
1 minute read
GRAFÍSK Hönnun
from tbl 27- 5-12 júlí
by Dagskráin
Vantar þig aðstoð við hönnun?
Þarftu að auglýsa eða vantar þig nafnspjald, gjafabréf, logo, kort, límmiða eða bara hvað sem er?


Þ R Ó T T A - O G
M S T U N D A F U L L T R I
Norðurþing óskar eftir að ráða öflugan aðila í starf íþrótta- og tómstundafulltrúa á fræðsluog lýðheilsusvið sveitarfélagsins Viðkomandi vinnur að framgangi verkefna málaflokksins í samræmi við ákvarðanir og stefnu fjölskylduráðs og sveitarstjórnar hverju sinni
Starfssvið og helstu verkefni:
Yfirumsjón með rekstri og starfsemi íþrótta- og tómstundastarfs á vegum sveitarfélagsins, þ m t starfsmannamál og dagleg stjórnun
Samningagerð, eftirfylgni með ferlum, fjárhagsáætlunum og framvindu íþrótta- og tómstundamála á sviðinu
Ráðgjöf og þátttaka í stefnumótun og eftirfylgni stefnumótunar.
Ráðgjöf og stuðningur við fulltrúa fjölskylduráðs, fræðslufulltrúa og starfsfólk íþróttaog tómstundastarfs á sviðinu
Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu sem og stofnanir og aðila utan þess

Stuðla að öflugu íþrótta- og tómstundastarfi barna og ungmenna og virk upplýsingagjöf um starfsemi málaflokksins
Önnur verkefni í samráði við yfirmenn
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur Reynsla af íþrótta- og tómstundastarfi.
Reynsla af stjórnun, stefnumótun og fjárhagsáætlanagerð Reynsla af opinberri stjórnsýslu
Góðir skipulagshæfileikar og áreiðanleiki ásamt skapandi hugsun og aðlögunarhæfni.
Mikil samskipta- og leiðtogahæfni, frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Góð tölvukunnátta
Norðurþing er sveitarfélag á Norðausturlandi sem varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps.
Norðurþing er víðfemt sveitarfélag og þéttbýliskjarnar eru þrír í sveitarfélaginu; Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn Auk þess eru sveitirnar Reykjahverfi, Kelduhverfi, Núpasveit og Öxarfjörður Íbúar eru um 3 200 talsins
Umsóknarfrestur er til og með 10 ágúst 2023
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda
Sótt er um starfið á www.mognum.is Nánari upplýsingar veita: Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum is Telma Eiðsdóttir I telma@mognum is