Frá Höfðatorgi er útsýni yfir borgina úr hæstu turnum Reykjavíkur. Höfðatorgið setur nú sterkan svip á Reykjavík og kallast á við Hörpuna á bakka norðurhafnar. Á Höfðatorgi hefur átt sér stað hljóðlát bylting í íslenskum byggingariðnaði, ný nálgun sem styrkir Reykjavík nýrrar aldar. Höfðatorgið er nokkurs konar borg í borg með alþjóðlegt yfirbragð íbúða, stofnana, viðskiptalífs, verslunar og þjónustu ásamt stærsta hóteli landsins, Fosshóteli Reykjavík. PK Arkitektar urðu hlutskarpastir í samkeppni á Íslandi. Í Berlín tóku fimm arktitektastofur þátt í hugmyndasamkeppni sem LWW Architekten vann. Þýska hönnunarfyrirtækið MetaDesign varð ráðgjafi en firmað hefur meðal annars þróað vörumerki Volkswagen, Audi og Lufthansa.
Byggingarfélagið Eykt og fasteignafélagið Íþaka höfðu að fyrirmynd endurbyggingu Berlínar eftir sameiningu Þýskalands og alveg sérstaklega Potsdamer Platz um kílómeter suður af Brandenborgarhliðinu og Reichtag, þýska þinginu í höfuðborg Þýskalands. LWW Architekten höfðu komið að þróun Potsdamtor