1 minute read
Samskiptaráðgjafi
Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa vorið 2020 eftir að alþingi setti lög um starfið haustið 2019. Samskiptaráðgjafi hefur það markmið að auka öryggi í íþróttaog æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar.
Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegtog kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþróttaeða æskulýðsstarfs. Hjá embætti samskiptaráðgjafa starfa Sigurbjörg Sigurpálsdóttir klínískur sálfræðingur og Hjálmar Karlsson en þau hafa aðsetur í húsnæði Domus MentisGeðheilsustöðvar. Haustið 2021 stóð Sigurbjörg fyrir kynningarfundum um allt land þar sem hún kynnti starfsemi embættisins fyrir íþrótta- og æskulýðsfélögum.
Advertisement
Tilkynningar til samskiptaráðgjafa berast frá ýmsum aðilum. Árið
Ánægjuvogin
Ánægjuvogin er unnin af Rannsóknum og greiningu (R&g) fyrir ÍSÍ og UMFÍ. Rannsóknir og greining hafa lagt spurningalista fyrir nemendur í 8. - 10. bekk frá árinu
1992 í rannsókninni Ungt fólk. Í Ánægjuvoginni felst að spurningar tengdar íþróttum og íþróttaiðkun er bætt við spurningalistana. Niðurstöður Ánægjuvogarinnar hafa verið mjög jákvæðar fyrir íþróttahreyfinguna og sýna m.a. að börnum í skipulögðu íþróttastarfi líður betur, þau sofa meira, eru hamingjusamari, stunda
2022 bárust 31% tilkynninga frá einstaklingum og 69% frá félögum, regnhlífarsamtökum, sérsambandi eða sveitarfélagi. Það eru sambærilegar tölur og árið 2021 en þá bárust 36% tilkynninga frá einstaklingum en 64% frá félögum og samtökum.
Flest mál sem bárust samskiptaráðgjafa á árinu 2022 voru frá íþróttahreyfingunni eða 91%. Á árinu 2022 voru 15,5% af málum sem samskiptaráðgjafi kom að, tilkynnt til eða þegar í vinnslu hjá barnavernd. Þá voru 16,5% af málum sem samskiptaráðgjafi kom að, tilkynnt til eða þegar í rannsókn lögreglu. síður áhættuhegðun og gengur betur í námi. Í niðurstöðunum kemur einnig fram að sjáanlegur munur er á þeim börnum sem koma frá heimilum þar sem eingöngu er töluð íslenska, samanborið við börn frá heimilum þar sem einungis önnur tungumál eru töluð. Þau síðarnefndu eru mun ólíklegri til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2022 árétta mikilvægi þess að halda börnum í skipulögðu íþróttastarfi, gæta þess að íþróttir séu fyrir alla og hampa fyrirmyndum, því yfirgnæfandi meirihluti iðkenda er ánægður með íþróttafélagið sitt, þjálfarann sinn, æfingaaðstöðuna og upplifir að félagslífið utan æfinga sé gott. Í þetta sinn var landinu skipt niður í heilbrigðisumdæmi í stað íþróttahéraða og fengu öll íþróttahéruð senda til sín skýrslu fyrir sitt svæði, ásamt því að hvert íþróttafélag með fleiri en 15 iðkendur í aldurshópnum 13-15 ára fékk sérstakt blað með lykiltölum fyrir félagið.
Þjónusta samskiptaráðgjafa er gjaldfrjáls.