1 minute read

FAGMENNSKA OG SAMSTARF Í ÖNDVEGI

Heilbrigði

Úr menntastefnu: Undir heilbrigði falla meðal annars lífs- og neysluvenjur, líkamleg færni, kynheilbrigði og andleg og félagsleg vellíðan. Hugmyndir um heilbrigði hafa þróast með aukinni þekkingu á samspili hugar og líkama, náttúrulegu og félagslegu umhverfi og áhrifum efna og fæðu.. Vellíðan barns í daglegu lífi leggur grunninn að virkri þátttöku, aukinni færni og árangri í skóla- og frístundastarfi.

Advertisement

Unnið verður að því að öll börn tileinki sér heilbrigðan lífsstíl og öðlist hæfni til að standa vörð um eigið heilbrigði.

Það gerum við með því að:

• hafa rými og aðbúnað sem stuðlar að öryggiskennd og vellíðan allra barna • hafa sameiginleg rými þar sem börn geta þjálfað fín- og grófhreyfingar, s.s. stikl, klifur, skrið, jafnvægi og fleira • hafa góðar tengingar milli úti og innisvæða og stuðla þannig að markvissu útinámi • hafa aðstöðu til náttúruupplifunar og ræktunar innan- og utandyra og á nálægum grænum svæðum • hafa rými þar sem börn geta matast í ró og næði og bjargað sér sjálf • hafa aðstöðu sem býður upp á fjölbreytta hreyfingu fyrir einstaklinga, minni og stærri hópa jafnt í námi, starfi og leik. • Hafa aðstöðu þar sem hægt er að finna ró og næði í dagsins önn

This article is from: