2 minute read

Íþróttamaður ársins

Ekki reyndist unnt að halda hefðbundið sameiginlegt hóf ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2021 vegna takmarkana á samkomum vegna kórónuveirufaraldurs. Því var afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttafólks sérsambanda frestað fram í aprílmánuð. Afhendingar fóru fram á Grand Hótel Reykjavík og eins og áður þá gáfu fyrirtækin í Ólympíufjölskyldu ÍSÍ, veglega bikara til íþróttafólksins.

Samtök íþróttafréttamanna útnefndu Ómar Inga Magnússon handknattleiksmann, Íþróttamann ársins 2021 og var kjörinu lýst beint á RÚV 29. desember 2021.

Advertisement

Kvennalandsliðið í hópfimleikum var kjörið Lið ársins 2021 og Þórir Hergeirsson handknattleiksþjálfari var kjörinn Þjálfari ársins 2021.

Árið 2022 var svo haldið hefðbundið, sameiginlegt hóf ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna 29. desember í Hörpu. Þar fóru fram afhendingar viðurkenninga ÍSÍ til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ, ásamt kjöri Íþróttamanns ársins. Ómar Ingi Magnússon hlaut titilinn Íþróttamaður ársins, annað árið í röð. Lið Vals, meistaraflokkur karla í handknattleik var kjörið Lið ársins og Þjálfari ársins var kjörinn Þórir Hergeirsson handknattleiksþjálfari.

Ólympíufjölskylda ÍSÍ

Breytingar hafa orðið á samsetningu Ólympíufjölskyldu ÍSÍ frá síðasta þingi. Þrjú fyrirtæki standa nú að Ólympíufjölskyldunni, þ.e. Icelandair, Íslensk getspá og Toyota. Fyrirtækin styðja vel við bakið á starfsemi og verkefnum ÍSÍ með ýmsum hætti á hverju Ólympíutímabili. Sá stuðningur er ÍSÍ afar mikilvægur og gerir sambandinu mögulegt að bæta umgjörð ýmissa verkefna sem haldið er úti af hálfu ÍSÍ. Ólympíufjölskyldan styður meðal annars við viðburð ÍSÍ þar sem íþróttafólk sem sérsambönd ÍSÍ hafa kjörið íþróttafólk ársins í viðkomandi sérgrein, veitir viðtöku verðlaunagripum í þeim tilgangi. Ólympíufjölskyldan gefur glæsilega

50 milljarðar frá Íslenskri getspá

Eigendur Íslenskrar getspár eru stærstu og öflugustu fjöldahreyfingar íslensks samfélags, Íþróttaog Ólympíusamband Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og Ungmennafélag Íslands. Frá stofnun Getspár 1986 hafa eigendur fengið rétt tæplega 50 milljarða króna, uppreiknað miðað við vísitölu, í arðgreiðslur frá Getspá. Þetta eru fjármunir sem hafa mikla þýðingu fyrir rekstur og uppbyggingu innviða og almenna starfsemi eigenda Getspár.

Árið 2022 var besta rekstrarár Íslenskrar getspár frá upphafi.

Tekjuafgangur ársins nam rúmum

2,7 milljörðum króna. Starfsemi og verkefni ársins voru fjölbreytt og viðamikil. Gerðar voru breytingar á leikjaformúlu Lottó úr 5/40 í

5/42 og breytingar voru gerðar á EuroJackpotleiknum þannig að byrjað var að draga tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum, auk þess sem stjörnutölum var fjölgað um tvær og er því formúla leiksins 5/50 plús 2/12. Stjórnin er ánægð með þá ákvörðun sem tekin var 2013 um auknar fjárfestingar í tækninýjungum. Þær fjárfestingar hafa svo sannarlega skilað sér en áfram skal haldið í þróun stafrænnar tækni. Með nýjustu tækni og sterku markaðsstarfi fer tæplega 70% af sölu fram með netleiðum ýmiskonar. Hér er átt við internetið, appið og áskrift í gegnum netið. Árið 2022 var einnig afar gott rekstrarár fyrir Íslenskar getraunir sem greiddu tæplega 500 milljónir til íþróttamála.

Áfram störfum við í erfiðu rekstrarumhverfi vegna ólöglegrar starfsemi erlendra spilafyrirtækja hér á landi. Ekki náðist samstaða um næstu skref á íslenskum happdrættismarkaði í starfshópi sem skipaður var af þáverandi dómsmálaráðherra 2021 og koma átti með tillögur að réttarbótum í málaflokknum. Fram komu þrjú álit frá starfshópnum, eitt frá formanni starfshópsins, eitt frá Samtökum áhugafólks um spilafíkn og svo loks verðlaunagripi sem eru eignargripir þeirra sem hljóta. fjölmennasta álitið frá fulltrúum allra happdrættisfyrirtækja á íslenskum happdrættismarkaði.

Valitor, Sjóvá og Arion banka, sem voru bakhjarlar ÍSÍ í Ólympíufjölskyldunni um langt árabil, er þakkað kærlega fyrir frábært samstarf og ómetanlegan stuðning í gegnum árin.

Stjórnir og starfsfólk Getspár –Getrauna hafa staðið þétt saman í rekstri og áherslum félagana undanfarin ár og svo verður áfram. Stjórnirnar funda í hverjum mánuði og stjórnarmenn gera sér far um að fylgjast vel með rekstri og stjórnun fyrirtækjanna. Áhersla er á öflugt upplýsingastreymi til stjórnarmanna til að tryggja góða stjórnarhætti. Fulltrúar ÍSÍ í stjórn Íslenskrar getspár eru Lárus L. Blöndal og Gunnar Bragason og fulltrúi ÍSÍ í stjórn Íslenskra getrauna er Hafsteinn Pálsson. Framkvæmdastjóri Getspár –Getrauna er Stefán Konráðsson.

Stöndum saman um að verja hagsmuni íþróttahreyfingarinnar, stöndum saman um áframhaldandi þróun og nýjungar og gleymum aldrei þeim góða málsstað sem við viljum verja í þágu íþrótta, öryrkja og ungmenna.

This article is from: