1 minute read
Nytjastuldur ökutækja
• Skráðar voru 20 tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum í mars.
• Tilkynningar voru innan útreiknaðra marka fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan.
• Það sem af er ári hafa borist um 23 prósent færri tilkynningar um nytjastuldi en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.
Fjöldi 3 mánaða meðaltal 12 mánaða meðaltal
3 ára meðaltal
Fjöldi brota það sem af er ári samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára og meðaltal þeirra.
Fíkniefnabrot
• Í mars voru skráð 64 fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu.
• Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði miðað við útreiknuð neðri mörk fyrir síðustu 12 mánuði á undan.
• Tvö stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í mars.*
• Það sem af er ári hafa verið skráð um 38 prósent færri fíkniefnabrot en voru skráð að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.