2 minute read

IV. Aðferðafræði

Next Article
X. Tilvísanir

X. Tilvísanir

Aðferðafræðin sem stuðst er við í þessari rannsókn byggist á viðtölum við markhópa (focus groups) og svo við einstaklinga úr hlutaðeigandi hópum náms-þríhyrningsins: ● Fræðimenn, prófessorar og kennarar ● SME (smáfyrirtæki) og frumkvöðlar ● Nemendur, aðallega úr æðri námsstofnunum sem og frá starfsmennta- og þjálfunarstofnunum

Viðtöl fóru fram við eftirtalda: 31 frumkvöðul, 38 nemendur og 31 kennara. Samtals 101 utanaðkomandi hagsmunaðilar.

Advertisement

Kennarar

Fyrirtæki

tæki

IO1. Skýrsla um gagnasöfnun

Nemendur

tæki

Rannsóknin fór fram frá nóvember 2019 til júní 2020. Aðferðafræðin sem notuð var kallast óformleg rýnihópaviðtöl. Háskólinn í Túrkú leiddi þetta verkefni og samdi spurningar fyrir hvern markhóp (sjá Viðauka 1). Spurningarnar leiddu og stýrðu samtölunum en einnig gátu samræður spunnist út frá þeim. Viðtölin fóru aðallega fram í húsakynnum viðmælenda. Þátttakendur voru valdir samkvæmt hagkvæmni hvað varðaði aðgengi og þörf á mismunandi sjónarhornum: starfsvettvangur, aldur, kyn, þjóðerni o.s.frv. Stærstur hluti rannsóknarinnar fór fram augliti til auglitis en vegna COVID-19 varð erfitt að nálgast viðmælendur og varð því að grípa til símans og netsins.

Grafíkin í skýrslunni er án skala. Niðurstöðurnar voru greindar á eigindlegan hátt og tölurnar tákna ekki fjölda svara heldur mikilvægi svara hvers viðmælanda. Eigindlegar rannsóknir leyfa okkur að skrá hegðunarmynstur og hvatir til að skilja ástæður og undirliggjandi orsakir.

Frumkvöðlun er alls staðar. Á síðustu 40 árum hafa námsbrautir, námsrannsóknir, nemendasamfélög og kennslufræði verið þróuð og útfærð og frumkvöðlun hefur farið að skipta þjóðfélög okkar máli. Frumkvöðlun er miklu meira en að stofna fyrirtæki. Hún hvetur til ákveðins viðhorfs sem leitar tækifæra, tekur áhættu og einkennist af seiglu. En þegar frumkvöðlun verður umfangsmeiri ættum við þá að íhuga hvernig frumkvöðlamenntun gæti litið út? Og það fær okkur til að íhuga hvers vegna frumkvöðlun er kennd. Hvert er innihald frumkvöðlamenntunar? Og hvernig er hún kennd?

Samkvæmt Journal of Small Business Management 2018 og útgáfu þeirra “Examining the Future of Trajectory of Entrepreneurship” þá er frumkvöðlun kennd í háskólum vegna ýmissa ástæðna. Sumir skólar meta sköpun meðan aðrir skoða kraft ferlisins sem krefst ástríðu og orku til að skapa og útfæra nýjar hugmyndir18. Innihald breytanna þriggja er mismunandi, blandast oft saman og líta til

18 Kuratko 2017

IO1. Skýrsla um gagnasöfnun

1) grunnatriði viðskipta í nýju samhengi rekstrarumhverfis, 2) kjarna innihalds frumkvöðlahugsunar, 3) frumkvöðlaviðhorf. Miðlunarleiðin er oft hefðbundnir fyrirlestrar, speglaðar skólastofur, netið o.s.frv. En framtíð frumkvöðlamenntunar fer líka eftir námsferlinu sjálfu og prófanir með það sem er háð að miklu leyti framtíð menntunar almennt.

Og svo er málið framtíð frumkvöðlamenntunar. Frumkvöðlamenntun gæti samþættast við aðrar greinar og eiginlega horfið, alla vega ekki orðið eins áberandi og í dag þegar hún er kennd sem aðalgrein eða aukagrein. Frumkvöðlun gæti þróast og orðið fræðilegri og því færst fjær framkvæmdinni. En svo gæti frumkvöðlun eflt breytingar menntunar og stutt við samfélagið og breytt hlutverki háskóla og verið viðurkennd sem verkfæri til eflingar og umbreytinga.

Það sem við erum að finna með þessari rannsókn er hvernig nútíma aðferðir og hugmyndir í tengslum við frumkvöðlun geta hvatt til stofnunar nýrra fyrirtækja en líka aukið afköst þeirra. Í rannsókninni höfum við reynt að koma auga á þarfir frumkvöðla til að efla samkeppnishæfni þeirra og sjá hvernig samstarf við menntastofnanir, gegnum kennarana, mundi vera jákvætt fyrir bæði efnahaginn og vinnuafl framtíðarinnar.

IO1. Skýrsla um gagnasöfnun

This article is from: