GRUNNSTOÐIR MARKAÐSSETNINGAR
Ísland Það er ekki fyrir hvern sem er.
Leiðarljós
í markaðs-
setningu
Það er ekki fyrir þá sem fara þangað sem allir aðrir fara. Það er ekki fyrir ferðalanga sem vilja ekki láta koma sér á óvart. Það er fyrir þá sem ferðast um heiminn til að upplifa eitthvað öðruvísi og snúa heim með sögu að segja og leyndarmál að deila. Sögurnar frá Íslandi hætta ekki að berast þegar vetrar. Allt árið um kring, allt landið um kring, hefur Ísland að geyma leyndarmál fyrir ævintýragjarna og upplýsta ferðamenn. Vertu velkominn í hóp þeirra sem ferðast í anda landkönnuða með ævintýraþrá og sköpunargleði í brjósti. Ísland er kannski ekki fyrsta landið sem þér dettur í hug að heimsækja en þetta verður fyrsta landið sem þú segir vinum þínum frá. Komdu og láttu heillast af Íslandi.
Markmið fyrir íslenska ferðaþjónustu
2014-2017
Auka meðalneyslu ferðamanna á Íslandi á hvern dag og auka gjaldeyristekjur íslenskrar ferðaþjónustu Draga úr árstíðarsveiflu hvers landshluta og fjölga ferðamönnum til landsins með mismunandi áherslum eftir árstíðum
Að vitund um Ísland sem áfangastað aukist um 2% að meðaltali á erlendum markaðssvæðum á tímabilinu. Að viðhorf gagnvart Íslandi sem áfangastað batni um 2% að meðaltali á erlendum markaðssvæðum á tímabilinu. Að viðhorf gagnvart Íslandi sem vetraráfangastað batni um 3% að meðaltali á erlendum markaðssvæðum á tímabilinu. Að ánægja ferðamanna með för sína til Íslands fari ekki undir 90% að meðaltali. Að auka áhuga að koma að vetri til.
SÖGUMENN & HAGSMUNAAÐILAR
SAMÞÆTT MARKAÐSSETNING
SKILABOÐIN OG SÖGURNAR - “Closer than you think”
Menning
Ævintýri
Hreinleiki
Sköpunarkraftur
Sjálfbærni
Dulúð
HLJÓMFALL SKILABOÐANNA
Við erum sjálfum okkur trú
Við erum tápmikil
Við erum glaðleg
Við erum gestrisin
Við komum á óvart
Markhópurinn
hinn upplýsti ferðamaður er skilgreindur með eftirfarandi hætti:
Fólk á aldrinum 20 til 65 ára • • • •
Býr í þéttbýli Menntun yfir meðallagi Tekjur yfir meðallagi Fjölmiðlaneysla, net- og snjallsímanotkun yfir meðallagi
Fólk sem vill standa utan við hjörðina • Vill ferðast sjálfstætt • Hefur áhuga á menningu, hugmyndum og lífsstíl annarra.
Fólk sem vill fara á nýja og spennandi áfangastaði • • • •
Vill fara í frí að vetri til Er opið fyrir nýjungum Sækist eftir áskorunum Er tilbúið að deila upplifun sinni með öðrum