2 minute read

Uppgjör á samanburði byggyrkja 1996–2007 JH

Uppgjör á samanburði byggyrkja árin 1996–2007.

Þetta uppgjör var unnið á sama hátt og undanfarin ár. Notað var gagnasafnið, sem fyrir var að viðbættum tilraunum ársins í ár. Þar með eru notaðar tölur frá 12 árum eða frá 1996 2007 að báðum árum meðtöldum.

Samspil stofna og staða hefur verið reiknað sem hending og er ríkjandi í skekkju á samanburði milli stofna. Tilraunum með mismunandi tilraunaskekkju hefur verið gefið mismikið vægi líkt og tilraunir með mikla skekkju hefðu færri samreiti en hinar. Yrkjunum er raðað eftir besta línulegu mati á uppskeru (BLUE). Nánari lýsingu á úrvinnslu er að finna í jarðræktarskýrslum áranna 1994 og 1995. Sexraðayrkin koma fyrir í 63 tilraunum í þessu uppgjöri, en tvíraðayrkin 86. Þessir tveir flokkar eru eins og fyrr gerðir upp hvor í sínu lagi. Ástæðan er sú, að röðunin er gjörólík eftir landshlutum. Þannig eru sexraðayrkin oftast efst norðanlands en neðst syðra. Í sameiginlegu uppgjöri hefði skekkjan því orðið úr hófi mikil. Í uppgjöri er sleppt þeim tilraunum, þar sem fokskemmdir höfðu veruleg áhrif á mælda uppskeru af sexraðayrkjum. Alls komu til röðunar 50 tvíraðayrki og 42 sexraða. Niðurstöður fylgja hér í töflu. Sleppt er að nefna ýmsar kynbótalínur, íslenskar og erlendar, sem ekki hafa skilið eftir sig spor og hafa ekki verið ræktaðar utan tilrauna. Athuga ber samt, að raðtalan er látin halda sér. Þremur nöfnum hefur verið breytt frá fyrri árum. Þau yrki, sem áður hétu Skúmur I, II og III, heita nú í sömu röð Gamliskúmur, Lómur og Skúmur.

Helstu byggyrki í tilraunum 1996–2007 Upp- Skekkja Fjöldi skera samanb. tilhkg/ha v/st.afbr. rauna Upp- Skekkja Fjöldi skera samanb. tilhkg/ha v/st.afbr. rauna

Sexraðayrki 1. Lómur 49,7 1,65 20 22. Olsok 43,2 1,12 54 2. Skúmur 49,4 1,47 26 24. Habil 42,3 1,97 10 3. Gamliskúmur 48,9 1,48 26 25. Gaute 42,1 1,48 23 4. Erkki 47,8 3,33 3 29. Bamse 41,2 3,18 6 5. Kunnari 47,2 3,33 3 30. Heder 41,1 1,97 10 6. Judit 47,0 1,67 18 32. Arve 40,8 – 59 8. Pilvi 46,1 3,33 3 33. Voitto 40,6 3,33 3 10. Ven 45,5 1,34 30 35. Rolfi 40,0 1,35 27 13. Tiril 44,5 1,34 30 38. Edel 37,9 2,14 6 20. Jyvä 43,4 2,30 7 39. Artturi 37,2 2,48 8 21. Lavrans 43,3 1,24 37 42. Hrútur 31,5 1,60 16

Tvíraðayrki 1. Teista 44,0 1,35 31 34. Gold. prom. 38,7 1,47 17 2. Kría 43,3 1,24 49 35. Kinnan 38,4 1,75 7 12. Lóa 41,0 1,45 21 40. Mari 37,9 13 15. Saana 40,8 1,35 24 42. Sunnita 37,7 1,32 18 16. Mitja 40,7 1,88 8 43. Filippa 37,4 1,16 62 19. Barbro 40,5 1,88 8 44. Minttu 37,2 2,51 3 25. Skegla 39,5 1,19 62 45. Gunilla 36,8 1,26 25 26. Rekyl 39,2 1,39 22 47. Meltan 36,0 2,03 4 32. Rjúpa 39,0 1,24 29 49. Olve 34,2 1,77 6

This article is from: