2 minute read

Bjartur lífsstíll – Heilsuefling 60+

Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Landssambands eldri borgara (LEB). Verkefnið hófst í ársbyrjun 2022 eftir að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið lagði til fjármagn í formi styrks til sambandanna tveggja til að stuðla að heilsueflingu eldra fólks í kjölfar COVID -19. Áhersla er lögð á skipulagða hreyfingu, draga úr einangrun og gera eldra fólki kleift að búa sem lengst í heimahúsum.

Ráðnir voru tveir verkefnastjórar heilsueflingar 60+. Fyrir ÍSÍ starfar Margrét Regína Grétarsdóttir íþróttafræðingur og fyrir LEB starfar Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og íþróttakennari.

Advertisement

Markmið verkefnisins er að aðstoða sveitarfélög um land allt við að innleiða heilsueflingu eldra fólks til framtíðar. Í fyrsta lagi er lögð áhersla á að veita þjálfurum og öðrum faglegan stuðning. Í öðru lagi að stuðla að betri lýðheilsu eldra fólks á landsvísu með því að auka heilsulæsi í gegnum hreyfingu og fræðslu. Í þriðja lagi að varanlegt hreyfiúrræði standi öllu fólki 60 ára og eldra til boða í helstu byggðarkjörnum landsins. Með hreyfiúrræði er átt við allar mögulegar tegundir af úti- og innihreyfingu líkt og göngu, sund, líkamsrækt, golf, boccia og fleira.

Með verkefninu Bjartur lífsstíll er lögð áhersla á að efla samvinnu innan sérhvers sveitarfélags og því hefur verið útbúin verkfærakista fyrir þá sem sjá þörfina fyrir aðstoð, líkt og að búa til nýtt hreyfiúrræði eða efla það góða starf sem nú þegar er í gangi. Verkfærakistan er aðgengileg á vefsíðunni www.bjartlif.is ásamt ýmsum hagnýtum upplýsingum er varðar heilsueflingu eldra fólks. Þá er m.a. hægt að finna upplýsingar um hreyfingu sem er í boði fyrir fólk 60+ flokkað eftir póstnúmerum landsins. Til þess að auka gæði á efnisyfirliti þessara upplýsinga er mikilvægt að þeir sem koma að hreyfingu eldra fólks um allt land séu með sínar upplýsingar aðgengilegar svo að allir geti nálgast þær á einfaldan máta .

Á árinu var fundað með rúmlega 30 sveitarfélögum á landsbyggðinni ásamt stýrihópum í öllum póstnúmerum höfuðborgarsvæðisins. Á fundum er hvatt til þess að samfélagið í heild sé m.a. með varanlegt og fjölbreytt framboð á hreyfingu og góða upplýsingagjöf til eldra fólks og aðstandenda þeirra. Í framhaldi er ráðlagt að stýrihópar vinni áfram að framtíðar stefnumótun. Það hefur sýnt sig að þverfagleg samvinna stuðlar að samfélagslegri ábyrgð sem á svo sannarlega við í þessum málaflokki.

Í lok árs 2022 var gerð könnun á meðal þeirra sveitarfélaga sem fundað var með á árinu. Niðurstöður gáfu til kynna að tíu sveitarfélög settu af stað ný hreyfiúrræði og tólf sveitarfélög stefna að því að setja af stað ný hreyfiúrræði árið 2023. Með nýju hreyfiúrræði er átt við að sveitarfélagið sé með glænýtt upphaf af einhvers lags hreyfingu sem ekki var í boði áður.

Mikilvægt er að stuðla að því að skapa jákvætt umhverfi innan íþróttahreyfingarinnar og fjölga tækifærum eldra fólks til hreyfingar þar sem aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast. Áætlað er að eldra fólki muni fjölga um 20% árið 2030 og árið 2050 um 65%. Þetta þýðir að um þessar mundir er sjöundi hver landsmaður 65 ára og eldri en árið 2050 verður fjórði hver landsmaður á þeim aldri .

Það er einlæg ósk ÍSÍ og LEB að allir 60 ára og eldri geti fundið hreyfingu við sitt hæfi í sínu nærumhverfi, í helstu byggðarkjörnum landsins. Því leggur Bjartur lífsstíll upp með að vera miðlægur gagnagrunnur fyrir þá sem vilja afla sér frekari fræðslu og upplýsinga varðandi heilsueflingu eldra fólks

This article is from: