1 minute read
Jóhann og Bergrún ásamt börnum sínum og tengdabörnum
Efri röð frá vinstri:
Jón Þór Jóhannsson, Ólafur Þórðarson, Sigursteinn Jóhannsson, Bragi Eggertsson, Þorgeir Stefán Jóhannsson, Áskell Torfi Bjarnason, Magnús Jóhannsson, Björg Þórdís Sigurðardóttir, Hannes Óli Jóhannsson, Erla Sigurðardóttir, Finnur Benediktsson, Anna Guðný Jóhannsdóttir, Lára Árnadóttir, Ólöf Þóranna Jóhannsdóttir, Bryndís Dóra Þorleifsdóttir, Geirlaug Sveinsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir
Neðri röð frá vinstri:
Guðmundur Jóhannsson, Árný Ingibjörg Jóhannsdóttir, Bergrún Árnadóttir, Jóhann Helgason, Helga Sesselja Jóhannsdóttir og Sveinn Jóhannsson.
Niðjatal Ós-ættar 2023
Niðjatalið sem þið hafið nú fengið í hendur er það sjöunda sem gefið hefur verið út í tilefni af niðjamóti Ós-ættarinnar, en niðjamót hafa verið haldin á 5 ára fresti fyrir niðja Jóhanns Helgasonar og Bergrúnar Árnadóttur og maka þeirra.
Ættin hefur stækkað mikið frá árinu 1988. þegar fyrsta samantektin var unnin.
Árið 1988 eru skráðir 143 afkomendur
Árið 1993 eru skráðir 197 afkomendur
Árið 1998 eru skráðir 220 afkomendur
Árið 2003 eru skráðir 279 afkomendur
Árið 2013 eru skráðir 345 afkomendur
Árið 2023 eru skráðir 412 afkomendur
Þegar þessi samantekt er unnin er skipting afkomenda eftirfarandi.
Börn: 14
Barnabörn: 49
Barna-barnabörn: 133
Barna-barna-barnabörn: 187
Barna-barna-barna-barnabörn: 29
Jón Þór Jóhannsson tók saman fyrstu fimm niðjatölin af miklum myndarbrag og á heiðurinn af því að þessi samantekt fór af stað og er til á einum stað.
Síðasta niðjatal var tekið saman af Arngrími Viðari Ásgeirssyni og ættarmótsnefndinni.
Ég bauð fram krafta mína og þekkingu til þess að taka saman niðjatalið þetta árið.
Þrátt fyrir smá breytingu á uppsetningu vonast ég til þess að allir verði sáttir við þessa útgáfu niðjatalsins sem þið hafið nú fengið í hendur
Fyrir hönd ættarmótsnefndarinnar
Ólafur Ólafsson