Viðhorfskönnun foreldra vegna daggæslu

Page 1

Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar

Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna ‐ skýrsla um skrifleg svör Helga Dís Sigurðardóttir

2010


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna

Efnisyfirlit Inngangur ............................................................................................................................................ 3 Opnar spurningar ................................................................................................................................ 3 Greining ........................................................................................................................................... 4 Notkun myndefnis ............................................................................................................................... 4 Ábendingar til skólaskrifstofu .............................................................................................................. 5 Uppsetning spurningalista ............................................................................................................... 5 Daggæslufyrirkomulagið ................................................................................................................. 5 Samantekt ........................................................................................................................................... 5 Dagforeldrið..................................................................................................................................... 5 Starfið .............................................................................................................................................. 6 Líðan barnsins .................................................................................................................................. 6 Heilsa ............................................................................................................................................... 6 Uppeldisþættir ................................................................................................................................ 7 Öryggi .............................................................................................................................................. 7 Annað og ábendingar til skólaskrifstofu .......................................................................................... 7 Notkun myndefnis í daggæslu ......................................................................................................... 7 Lokaorð ................................................................................................................................................ 7

2


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna

Inngangur Í mars var öllum foreldrum daggæslubarna í Mosfellsbæ sendur tölvupóstur með hlekk inn á spurningakönnun um ýmislegt er varðar viðhorf þeirra og upplifanir í tengslum við daggæslu barna sinna. Flestar spurningarnar í könnuninni voru með fyrirfram ákveðna svarmöguleika, en í sjö liðum gafst foreldrum tækifæri á að tjá viðhorf sín með eigin orðalagi. Hér á eftir verður gerð grein fyrir þessum liðum, hve margir foreldrar svöruðu hverjum lið og hvernig greiningu var háttað. Gerð er grein fyrir áhersluatriðum í svörum foreldra varðandi hvert og eitt dagforeldri, sérstakur kafli er tileinkaður spurningu um notkun myndefnis og annar er tileinkaður skilaboðum til skólaskrifstofu. Að lokum fer stutt samantekt.

Opnar spurningar Fyrst ber að nefna þrjár opnar spurningar sem fram komu í lok könnunarinnar. Þær voru númer 37 – 39 og voru svohljóðandi: • • •

Hvað ert þú sérstaklega ánægð (‐ur) með hjá dagforeldrinu? Eru einhver atriði sem þér finnst að betur mættu fara hjá dagforeldrinu? Er eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri? Ef svo er, nýttu dálkinn hér fyrir neðan fyrir slíkar athugaemdir:

72 svör bárust við fyrstu spurningunni, 63 við þeirri næstu en 29 athugasemdir við síðasta liðnum. Enn fremur voru framar í könnuninni opnar spurningar og opnir svarmöguleikar sem tengdust öðrum þáttum könnunarinnar. Þannig var í spurningu 15 spurt: Hvernig hefur gengið að leysa úr þeim vafaatriðum eða ágreiningsmálum sem upp hafa komið á milli þín og dagforeldris? og í framhaldi gafst foreldrum kostur á að svara eftirfarandi spurningu (nr 16) með eigin orðalagi: •

Viltu koma einhverju á framfæri varðandi úrlausn vafaatriða eða ágreiningsmála á milli þín og dagforeldris?

25 foreldrar svöruðu þessari spurningu. Einnig var spurt hversu mikla foreldrar teldu notkun sjónvarpsefnis í daggæslunni, í klukkustundum talið. Í framhaldi var foreldrum boðið að koma skoðunum sínum á notkun sjónvarpsefnis á framfæri með skriflegum svörum við eftirfarandi spurningu (nr. 25): •

Hvað finnst þér um notkun sjónvarps‐ eða myndefnis í daggæslu?

11 þátttakendur gerðu þessari spurningu skrifleg skil. Að lokum var vikið að líðan barns í daggæslu og upplifun foreldra með eftirfarandi spurningu: • •

Merktu við þá eftirfarandi fullyrðingu sem þér finnst eiga best við líðan barnsins þíns í daggæslunni ‐ eða skrifaðu þína eigin lýsingu: Merktu við þá fullyrðingu sem á best við upplifun þína af daggæslu barnsins þíns ‐ eða skrifaðu þína eigin lýsingu:

2 foreldrar skrifuðu eigin lýsingu við fyrri liðnum og 4 við þeim síðari.

3


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna

Greining Þegar farið var yfir svörin með kerfisbundnum hætti og þau greind eftir efnislegu innihaldi komu í ljós fjölmargar áherslur sem til hægðarauka voru greindar í 6 höfuðáhersluflokka. Þó að vissulega megi til sanns vegar færa að starf dagforeldris sé þess eðlis að ekki sé með góðu móti unnt að aðskilja hina fjölmörgu þætti starfsins hverja frá öðrum er sú flokkun sem hér er stuðst við fyrst og fremst ætluð til hægðarauka og til þess að greiða fyrir markvissri notkun athugasemda til starfsþróunar. Fyrst ber að nefna flokk sem kenndur er við dagforeldrið sjálft, en þar er vísað til ýmissa þátta er varða eiginleika dagforeldrisins og samskipta þess við foreldra. Næstur er flokkur sem í meginatriðum snýst um starfið í daggæslunni, en þar er til að mynda rætt um aðstöðu, hin fjölmörgu verkefni dagforeldrisins og ýmislegt er varðar innra starf, skipulag og ytri ramma daggæslunnar. Líðan barnsins var foreldrum að vonum hugleikin og þess má geta að margir foreldrar höfðu orð á því að ánægja barns þeirra væri grundvallarforsenda ánægju þeirra sjálfra. Því er einn flokkurinn tileinkaður líðan. Einnig nefndu margir foreldrar mataræði og útivist sem hér er flokkað saman undir titilinn Heilsa. Einn flokkur er tileinkaður öryggismálum og að lokum voru svör og framlög sem ekki gátu með góðu móti talist til neins af ofangreindum flokkum sett saman í flokkinn Annað. Til glöggvunar er hér listi yfir flokkana: 1. Dagforeldri (t.d. persónulegir eiginleikar, samskipti o.s.frv.) 2. Starfið (t.d. aðstaða, verkefni dagforeldris, ýmislegt er varðar skipulag, innra starf og ytri ramma) 3. Líðan barnsins (þættir er lúta að andlegri velferð barnsins) 4. Heilsa (t.d. mataræði, hreyfing, útivist o.s.frv.) 5. Uppeldisþættir (markviss örvun, kennsla o.s.frv.) 6. Öryggi (þættir er lúta að öryggi barnsins) 7. Annað (ýmsar aðrar tilfallandi athugasemdir sem ekki falla undir ofangreinda flokka)

Notkun myndefnis Eins og fram kom hér að ofan gáfu 11 foreldrar skrifleg svör þegar spurt var hvað þeim finndist um notkun sjónvarps‐ eða myndefnis í daggæslu. Þar af gáfu átta foreldrar þau svör að myndefni væri ásættanlegt í hófi. Af þeim tók eitt foreldri fram að ekki væri ásættanlegt að hafa myndefni í gangi á matmálstíma, annað foreldri sagði eðlilegt að miða við að klukkustund á dag væri hámark og enn annað foreldri taldi eðlilegt að haft væri samráð við foreldra um hve hátt hlutfall myndefnis ætti að vera í daggæslunni. Fimm tóku fram að það skipti máli að um vandað barnaefni væri að ræða, meðal þeirra orða sem notuð voru til að lýsa því voru „þroskandi“ og „uppbyggilegt“. Tveir nefndu Söngvaborg í þessu samhengi og Latibær var einu sinni nefndur. Það sjónarmið kom einnig fram að ekki væri ásættanlegt að dagforeldri „notaði sjónvarpið sem barnapíu“. Að lokum sagði eitt foreldri myndefni einfaldlega ekki eiga heima í daggæslunni.

4


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna

Ábendingar til skólaskrifstofu Gróflega má skipta þeim athugasemdum og svörum foreldra sem beint var til skólaskrifstofu í tvennt. Annars vegar er um að ræða athugasemdir um uppsetningu spurningalistans og hins vegar ábendingar um dagforeldrafyrirkomulagið.

Uppsetning spurningalista Við hönnun spurningalistans var ætlunin að gera hann þannig úr garði að ef að svör þátttakenda við ákveðnum spurningum væru á þann veg að næsta spurning ætti ekki við myndi þátttakandi sjálfkrafa færast yfir þá spurningu og í þá næstu. Hins vegar urðu þau mistök við síðustu breytingar sem gerðar voru á spurningalistanum áður en hann varð sendur út að þessi eiginleiki varð óvirkur á einum stað. Þannig fengu foreldrar sem ekki höfðu átt í ágreiningi við dagforeldra samt sem áður spurningu um hvernig gengið hefði að leysa ágreiningsmál. Tveir gerðu athugasemd við þetta. Einnig kom fram athugasemd um svarmöguleika. Sú leið var vísvitandi farin við hönnun spurningalistans að gefa ekki alls staðar upp svarmöguleika á borð við „veit ekki“ og „tek ekki afstöðu.“ Hins vegar var í langflestum tilfellum mögulegt að sleppa því að svara spurningum. Eitt foreldri gerði þó athugasemd við þetta og taldi að til bóta hefði verið að hafa fleiri svarmöguleika sem ekki krefðust þess að foreldrar tækju beina afstöðu.

Daggæslufyrirkomulagið Fram komu þrjár athugasemdir sem lúta að fyrirkomulagi vistunar fyrir þann aldurshóp sem almennt er í daggæslu. Ein snýst um verktakafyrirkomulag, önnur er tillaga um að þessum aldurhópi verði séð fyrir leikskólavistun og sú síðasta er ósk um hærri greiðslu frá bænum. Foreldri sem sjálft segist vera verktaki veltir vöngum yfir því hvort líta megi á dagforeldri sem verktaka og ef svo sé hvort eðlilegt sé að foreldrar greiði fyrir þá daga sem dagforeldrið forfallast vegna veikinda. Annað foreldri hefur einnig áhyggjur sem tengjast veikindaforföllum dagforeldris og leggur til að Mosfellsbær hverfi frá daggæslufyrirkomulaginu og taki upp leikskólafyrirkomulag fyrir þennan aldurshóp. Rökin sem nefnd eru fyrir þessu eru annars vegar að draga úr veikindafrídögum foreldra frá vinnu og hins vegar að bjóða upp á 9 klukkustunda vistun í stað þeirra 8 klukkustunda sem almennt er boðið upp á í daggæslu. Að lokum kemur fram hugmynd um hærri greiðslu frá bænum. Það er rökstutt á þann hátt að það myndi greiða foreldrum leiðina út á vinnumarkaðinn.

Samantekt Þeir 93 foreldrar sem alls tóku þátt í könnuninni gáfu samtals 206 ómetanleg, skrifleg svör við opnu spurningunum. Hér á eftir fer stutt samantekt á svörum þeirra.

Dagforeldrið Almennt eru foreldrar mjög ánægðir með daggæsluna og fara hlýjum orðum um persónulega eiginleika dagforeldranna. Í því samhengi er langoftast minnst á umhyggjusemi dagforeldris, auk þess sem hlýja og jákvæðni fylgja fast á eftir. Í ljósi gilda bæjarfélagsins er óneitanlega ánægjulegt að tvö

5


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna

af fjórum komi svo skýrt fram hjá dagforeldrum bæjarins. Virðing, sem einnig er meðal gilda Mosfellsbæjar, kemur einnig fyrir í lýsingum foreldra. Foreldrar fara mörgum orðum um samskiptafærni dagforeldra og ljóst er að þeim er mjög mikilvægt að samskipti gangi vel fyrir sig. Margir dagforeldrar fá hrós fyrir að standa sig vel á þessu sviði, en athygli vekur að brestir í samskiptum eru einnig það helsta sem nokkrir foreldrar gagnrýna í fari dagforeldra. Í tveimur tilfellum greina foreldrar frá því að þeir hiki við að halda óskum sínum um umbætur á lofti vegna ótta við ágreining.

Starfið Margir foreldrar gera aðstöðu hjá dagforeldrinu að umfjöllunarefni sínu. Þannig er sumum hrósað fyrir góða og snyrtilega aðstöðu, jafnt úti sem inni. Fram koma áhyggjur foreldra af rými innandyra og einnig koma fram gagnrýnisraddir á slæma aðstöðu utan dyra, bæði hvað varðar útiveru barna og geymslu vagna. Skipulag er foreldrum einnig ofarlega í huga. Á meðan sumir dagforeldrarnir fá hrós fyrir skýrt og gott dagskipulag kemur einnig fram óánægja foreldra þegar þeir telja dagskipulag laust í reipunum eða að þeir fái ófullnægjandi upplýsingar um það. Aðgengi foreldra að upplýsingum ber einnig oft á góma, foreldrar eru mjög þakklátir þegar þeim finnst aðgengi að upplýsingum gott. Á sama hátt er algengt að þeir foreldrar sem upplifa að aðgengi að upplýsingum sé að einhverju leyti ábótavant óski eftir því að það verði bætt. Meðal upplýsinga sem foreldrar nefna að þeir vilji hafa greiðan aðgang að eru matseðill fram í tímann, upplýsingar um hvernig barnið borðar yfir daginn, upplýsingar um svefntíma barnsins og upplýsingar um líðan þess. Heimasíður dagforeldra ber á góma, bæði kemur fram ánægja þar sem slíkt fyrirkomulag er fyrir hendi og ósk um að því verði komið á þar sem það er ekki fyrir hendi. Forföll og frídagar dagforeldra eru mörgum foreldrum ofarlega í huga og ljóst að nokkurrar óánægju gætir í þeim tilfellum þegar fjarvera dagforeldris er mikil. Í einhverjum tilfellum óska foreldrar eftir því að dregið verði úr notkun myndefnis í daggæslunni og nokkrir óska eftir lengri vistunartíma. Í einu tilfelli kom einnig fram óánægja yfir því að samstarf tveggja dagforeldra hafi ekki verið kynnt fyrir foreldrum í upphafi.

Líðan barnsins Aðeins ein gagnrýnin athugasemd barst um líðan barnsins, þar sem talað er um að tiltekið barn hafi oftar en einu sinni brunnið á bleyjusvæði í daggæslunni og þar af leiðandi ekki liðið vel. Einnig kemur fram að einu barninu virðist almennt ekki líða vel í daggæslunni en foreldrar eru þó ánægðir með dagforeldrið og virðast ekki telja það ábyrgt fyrir líðan barnsins. Að öðru leyti eru foreldrar sammála um að börnunum líður vel í daggæslunni. Í mörgum tilfellum var nefnt þessu til stuðnings að börnin sýndu jákvæð viðbrögð þegar þau hittu dagforeldrið, hlökkuðu jafnvel til að fara í daggæsluna og væru glöð og sátt þegar þau væru sótt í lok dagsins.

Heilsa Fullkominn samhljómur er í svörum foreldra hvað varðar heilsutengdar áherslur. Foreldrar vilja að börnin fái mikla útivist og hollan mat. Þannig er dagforeldrum sem bjóða upp á mikla útivist og hollan mat óspart hrósað og á móti kemur eindregin gagnrýni í þeim tilfellum sem foreldrum finnst sem eitthvað vanti upp á þessa þætti.

6


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar Könnun á viðhorfum foreldra daggæslubarna

Í nokkrum tilfellum eru foreldrar hjá sama dagforeldri þó ekki sammála og fyrir kemur að sama dagforeldri fær bæði hrós fyrir mikla áherslu á útivist og athugasemd um að auka mætti útivist. Svipaður skoðanamunur á ívið flóknara málefni kemur fram hjá dagforeldri sem annars vegar fær hrós fyrir að taka tillit til óska foreldra um takmörkun á útiveru barns eftir veikindi og hins vegar athugasemd þar sem bent er á að slík greiðvikni komi niður á hinum börnunum sem þá fá ekki heldur að njóta útiveru.

Uppeldisþættir Foreldrar kunna vel að meta starf sem markvisst ýtir undir þroska barna þeirra. Algengast var að söngur með börnunum væri nefndur sem dæmi um eftirbreytnivert uppeldisstarf, en margir foreldrar minnstust einnig á lestur. Að auki var minnst á aga, stuðning, málörvun, þroskandi leiki og skapandi verkefni á borð við myndlist og föndur.

Öryggi Almennt virðast foreldrar sáttir við öryggi barna sinna í daggæslu. Þó kemur fram mjög eindregin gagnrýni á svefnaðstöðu í einni daggæslunni. Þar er greint frá því að börn séu látið sofa í vögnum úti á bílastæði og að ekki þurfi mikið út af að bera til þess að þarna verði alvarlegt slys og ljóst er af ummælum foreldra að þeir hafa af þessu þungar áhyggjur. Loks er í einu tilfelli minnst á að tilfinningalegt öryggi barns sé með besta móti í daggæslunni.

Annað og ábendingar til skólaskrifstofu Eitt foreldri lýsir almennri óánægju með daggæsluna. Athugasemdir eru einnig gerðar við fyrirkomulag könnunarinnar, þar sem annars vegar er réttilega gagnrýndur galli í framsetningu og hins vegar er gerð athugasemd við svarmöguleika. Fram koma vangaveltur um verktakafyrirkomulag dagforeldra, ósk um leikskólavistun fyrir þann aldurshóp sem nú nýtur daggæslu og ósk um hærri greiðslu frá sveitarfélaginu.

Notkun myndefnis í daggæslu Eins og fram kom í umfjöllun um starfið hafa nokkrir foreldrar orð á því að notkun myndefnis sé of mikil í daggæslu barna þeirra. Í sérstakri opinni spurningu um viðhorf foreldra til notkunar myndefnis í daggæslu kemur fram að almennt virðast foreldrar telja notkun myndefnis ásættanlega í daggæslu innan ákveðinna marka. Foreldrar leggja einnig nokkra áherslu á að um sé að ræða vandað myndefni. Eitt foreldri telur þó myndefni ekki eiga heima í daggæslu yfir höfuð.

Lokaorð Það er þakkarvert hve fúsir foreldrar daggæslubarna í Mosfellsbæ hafa verið til þess að gefa dagforeldrum og skólaskrifstofu gagnlegar upplýsingar um daggæsluna frá sínum sjónarhóli. Séð verður til þess að allir dagforeldrar fái þær upplýsingar um daggæsluna er þá varða um leið og leitast er við eftir fremsta megni að gæta trúnaðar við foreldra og veita dagforeldrum ekki upplýsingar sem hægt er að rekja til einstakra foreldra. Í sameiningu munu skólaskrifstofa og dagforeldrar bæjarins nýta þær dýrmætu upplýsingar sem foreldrar hafa látið þeim í té til þess að bæta um betur og byggja upp enn betri þjónustu við daggæslubörn og foreldra þeirra.

7


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.