7 minute read

Heildarfjöldi brota

 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 9.663 tilkynningar um hegningarlagabrot árið 2019, en það er mjög svipaður fjöldi og árið áður.

 Um það bil helmingur allra tilkynntra hegningarlagabrota voru auðgunarbrot, þar af voru flest mál vegna þjófnaðar. Næst flest tilkynnt hegningarlagabrot voru eignaspjöll. Lögreglu bárust 1.405 tilkynningar um eignaspjöll árið 2019, sem gerir rúmlega 14 prósent allra tilkynntra hegningarlagabrota árið 2019.  Á árinu 2019 voru tilkynnt 40.940 umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu. Skráðum brotum fækkaði um níu prósent milli ára.  Langflest umferðarlagabrot voru vegna hraðaksturs eða um 29.792 brot, en það eru tæplega 73 prósent allra tilkynntra umferðarlagabrota.  Tilkynnt sérrefsilagabrot árið 2019 voru 3.952 talsins og fækkaði þeim um tæp fjögur prósent milli ára. Rétt er að taka fram að metfjöldi sérrefsilagabrota var skráður árið 2018 og samræmist fjöldi brotanna fyrir árið 2019 betur þeim fjölda sem tilkynnt var um árin á undan.  Flest tilkynnt sérrefsilagabrot voru vegna brota á vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna eða rúmlega 850 brot.

Mynd 1. Heildarfjöldi brota hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 2015 til 2019.

Mynd 2. Heildarfjöldi brota eftir tegund hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 2016 til 2019.

Auðgunarbrot

 Árið 2019 voru tilkynnt 4.828 auðgunarbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem eru um helmingur allra tilkynntra brota. Þessum brotum fjölgaði lítillega milli ára eða um 3 prósent frá árinu áður.  Þjófnaðarbrot skipa mikinn meirihluta tilkynntra auðgunarbrota, líkt og fyrri ár, eða rúmlega 60 prósent slíkra brota. Nokkur aukning var á fjölda þjófnaða á milli ára og var tilkynnt um tæplega 20 prósent fleiri þjófnaðarbrot á árinu 2019 samanborið við árið áður.  Fjölgun varð í fjórum undirflokkum þjófnaðarbrota árið 2019; Fjársvikum, gripdeild, fjárdrætti og annars konar auðgunarbrotum. Tilkynntum innbrotum og brotum tengdum hilmingu fækkaði samanborið við árið 2018.  Hlutfallslega fjölgaði gripdeildum mest, en fjöldi slíkra brota fór úr 39 í 58 og jókst því um 47 prósent milli ára.  Ránum fækkaði hlutfallslega mest, fór úr 69 niður í 50 eða um rúmlega 27 prósent milli ára. Árið 2018 hafði þeim hins vegar fjölgað mikið milli ára eða um 50 prósent. Fjöldi tilkynntra rána árið 2019 er svipaður og árið 2017, þannig að 2018 sker sig úr hvað varðar fjölda rána.  Að meðaltali bárust rúmlega 400 tilkynningar um auðgunarbrot til lögreglu á hverjum mánuði árið 2019 eða rúmlega 13 tilkynningar á dag.

Mynd 3. Fjöldi og meðaltal auðgunarbrota brota á tímabilinu 2010 til 2019.

Mynd 4. Fjöldi og tegund auðgunarbrota brota á tímabilinu 2016 til 2019.

Innbrot

 Árið 2019 bárust 1.029 tilkynningar um innbrot á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tæplega átta prósent fækkun brota frá 2018. Á höfuðborgarsvæðinu voru að jafnaði tilkynnt rúmlega 85 innbrot á mánuði árið 2019.  Hlutfallslega bárust flestar tilkynningar um innbrot í heimahús eða um 44 prósent. Næstflestar tilkynningar bárust um innbrot í ökutæki eða tæplega 29 prósent. Rúmlega 16 prósent innbrota voru í fyrirtæki og fjögur prósent í stofnanir af ýmsu tagi. Þá voru rúmlega þrjú prósent innbrota í verslanir. Þetta er í nokkru samræmi við þá þróun sem sést hefur síðastliðin ár, þar sem innbrot á heimili og ökutæki eru lang algengasti brotavettvangurinn.  Flestar tilkynningar um innbrot bárust á virkum dögum og á það sérstaklega við mánudaga, miðvikudaga og föstudaga milli klukkan 16 og 19. Flestar tilkynningar bárust á föstudögum en fæstar á fimmtudögum. Rétt er að ítreka að hérna er verið að fjalla um hvenær tilkynning um innbrot berst lögreglu, en ekki hugsanlegan tíma sem innbrotið átti sér stað.

Mynd 5. Fjöldi og meðaltal innbrota á tímabilinu 2010 til 2019.

Mynd 6. Hlutfall tilkynntra innbrota eftir tegund vettvangs árið 2019.

Kynferðisbrot

 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 432 tilkynningar um kynferðisbrot á árinu 2019. Fjölgaði þeim um 14 prósent frá árinu áður.

Að jafnaði voru tilkynnt 36 kynferðisbrot á mánuði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sé litið yfir 10 ára tímabil hafa tilkynnt kynferðisbrot aldrei verið fleiri en árið 2019 og hefur fjöldinn tvöfaldast frá árinu 2010.

 Tilkynningum fjölgaði milli ára í öllum undirflokkum kynferðisbrota að undanskildum nauðgunum og kynferðisbrotum gegn börnum.  Tilkynntum blygðunarsemisbrotum og brotum er varða kynferðislega áreitni fjölgaði mikið milli ára og voru um 47 prósent fleiri brot tilkynnt árið 2019 en árið á undan.  Vændismálum fjölgaði um 46 prósent frá 2018 og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast frá árinu 2016. Fjöldi vændismála er háður frumkvæði lögreglu hverju sinni og ákvarðast fjöldinn því að miklu leyti af því hve miklum tíma lögregla getur varið í málaflokkinn.  Það sama má segja um brot tengd barnaníðsefni, en þeim fjölgaði um rúmlega 66 prósent frá 2018 til 2019. Á síðastliðnum fjórum árum hefur brotum er varða barnaníðsefni fjölgað um rúm 86 prósent.  Tilkynntar voru 146 nauðganir til lögreglu árið 2019 en það eru rúmlega þriðjungur allra tilkynntra kynferðisbrota á árinu. Færri nauðganir voru tilkynntar árið 2019 samanborið við árið á undan eða rúmlega 23 prósent færri tilkynningar.  Að sama skapi fækkaði tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum um tæp 19 prósent frá árinu 2018 til 2019.

Mynd 7. Fjöldi og meðaltal kynferðisbrota á árunum 2010 til 2019.

Mynd 8. Fjöldi og tegund kynferðisbrota á árunum 2016 til 2019.

Ofbeldisbrot

 Á árinu 2019 voru tilkynnt 1.266 ofbeldisbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynningum fækkaði um tæp fimm prósent frá árinu 2018 til 2019.  Minniháttar líkamsárásir skipa mikinn meirihluta í tilkynntra ofbeldisbrota og eru slík brot rúmlega 78 prósent allra tilkynntra ofbeldisbrota árið 2019. Minniháttar líkamsárásum fækkaði örlítið milli áranna 2018 til 2019 eða um tæp fimm prósent.  Tilkynningum um stórfelldar líkamsárásir fjölgaði milli ára eða um rúm 14 prósent frá árinu 2018.  Eitt manndráp var framið á árinu en engin tilraun var gerð til manndráps.  Meirihluti ofbeldisbrota árið 2019 á sér stað um helgar og þá sérstaklega aðfaranótt laugardags og sunnudags milli miðnættis og fram til sjö um morguninn eftir. Fæst ofbeldisbrot voru tilkynnt á mánudögum og þá sérstaklega fyrir part dags.  Fjölgun ofbeldisbrota frá árinu 2015 má að nokkru leyti rekja til breytinga á verklagi lögreglu í heimilisofbeldismálum.

Mynd 9. Fjöldi og meðaltal ofbeldisbrota á árunum 2010 til 2019.

Mynd 10. Fjöldi og tegund ofbeldisbrota á árunum 2016 til 2019.

Eignaspjöll og nytjastuldir

 Lögreglunni bárust 1.405 tilkynningar um eignaspjöll árið 2019.

Minniháttar eignaspjöll eru þar í miklum meirihluta eða um 97 prósent allra tilkynntra eignaspjalla. Eignaspjöllum fækkaði nokkuð á milli ára eða um níu prósent frá árinu 2018. Á árinu 2019 voru að jafnaði tilkynnt 117 eignaspjöll á mánuði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

 Ef minniháttar eignaspjöll eru skoðuð sérstaklega sést að rúðubrot eru um 34 prósent slíkra brota árið 2019. Tilkynningum um veggjakrot fer fækkandi á milli ára og eru slík brot rétt um eitt prósent allra tilkynntra eignaspjalla árið 2019.  Tilkynnt var um 41 meiriháttar eignaspjöll á árinu 2019 og eru þau um þrjú prósent allra tilkynntra eignaspjalla árið 2019. Nokkur aukning varð á tilkynningum þessara brota frá árinu 2018, eða um 17 prósent milli ára.  Tilkynnt var um 356 nytjastuldi bifreiða árið 2019, en slíkum tilkynningum hefur fjölgað jafnt og þétt síðastliðin fjögur ár. Á höfuðborgarsvæðinu var að jafnaði tilkynnt um tæplega 30 nytjastuldi á ökutækjum á mánuði.  Frá 2016 til 2019 jókst tíðni slíkra tilkynninga um tæp átta prósent.

Á milli áranna 2018 til 2019 fjölgaði tilkynningum um nytjastuldi vélknúinna ökutækja um tæp 11 prósent.

Mynd 11. Fjöldi og meðaltal eignaspjalla á árunum 2010 til 2019.

Mynd 12. Fjöldi og tegund eignaspjalla og nytjastuldar á árunum 2016 til 2019.

This article is from: