FabLab Selfoss - Ársskýrsla 2021

Page 1

FABLAB SELFOSS ÁRSSKÝRSLA 2021


FabLab smiðjur eru samstarfsnet smiðja sem eru búnar tækjum og tólum til þess að stunda nýsköpun. Þær eru frábær vettvangur til nýsköpunar þar sem sköpunarfærni, -kjarkur og -kraftur eru leystir úr læðingi. Þar er nemendum og almenningi veittur aðgangur að nýjustu tækni og verkþekkingu í hönnun og sköpun.

Í FabLab smiðjum fer fram þjálfun á færni sem nýtist atvinnulífinu og skapar samkeppnishæfara samfélag. FabLab smiðjur eru mikilvægar menntakerfinu og efla áhuga og færni í raungreinum ásamt verk- og tæknigreinum.

FabLab Selfoss er staðsett í verknámshúsi Fjölbrautarskóla Suðurlands/ Hamri, þar sem smiðjan sinnir jafnt nemendum skólans sem og grunnskólanemum í Ársnessýslu ásamt öllum almenningi. FabLab smiðjan á Selfossi hefur unnið sér sess í samfélaginu þar sem tilvist hennar gerir fólki kleift að virkja sköpunarkraftinn, þróa nýsköpunarhugmyndir og efla tæknilæsi sitt.


FabLab Selfoss er samstarfsverkefni Héraðsnefndar Árnesinga, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Háskólafélags Suðurlands og Atorku – félags atvinnurekenda á Suðurlandi. Auk þess hefur nýverið verið gerður samningur við Menntamálaráðuneyti annarsvegar og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti hins vegar sem koma með góðan stuðning inn í smiðjuna.

Markmið FabLab er að efla nýsköpun í samfélaginu. Til að ná markmiðum er lögð áhersla á að efla nýsköpun í menntun, styðja við vöruþróun fyrirtækja og hlúa að nýjum hugmyndum hjá fólki á öllum stigum samfélagsins. FabLab myndar þannig skemmtilegt skapandi samfélag með fjölbreyttum hópi fólks sem á það sameiginlegt að vera forvitið, lausnamiðað og hafa þor til að prófa.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 3


STARFSEMIN 2021 Árið 2021 var litað af því ástandi sem skapaðist vegna covid19, líkt og árið 2020. Þrátt fyrir það náðist að halda smiðjunni gangandi eins og sést þegar litið er yfir árið í eftirfarandi samantekt. Mikið hefur verið rætt um hnignandi þátttöku ungs fólks í iðn-, verk- og tækninámi og hefur FabLab smiðjan það sem eitt af sínum markmiðum að vekja áhuga á þess háttar námi með því að tengja betur ýmislegt þvert á greinar og því má segja að smiðjan sinni ákveðnu forvarnastarfi. Grunn- og framhaldsskólar eru með fasta tíma inni í smiðjunni en auk þess hafa Fræðslunet Suðurlands og Birta Starfsendurhæfing verið með námskeið í smiðjunni ásamt því sem boðið hefur verið upp á opna tímar og námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.

FabLab smiðjurnar eru mikilvægur þáttur til þess að stuðla að virkri þátttöku landsins í fjórðu iðnbyltingunni með skilvirkri þjálfun nemenda, atvinnulífsins og þróun nýrrar tækni og miðlun þekkingar.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 4


FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS / FSu Árið 2021 fór vel af stað í FSu. Fablab Selfoss hefur boðið uppá tvo Fablab áfanga fyrir nemendur FSu. Mikilog góð ásókn var í Fablab áfangana tvo sem kallast Nýsköpun og miðlun eða NÝMI2FL05 og í framhaldsáfangann NÝMI3HF05 sem var kenndur í fyrsta skipti árið 2020 og hefur verið kenndur samhliða grunnáfanga og eru báðir áfangar í boði á vor- og haustönn.

GRUNNSKÓLAR ÁRNESSÝSLU Það er misjafnt milli skóla hversu miklum tíma þeir verja í FabLab smiðjunni. Vallaskóli á Selfossi býður uppá FabLab val fyrir sína nemendur. Þaðan komu tveir góðir hópar seinnipart árs og áttu þeir fasta tíma á þriðjudögum í smiðjunni og voru tímarnir vel nýttir í vetur milli covid lokana. Sunnulækjaskóli á Selfossi átti fasta tíma á föstudögum í vetur og nýttu hann meðal annars til þess að framleiða kjörkassa fyrir kosningar í skólanum ásamt bolum á kjörstjórnina. Flóaskóli í Flóahreppi nýtti smiðjuna einnig vel og kom Ragnar smíðakennari reglulega með nemenda hópa ásamt Eyjólfi tónlistarkennara en hann hefur undanfarið þróað verkefni sem gengur út á þverfaglegt samstarf tónlistar, þjóðfræði og verkgreina sem endar með því að nemendur í 5.bekk hanna og smíða sitt eigið Langspils hljóðfæri í Fablab. Hvolsskóli á Hvolsvelli kom í heimsókn með áhugasama nemendur og kynnti sér smiðjuna en vonir standa til að hægt verði að ná til skóla utan Árnessýslu þegar covid ástandinu líkur. Aðrir skólar í Árnessýslu komu svo í styttri heimsóknir auk þess sem haldin voru nokkur stutt kennaranámskeið fyrir skólana.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 5


ALMENNUR OPNUNARTÍMI Tvisvar í viku eru fastir tímar þar sem almenningur getur komið og fengið aðstoð við útfærslu, ráð um hinar ýmsu lausnir og aðstoð við að raungera hugmyndir sínar. Þar fyrir utan er öllum velkomið að líta við á opnunartíma smiðjunnar og reyna starfsmenn þá að aðstoða eftir getu. Þetta er lykilþáttur í því að virkja og tengja smiðjuna við samfélagið.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 6


SAMSTARFSVERKEFNI OG SAMSTARFSAÐILAR

Sem fyrr hefur FabLab Selfoss átt í mörgu góðu samstarfi við aðila á svæðinu sem og utan þess.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 7


SAMSTARF VIÐ RÁÐUNEYTI Árið 2021 var gerður þriggja ára samningur við annarsvegar Menntamálaráðuneytið og hins vegar Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið en þessir samningar eru öflugur stuðningur inn í smiðjuna. Þetta samstarf tryggir áframhaldandi öflugt starf smiðjunnar til framtíðar.

SAMSTARF VIÐ HÍ / MENNTAVÍSINDASVIÐ Unnið er að undirbúningi starfsþjálfunarverkefni fyrir kennara sem fara mun fram í FabLab smiðjum víðsvegar um landið og stefnt að því að sú þjálfun verði metin til eininga í námi á Menntavísindasviði HÍ.

SAMSTARF VIÐ VÍSINDAGARÐA Hugmyndir um uppbyggingu Super FabLab smiðju við Vísindagarða hafa verið kynntar og áframhaldandi samstarf er fyrirhugað við þróun hugmynda um uppbyggingu Djúptæknikjarna.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 8


FRÆÐSLUNET SUÐURLANDS OG BIRTA STARFSENDURHÆFING Samstarfi við Fræðslunet Suðurlands – símenntunarmiðstöð og Birtu starfsendurhæfingu var haldið áfram árið 2021. Í byrjun júní var haldið námskeið sem stóð yfir í þrjár vikur og var alls 12 tímar, kennt tvo daga í viku. Námskeiðið var kennt á ensku fyrir og var erlenda atvinnuleitendur á svæðinu. Þetta samstarf er þýðingarmikið fyrir bæði smiðjuna og áðurnefnda samstarfsaðila þar sem það byggir upp þekkingu og færni hjá hópi fólks sem ekki hefur fundið sér farveg annarstaðar, og eykur sjálfstraust til þess að takast á við nýjar áskoranir.

FABLAB ÍSLAND FabLab Selfoss er í miklu og virku samstarfi við báðar hinar sunnlensku FabLab smiðjurnar, í Vestmannaeyjum og á Höfn, en einnig er mjög virkt samstarf milli smiðjanna allra á landsvísu. Vikulegir fjarfundir voru haldnir alla miðvikudaga en það samstarf er nauðsynlegt fyrir þróun og uppbyggingu innra starfs smiðjunnar. Fablab Bootcamp er haldið einu sinni á ári þar sem fulltrúar frá öllum smiðjunum koma saman vinna í stefnumótun, endurmenntun og hópefli og var það að þessu sinni haldið í Fablab smiðjunni á Höfn í Hornafirði. Hópurinn dvaldi í fjóra daga og mættu fulltrúar frá 8 smiðjum alls 15 manns. Reglubundnir samstarfsfundir norrænu FabLab smiðjanna eru í hverjum mánuði og stjórn norrænu FabLab smiðjanna hittist tvisvar í mánuði þar sem þekkingu er miðlað milli smiðja og farið yfir starfsemina. Árlega er jafnframt staðið fyrir norrænu bootcamp sem haldið er í mismunandi FabLab smiðjum á Norðurlöndunum. Vegna covid ástandsins fór enginn starfsmaður FabLab Selfoss á þennan viðburð árið 2021. NET NORRÆNU FAB LAB SMIÐJANNA

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 9


SAMSTARF MILLI DEILDA Í FSU Samstarf var aukið til muna á milli deilda í verknámshúsi FSu – Hamri. Má þar helst nefna að Rafiðnaðar deildin nýtti sér tækni Fablab smiðjunnar og þá sérstaklega fræsivél til prentplötugerðar og hætti í kjölfarið að nota sýrubað sem er úreld óumhverfisvæn leið til að búa til prentplötur. Einnig nýttu þeir sér nýju Shopbot CNC vél smiðjunnar til að fræsa út álkassa sem er svo settur saman í rafdeildinni og utan um aflgjafa sem er eitt af nemendaverkefnum annarinnar, ásamt því að vínilskeri var notaður til að gera merkingar utan á kassann. Það er alltaf gaman þegar unnið er þvert á fög. Í meðfylgjandi myndbandi eru það málmsmíðin og FabLab í FSu sem taka saman höndum. Nemandi í málmsmíði notaði laserskera FabLab til þess að merkja verkfærakistu sem hann smíðaði. Mjög flott útkoma á alla vegu og glæsilegur gripur. HÉR MÁ SJÁ MYNDBAND AF FERLINU

FSu hefur undanfarin ár unnið að umhverfismálum í starfi skólans og tekur þátt í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri og er Grænfánaskóli. Nýverið ákvað skólinn í samráði við umhverfisnefnd að gefa öllu starfsfólki vatnsbrúsa. Hugsunin er að fólk sé með brúsana í vinnunni og að það ýti undir vatnsdrykkju og minnki uppvask og vinnu. Brúsarnir voru svo merktir í Fablab smiðjunni og útkoman er mjög skemmtileg. Sannkallað innanhúsverkefni sem eykur hollustu og sparar orku.

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 10


ERASMUS + ADULTS ON THE MOVE FabLab Selfoss er þátttakandi í áhugaverðu Erasmus+ Evrópuverkefni. Verkefnið gengur út á að styðja við ungt fólk í atvinnuleit sem hefur áhuga á stafrænni menningu og vill nýta sér þann áhuga til þess að efla sig á vinnumarkaðinum og gera sig hæfari til þátttöku í stafrænum veruleika nútímans. Verkefnið var þróað til að styðja við ungt atvinnulaust fólk á aldrinum 16-29 ára sem hafa fagleg tengsl við menningar- og skapandi geira og/eða hafa faglegan áhuga á stafrænni menningu og tækni. Meginmarkmið verkefnisins er að þróa og prófa aðferðafræði og verkfæri sem munu veita ungu fólki aðgengileg og sjálfbær námstækifæri varðandi stafræna tækni. Þetta mun hjálpa við að auka stafræna færni og hæfni sem nauðsynleg er til að gera einstaklinga að meira aðlaðandi starfskrafti á nútíma vinnumarkaði, og takast þannig á við atvinnuleysi þessa hóps. Í september komu samstarfsaðilarnir til Íslands á tveggja daga vinnufund en þeir eru frá Noregi, Tyrklandi og Grikklandi. Að vinnufundi loknum var haldin kynningarfundur á FabLab og fengu þeir að prófa hvað smiðjan hefur uppá að bjóða NÁNAR MÁ LESA UM VERKEFNIÐ HÉR:

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 11


HREIÐRIÐ FRUMKVÖÐLASETUR FabLab Selfoss er stoltur samstarfsaðili Hreiðursins sem er frumkvöðlasetur, staðsett í Fjölheimum á Selfossi. Tilgangur Hreiðursins er að styðja við og efla frumkvöðla á Suðurlandi. Auka þekkingu og vitund þeirra á sviði nýsköpunar, vöruþróunar og markaðsmála og fjölga þannig vel skilgreindum og mótuðum verkefnum á svæðinu. Slíkt gerir frumkvöðlana jafnframt hæfari til þess að sækja sér fjármagn, hvort sem er í gegnum samkeppnis- og/eða vísisjóði, sem og aðrar fjármögnunarleiðir. Markmiðið er að til verði nýjar vörur og/eða þjónusta hjá frumkvöðlum á Suðurlandi ásamt fjölgun starfa á svæðinu. Í Hreiðrinu er boðið upp á vinnuaðstöðu ásamt handleiðslu ráðgjafa sem mótuð er út frá þörfum frumkvöðulsins. Nokkrir frumkvöðlar geta starfað í Hreiðrinu á sama tíma og njóta því einnig jafningjastuðnings. Frumkvöðlar geta jafnframt nýtt sér ráðgjöf og þjónustu FabLabsins og ráðgjafa þess til þess að þróa og móta sínar vörur. NÁNARI UPPLÝSINGAR UM HREIÐRIÐ MÁ FINNA HÉR:

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 12


ÖNNUR VERKEFNI OG KYNNINGAR Mikill áhugi hefur verið á smiðjunni nú sem áður, en vegna covid lokana hefur verið erfiðara að taka á móti hópum á þessu ári en oft áður. Í júní komu þó fjórir stórir hópar af framhaldskólakennurum í heimsókn og kynntu sér smiðjuna af miklum áhuga. Einnig litu nokkur skemmtileg samstarfs- og þróunarverkefni dagsins ljós og má þar helst nefna þau tvö sem hlutu hvað mesta athygli almennings

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 13


GAGNAMAGNIÐ – HLJÓÐFÆRASMÍÐI FYRIR EUROVISION Daði Freyr og Árný úr Gagnamagninu komu í Fablab Selfoss og nýttu sér smiðjuna til að búa til hluta af þeim hljóðfærum sem þau tóku með sér Eurovision keppnina 2021. Meðal þess sem þau útbjuggu var lykla/pínaóborðið ásamt öllum tökkunum sem því fylgdu. Óhætt er að segja að hljóðfærin hafi komið glæsilega út á stóra sviðinu í Eurovision. UMFJÖLLUN: RUV FRÉTT

FABLAB LANGSPIL - NÝSKÖPUNAR OG ÞRÓUNARVERKEFNI Áðurnefnt langspilssmíðaverkefni Eyjólfs Eyjólfssonar, þjóðfræðings og söngvara sem hefur verið í gangi síðastliðin þrjú ár í Flóaskóla fyrir nemendur í 5. Bekk, fékk loksins á sig endanlegt efnislegt form, en verkefnið tengir saman nám í tónlist, þjóðfræði og handverki ásamt stafrænni hönnun og framleiðslu, þar sem nemendur tóku þátt í að hanna sín eigin langspil í tölvu og láta laser skera þau út í FabLab verkstæðinu á Selfossi. Þetta verkefni hefur hlotið mikla athygli þar sem áðurnefnd tenging milli ólíka námsgreina leikur lykil hlutverk. MEÐFYLGJANDI MYNDSKEIÐ SÝNIR ÞENNAN FRÁBÆRA AFRAKSTUR.

Með þessu verkefni er verið að tengja saman nám í tónlist, þjóðfræði og handverki ásamt stafrænni hönnun og framleiðslu. Má því segja að hér sé um þverfaglega kennslunálgun að ræða. Í tilefni lokatónleikanna fengu nemendurnir að bjóða til sín gestasöngvara og fyrir valinu varð að sjálfsögðu Páll Óskar Hjálmtýsson enda fáir sem eiga sinn líkan þegar kemur að því að ná til fólks á öllum aldri. Þess má geta að langspilssmíðaverkefnið hefur fengið framhaldslíf en til stendur að Félag tónmenntakennara haldi námskeið fyrir áhugasama kennara þar sem aðferðafræði verkefnisins verður kennd auk er verið að útfæra verkefnið sem námsefni fyrir nemendur í listkennsludeild við Listaháskóla Íslands.

FRÉTT Í MANNLEGA ÞÆTTINUM Á RÚV / LANDINN

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 14


HÚSNÆÐI OG TÆKI Vinna við breytingar hófst eftir lok vorannar 2020 í FSu og kláruðust fyrripart árs 2021. Við þessa nauðsynlegu breytingu var hægt að koma bæði nýja CNC fræsaranum og laserskurðarvél smiðjunnar fyrir í sér rými og stækkaði það smiðjuna um ca. 40 fermetra auk þess sem nú er hægt að loka af þessum rýmum. Samhliða þessu var farið í að laga alla loftræstingu, rafmagn og tölvulagnir smiðjunnar og er því öll mengandi starfsemi (hljóð og lykt) farin út úr kennslurýminu. Þetta gerir það janframt að verkum að öll helstu grunntæki og aðbúnaður eru nú til staðar til þess að smiðjan geti kallast fullburða Fablab smiðja.

Nýr og fullkomin Shopbot CNC fræsari var keyptur í smiðjuna og þurfti því að ráðast í breytingar á húsnæðinu. Eftirfarandi tillögur fengust samþykktar til stækkunar á rými smiðjunnar þar sem nýtt var rými sem áður hafði verið hugsað sem ruslageymsla.

AÐRIR TENGLAR WWW.FABLAB.IS FABLAB SELFOSS - FACEBOOK FABLAB SELFOSS - INSTAGRAM

ÁRSSKÝRSLA 2021

SÍÐA 15


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.