2 minute read

Meðalhiti sólarhringsins á Korpu JH

Veður á Korpu

Meðalhiti sólarhringsins á Korpu sumarið 2007(°C). Skil milli sólarhringa eru kl. 9 að morgni. Meðalhiti sólarhringsins er meðaltal hámarks- og lágmarkshita, lesið af mælum kl. 9. Dagsetning við hitastig á við athugunardag. Það þýðir að meðaltalið á við næsta sólarhring á undan. Lágmarkshiti var leiðréttur eftir sprittstöðu lágmarksmælis eins og undanfarin 12 ár.

Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September 1. 7,6 9,9 13,9 12,9 11,6 9,4 2. 6,0 8,1 11,6 13,9 10,5 7,5 3. 6,7 4,6 12,7 15,2 13,3 10,5 4. 6,5 5,2 9,6 14,4 10,8 10,8 5. 2,2 6,9 10,9 15,7 11,6 10,5

6. -1,0 4,6 9,4 15,1 10,9 10,8 7. 0,9 5,3 11,0 13,0 11,9 12,1 8. 3,8 4,4 8,7 13,3 12,4 10,1 9. 3,2 6,6 12,3 13,3 12,5 10,0 10. 2,0 6,3 11,2 12,8 14,2 10,3 11. 0,7 3,1 10,4 13,6 14,4 9,2 12. 5,0 5,7 10,1 14,5 12,3 8,6 13. 5,2 5,4 12,4 11,9 10,4 9,5 14. 7,0 7,2 9,5 17,1 10,1 3,9 15. 5,9 4,6 9,5 14,9 10,6 6,1 16. 4,1 8,4 9,6 15,0 7,5 2,6 17. 2,0 7,8 11,0 15,0 8,7 2,1 18. 2,8 5,7 11,9 13,6 7,6 5,4 19. -1,8 7,3 11,4 12,7 11,4 7,4 20. 1,4 4,2 11,8 13,0 9,6 5,5 21. 4,9 4,1 10,9 13,6 13,9 4,3 22. 7,2 3,2 11,4 13,4 12,8 5,9 23. 7,6 4,0 10,0 15,0 11,4 6,6 24. 9,1 4,8 11,9 14,8 9,8 6,4 25. 7,1 5,1 13,4 11,2 11,2 2,4 26. 6,7 4,7 12,0 12,2 10,3 2,5 27. 7,7 4,2 11,1 11,7 8,5 8,6 28. 9,5 5,9 10,6 10,6 7,6 10,1 29. 11,7 8,4 14,7 10,9 9,9 10,5 30. 10,8 9,6 12,0 12,0 11,8 8,7 31. 10,6 11,5 10,7

Meðaltal 5,01 5,99 11,22 13,48 10,97 7,61 Hámark 14,7 17,0 21,2 22,1 19,6 13,9 Lágmark -8,7 -2,4 4,2 3,6 0,6 – 3,8

Úrkoma mm 86,6 36,2 49,9 44,5 111,9 170,9 Úrkd.≥0,1mm 23 13 13 13 17 24

Nýtanlegt hitamagn frá maíbyrjun til septemberloka var 1049 °C. Nýtanlegt hitamagn er summan af meðalhita hvers dags að frádregnum 3,0 en er 0,0 ef meðalhiti er minni en 3,0. Hitasumma þá daga, sem búveðurathugun átti að standa (15. maí-15. september), var 1332 daggráður og meðalhiti þá daga 10,8 °C. Meðalhiti þessara fjögurra mánaða árin 1981–2006 var 9,88 °C. Sumarið 2007 var því í röð hlýjustu sumra og aðeins tvisvar, árin 2003 og 2004, hefur hitinn verið hærri svo að verulega muni.

Trjágróður kringum veðurstöðina á Korpu hefur vaxið mjög á síðustu árum og hitamælar eru því í skjóli. Þegar sólfar er að sumarlagi og útræna síðdegis, mælist hámark hitans hærra á veðurstöðinni en á bersvæði. Því eru líkur á, að í þessari töflu sé hitinn ofreiknaður, einkum fyrir þá daga, þegar sólfar hefur verið eitthvað að marki.

This article is from: