FKE-fréttir
3. tbl. 43. árg. - September 2023
Efni: Vetrarstarfið og fleira
Athugaðu:
• Allir eftirlaunakennarar og makar þeirra eiga rétt til aðildar að FKE og félagsgjald er ekkert!!
• Vefur FKE er á fke.is - Þar er hægt að skrá sig í félagið.
Slóðin er: https://fke.is/index.php/skraning-i-fke Skráð aðild viðheldur FKE-aðgangi að Orlofssjóðnum.
• Einnig - eitt símtal nægir! Stella Kristinsdóttir í Kennarahúsinu tekur við skráningum í síma 595-1111 og í netpósti á stella@ki.is.
Kennarasamband Íslands, Borgartúni 30, 105 Rvík. Ábyrgðamaður: Guðmundur B. Kristmundsson
Félag kennara á eftirlaunum
Vestmannaeyjar
Mynd: Halldór Þórðarson
Mynd: Guðrún Gísladóttir Fjallabak
Mynd: Maja Loebell Dynjandi
verða á Grand Hóteli, Sigtúni 8 Reykjavík, þeir hefjast kl. 13:30 eftirfarandi laugardaga: 7. október, 4.nóvember og jólafundur 2. desember
Spiluð verður félagsvist en að henni lokinni er alltaf eitthvað til skemmtunar og fróðleiks. Þau sem ekki spila eru auðvitað velkomin á fundina. Sum koma til að njóta veitinga, eða dagskrár að lokinni félagsvist sem hefst um kl. 14:30 Veitingar eru seldar af hlaðborði og kosta kr. 2500. Við biðjum ykkur að koma með peninga, þar sem félagið hefur ekki posa til umráða. Félagið niðurgreiðir þetta gjald mjög verulega.
Við mætum upp úr kl. 13:00 svo að við getum byrjað að spila stundvíslega kl. 13:30
Fræðslu- og skemmtifundir Myndir frá Grandfundum
FKE-fréttir - þetta tölublað - verður borið heim til þeirra sem ekki hafa uppgefið netfang. Það flýtir dreifingu og minnkar kostnað félagsins ef allir sem hafa netfang - en fengu samt þetta eintak borið heim að dyrum láta vita af netfanginu sínu með því að senda póst á fke@fke.is.
Allir sem eru á netpóstskrá félagsins fá blaðið sent í netpósti. Þannig sparast félaginu sendingarkostnaður um leið og það hraðar afhendingu blaðsins til þeirra félagsmanna.
FKE-fréttir
bls. 2
Allar upplýsingar um FKE er að finna á FKE.IS
September 2023
FKE-fréttir
Menningarferð í Hveragerði
September 2023
Nú stefnir FKE á áhugaverða menningarferð í Hveragerði fimmtudaginn 28. september 2023. Lagt verður af stað frá Kennaraháskólanum/menntavísindasviði við Stakkahlíð kl.9:30 stundvíslega. Ekið að Hellisheiðar-virkjun þar sem við fáum leiðsögn um jarðfræði, raforku og hvernig virkjunin virkar. Þá er ekið í Hveragerði þar sem Njörður Sigurðsson leiðsögumaður tekur á móti okkur og gengur með okkur um skáldagötur, segir frá skáldum sem þar hafa búið og/eða búa þar núna.
Við fáum síðan smurbrauð á Matkránni. Eftir gott matarstopp förum við í Listasafn Árnesinga og fáum leiðsögn um safnið.
Að því loknu ökum við sem leið liggur aftur til Reykjavíkur. Ættum að vera komin þangað milli kl.15:30-16:00.
Innifalið í verði er rúta, aðgangur að Hellisheiðarvirkjun með leiðsögn, leiðsögn um skáldagötur, smurbrauð á Matkránni og aðgangur með leiðsögn um Listasafn Árnesinga. Drykki þarf fólk að kaupa sjálft hvort sem um er að
ræða kaffi, gos, öl eða vín.
Verð fyrir ferðina er kr. 8.000 og þarf að greiða um leið og menn skrá sig. Reikningsnúmer FKE er: 0313-26-004211, kennitala 421190-1359.
Smelltu hér til að skrá þig
Eða, sendu beiðni í vefpósti á fke@fke.is
Ferðirnar í sumar gengu vel.
Þær ferðir sem félagið bauð upp á í sumar, dagsferð til Vestmannaeyja, tveggja daga ferð vestur á firði og dagsferð um Fjallabak gengu ljómandi vel. Allar voru ferðirnar fullsetnar. Þökkum við félagsmönnum fyrir þátttökuna og skemmtilegan félagsskap.
Fundir bókmenntaklúbbsins
Bókmenntahópur FKE hefur starfað um árabil. G. Unnur Magnúsdóttir og
Valborg E. Baldvinsdóttir munu leiða hann í vetur. Allir eru velkomnir að taka þátt og ekki þarf að skrá sig. Fyrsti fundur verður 5. október og síðan 19. október, 2., 16. og 30 nóvember, 14. og 28. desember. Fundirnir hefjast kl. 13.30 og eru haldnir í húsi Kennarasambandsins, Borgartúni 30, 6. hæð.
Tilkynning frá Ekkó – Kór kennara á eftirlaunum
Kórinn hefur starf 26. september og tekur með ánægju á móti nýjum félögum. Æfingar fara fram í Kennaraháskólahúsinu við Stakkahlíð á þriðjudögum kl. 16.30-18.00. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í því starfi mæti á þessum tíma. Ekki þarf sérstaka skráningu. Formaður er Sesselja Sigurðardóttir sessegud@gmail.com sími: 8919071
Allar upplýsingar um FKE er að finna á FKE.IS
bls. 3
Gönguhópurinn
Gönguhópur hefur starfað um árabil og undanfarið hefur fjölgað í honum.
Gengið er alla mánudaga kl. 13.00. Fyrsta ganga á þessu hausti verður
mánudaginn 18. september.
Frekari upplýsingar veita Valborg Baldvinsdóttir vallakop@gmail.com og
Skarphéðinn Guðmundsson skarph@ismennt.is
Sjá einnig nánar um hópinn í maí ftéttabréfi 2022.
Upplýsingar um FKE á Vefnum
Vefur félagsins er á slóðinni fke.is. Athugið að verið er að uppfæra vefinn og óljóst hvenær því lýkur en verður tilkynnt þegar að því kemur. Gamli vefurinn er virkur þangað til en aðeins áríðandi efni verður birt þar. Þar birtast tilkynningar og upplýsingar um viðburði sem félagið stendur fyrir. Einnig er þar að finna tengil á eldri vef félagsins, FKEfrettir.net þar sem lesa má sögu félagsins allt frá upphafi. Þar eru einnig myndir frá þeim viðburðum sem félagið hefur skipulagt og framkvæmt á liðnum árum.
Stjórn Félags kennara á eftirlaunum:
Guðmundur B. Kristmundsson 864 4702........... gudkrist@hi.is
Kristín G. Ísfeld .......................696 7570........... kristinisfeld@internet.is
Guðrún Erla Björgvinsdóttir ....862 8005........... gudbjo@simnet.is
Gunnlaugur Dan Ólafsson .......841 8333 .......... gunnlaugurdan@fiskt.is
Valborg E. Baldvinsdóttir .........865 9713 .......... vallakop@gmail.com
Skarphéðinn Guðmundsson .....893 9014........... skarph@ismennt.is
Allar upplýsingar um FKE er að finna á FKE.IS
bls. 4
FKE-fréttir
September 2023