Fiskar á þurru landi - leikskrá

Page 1



Ávarp formanns Ágætu leikhúsgestir Til hamingju! Skagaleikflokkurinn er upprisinn. Eftir nokkurra ára hlé hefur leikflokkurinn nú hafið starfsemi að nýju og hlýtur að vera öllum gleðiefni að svo ágæt menningarstarfsemi skuli vöknuð til lífsins. Ný stjórn hefur verið mynduð með nýju fólki, blanda ungra og eldri, sem hefur metnað og löngun til öflugrar starfsemi. Stærstur hluti af starfsörðugleikum leikflokksins er að hann hefur enga fasta aðstöðu til starfsemi sinnar. Þetta er vandamál

sem nauðsynlegt er að leysa svo leikhússtarf og leiklistaruppeldi geti þrifist á Akranesi. Stefnan leikflokksins er að hann verði ekki aðeins einnar sýningar leikhús á ári hverju heldur eitthvað meira. Því er hugmyndin að koma af stað nokkurskonar leiksmiðju seinni partinn í nóvember og sýna afurðir hennar í janúar til febrúar. Er æskilegt að ungir sem aldnir komi til þeirra verka með okkur og taki þátt í smíði og samningu leikverks sem alfarið yrði þeirra sjálfra. Einnig hefur leikflokkurinn áhuga á að taka upp aukið samstarf við nemendur Fjölbrautarskólans og ef til vill fleiri til að nýta sem best húsnæði og leikkrafta á sem fjölbreyttastan hátt. Reynslan hefur sýnt að minni bæjarfélög en Akranes hafa burði til að halda úti öflugri leikhússtarfsemi sem vakið hefur athygli víða um land. Má þar til nefna Leikfélag Húsavíkur sem dæmi. Vonandi ber okkur Akurnesingum gæfa til að taka myndarlega á í þessum efnum. Því hvað er betra til að lyfta sér upp úr bosi hversdagsins en fara í leikhús sér til skemmtunar og uppbyggingar. Já eða taka þátt í starfinu. Með kærri kveðju, Sigtryggur Karlsson

Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen undir leikstjórn Þrastar Guðb Leikfélagið Skagaleikf jartssonar. lokkurinn frumsýnir í Ar ctic-húsinu, Akranesi, 2010. Stjórn leikfélag 22. október sins Skagaleikflokkurin n skipa Sigtryggur Ka Guðbjörg Árnadóttir, rls so n, formaður, Gunnar Sturla Hervarss on og Vilborg Þ. Guðb jartsdóttir. Bandalag íslenskra lei kfélaga eru samtök áh ugaleikfélaga um allt land. Leikfélagið Skagaleikf lokkurinn er eitt þeirra .


Fiskar á þurru landi - ólíkindagamanleikur eftir Árna Ibsen Emma .............................................................................................. Þórdís Ingibjartsdóttir Gúa ....................................................................................................... Hafdís Bergsdóttir Guðmundur ............................................................................. Gunnar Sturla Hervarsson Knútur ............................................................................................... Guðmundur Claxton Leikstjóri ......................................................................................... Þröstur Guðbjartsson Aðstoð við leikstjórn ........................................................................ Guðbjörg Árnadóttir Lýsing og hljóðmynd ........................................................ Ingþór Bergmann Þórhallsson Tæknimaður .......................................................................................... Anton Rúnarsson Sýningarstjórn ......................................................................... Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir Leikmynd ........................................................................................ Þröstur Guðbjartsson Smíði og málun ...................................................... Sigtryggur Karlsson, Einar Viðarsson Aðstoð við leikmyndargerð ................................................... Elinbergur Sveinsson, o.fl. Búningar og saumur ............................ Þröstur Guðbjartsson, Steinunn Ása Björnsdóttir Leikmunir ............................................... Bryndís Böðvarsdóttir, Guðrún Guðbjarnadóttir, Jónas Kári Eiríksson Framkvæmdastjórn .......................................................................... Sigtryggur Karlsson Auglýsingar og fjáröflun ........ Hrönn Eggertsdóttir, Guðbjörg Árnad., Sigtryggur Karlss. Miðasala ............................................................................................ Elín Ólöf Eiríksdóttir Leikskrá .............................................................. Kristinn Pétursson, Sigtryggur Karlsson Vefur, veggspjald, ljósmyndun .......................................................... Kristinn Pétursson

Frumsýning föstudaginn 22. október kl. 20:00 2. sýning sunnudaginn 24. október kl. 20:00 3. sýning þriðjudaginn 26. október kl. 20:00

4. sýning föstuudaginn 29. október kl. 20:00 5. sýning sunnudaginn 31. október kl. 20:00 6. sýning þriðjudaginn 2. nóvember kl. 20:00

Sýnt í Arctic-húsinu Vesturgötu 119. Miðapantanir í síma 847 7742 (Elín Ólöf) milli kl. 17 og 19 á sýningardögum. Einnig miðasala við innganginn fyrir sýninga r frá kl. 19:15. Miðaverð kr. 1.500.

MEIRA UM SKAGALEIKFLOKKINN, LEIKHÓPINN, SÝNINGUNA, HÖFUNDINN OG FYRRI UPPSETNINGAR Á ...

skagaleikflokkurinn.wordpress.com


ÞÓRDÍS INGIBJARTSDÓTTIR er Skagamönnum að góðu kunn fyrir margháttað framlag sitt til leiklistar og tengdrar menningar á Akranesi. Starfsferill hennar með Skagaleikflokknum spannar áratugi og hlutverk í uppfærslum eru æði mörg og margvísleg. Má þar nefna leikritin Mark, Kvásarvalsinn, Ástkonur og elshugar, Tívolí, Járnhausinn, Hlutskipti og síðast Salka Valka, en hún lék burðarhlutverkið í því magnaða stykki. Þórdís fékk leikhúsbakteríuna ung þegar hún kynntist leiklistarstarfi í gegnum móður sína sem var mjög virk í áhugaleikhúsi á Akranesi hér á árum áður. Bakteríuna hefur hún ekki losnað við síðan þá og því fáum við að njóta krafta hennar enn einu sinni í Fiskum á þurru landi. GUNNAR STURLA HERVARSSON er fæddur og uppalinn á Akranesi og starfar sem kennari í Grundaskóla. Ungur fékk hann áhuga á leiklist og hefur í gegnum tíðina tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum. Í FVA lék hann fyrst í söngleiknum Blóðbræðrum og var Þröstur Guðbjartsson þá einnig leikstjóri. Þetta var árið 1992 og tók Gunnar Sturla þátt í einum þremur uppfærslum FVA eftir það. Gunnar Sturla hefur einnig tekið þátt í nokkrum uppsetningum á vegum Skagaleikflokksins, en hann var með í Tívolí sem sýnt var árið 2001 og í Lifðu; yfir dauðans haf, sem sett var upp ári síðar. Síðustu ár hefur Gunnar tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum á vegum Grundaskóla og FVA, sem höfundur og leikstjóri. HAFDÍS BERGSDÓTTIR fæddist á Akureyri árið 1983 en ólst upp á Grundarfirði og flutti á Akranes átján ára gömul. Hún á tvo syni og er í sambúð með Elinbergi Sveinssyni. Hafdís er kennari við Brekkubæjarskóla en er að auki lærður kjólaklæðskeri. Hún hefur alltaf haft áhuga fyrir leiklist og öllu því tengdu en þó ekki verið mikið á fjölunum. Hún tók þátt í nemendasýningum í grunnskóla og var með í uppfærslu FVA á Rocky Horror árið 2000. Því má segja að þetta sé frumraun hennar í stóru hlutverki á leiksviði. GUÐMUNDUR CLAXTON er ekki að stíga sín fyrstu spor á leiksviði í Fiskum á þurru landi. Reynsla hans af sviði er margháttuð og má þar nefna leikritin Blóðbræður, Láttu ekki deigan síga Guðmundur og Þrettándakvöld í FVA. Einnig lék hann með Skagaleikflokknum í Gosa, Alltaf má fá annað skip og Hunangsflugum. Hann hefur líka komið að tónlistarflutningi í Litlu hryllingsbúðinni og Grænjöxlum. Hann var meðlimur hljómsveitarinnar Abbababb ásamt öðrum leikara í „Fiskunum“, honum Gunnari Sturlu. Guðmundur hefur haldið sig fjarri fjölunum undanfarin ár en er góðu heilli kominn til baka.


ÞRÖSTUR GUÐBJARTSSON

Leikstjórinn

hefur unnið með áhugaleikhúsum víða um land með dæmafáum árangri. Honum er einstaklega lagið að ná því besta út úr misreyndum áhugaleikurum og þeim aðstæðum sem hann vinnur við á hverjum tíma. Það er því mikill fengur fyrir Skagaleikflokkinn að fá að njóta reynslu hans og hæfileika í verkinu Fiskar á þurru landi. Þröstur eða „Dösti“ eins og hann er kallaður í kunningjahópi er Vestfirðingur að ætt og uppruna, fæddur og uppalinn í Bolungarvík þar sem hann steig sín fyrstu spor á leiksviði sjö ára gamall. Þröstur segist muna vel eftir þeirri upplifun og hefur hún efalaust verið grunnurinn að leiklistaráhuga hans og leikstjóraferli. Formleg leið hans inn í leiklistarheiminn var í gegnum leiklistarskóla SÁL árið 1974 og ári síðar innritaðist hann í hinn nýstofnaða Leiklistarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 1978. Þröstur hefur aldrei verið fastráðinn við leikhús, en leiklistin samt sem áður alltaf verið hans aðalstarf. Hann hefur, auk þess að leikstýra vítt um landið, starfað við alla miðla leiklistarinnar, svo sem leikhús, kvik-

myndir, sjónvarp og fleira. Leiklistarferill hans hófst árið 1980 og hefur hann starfað við leiklist nánast óslitið síðan. Minna má Skagamenn á að hann leikstýrði ógleymanlegum uppfærslum FVA á Blóðbræðrum, Láttu ekki deigan síga Guðmundur og Þrettándakvöldi. Þar lágu leiðir hans og Guðmundar Claxtons og Gunnars Sturlu saman á sínum tíma og árangur þess samstarfs lofar engu nema góðu í Fiskum á þurru landi.


EFTIRTALDIR AÐILAR HAFA STUTT ÞES SA UPPSETNINGU SKAGALEIKFLOKKURINN KANN ÞEIM ÞÖK K FYRIR Omnis

Trico

Verslunin Bjarg

VÍS

Akraborg

Rakarastofa Gísla

Model

Trésmiðjan Akur

Ozone

Brauða og kökugerðin Finnur Þórðarson, gullsmiður Face

Verslun Einars Ólafssonar Norðurál

Litla búðin Nína Vignir G. Jónsson Hárhús Kötlu Hópferðabifreiðar Reynis Jóhannssonar ÞÞÞ

Gamla kaupfélagið

Olís

Norðanfiskur

N1

Rafstöðin

Bílver

Rafþjónusta Sigurdórs Pípó

Bifreiðaverkstæði Hjalta

Brekkubæjarskóli Byggðasafnið á Görðum Skessuhorn

Sjóvá Apótek Vesturlands Uppheimar

Auk þessara hefur Norðurál styrkt leikfélagið veglega.

Gunnar Sturla, Þórdís, Þröstur, Guðmundur og Hafdís leggja á ráðin.



Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.