Heiðarveg. Skemmtilegar gönguleiðir í fallegu umhverfi liggja meðfram byggðinni ofanverðri og upp með Búðarárgili. Íslenska stríðsárasafnið er við upprunalega herbragga ofarlega í bænum. Safnið gerir hernámsárunum einstök skil, bæði hvað atburði tímabilsins snertir og tíðaranda. Í miðbæ Reyðarfjarðar er m.a. verslunarmiðstöðin Molinn og Sesam brauðhús, sem er ekta hand­ verks­bakarí og kaffihús. Vestan við Molann er Tærgesen, eitt elsta hús Reyðarfjarðar og er þar rekið samnefndur veitinga- og gististaður. Ysta bryggjan, austan við Molann, nefnist Barkurinn og mótar enn fyrir seglskipi, sem var sökkt á þessum stað sem bryggjuundirstaða. Þá er pizza- og skemmtistaðurinn Staupasteinn til húsa í Félagslundi, en húsið gegndi hlutverki félags­­heimilis á árum áður. Síðustu helgina í júní er hernámsins minnst með Hernámsdeginum og er þá m.a. efnt til setuliðsskemmtunar í Íslenska stríðs­­­ára­safninu. Golfklúbbur Fjarðabyggðar rekur 9 holu golfvöll, skammt innan við þétt­ býlið. Reyðarfjörður er landfræðileg miðja sveitar­ félagsins Fjarðabyggðar og þaðan liggja leiðir til Eskifjarðar og Norðfjarðar í norðri og Fáskrúðs­ fjarðar og Stöðvarfjarðar í suðri.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


AUSTURLAND

54

Fáskrúðsfjörður

Um svæðið Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við Ósinn, rétt innan við byggðina. Þar eru sturtur, snyrting, rafmagn og losun fyrir húsbíla. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er starfandi á sumrin í Gallerí Kolfreyju. Kaffi Sumarlína er notalegt veitingahús stutt frá tjaldsvæðinu og steinsnar þaðan er Anna frænka, lítið handverksgallerí. Handverksgalleríið Gallerí Kol­freyja er til húsa í sögu- og handverkshúsinu Tanga, fallega uppgerðu húsi sem stendur nálægt sjónum. Galleríið er rekið af handverkssamfélaginu á Fáskrúðsfirði. Söguleg tengsl við Frakkland eru mikil á Fáskrúðsfirði og bera götur bæjarins bæði íslensk og frönsk heiti. Lokið var við endurgerð frönsku húsanna sumarið 2014, en þekktast þeirra er líklega Franski spítalinn. Þar eru nú til húsa Fosshótel Austfirðir, veitingastaðurinn l‘Abri og Frans­menn á Íslandi, einstakt safn sem fjallar um líf og störf franskra sjómanna á Íslandsmiðum. Franskir dagar eru fjölskylduhátíð með frönsku ívafi sem fram fer fjórðu helgina í júlí ár hvert á Fáskrúðsfirði. Sundlaugin á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti. Fáskrúðsfjörður er einn af sex bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.

Heimilisfang: Óseyri, 750 Fáskrúðsfirði Sími / GSM: 470 9000 Heimasíða: www.fjardabyggd.is Netfang: fjardabyggd@fjardabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 660 km / 92,1 km Opnunartími: 1. júní – 15. september

1 KM

700 M

1,5 KM

1,5 KM

800 M

800 M

800 M

1 KM

100 M

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Stöðvarfjörður

55

Heimilisfang: Fjarðarbraut, 755 Stöðvarfirði Sími / GSM: 470 9000 Heimasíða: www.fjardabyggd.is Netfang: fjardabyggd@fjardabyggd.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 633 km / 114 km Opnunartími: 1. júní – 15. september

600 M

700 M

500 M

100 M

600 M

600 M

600 M

AUSTURLAND

1 KM

Um svæðið Tjaldsvæðið er við austurenda byggðarinnar, með salerni, rafmagni og losun fyrir húsbíla. Það stendur við fallegt skógræktarsvæði með grillaðstöðu og leiktækjum. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin allt árið í Brekkunni.

Steinasafn Petru á Stöðvarfirði er eitt stærsta steina­ safn sinnar tegundar og laðar á ári hverju til sín mikinn fjölda ferðamanna. Brekkan er allt í senn verslun, veitingastaður og upplýsingamiðstöð og skammt þar frá er veitinga- og gistihúsið Hótel Saxa. Þá hefur gamla þorpskirkjan á Stöðvarfirði verið afhelguð og þjónar nú sem lítið gistiheimili á vegum Kirkju­ bóls. Á Stöðvarfirði er umfangsmikil lista- og handverksstarfsemi. Gallerí Snærós er eitt þekktasta listgallerí Austurlands og hefur Salthússmarkaðurinn, sem rekinn er af hand­ verkssamfélagi Stöðvarfjarðar, getið sér gott orð fyrir úrval af vönduðu handverki. Í gamla frysti­húsi staðarins er Sköpunarmiðstöðin, sem skapar list og nytjamuni úr endurvinnanlegu hráefni og Gallerí Svarthol er með lítinn og skemmtilegan sýningarsal í einu af heimahúsum staðarins. Sundlaug Stöðvarfjarðar er lítil og falleg útilaug. Höfnin á Stöðvarfirði er einnig vinsæll viðkomustaður. Saxa er sjávarhver og eitt af þekktari náttúrufyrirbrigðum Austfjarða, en hann leynist í klettaskorningum við sjóinn, skammt utan við bæinn. Í austlægum vindáttum kurlar Saxa þara, rekavið og annað lauslegt úr sjó og þeytir hátt í loft upp. Stöðvarfjörður er einn af sex bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


SKJÓL

SANDGERÐI

ÁRNES ÁLFASKEIÐ BRAUTARHOLT ÞORLÁKSHÖFN GRINDAVÍK T-BÆR

STOKKSEYRI LANGBRÓK

KLEIFAR - MÖRK

VÍK Í MÝRDAL

SUÐURLAND Um landshlutann Það sem gerir Suðurland mjög frábrugðið öðrum landshlutum er að þar er enga firði að finna, ólíkt öðrum stöðum á landinu.

Margar þekktar náttúruperlur er að finna á Suðurlandi. Má þar nefna perlur eins og Heklu, Gullfoss, Geysi, Þórsmörk og Þingvelli.

Kleifar-Mörk

57

Vík í Mýrdal

58

Langbrók

59

Brautarholt

60

Árnes

61

Álfaskeið

62

Skjól

63

Stokkseyri

64

Þorlákshöfn

66

T-bær

67

Grindavík

68

Sandgerði

70


Kleifar-Mörk sUÐurLAND BERUNES

LAMBHÚS

LITLAHORN

Heimilisfang: Kleifar-Mörk, 880 Kirkjubæjarklaustur Sími / GSM: 487 4675 / 863 7546 / 861 7546 Heimasíða: http://kleifar.123.is Netfang: gudruns68@simnet.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 258 km / 405 km

2,5 KM 2,5 KM

2,5 KM

2,5 KM

2,5 KM 2,5 KM

Um svæðið Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5 km frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðris­ dögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatns­salerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð og beint á móti tjaldsvæðinu er fótboltavöllur. Stutt

57 er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt. Mikið er af skemmtilegum merktum gönguleiðum í nágrenni tjaldsvæðisins og fallegum stöðum til að skoða. Gaman er að skoða Kapelluna á Kirkjubæjar­ klaustri sem var vígð árið 1974 og byggð í minningu sr. Jóns Steingrímssonar, þess klerks sem söng hina frægu Eldmessu, 20. Júlí 1783, í kirkjunni á Klaustri. Talið er að Eldmessan hafi stöðvað hraunstrauminn sem þá ógnaði byggðinni. Systrastapi er klettastapi vestan við Klaustur. Þjóð­ saga segir að uppi á stapanum sé legstaður tveggja klaustur­systra sem áttu að hafa verið brenndar á báli fyrir brot á siðareglum. Önnur hafði selt sig fjandanum, gengið með vígt brauð fyrir náðhúsdyr og lagst með karlmönnum. Hin hafði talað óguðlega um páfann. Eftir siðaskiptin var seinni nunnan talin saklaus og á leiði hennar óx fagur gróður en á leiði hinnar seku var gróðurlaust. Klifurfært fólk kemst upp á stapann en þaðan er mikið útsýni með jöklasýn.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


sUÐURLAND

58

Vík í Mýrdal

Um svæðið Tjaldsvæðið í Vík er rétt við Víkurþorp. Á tjaldsvæðinu er boðið upp á flesta þá þjónustu er tjaldgestir þurfa svo sem rafmagn fyrir húsbíla og í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturtur og aðstaða til að matast. Stutt er í alla þjónustu sem er í göngufjarlægð frá tjaldsvæðinu. Vík er aðeins í rúmlega tveggja klukkustunda keyrslu­­ fjarlægð frá Reykjavík. Mýrdalurinn skartar fögru, ósnortnu umhverfi og einstakri náttúrufegurð. Margar helstu náttúruperlur Íslands eru í og við Vík svo sem Dyrhólaey og Reynisdrangar. Mikið er til af fallegum gönguleiðum í Vík og nágrenni. Fuglalíf er með eindæmum enda er veðurfar einstaklega milt, jafnt á sumri sem að vetri.

Heimilisfang: Klettsvegur 7, 870 Vík Sími: 487 1345 Heimasíða: www.vikcamping.is Netfang: vikcamping@gmail.com Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 176 km / 476 km Opnunartími: 1. júní – 15. september

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


sUÐURLAND

Heimilisfang: Fljótshlíð, 861 Hvolsvöllur Sími / GSM: 863 4662 Netfang: kaffilangbrok@gmail.com Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 118 km / 559 km Opnunartími: 1. maí – 1. október

10 KM

10 KM

3 KM

10 KM

1 KM

1 KM

1 KM

Langbrók

Um svæðið Nýlegt tjaldstæði í hjarta sögusviðs Njálu stendur við Kaffi Langbrók í Fljótshlíð og er rekið til hliðar við það. Á Kaffi Langbrók er starfandi hljómsveitin Hjónabandið sem er iðulega við æfingar og sprell á sumrin og skapast oft skemmtileg stemning á svæðinu. Á túninu er gyðjuhof sem reist var upp á gamla mátann og búið er að vígja. Farið er með gesti í hofið til að syngja, blóta og fá sér einhverja hressingu og fleira. Einu sinni á sumri er haldin útihátíðin Veltingur sem Hjónabandið sér um.

10 KM

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

59


SUÐURLAND

60

Brautarholt

Um svæðið South Central – Ferðaþjónusta á Suðurlandi, rekur tjald­svæðið í Brautarholti sem er staðsett í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, miðja vegu milli Selfoss og Flúða. Tjaldsvæðið er rúmlega 80 km frá Reykjavík og er mið­svæðis á Suðurlandi. Selfoss, Flúðir og Árnes eru í um 15–20 mínútna akstursfjarlægð. Hestakráin er í um 10 mínútna göngufæri frá tjaldsvæðinu. South Central rekur einnig vegamótel í Brautarholti. Um er að ræða 30 m² fjölskylduíbúðir fyrir fjóra og hentar vel fyrir gesti sem kjósa heldur þess konar vistarverur. Fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni. Þjórsár­ bakkar, Vörðufell, Hestfjall og Miðfell eru vinsælir staðir fyrir útivist og göngu svo ekki sé minnst á Þjórsár­dalinn og þær náttúruperlur sem þar eru að finna. Næstu golfvellir eru á Flúðum, Grímsnesi, Sel­ fossi og Hellu. Ekki er lengur verslun í Brautarholti. Kerta­smiðjan sem þar var er flutt að Blesastöðum þar sem hún var áður til húsa. Hægt er að kaupa drykki, ís og annað nammi í sundlauginni á opnunartíma. Leikvöllur: Leikskólinn Leikholt er staðsettur við hlið tjald­ svæðisins og er útisvæðið opið gestum um helgar og í sumar­ leyfi leikskólans. Sundlaug: Skeiðalaug er heillandi lítil sundlaug og gufu­ baðið einstaklega vinsælt meðal gesta og heimamanna. Rafmagn: Rukkað er aukalega fyrir rafmagnsnotkun, 900 kr. fyrir 10 Amp tengil á sólarhring sem er jafnframt lágmarksgjald fyrir rafmagnsnotkun.

Heimilisfang: Brautarholti á Skeiðum (Skeiða- og Gnúpverjahreppi), 801 Selfossi. Sími / GSM: 663 4666 Heimasíða: www.southcentral.is Netfang: camping@southcentral.is Opnunartími: 10. júní – 15. september Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 85 km / 610 km

Íþróttavöllur: Stór og mikill íþróttavöllur er á svæðinu. Þar eru fótboltamörk og mikið opið rými sem nota má til íþrótta iðkunnar af ýmsu tagi. Samkomutjald: Hægt er að leigja 60m² samkomutjald á staðnum. Staðarhaldari veitir upplýsingar um verð og uppsetningu. Félagsheimili/salur: Félagsheimilið í Brautarholti hentar fyrir ættarmót og stærri hópa. Hreppurinn sér um leigu húsnæðisins en umsjónarmaður tjaldsvæðisins getur haft milligöngu um leigu salarins. Athugið að Útilegukortið gildir ekki um Verslunar­­ manna­­helgina og þegar um frátekið svæði er að ræða fyrir hópa og ættarmót.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Árnes SUÐURLAND

Heimilisfang: Skeiða og Gnúpverjahreppur Sími / GSM: 664 6555 Heimasíða: www.arnesferdamenn.is Netfang: rosa@arnesferdamenn.is Opnunartími: 28. maí – 18. september Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 93 / 617 km

Um svæðið Árnes í Skeiða og Gnúpverjahreppi er rólegur og fallegur staður, 99 km frá Reykjavík eða í rúmlega klukkutíma akstursfjarlægð. Þar er einnig Þjórsárstofa, upplýsingamiðstöð fyrir ferða­­menn um svæðið, þjónustu og afþreyingu, fólkið og söguna, landið og náttúruna. Í Árnesi er vel búið tjaldsvæði tilvalið fyrir ferðamenn, ein­ staklinga og hópa sem vilja njóta þess að vera á rólegum stað við góðar aðstæður. Tjaldsvæðið Árnes stendur við Kálfá nálægt mynni Þjórsár­dals sem er eitt fegursta svæði landsins. Þaðan er stutt að fara til að skoða fjölmargar náttúru­ perlur, sögufræga staði og fjöl­­breytt náttúru­far. Á tjaldsvæðinu er rúmgóð flöt með 36 rafmagnstenglum. Aðgengi er að salernum, sturtum og þvottavél. Einnig eru þar hliðar­tjaldsvæði, m.a. flöt rétt við sundlaugina, sem rúma minni hópa. Góð aðstaða er fyrir úti­ veru, leiki og íþróttir. Í félagsheimilinu Árnesi er hægt að fá leigðan sal til inniveru fyrir hópa. Á staðnum er veitinga- og kaffistofa, sundlaug, fótboltavöllur, farfuglaheimili og verslun. Þar er einnig Þjórsárstofa, upplýsingamiðstöð og marg­­­­miðlunarsýning um náttúru Þjórsárdals og Þjórsá og Norðurljós. Í Árnesi er einnig lítil verslun með helstu nauðsynjum ásamt bensínog olíuafgreiðslu.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

61


SUÐURLAND

62

Álfaskeið

Um svæðið Álfaskeið liggur í fallegum dal í Hrunamanna­hreppi við sunnanvert Langholtsfjall skammt frá Flúðum. Ungmennafélagið í sveitinni hélt þar reglulegar úti­­ samkomur frá árinu 1908 í nærri 60 ár og var Álfa­ skeið því miðstöð útihátíða á Suðurlandi við upphaf síðustu aldar. Ungmennafélagið plantaði jafnframt mikið af trjám. Enda er trjágróður í miklum blóma á Álfa­skeiði og fallegt skógarrjóður í kringum tjald­svæðin. Góð að­ staða er við Álfaskeið. Álfaskeið er fjölskyldutjaldsvæði og hefur verið vin­ sælt tjaldsvæði undanfarin ár enda á ekki að væsa um gesti þar. Aðeins eru um 10 kílómetrar í alla frekari þjónustu á Flúðum, sundlaug, verslun o.þ.h. Hesta­ leiga er á bænum Syðra-Langholti sem er ca. 1 km frá tjaldsvæðinu. Ekki er heitt vatn né rafmagn á svæðinu.

Heimilisfang: Syðra Langholti, 845 Flúðum Sími / GSM: 486 6774 Heimasíða: sydralangholt.is Netfang: arnaths@gmail.com Opnunartími: 1. júní – 1. september Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 99 km / 616 km

15 KM

10 KM

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Skjól SUÐURLAND

63

Heimilisfang: Kjóastaðir, 801 Geysir Sími / GSM: 845 1566 Heimasíða: www.skjolcamping.com Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 120 km / 654 km Opnunartími: 1. maí – 1. sept. eða meðan veður leyfir

3 KM

20 KM

30 KM

Um svæðið Tjaldsvæðið Skjól er nýlegt tjaldsvæði og er staðsett mitt á milli Gullfoss og Geysis við Kjóastaði. Kjóastaðir stendur við þjóðveg nr. 35 sem er á milli Selfoss og Gullfoss. Stutt er í helstu náttúruperlur landsins s.s. Geysi, Gullfoss og að Brúarhlöðum sem er gljúfur við bakka Hvítár.

Flúðir, Laugavatn og Reykholt eru í næsta nágrenni en þar er góð sundaðstaða ásamt kjörbúðum. Skjól er rúmgott tjaldsvæði með fallegri fjallasýn yfir í næstu hreppa ásamt góðu útsýni upp á Langjökul. Á Skjóli er glæsilegt retro kaffihús þar sem hægt er að horfa á boltann, leika á hljóðfæri fyrir þá sem það kunna og hafa gaman af eða vafra um á netinu en frí nettenging er á staðnum. Einnig er góð þvotta­­ aðstaða og sturtur. Tjaldsvæðið verður tilbúið með raf­magns­staurum. Á kaffi­­húsinu sem er opið á milli 10:00–23:00 er hægt að gæða sér á kaffi með bakk­ elsi, smurðu brauði, ávöxtum og grænmeti beint frá býlum í nágrenni ásamt mjólkurvörum (skyr og jógúrt). Hægt er að panta pizzur af matseðli ásamt öðrum drykkjum. Hestaleiga er rekin á Kjóastöðum og er nýlegur 9 holu golfvöllur staðsettur við Geysi ásamt frábærum göngu­leiðum um Haukadalsskóg en þar eru merktar göngu­ leiðir ásamt hjólastólastígum. Skjól býður einnig upp á hostel fyrir þá sem það kjósa og er þar gisting fyrir allt að 24 manns. Í boði eru uppábúin rúm. Hægt er að taka frá pláss fyrir hópa með góðum fyrirvara á tjaldsvæðinu en gestir tjaldsvæðisins eru beðnir um að virða hávaðamörk og takmarka bílferðir eftir miðnætti vegna tillitsemi við tjaldsvæðagesti þar sem þetta er fjölskyldu- og ferðamannatjaldsvæði. Daglegar rútu­ferðir eru frá Reykjavík og einnig norður Kjöl.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


sUÐURLAND

64

Stokkseyri

Um svæðið Stokkseyri er lítið þorp við suðurströndina sem er þekkt fyrir fuglalíf og stórbrotna og fagra fjöru þar sem skiptast á skeljasandur, sker, flúðir og lón. Öflugt lista- og menningarlíf er á svæðinu, þar sem vinnu­stofur, sýningarsalir og söfn leynast víða, auk handverks af ýmsu tagi. Dæmi um söfn eru Veiði­ safnið, Draugasetrið, Orgelsmiðjan, Álfa,- trölla- og norður­ljósasetrið. Kaffihúsið Kaffi Gott er fallegt kaffihús sem er með gæðakaffi og dásamlegar heimabakaðar kræsingar svo er einnig verslunin Skálinn en þar er hægt að versla eldsneyti og helstu nauðsynjavörur auk veitinga. Sundlaug Stokkseyrar er lítil og notaleg laug þar sem eru 2 heitir pottar og vaðlaug fyrir börnin, auk rennibrautar. Laugin er opin alla daga yfir sumar­ tímann. Ýmis önnur afþreying er í þorpinu, til dæmis eru skemmtilegar gönguleiðir víða. Kajakferðir eru í boði. Vor í Árborg, sem haldin er í maí og Bryggjuhátíð í lok júlí. Einnig eru fleiri hátíðir í nágrenninu sem stutt er að skjótast á yfir daginn. Hægt er að veiða í Hraunsá, Bakkahestar eru með hestaferðir, Hólaborg býður uppá ýmsar skemmtilegar afþreyingar og svo er auðvelt að komast í tengsl við dýralíf þar sem víða eru hestar á beit, kindur og jafnvel kýr. Árlega eru haldnar hátíðir á Stokkseyri, má þar nefna lista- og menningarhátíðina.

Heimilisfang: Sólvellir, 825 Stokkseyri Sími: 896 2144 Heimasíða: www.stokkseyri.is www.facebook.com/tjaldastokkseyri Netfang: tjalda38@hotmail.com Opnunartími: 1. maí – 1. október Fjarlægð frá Reykjavík / Seyðisfirði: 64 km / 619 km

Tjaldsvæðið á Stokkseyri er mikið endurbætt svæði þar sem salernisaðstaða hefur fengið yfir­ halningu og sett hefur verið upp losunar­aðstaða fyrir húsbíla. Sturtur og þvottavél, stórt útigrill sem hentar vel fyrir hópa eru á svæðinu og nóg af rafmagns­ tenglum. Leikvöllur er fyrir börnin. Göngustígur liggur frá tjaldsvæðinu beint inn í miðbæ Stokkseyrar. Strætó gengur milli Eyrar­ bakka, Selfoss og Stokkseyrar alla virka daga svo stutt er í aðra afþreyingu á svæðunum í kring. ATH! Ekki er tekið við greiðslukortum.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


  

              

 

    

BIFREIÐASKOÐUN


sUÐURLAND

Þorlákshöfn

Vantar mynd

66

Um svæðið Sveitarfélagið Ölfus er vestast í Árnessýslu og eru íbúarnir tæplega 2.000 talsins. Þéttbýlisstaður sveitar­ félagsins er Þorlákshöfn með um 1500 íbúa. Kauptúnið dregur nafn sitt af Þorláki helga Skálholtsbiskupi (1133–1193) og fer tvennum sögum af tilkomu nafns­­ins. Önnur sagan segir að staðurinn hafi fengið þetta nafn eftir að Þorlákur biskup steig þar á land, er hann kom frá biskupsvígslu 1178. Hin sagan segir að eigandi jarðarinnar hafi í sjávarháska heitið á Þorlák helga sér til liðsinnis og svo gefið Skálholti jörðina. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein. Vinsælt er að fara í hestaferðir á vegum Eldhesta og Sólhesta og einnig í gönguferðir um Hengilssvæðið. Með nýjum Suðurstrandarvegi er greiðfært í Sel­ voginn þar sem tíminn virðist hafa staðið í stað. Þar er einnig Strandarkirkja, þekktasta áheitakirkja landsins

Heimilisfang: Hafnarberg 41 (við Íþróttamiðstöðina), 815 Þorlákshöfn Sími / GSM: 480 3890 / 857 1788 Heimasíða: www.olfus.is Netfang: ragnar@olfus.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 52 km / 633 km Opnunartími: 15. maí – 1. september

og stutt í sögufræga staði eins og Herdísarvík og fleiri náttúruperlur við ströndina. Veitingastaður er við ósa Ölfusár, í Hveradölum og í Þorlákshöfn en þar er líka að finna bóka­safn og upplýsingamiðstöð í Ráðhúsinu. Við bæjarmörkin er 18 holu golfvöllur og víða er veiði í vötnum og í ósum Ölfusár. Rútur ganga frá Reykjavík til Þorláks­ hafnar. Allar upplýsingar um tjaldsvæðið er að fá í Íþrótta­miðstöðinni en tjaldstæðið er staðsett við hlið hennar. Síminn í Íþróttamiðstöðinni er 480 3890. Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


T-bær SUÐURLAND

Heimilsfang: T-bær, Selvogi Sími: 483 3150 / 663 3723 Opnunartími: 1. maí – 30. september Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 65 km / 651 km

Um svæðið Tjaldsvæðið T-bær í Selvogi er í um 60 kílómetra fjar­ lægð frá Reykjavík austan við Herdísarvík. Á staðnum er lítið kaffihús þar sem boðið er upp á veitingar og persónulega þjónustu. Veitingastaðurinn tekur um 60 manns í sæti. Við Engilsvík í Selvogi stendur hin þjóðkunna kirkja Strandarkirkja en fjölmargir hafa heitið á kirkjuna með góðum árangri. Sagan segir að sjómenn sem lentu í lífsháska hafi heitið því að ef þeir myndu lifa sjávarháskann af myndu þeir byggja kirkju þar sem þeir næðu landi. Þeir sáu síðan ljós og skínandi bjarta veru í flæðarmálinu sem leiðbeindi þeim að landi. Mikil náttúrufegurð er í Selvogi og nú hafa sam­ göngur þangað breyst og batnað með tilkomu hins nýja Suðurstrandarvegar. Hann styttir leiðina milli Suður­ lands og Suðurnesja talsvert og áhugaverðir staðir eins og Herdísarvík, Hlíðarvatn, Krýsuvík og ekki síst Selvogur og Strandarkirkja eru nú í alfaraleið.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.

67


sUÐURLAND

68

Grindavík

Um svæðið Grindavík er vinsælasti ferða­ manna­ staður landsins enda Bláa lónið í anddyri bæjarins. Nýr Suður­strandar­ vegur var bylting fyrir ferðaþjónustuna í Grindavík á allan hátt enda hefur mikil fjölgun ferða­manna um svæðið átt sér stað eftir að hann var opnaður. Ferða­ þjónustu­aðilar í bænum ásamt Grindavíkurbæ hafa undirbúið sig af kostgæfni og bjóða upp á fjöl­­breytta þjónustu og afþreyingu. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár í takt við aukna ferða­ þjónustu en glænýtt tjaldsvæði, eitt það glæsi­legasta á landinu, var opnað sumarið 2009. Þá var stór­glæsi­ legt þjónustuhús opnað sumarið 2011. Grindavík er landmikið bæjarfélag. Þar er náttúru­ fegurð mikil með perlur eins og Eldvörp, Selatanga, Gunnuhver, Brimketil, Selskóg og ýmislegt fleira. Hér er stutt í margrómaðar gönguferðir, má þar nefna nýjan malbikaðan göngustíg á milli Grinda­ víkur og Bláa Lónsins. Þorbjarnarfell er orðinn vin­ sælasta útivistaparadísin á Suðurnesjum. Fuglalíf er mikið í klettunum meðfram ströndinni við Reykja­ nes­ tá. Hér er fjórhjólaleiga, eldfjalla­ ferðir, hesta­leiga, hellaferðir, silungsveiði, skoðunarferðir, góður 18 holu golfvöllur í skemmtilegu umhverfi við sjóinn, rómaðir veitingastaðir, Kvikan sem hefur þrjár áhugaverðar sýningar (Salt­­fisk­setrið, Guðbergsstofu og Jarðorkuna). Bæjar­­­­­hátíðin Sjóar­inn síkáti er okkar stolt, hér líður

Heimilisfang: Austurvegur, 240 Grindavík Sími / GSM: 420 1100 / 660 7323 Heimasíða: www.grindavik.is/tjaldsvaedi www.visitgrindavik.is Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 50 km / 725 km Opnunartími: 15. maí – 30. september

okkur vel. Nýr og glæsilegur baðstaður opnaði við Bláa lónið í júlí 1999 og er hann vinsælasti áfanga­ staður erlendra ferðamanna er sækja Ísland heim. Hópsnes­­hringurinn er afar áhuga­ verður áfanga­staður fyrir ferðamenn. Þar má sjá skipsflök nokkurra skipa sem strönduðu og er að finna skilti meðfram ströndinni með ítar­ legum upp­lýs­­ingum um sjóslysin.

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


Velkomin á okkar glæsilega

tjaldsvæði í Grindavík

Við erum í næsta nágrenni við Bláa lónið og liggjum við nýja Suðurstrandarveginn!

Austurvegur 26, Grindavík Sími 660 7323 / 420 1100 grindavik@grindavik.is www.visitgrindavik.is


sUÐURLAND

70

Sandgerði

Um svæðið Í Sandgerði er nýlegt tjaldsvæði sem er staðsett við Byggðarveginn. Í þjónustuhúsinu á svæðinu eru salerni, sturtur, útivaskar með heitt og kalt vatn. Hjóla­ ­­ stóla­aðgengi er að sturtum og salernum. Í húsinu er hægt að fá afnot af þvottavél og þurrkara og á tjald­ svæðinu eru rafmagnstenglar fyrir þá sem þess óska. Tjaldsvæðið er staðsett miðsvæðis í Sandgerði, öll almenn þjónusta er í göngufæri. Góð sundlaug með renni­braut og þreksal, 18 holu gólfvöllur og þar er einnig að finna Þekkingasetur Suðurnesja – safn sem tengir saman menn og náttúru, sýninguna Heimskautin heilla og Gallerí Listatorg þar sem eru listverksýningar og sala á handverksmunum. Veitingastaðurinn Vitinn er einstakur sjávarréttastaður við höfnina, Mamma Mía pizzastaður og Shell-skálinn bjóða einnig upp á veitingar. Það getur verið ansi líflegt við höfnina og er gaman að koma þangað. Í nágrenni Sandgerðis er að finna sögulega staði þar má nefna Hvalsneskirkju, Stafnes og Básenda. Sandgerði er í 5 mín akstri frá flugvellinum og 45 mín frá miðbæ Reykjavíkur. Sandgerði er í góðu vegsambandi við Suðurland með tilkomu Suðurstrandarvegs og Ósarbotnavegs. Einnig er hægt að leigja smáhýsi sem eru á svæðinu.

Heimilisfang: Byggðarvegi Sími: 854 8424 Heimasíða: www.istay.is Netfang: istay@istay.is Opnunartími: 1. apríl – 30. september. Fjarlægð frá Reykjavík/Seyðisfirði: 47 km / 709 km

0,7 KM 0,8 KM

0,9 KM

3,5 KM

Ath! gistináttaskattur (111 kr. á gistieiningu fyrir hverja nótt) er ekki innifalinn í Útilegukortinu.


SANDGERÐI 1/1


Fjármögnum flest milli himins og jarðar Það er spennandi að taka á móti nýjum tjaldvagni eða húsbíl sem verður annað heimili fjölskyldunnar sumarlangt. Og okkur finnst að ánægjan eigi að endast í mörg ár. Þess vegna er það aðalatriðið hjá Ergo að mæta þínum þörfum með faglegri ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu þegar kemur að fjármögnun ferðavagna.

Suðurlandsbraut 14

>

sími 440 4400

>

www.ergo.is

>

ergo@ergo.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.