Aðallega abstrakt en gætir oft áhrif a frá náttúrunni
Guðmundur Benediktsson myndhöggvari og hönnuður fæddist í Reykjavík 5. mars 1920.svo það eru 100 ár frá fæðingu hans. Þeir bræður bjuggu á Freyjugötunni beint á móti Ásmundi Sveinssyni og með Einar Jónsson á hinu horninu. Okkur ættingjunum fanst því tilvalið að halda sýninu á verkum bræðranna á heimaslóðum en þeir eru og voru viðurkenndir listamenn. Sótt var um að sýna í Ásmundarsal því Ásmundur átti stóran þátt í lífi þeirra en því miður voru þeir ekki nógu fínir né merkilegir til að fá þar inn. Líkast til hafa stjórnendur/ráðgjafar ekki þekkt söguna eða hafa eitthvað á móti eldri listamönnum en saga þeirra er merkileg og tengist húsinu sem átti að vera einhverskonar menningarhús ...sárt að ASÍ skildi hafa selt svo merkilegan minnisvarða.