Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2015 Bráðabirgðatölur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og áætlanadeild
Afbrot á höfuðborgarsvæðinu árið 2015 Hér eru skoðaðar upplýsingar um afbrot og verkefni hjá LRH árið 2015 borið saman við fyrri ár. Um er að ræða bráðabirgðatölur en þær
ættu þó að gefa innsýn í hver staðan verður þegar árið verður gert upp. Fjallað er um öll skráð brot sem fengu framgöngu.
Helstu niðurstöður
Við lok árs 2015 höfðu 8.923 hegningarlagabrot verið skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eru það 14 prósent fleiri brot miðað við árið 2014. Umferðarlagabrotum fjölgaði um fjögur prósent árið 2015 frá árinu á undan. Árið 2015 fækkaði sérrefsilagabrotum um 14 prósent frá árinu 2014. Þegar hegningarlagabrot eru skoðuð sérstaklega kemur fram að rúmlega 24 brot voru skráð hvern dag árið 2015. Þar af voru flest hegningarlagabrot skráð þann 1. janúar (53 brot), 23. ágúst og 1. maí (50 brot). Auðgunarbrot voru um 12 prósent fleiri árið 2015 miðað við árið 2014. Voru tilkynningarnar svipað margar og árið 2012. Innbrotum fjölgaði um 22 prósent árið 2015 frá árinu á undan, eða um 164 brot. Að meðaltali var tilkynnt um tæplega þrjú innbrot á dag á árinu samanborið við rúmlega tvö árið 2013 og átta á dag árið 2009. Ofbeldisbrotum fjölgaði umtalsvert árið 2015 borið saman við árið 2014 eða um rúmlega þriðjung. Þar af fjölgar minniháttar líkamsárásum (217. gr.) hlutfallslega mest, um 45 prósent. Við upphaf árs 2015 tók í gildi nýtt verklag í heimilisofbeldismálum sem leiddi til mikillar fjölgunar heimilisofbeldismála og skýrir að hluta þessa fjölgun minniháttar líkamsárása. Fjöldi tilkynntra kynferðisbrota stendur nánast í stað á milli ára. Tilkynnt var um 239 brot árið 2015 en 238 árið 2014.
Þegar sérrefsilagabrot eru skoðuð sérstaklega kemur í ljós að fíkniefnabrotum hefur fækkað um tæplega fjórðung miðað við árið 2014. Hafa ber í huga að þessar tölur ná einungis til þeirra mála sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu stofnar til. Auk þessara mála kemur fíkniefnadeild LRH að rannsókn fjölda annarra fíkniefnabrota sem koma upp víða um landið. Lögregla og tollgæsla lögðu hald á um sjöfalt meira magn amfetamíns árið 2015 en árið á undan eða um 23 kíló. Þá var lagt hald á um 45 kíló af maríjúana eða nokkru minna en árið á undan. Lagt var hald á töluvert meira magn af kókaíni árið 2015 miðað við síðastliðin ár, eða um fimm og hálft kíló. Af umferðarlagabrotum má nefna aðmálum vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna hefur fækkaði um rúmlega 20 prósent miðað við árið 2014. Einnig fækkaði ölvunarakstursbrotum á árinu, um tæplega 22 prósent. Hins vegar fjölgaði ökuhraðabrotum verulega. Hafa ber í huga að fjöldi þessara brota markast að einhverju leyti af frumkvæðisverkefnum lögreglu. Umferðarslysum fjölgaði lítillega á milli ára. Telja þau 429 eða rúmlega átta slys á viku að meðaltali. Flest slysin áttu sér stað í september (14) en fæst í apríl (4).
2
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og áætlanadeild
Afbrot í umdæmi LRH 35.000 30.000
Fjöldi
25.000 20.000 15.000
10.000 5.000
0
2010
2011
2012
2013
2014
2015
Hegningarlagabrot
10.929
8.930
8.368
8.110
7.822
8.923
Umferðarlagabrot
27.306
22.694
25.117
19.886
19.958
20.844
Sérrefsilagabrot
2.274
2.263
2.905
2.977
3.405
2.933
Mynd 1. Fjöldi hegningarlagabrota, sérrefsilagabrota og umferðarlagabrota árin 2010 til 2015
Hegningarlagabrot Tafla 1. Fjöldi helstu hegningarlagabrota árin 2010 til 2015 (ath. tölur fyrir árið 2015 eru bráðabirgðatölur)
Auðgunarbrot Þjófnaður Innbrot Rán Hilming Gripdeild Fjársvik Fjárdráttur Auðgunarbrot, annað Kynferðisbrot Nauðgun Kynferðisbrot gegn börnum Klám/barnaklám Vændi Kynferðisbrot, annað Manndráp og líkamsmeiðingar Líkamsárás, minniháttar Líkamsárás, meiriháttar/stórfelld Líkamsárás, annað Eignaspjöll og nytjastuldur Minniháttar skemmdarverk þar af rúðubrot þar af veggjakrot Meiriháttar skemmdarverk Nytjastuldur vélknúinna farartækja
2010 6.780 4.003 2.174 33 106 55 307 52 50 200 66 37 13 37 47 839 704 106 29 2.277 1.902 774 102 31 344
2011 5.430 3.311 1.463 38 101 58 326 91 42 220 81 60 17 9 53 679 538 110 31 1.850 1.513 560 99 23 314
2012 4.989 3.317 1.012 45 111 52 334 71 47 236 84 64 17 22 49 757 584 133 40 1.530 1.278 500 47 22 230
2013 4.751 3.316 851 47 77 42 315 70 33 416 114 113 21 98 70 781 630 124 27 1.372 1.174 402 76 25 173
2014 4.501 3.119 881 46 50 39 276 48 42 238 71 85 11 9 62 880 689 152 39 1.551 1.238 423 56 29 284
2015 5.057 3.449 1.073 46 60 55 283 37 54 239 116 46 19 4 54 1.181 996 156 29 1.667 1.274 472 54 3 37 356
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og áætlanadeild
Sérrefsilagabrot Tafla 2. Fjöldi fíkniefnabrota árin 2010 til 2015 (ath. tölur fyrir árið 2015 eru bráðabirgðatölur)
Fíkniefni Flutningur fíkniefna milli landa Framleiðsla fíkniefna Sala og dreifing fíkniefna Varsla og meðferð ávana og fíkniefna Ýmis fíkniefnabrot þar af stórfelld fíkniefnabrot
2010 1.028 78 215 78 585 63 39
2011 1.183 55 207 104 729 88 39
2012 1.325 68 176 115 892 74 31
2013 1.514 147 140 177 1.026 24 40
2014 1.737 217 97 201 1.205 17 37
2015 1.335 157 72 135 950 21 37
Tafla 3. Magn fíkniefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og tollur haldlögðu á árunum 2010 til 2015 (ath. tölur fyrir árið 2015 eru bráðabirgðatölur)
Hass (g) Marijúana (g) Tóbaksblandað (g) Amfetamín (g) Metamfetamín (g) Ecstasy (g) Ecstasy (stk) Kókaín (g) Heróín (g) LSD (stk)
2010 13.626 25.245 252 7.974 11 125 15.084 4.116 0,0 503
2011 1.377 27.856 184 30.897 17 236 47.842 1.929 0,0 4.488
2012 546 19.743 214 10.736 0 894 1.073 4.279 0,0 14
2013 173 30.786 316 28.145 81 101 573 830 0,9 115
2014 357 56.662 264 3.438 68 144 1.321 980 0,0 2.761
2015 1.302 43.077 234 22.333 13 3.500 3.775 5.620 0,4 632
4