1 minute read

Vetrarólympíuleikarnir í Peking 2022

24. Vetrarólympíuleikarnir fóru fram í Peking í Kína 4. - 20. febrúar 2022. Keppt var í 109 keppnisgreinum í 15 íþróttagreinum. Sumarleikarnir voru haldnir í Peking árið 2008 og varð Peking þar með fyrsta borgin til að halda bæði Vetrar- og Sumarólympíuleika.

Advertisement

Keppendur fyrir Íslands hönd í alpagreinum voru Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir og Sturla Snær Snorrason og keppendur í skíðagöngu voru Kristrún Guðnadóttir, Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen.

Þátttakendur Íslands bjuggu í tveimur þorpum en keppendur í skíðagöngu voru staðsettir í Zhangjiakou Ólympíuþorpinu og þátttakendur í alpagreinum voru staðsett í Yanqing Ólympíuþorpinu. Setningarhátíð leikanna fór fram í Hreiðrinu (Bird´s Nest) í Peking og voru fánaberar Íslands þau Kristrún Guðnadóttir og Sturla Snær Snorrason.

Vegna COVID-19 faraldursins þurftu keppendur og aðrir þátttakendur að búa við strangar sóttvarnarreglur á meðan á leikunum stóð og fara daglega í PCR próf. Sturla Snær greindist með COVID-19 snemma í ferðinni og var í einangrun í sex daga og í kjölfarið í sóttkví þar sem hann fékk að æfa og undirbúa sig fyrir leikana með því að framfylgja ströngum sóttvarnarreglum. Sturla missti af keppni í stórsvigi vegna COVID-19 en gat tekið þátt í svigi sem fór fram seinna á leikunum.

Íslenska liðið stóð sig ágætlega en hæst ber að nefna árangur Snorra Einarssonar sem náði 23. sæti í 30 km skíðagöngu sem er besti árangur Íslendings á Vetrarólympíuleikum í skíðagöngu frá upphafi. Snorri var fánaberi Íslands á lokahátíð leikanna.

This article is from: