1 minute read

Ólympíuleikarnir í Tókýó 2020

32. Sumarólympíuleikarnir í Tókýó fóru fram 23. júlí til 8. ágúst 2021 en þeim hafði verið frestað um ár vegna COVID-19. Keppendur og aðrir þátttakendur þurftu að búa við mjög stífar reglur gagnvart aðgengi að íþróttamannvirkjum og Ólympíuþorpi, auk þess sem þau þurftu að framfylgja ströngum sóttvarnarreglum og fara daglega í COVID-19 próf. Í fyrsta sinn í sögu leikanna voru áhorfendur ekki leyfðir sem setti sinn brag á leikana. Fyrir leikana voru þátttakendur í æfingabúðum í útjaðri Tókýó, í sveitafélagi sem heitir Tama City og notuðu þar aðstöðu Kokushikan háskólans til æfinga.

Að þessu sinni tókst færri keppendum að tryggja sér þátttökurétt fyrir

Advertisement

Íslands hönd heldur en verið hefur á undanförnum leikum. Keppendur fyrir Íslands hönd voru Guðni Valur Guðnason sem keppti í kringlukasti, Anton Sveinn McKee sem keppti í 200m bringusundi, Snæfríður Sól Jórunnardóttir sem keppti í 100m og 200m skriðsundi og Ásgeir Sigurgeirsson sem keppti í loftskammbyssu.

Leikarnir voru settir föstudaginn 23. júlí 2021 og þeim slitið sunnudaginn 8. ágúst. Fánaberar Íslands á setningarhátíðinni voru þau Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn

McKee sem bæði kepptu í sundi. Snæfríður Sól sem var að keppa á Ólympíuleikunum í fyrsta skiptið bætti sinn persónulega árangur í 100m skriðsundi og endaði í 34. sæti af 52 keppendum. Þar að auki bætti hún Íslandsmetið í 200m skriðsundi þegar hún synti á 2:00,20 mínútum og hafnaði í 22. sæti af 30 keppendum. Anton Sveinn synti 200m bringusund á 2:11,64 mínútum og hafnaði hann í 24. sæti af 40 keppendum. Guðni Valur gerði því miður öll þrjú köstin sín ógild á leikunum og skotíþróttamaðurinn Ásgeir Sigurgeirsson hafnaði í 28. sæti af 36 keppendum og skoraði 570-13x.

This article is from: