1 minute read

Starfsvalkostir

Next Article
X. Tilvísanir

X. Tilvísanir

Sumir nemendur nefndu í tengslum við starfsnámið að þeir væru ekki eins færir og þeir höfðu ætlað, aðallega vegna þess að verkefnin sem þeir fengu tengdust ekki náminu. Á hinn bóginn nefndu aðrir nemendur að starfsþjálfun á námstíma væri fínt tækifæri til að fylgjast með, læra um forystu og teymisstjórnun, vandamálalausnir o.fl.

Færni dugandi frumkvöðuls

Advertisement

Í samræðunum voru frumkvöðlar og nemendur beðnir að nefna nauðsynlega færni til að ná árangri sem frumkvöðlar. Í grafinu hér að neðan sjást þeir færniþættir sem fyrirtæki og nemendur nefndu. Þættirnir sem oftar voru nefndir eru táknaðir með hærri súlunum. Svör frumkvöðlanna eru í bláum lit, svör nemendanna í appelsínugulum lit.

Bæði frumkvöðlar og nemendur nefna sem mikilvægustu færniþætti frumkvöðla forystu og stjórnun, samskiptahæfileika, að hugsa út fyrir rammann og fróðleiksfýsn, seiglu, sölu- og markaðshæfileika. Athyglivert er að sjá að einungis nemendur nefndu þarfir viðskiptavina sem

mikilvæga færni en frumkvöðlarnir nefndu það ekki.

Frumkvöðlar sáu tæknifærni (sérþekkingu), viðhorf og ástríðu sem frekar mikilvæga þætti. Þeir nefndu þó nokkuð oft að streitustjórnun væri nauðsynleg.

IO1. Skýrsla um gagnasöfnun

This article is from: