Rómantík vor 2012

Page 1

R贸mant铆k Vor 2012



Rómantík vor 2012 Vorið er sá tími sem við höfum beðið eftir enda færir það okkur nýjan kraft. Litir vorsins minna okkur á fegurð og gleði íslenskrar náttúru. Þessi árstími er dásamlegur tími fyrir rómantíkina, heimilið fyllist af nýjum litum og mjúkum en jafnframt rómantískum línum.

Nýja vörulínan sameinar rómantískan sveitastíl í bland við sterka liti. Línan er innblásin af fallegum litum, blúndum og íslenskri náttúru – allt á sama tíma! Útkoman er spennandi en jafnframt djörf vörulína sem hentar inn á öll íslensk heimili.

Rómantík er heiti á vorlínu Komdu í heimsókn til okkar og Lín Design sem er full af nýjung- leyfðu okkur að hjálpa þér að finna um. Orðið rómantík er sveipað dulúð réttu rómantíkina fyrir þitt heimili. sem skapar spennandi stemningu.

Rómantík 3


Ástartréð rúmföt Ástartréð er í grunninn fjólublár rúmfatnaður. Tréð er ofið í sængurverið með þreföldum útsaum sem gerir mynstrið einstaklega fallegt og vandað. Ástartréð er tákn fyrir ástina sem vex með hverjum degi. Útsaumurinn byrjar neðarlega á sængurverinu og liggur upp með verinu. Á trénu eru lítil hjörtu í stað laufblaða. Ástartréð er einstaklega fallegur rúmfatnaður sem er ofinn úr sérvalinni bómullarblöndu. Þessi blanda er valin til að hámarka mýkt og gæði.


R贸mant铆k 5


Lambagras kemur í tveimur útfærslum; hvitt með bleikum blómum & ljósgrátt með bleikum útsaum. Ofið úr 380 þráða Pima bómull.


Sígild rómantík Sígild rómantík er hvítt sængurver með blúnduverki. Rúmfötin eru einstaklega rómantísk. Hvít rúmföt bjóða upp á mikla möguleika; fallega púða og liti til að auka frekar á rómantíkina. Sígild rómantík er ofin úr Pima bómull (380 þráða) sem er bæði falleg og einstaklega mjúk.


Fjólublár draumur rúmföt Margar skemmtilegar kenningar eru til um áhrif einstakra lita á skapferli og sárlarlíf fólks. Fjólublár litur er talin mjög rómantískur en honum fylgir einnig alvara og ástríðuþungi. Liturinn róar hugann, styrkir andlega einbeitingu og ýtir undir ímyndunarafl. Fjólubláu rúmfötin eru einstaklega mjúk & vönduð. Rúmfötin eru ofin úr einstakri bómullarblöndu; 380 þráða Pima bómull sem mýkist með tímanum.


Markmið hönnuða Lín Design er að skapa fallegar og vandaða vörur. Púðarnir frá Lín Design eru hannaðir til að skapa hlýja og fallega tóna. Þeir fást í fjölbreyttum mynstrum og litum og því er fjölbreytnin mikil. Það er svo gaman að skreyta heimilið með fallegum litum. Því framleiðum við vandaða & ódýra púða – fyrir heimilið þitt.

Rómantík 9


Handklæðin frá Lín Design eru ofin úr 100% Pima bómull sem er bæði einstaklega mjúk og rakadræg. Bómullarþræðirnir í handklæðunum eru lengri en almennt gerist með aðrar bómullarvörur frá Lín Design. Áður en ný handklæði eru þvegin í fyrsta sinn er gott að láta þau liggja yfir nótt í köldu vatni. Við mælum ekki með mýkingarefni þar sem efnasambönd í mýkingarefninu verða til þess að bómullinn dregur minna í sig af vatni. Mestu gæðin nást þegar handklæðin hafa verið þvegin í nokkur skipti. Handklæðin þéttast þegar þau eru þvegin. Gott er að þurrka handklæðin í þurrkara. Ekki er mælt með því að fólk með ofnæmi hengi handklæði til þerris utandyra þar sem þau geta dregið í sig ofnæmisvalda. Vönduð handklæði mýkjast með tímanum og eru að þéttast fyrstu skiptin sem þau eru þvegin.


R贸mant铆k 11




LĂ­n Design Laugavegi 176 SĂ­mi 533 2220 www.lindesign.is lindesign@lindesign.is www.facebook.com/lindesigniceland


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.