Visir 50 years Icelandic

Page 1

Hálfri öld síðar



Farsæld í 50 ár

Saga Vísis, sem nú fagnar hálfrar aldar afmæli, er saga áræðis og eljusemi og hún er samofin sögu útgerðar á Íslandi en rætur fyrirtækisins ná allt aftur til 1930. Stofnandi Vísis, hugsjónamaðurinn Páll H. Pálsson, stundaði sjóinn frá unga aldri og bjó þannig sjálfur yfir dýrmætri reynslu og þekkingu á sjávarútvegi. Hann hafði sterka framtíðarsýn, setti markið hátt og byggði á skömmum tíma upp Vísi – kraftmikið félag sem síðan hefur vaxið og dafnað og skipar sér í fremstu röð sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi.


Sterkar rĂŚtur


Fólkið og fiskurinn

Vísir er rótgróið, kröftugt og framsækið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki þar sem öll áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði. Fyrirtækið býr yfir góðum skipaflota útbúnum til línuveiða og rekur saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík, einum öflugasta útgerðarbæ landsins. Afurðir Vísis eru fjölbreyttar, unnar úr fyrsta flokks hráefni, og framleiddar fyrir breiðan hóp kröfuharðra viðskiptavina vítt og breitt um heiminn. Vísir hefur í 50 ár notið mikillar gæfu og haft á að skipa metnaðarfullu og tryggu starfsfólki – mannauður fyrirtækisins er því lykillinn að farsælum rekstri þess.


Af virðingu við náttúruna


Eitt af aðalsmerkjum Vísis er ábyrg veiðistefna sem grundvallast á línuútgerð, rekjanleika og öflugri sóknarstýringu. Vísir á aðild að verkefninu Iceland Responsible Fisheries, sem felur í sér staðfestingu á ábyrgum fiskveiðum Íslendinga, samkvæmt kröfum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Fyrirtækið hefur ennfremur hlotið MSC-vottun, enda uppfyllir það kröfur Marine Stewardship Council um rekjanleika sjávarafurða úr sjálfbærum fiskistofnum.


Ný nálgun


Íslenskt hugvit

Hátæknivinnsla fyrirtækisins byggist á íslensku hugviti og hönnun. Vísir hefur á liðnum árum átt afar farsælt samstarf við mörg íslensk tæknifyrirtæki, sem eru í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu hátæknibúnaðar í fiskiðnaði. Nýjasta tækni í fiskvinnslu leiðir af sér mikla skilvirkni og sveigjanleika í framleiðslu og gerir Vísi kleift að bjóða upp á fjölbreyttar afurðir úr fyrsta flokks hráefni.



HEIMSKAUTSBAUGUR

A kureyri

ÍSLAND ÍKA ER AM

VA

TN

AJÖ

KULL

R eykjav ík E YJ A

FJALLAJÖKULL

EV RÓ PA

Grindaví k

Ferskt úr norðurhöfum


Verรฐmรฆti


Ekkert til spillis

100% Vísir fylgir þeirri grundvallarstefnu að nota allt hráefni til hins ýtrasta og státar nú af 100% nýtingu aflans. Hátæknivinnsla fyrirtækisins og stöðug þróunarvinna hafa ávallt miðað að því að nýta allt hráefni sem best og skapa þannig sem mest verðmæti úr auðlindum hafsins.


Gรฆรฐi


Lostæti

Vísir framleiðir fiskafurðir fyrir kröfuharða neytendur, sem sækjast eftir fyrsta flokks íslensku hráefni. Fyrirtækið leggur sig fram um að viðhalda traustu og góðu sambandi við viðskiptavini og leggur allt í sölurnar til að uppfylla þarfir þeirra og óskir. Útkoman er ferskur, fallegur gæðafiskur, veiddur við Íslandsstrendur, sem freistar vandlátra og gleður matgæðinga um allan heim.


S贸knarf忙ri


Horft fram á við

Vísir er framsækið fyrirtæki, vakandi fyrir nýjum tækifærum, og heldur uppi öflugri vöruþróun þar sem óskir og þarfir neytenda eru hafðar að leiðarljósi. Fyrirtækið færir sér í nyt nýjustu tækni á sviði veiða og vinnslu, leitar sóknarfæra og sækir á nýja markaði. Það er opið fyrir ferskum hugmyndum og nýrri nálgun og á allt undir traustu og góðu starfsfólki. Nú, 50 árum eftir stofnun Vísis, stendur fyrirtækið styrkari fótum en nokkru sinni fyrr og státar af breiðum og sístækkandi hópi ánægðra viðskiptavina.



vísir hf hafnargata 16 240 grindavík ísland sími 420 5700 visir@visirhf.is www.visirhf.is


www.visirhf.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.