Árshátíð bæklingur 2017

Page 1



Starfsmenn og makar Árshátíðarferðir Opinna kerfa erlendis hafa verið ákveðinn hápunktur í starfsemi félagsins . Við byrjuðum með þennan atburð 1985 og þá var ekki algengt meðal íslenskra fyrirtækja að gera sér á þennan hátt dagamun. Við vorum líka fyrstir með að bjóða upp á OPIÐ skrifstofurými sem í dag þykir sjálfsagt mál.

Árshátíð erlendis var hugsuð sem verðlaun til starfsmanna fyrir að hafa náð góðum árangri en líka að þjappa starfsmönnum og mökum í eina liðsheild. Við erum jú OK – fjölskyldan ! Á fyrstu árum félagsins var hópurinn 15 – 20 manns og auðvelt að skipuleggja. Við fórum m.a. til New York en líka til Amsterdam, London og Kaupmannahafnar. Þegar hópurinn stækkar og telur 150 – 200 manns þá er þetta í raun heilmikið utanumhald og vil ég þakka kærlega því góða fólki sem hefur borið hita og þunga af því verkefni. Glasgow er í raun frábær staður til að koma til fyrir okkur, stutt flug ca. 2 tímar. Mæli með að fara í skoðunarferð frá Glasgow, Skotland er mjög fallegt land, gamlir kastalar, fallegt landslag, mikill gróður og ekki má gleyma gott Whisky (single malt). Félagið okkar er að ganga í gegnum miklar breytingar, frá því að vera fyrst og fremst fyrirtæki sem selur tölvubúnað í að verða þjónustufyrirtæki. Gott dæmi um okkar nálgun er samningurinn við Kaupfélag Skagfirðinga, þar er búnaðarsala í bakgrunni en margvísleg þjónusta lykilatriði. Eina sem er öruggt í framtíðinni er að það verða breytingar. Þá er gott að geta stutt sig við gildi félagsins: - Opinn hugur, Sigurvilji, Heiðarleiki og Eitt lið Nú í október er góður tími að efla liðsheildina og koma svo að fullum krafti til leiks og láta keppinautana finna fyrir sér.

Góða skemmtun í Glasgow!


Glasgow – ICELANDAIR Mæting 2 ½ - 3 tímum fyrir brottför Brottför Keflavík kl. 07:35 Koma Glasgow kl. 10:40 Brottför Glasgow kl. 14:04 Koma Keflavík kl. 15:25 Förum í gegnum Schengen Það tekur lengri tíma en venjulega


Fimmtudagur 12. október Flugvélin lendir kl. 10:40 og er áætluð koma á hótelið í kringum 12:30. Inga fararstjóri tekur á móti hópnum og lóðsar í rútu. Hún fer með hópnum á hótelið og aðstoðar gesti við innritun, ásamt því að svara spurningum. Engin skipulögð dagskrá þennan dag.

Föstudagur 13. október Flugvélin lendir kl. 10:40 og er áætluð koma á hótelið í kringum 12:30. Magga fararstjóri tekur á móti hópnum og lóðsar í rútu. Hún fer með hópnum á hótelið og aðstoðar gesti við innritun, ásamt því að svara spurningum. Sveitaferð kl. 09:00 Og kl. 22:00 um kvöldið ráðgerir hópurinn að hittast á The Corinthian Club sem er í þægilegu göngufæri við hótelið.


Þekkt kennileiti í grennd Glasgow Central Station 0 km Arches Theatre 0.3 km Princess Square 0.3 km Gallery of Modern Art 0.4 km

Vinsæl kennileiti Glasgow Queen Street Station 0.5 km Buchanan Galleries 0.5 km Royal Concert Hall 0.6 km Sauchiehall Street 1.1 km Citizens Theatre 1.1 km

Grand Central Hotel staðsetning 99 Gordon Street, Glasgow G1 3SF 01412 403700 Frítt WiFi á hótelinu Morgunmatur innifalinn


Skoðunarferðir Sveitaferðin er frá kl. 9:00-13:30 Laugardag og sunnudag. Byrjað er á því að keyra til Luss sem er gamall víkingabær við Loch Lomond. Þar er frjás tími til að skoða sig um eða setjast inn á sveitakrá. Frá Luss er svo haldið til Glengoyne Distillery er þar verður boðið upp á viskýheimsókn fyrir þá sem hafa áhuga og tekur túrinn um klukkutíma og kostar £10 aukalega. Verð: £40 (£50) Borgarferðin er frá kl. 9:00-15:00 laugardag. Ferðin hefst á því að keyra til Edinborgar þar sem tekinn er hringur um nýja og gamla bæinn. Við munum kynna okkur sögu borgarinnar og í nýja bænum ökum vip m.a. að husinu þar sem Sveinbjörn Sveinbjörnsson bjó þegar hann samdi þjóðsöng okkar íslendinga. Í gamla bænum er síðan keyrt niður Royal Mile og Holyroad höllinni, Arthur Seat og Scottish Parliament (þinghúsinu). Eftir það munum við keyra til Stirling þar sem við ætlum að stoppa í hádegisverð áður en haldið er heim á hótel í Glasgow. Að lokum er keyrt frá Stirling aftur heim á hótel í Glasgow. Verð: £45 Innifalið: Akstur og íslensk fararstjórn Ekki innifalið: Hádegisverður



Árshátið Opinna kerfa 2017 Laugardaginn 14.október 18:30 Fordrykkur hefst undir ljúfum skoskum tónum 19:15 Borðhald hefst með 3ja rétta kvöldverði 21:30-01:00 Stuðboltadiskó….. Veislustjóri kvöldsins er Margrét Erla Maack

Matseðillinn Starter Tian of Hebridean salmon & Atlantic prawns baby gem, marie-rose dressing Main Medallions of Scotch beef mushroom dauphinoise, cracked vine tomatoes, Madeira sauce Dessert Warm chocolate fondant tablet ice-cream


Söfn og sjónarspil Glasgow er merkilega listhneigð borg miðað við sögu hennar sem iðnaðarborg. Sjálf borgaryfirvöld reka ein tólf söfn og er aðgangur að þeim ókeypis. Tugur einkasafna er þar einnig. Nýlistasafnið (Gallery of Modern Art) – Eitt besta safn sinnar tegundar í Bretlandi í hjarta Glasgow. Bókasafn, kaffi og internet í kjallaranum. Opið 10 – 17 mánu-, þriðju og miðvikudaga. 10 – 20 á fimmtudögum og 11 – 17 lauga- og sunnudaga. Aðgangur frír. Transmission Gallery – Sett upp og rekið af ungu lista- og námsfólki sem fannst sér lítill gaumur gefinn hjá listasöfnum í borginni. Sýningar úr öllum áttum og safnið bæði framsækið og merkilegt. Kelvingrove listagallerí og safn (Kelvingrove Art Gallery & Museum) – Ef þú heimsækir aðeins eitt safn í Glasgow veldu þá Kelvingrove. Hýst í stórglæsilegum kastala og innandyra finna flestir eitthvað við hæfi. Safnið er þjóðarsafn í eiginlegri merkingu og saga lands og þjóðar fyrirferðamikil í sýningum þess. Fróðlegt og skemmtilegt. Opið 11 – 17 alla daga. Frítt er inn á safnið sjálft en greiða verður fyrir stöku farandsýningar þess annaðs lagið. Höll fólksins (People´s Palace) – Sögusafn um allt er viðkemur lífi fólks í Glasgow og nágrenni. Við höllina er Vetrargarður sem ljúft er að labba um. Opið alla daga 11 – 17. Aðgangur ókeypis. Provands Lordship – Elsta standandi byggingin í Glasgow frá árinu 1471 stendur efst í Castle stræti. Húsið er nú safn um liðna tíma en vart fyrir nema alhörðustu áhugamenn um gamla menningu. Clyde viðburðahúsið (The Clyde Auditorium) – Stórglæsilegt og framúrstefnulegt tónlistar- og ráðstefnuhús sem kallað er Armadillo af heimafólki. Sýningar og uppákomur þar nánast alla daga. Georgstorg (George Square) – Eitt aðaltorg Glasgow beint fyrir framan Ráðhúsið. Mikið mannlíf þar jafnan og sérstaklega þegar mikið stendur til eins og um jól, áramót eða hásumar. Uppákomur tíðar og margt að sjá. Heilanman’s Umbrella – er gamalt heiti yfir stálbrú á aðalbrautarstöðinni í Glasgow. Afar þekkt kennileyti en afskaplega takmarkað að sjá eða upplifa fyrir gesti í borginni. Nafnið er tilkomið vegna þess að þar vart þurrt og aðkomufólk hittist þar gjarnan á árum áður. Kaupmannsborg (Merchant City) – Örskammt frá verslunargötum Gullnu Zetunnar er að finna Kaupmannsborgina. Er það einn elsti hluti borgarinnar og þar hafa


verslunareigendur tekið sig saman um að skapa sérstaka umgjörð um hverfið sitt. Eru þar verslanir, veitingastaðir, barir og gallerí auk götusala, markaðar og af og til fer þar fram Kaupmannshátíð. Mikið um að vera og stutt að fara. Ráðhúsið (City Chambers) – Ein glæsilegasta byggingin í borginni og þótt víðar væri leitað. Hýsir borgarráð Glasgow en daglega eru skoðunarferðir í boði og þær eru aldeilis þess virði. Fyrir smærri hópa eða einstaklinga eru slíkar 45 mínútna ferðir í boði tvisvar hvern virkan dag kl. 10:30 og 14:30 og eru ókeypis. Lokað um helgar. Necropolis – er gamall grafreitur við hlið Dómkirkjunnar í Glasgow. Fallegur garður og fjöldi skúlptúra og stytta eftir fræga hönnuði er þar að finna. Opið frá 7 á morgnana meðan ljós lifir. Red Road Flats – sé arkitektúr eða niðurníðsla að höfða til þín gæti verið gaman að sjá risablokkirnar sem þarna standa. Byggðar 1970 og voru og eru stærstu verkamannablokkir í heimi. 2003 voru þær seldar einkafyrirtæki en lítið hefur breyst síðan.Þá má fylgja sögunni að kringum þær allar eru glæpir algengir. Hreyfilistagalleríið – (Glasgow Sharmanka) – Sérstakt safn hreyfilistamuna í smærri kantinum. Safnið hlotið einstök viðbrögð og þykir afar forvitnilegt.

Gullna Zetan

Doulton gosbrunnurinn (The Doulton fountain) – Stærsti gosbrunnur heims sem aðeins er byggður úr leir. Nýuppgerður og listasmíð á alla kanta. Stendur fyrir framan Höll fólksins.


Hagnýtir punktar um Glasgow Borgin er stærsta borg Skotlands og þriðja stærsta borg Bretlands. Þó að borgin sé stór þá er miðborgin tiltölulega lítil en þar er allt það helsta að finna sem ferðamenn hafa mögulega áhuga á að kynna sér. Auðvelt er að rölta um miðbæinn og helstu götur eru göngugötur. Mikið er um skemmtileg söfn og er frír aðgangur að flestum þeirra. Í borginni er einnig gott úrval af flottum veitingastöðum og börum við George Street og Merchant City. Gullna Zetan kallast flottasta og dýrasta en um leið fjölbreyttasta verslunarsvæði Glasgow en það samanstendur af Argyle, Sauchiehall og Buchanan strætum. Það er einmitt á Argyle stræti sem aðallestarstöð borgarinnar stendur (og hótelið okkar). Á þessum bletti má finna allar tegundir verslana, miðstöðva og kjörbúða sem henta mismunandi þykkum veskjum. Afgreiðslutími helstu verslana er frá kl. 9-18 mánudaga til laugardaga. Á sunnudögum er opið í mörgum vervslunum frá kl. 11-17 og löng opnun er á fimmtudögum í mollum. Áfengi er ekki afgreitt í matvöruverslunum/sjoppum eftir kl. 18. Samskipti við heimamenn eru með ágætum ef frá er talið að margir vel mæltir á enska tungu eiga í megnustu erfiðleikum að skilja rammskoskan framburð flestra. Enginn hefur þó dáið vegna slíkra vandræða svo vitað sé. Í raun er þó skoskur framburðurinn blanda af keltnesku og galísku auk tökuorða sem Skotar hræra saman eftir vild. Tvær tegundir leigubíla starfa í borginni. Annars vegar þessir hefðbundnu svörtu bresku sem þú grípur þegar á þarf að halda en hins vegar leigubílar sem panta þarf sérstaklega. Eru þeir síðarnefndu ódýrari. Þá eru ótaldir harkarar sem bjóða ferðir með bílum sínum sérstaklega á næturnar þegar barir og klúbbar loka. Þá er hægt að fá talsvert ódýrari en þeir starfa ólöglega. Það eru engar fastar og meitlaðar reglur um þjórfé í Glasgow. Sértu ánægður með þjónustuna er algengt að skilja eftir 10-15% í þjórfé, einkum á veitingastöðum og kaffihúsum, hjá rútubílstjórum og leiðsögumönnum. Á hótelum er 10-12% sjálfkrafa bætt við reikninginn og því óþarfi að gefa aukalega. Ekki er búist við þjórfé á krám. Fyrir ferðir með leigubílum er almennt námundað upp í næsta pund (£).


Nokkrir frasar sem vænlegt er að kunna: • Aye – þýðir já • Haw – þýðir hey í merkingunni að ná athygli einhvers. • Ned – er slangur yfir vandræðaunglinga • Tumshie – er slangur yfir vitleysing eða kjána. • Baltic – þýðir að kalt sé í veðri.


Fararstjรณrar Inga: +44 (0) 754 897 0857 & Magga: +44 (0) 771 637 5654


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.