1 minute read
Umferðarlagabrot
• Skráð voru 536 umferðarlagabrot* í janúar.
• Skráð umferðalagabrot voru innan útreiknaðra marka fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan.
• Það sem af er ári hafa verið skráð um þrjú prósent fleiri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.
Fjöldi brota það sem af er ári samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára og meðaltal þeirra. Heildarfjöldi brota—með hraðamyndavélum.
* Fjöldi umferðarlagabrota að hraðamyndavélum undanskildum.
Akstur undir áhrifum ávana– og fíkniefna
• Skráð voru 100 brot þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana– og fíkniefna í janúar.
• Skráð brot voru innan útreiknaðra marka fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan.
• Það sem af er ári hafa verið skráð um 10 prósent færri brot en voru skráð að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.
Ölvun við akstur
• Í janúar voru skráð 96 brot þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.
• Skráð brot voru innan útreiknaðra marka fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan.
• Það sem af er ári hafa verið skráð um 47 prósent fleiri brot en voru skráð að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.
Fjöldi brota það sem af er ári samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára og meðaltal þeirra.