Eystrahorn
www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is
Fimmtudagur 20. mars 2014
11. tbl. 32. árgangur
Nettó á Höfn opnar eftir stórfelldar endurbætur Föstudaginn 21. mars verður hátíð hjá Nettó en þá opnar verslun okkar á Höfn aftur eftir stórfelldar endurbætur. Húsnæðisþrengslin þar hafa varað í langan tíma og reynt mikið á starfsfólk verslunarinnar. Síðustu árin hefur umferð ferðamanna aukist og viðskiptavinum fjölgað til muna ekki síst yfir sumartímann. Með breytingunum viljum við hjá Nettó gera betur í þjónustu við íbúa Hafnar og nærsveita. Verslunin á Höfn er nú byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir þar sem áfram er lögð áhersla á lágt verð, mikið og fjölbreytt vöruval. Samfélagsleg ábyrgð skipar stóran sess í starfsemi allra Nettó verslana um allt land. Áhersla er lögð á flokkun á sorpi og reynt er eftir fremsta megni að nýta orku frá kælivélum til upphitunar verslunarhúsnæðis. Í Nettó á Höfn verða sett glerlok á alla frysta en það eitt og sér leiðir til 40% sparnaðar á rafmagni. Einnig verður hitastig í þeim jafnara sem tryggir aukin gæði á vörum og dregur einnig úr rýrnun í verslun sem er afar jákvætt skref í rétta átt ef horft er til þess alþjóðlega vandamáls sem felst í sóun matvæla. Á Höfn verður einnig sett upp rakakerfi í grænmetistorgi sem viðheldur betur ferskleika ávaxta og grænmetis. Vöruval í dagvöru verður áfram mikið og fjölbreytilegt sem og hefðbundin sérvara á góðu verði.
Sett verður upp „bakað á staðnum“ sem slegið hefur í gegn í öllum Nettó verslunum, en með því býður Nettó mikil gæði , lág verð og öflug tilboð á fjölmörgum vörum. Í nýrri og endurbættri Nettó á Höfn verður einnig boðið uppá rjúkandi heitt kaffi, brauð smurt á staðnum ásamt heitu bakkelsi. Á tímum þegar verið er að loka verslunum eða draga úr þjónustu á landsbyggðinni heldur Nettó áfram að bæta í og gera betur. Framvegis verður opið alla sunnudaga í Nettó á Höfn
Sumar-Humar tónleikar
Hinir árlegu hádegistónleikar Lúðrasveitar Hornafjarðar og Tónskólans verða haldnir í Sindrabæ laugardaginn 22. mars kl. 12:00 Sameiginleg lúðrasveit Hornafjarðar og Tónskólans munu leika lög úr söngleikjum með öðru í bland. Boðið verður upp á humarsúpu á tónleikunum. Aðgangseyrir er kr. 2.000,-
með framúrskarandi þjónustu þess frábæra starfsfólks sem þar starfar. Við breytingarnar mun verslun okkar á Höfn stækka um 200 fermetra og verður því í kringum eitt þúsund fermetrar þegar endurbótum lýkur og staðsetning áfram á besta stað í bænum. Nettó vill þakka viðskiptavinum sýnda þolinmæði á meðan breytingar hafa staðið yfir og frábæru starfsfólki Nettó fyrir að gera þessar breytingar að veruleika.
Ragnar Imsland hlaut Menningarverðlaunin Föstudaginn 14. mars voru Menningarverðlaun Hornafjarðar afhent ásamt styrkjum úr Atvinnu- og rannsóknarsjóði og Menningarstyrkir Hornafjarðar. Að þessu sinni voru veittir styrkir upp á samtals 10 milljónir króna. Ragnari Imsland voru veitt Menningarverðlaun Hornafjarðar 2014 fyrir þau lista- og handverk sem hann hefur skapað í gegnum áratugina og það örlæti sem hann hefur sýnt samfélaginu með gjöfum sínum sem fegra umhverfi okkar víða. Óskum við honum innilega til hamingju með viðurkenninguna.
8 liða úrslit í 2. deild karla í körfu:
Sindri - Ármann í íþróttahúsinu Höfn föstudagskvöld kl 20:00 Mætum og hvetjum okkar lið - Áfram Sindri!