1 minute read

YFIRLIT

Next Article
1 SUMMARY

1 SUMMARY

YFIRLIT

Vetrarræktun í gróðurhúsum á Íslandi er algjörlega háð aukalýsingu. Viðbótarlýsing getur því lengt uppskerutímann og komið í stað innflutnings að vetri til. Fullnægjandi leiðbeiningar vegna vetrarræktunar á jarðarberjum eru ekki til staðar og þarfnast frekari þróunar. Markmiðin voru að prófa, hvort vetrarræktun gróðurhúsajarðarberja er möguleg á Íslandi og hvort ljósstyrkur hefði áhrif á vöxt, uppskeru og gæði jarðarberja og hvort það væri hagkvæmt.

Gerðar voru tvær tilraunir með jarðarberjum (Fragaria x ananassa cv. Sonata), sú fyrri (A) frá janúar til maí 2015 og sú síðari (B) frá miðjum maí til loka júlí 2015, í tilraunagróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum. Jarðarber voru ræktuð í pottum í fimm endurtekningum með 12 plöntum/m2 undir topplýsingu frá háþrýstinatríumlömpum (HPS) með tvenns konar ljósstyrk (150 W/m2 og 100 W/m2) að hámarki í 18 klst. Daghiti var 16° C og næturhiti 8° C, CO2 800 ppm. Jarðarberin fengu næringu með dropavökvun. Í hluta A og hluta B voru áhrif ljósstyrks prófuð og framlegð reiknuð út.

Það tók 1-2 daga frá blómgun til frjóvgunar. Ávextir voru þroskaðir í 42 daga í hluta A og í hluta B 33-35 daga. Það virðist vera að meira ljós (150 W/m2) gefi fleiri blóm en síðan eru áhrifin minni í hluta A. Í hluta B voru frá miðju vaxtarskeiði fleiri blóm / aldin við 100 W/m2. Í upphafi uppskerutímabils byrjaði meðferð með hærri ljósstyrk nokkrum dögum fyrr að gefa þroskuð ber í samanburði við 100 W/m2 .

Hærri ljósstyrkur hefur jákvæð áhrif á markaðshæfa uppskeru, uppskeran var 13 % meiri í hluta A og 19 % meiri í hluta B. Ástæðan var fleiri jarðarber sem voru í úrvalsflokki, en meðalþyngd var aðeins hærri við 150 W/m2 í hluti B en ekki í hluti A. Það virðist að ómarkaðshæf uppskera hafi minnkað við hærri ljósstyrk. Þannig fengust 600 g/plöntu markaðshæfrar uppskeru við 150 W/m2 en 500 g/plöntu við 100 W/m2 í hluta A, sem var samt ekki tölfræðilega marktækur munur. En í hluta B fengust 450 g/plöntu við 150 W/m2 og meira en 350 g/plöntu við 100 W/m2 sem var heldur ekki tölfræðilega marktækur munur. Hlutfall uppskerunnar sem hægt var að selja var 90-94 % í hluta A og 86-88% í hluta B. Hærra hlutfall ómarkaðshæfrar uppskeru í hluta B var vegna hærri hluta af jarðarberjum sem voru illa löguð vegna ófrjóvgunar.

This article is from: