Fréttabréf 2 tbl.

Page 1

Fréttabréf 2. tbl. 21. árg. maí 2010

Opin kerfi í 25 ár!

Opin kerfi opna glæsilega tölvuverslun að Höfðabakka 9 Sjá nánar á baksíðu

Nýjar fartölvur í fyrirtækjalínu HP bls. 4 Sigurjón Sindrason lítur um öxl bls. 7 SharePoint Saturday bls. 8 Forstjórar Microsoft, HP og Cisco bls. 14


2

Frá forstjóra Þó eldfjöll með óþjála nafngift og rannsóknarskýrsla í 9 bindum hafi fengið mikla athygli og varpað skugga á margt síðustu mánuði þá fylgir sumar ávallt vetri. Það er því viðeigandi að hefja leiðarann á að óska öllum nær og fjær gleðilegs sumars. Árið 2010 fer vel af stað hjá Opnum kerfum. Vörusala notendabúnaðar er umfram áætlanir og sala miðbúnaðar í gangverki kerfisrýma er vel á áætlun. Fyrsti fjórðungur hefur einkennst af mikilli eftirspurn eftir sérfræðiþekkingu og þjónustulausnum. Sérfræðingar félagsins hafa unnið þétt með viðskiptavinum að verkefnum sem ýmist eru ætluð til að styrkja stoðir í rekstri, eða að hámarka arðsemi fjárfestinga undanfarinna missera. Það er einkar ánægjulegt að finna þennan meðbyr og er hann staðfesting á að áherslur félagsins eru réttar og lausnamengi þess vel framsett. Opin kerfi halda ótrauð áfram og eru staðráðin í að berjast til sigurs í þessu árferði. Undanfarið hafa bæst í hópinn fjölmargir nýir starfsmenn sem búa yfir sérþekkingu sem efla mun breiðari áherslur hvort sem litið er til nálgunar á heimilismarkaði eða í ráðgjöf og þjónustu við núverandi og væntanlegt lausnamengi félagsins. Innri kerfi og skipulag eru einnig í sífelldri skoðun svo þau styðji betur við starfsemi félagsins. Við erum staðráðin í að standa undir því trausti sem sett er á okkar herðar og einkunnaorð okkar verða „til þjónustu reiðubúin“. Útlit fyrir annan fjórðung gefur til kynna að hann verði jafn erilsamur og undangengnir fjórðungar. Vissulega er víða erfitt og margir viðskiptavinir hafa þurft að þola skerðingu í sínum rekstri. Fjölmargir viðskiptavinir félagsins eru þó að fara út í flókin og krefjandi verkefni þar sem reyna mun á breiða sérþekkingu Opinna kerfa og öflugt bakland birgja. Verkefnastaðan hjá félaginu endurspeglar mikilvægi upplýsingatækninnar í starfsemi íslenskra félaga og þor og dug þeirra sem þeim málum stýra. Opin kerfi fagna 25 ára afmæli sínu þann 8. maí nk. og er áfanganum fagnað með ýmsum hætti. Fyrir fyrirtækjamarkað ber hæst afmælisráðstefna þar sem yfirstjórnendur lykilbirgja flytja boðskap um strauma og stefnur í upplýsingatækni og hvernig þessi stærstu upplýsingatæknifyrirtæki heimsins sjá íslenska markaðinn þróast næstu árin. Fyrir heimilismarkaðinn mun félagið opna nýja glæsilega sérverslun með tölvubúnað. Öflug sókn á nýjan markað verður markaðssett undir merkinu OK búðin og mun aðgreiningin fyrst og fremst felast í gæðum og þjónustu. Það fréttabréf sem þú ágæti lesandi ert með í höndunum er afmælisútgáfa. Það er í blaðsíðum talið helmingi lengra en hefðbundið fréttabréf en það var samt jafn flókið að ákveða hvaða fréttnæmu þætti ætti að fjalla um í þetta skiptið. Ástæðan er einföld, það er af svo mörgu að taka hjá lifandi og öflugu félagi. Við erum þakklát fyrir að skila fjárhagslega góðri afkomu sem gerir okkur kleift að standa við okkar skuldbindingar og við fjárfestum í nýrri markaðssókn með birgjum og samstarfsaðilum til að efla félagið enn meir. Saga Opinna kerfa er mikið ævintýri þar sem uppbygging og árangur félagsins er verk fjölmargra frábærra starfsmanna sem hafa lagt sig alla fram að veita góða þjónustu og vinna vel saman. Sumarið er tíminn og það verður skemmtilegt og spennandi að taka þátt í að skrifa næstu kafla í sögu félagsins.

Með kveðju Gunnar Guðjónsson

2

Hvar er hann nú? Fyrir 20 árum vöktu auglýsingar Opinna kerfa, sem þá hétu HP á Íslandi, mikla athygli. Lítill snáði, Júlíus Bjarnason, þá fimm ára, lék þar aðalhlutverkið undir yfirskriftinni: Fimm ára með fimmtíu ára reynslu. Okkur lék forvitni á að vita hvar Júlíus væri staddur núna tuttugu árum síðar og fengum hann því í heimsókn og endurnýjuðum kynnin. Júlíus stundar nú nám til B.Sc. gráðu í rafmagnstæknifræði við Háskólann í Reykjavík og stefnir að útskrift árið 2012. Hann lauk rafvirkjanámi frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og starfrækir fyrirtæki ásamt tveimur öðrum sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu á díóðuperum, www.diodur.is.

Júlíus Bjarnason 25 ára heldur á fréttabréfi Opinna kerfa þar sem mynd af honum, þá 5 ára, birtist árið 1990.

Arion banki og Opin kerfi skrifa undir Cisco samning Arion banki og Opin kerfi ehf. skrifuðu nýlega undir samning um kaup Arion banka á þjónustusamningum fyrir Cisco netbúnað bankans. Með þessum samningi er rekstraröryggi búnaðarins aukið og niðritíma haldið í lágmarki. Samningurinn gerir Arion banka kleift að þróa rekstur sinn í síbreytilegu umhverfi og áherslum auk þess sem hann eykur verðgildi Cisco búnaðar Arion banka með lengri líftíma. Cisco samningar Opinna kerfa eru hluti af mikilvægri heildarþjónustu við viðskiptavini. Opin kerfi bjóða fyrirtækjum sérstaklega hagstæð kjör á Cisco samningum þessa dagana, samningum sem tryggja fyrirtækjum útskipti á biluðum vélbúnaði á lágmarks viðbragði, ásamt aðgengi að fyrsta flokks tækniþjónustu hjá Ok/Cisco TAC.

Anna Lovísa Þórsdóttir viðskiptastjóri þjónustusamninga hjá Opnum kerfum veitir allar nánari upplýsingar um Cisco samninga.


Á tímamótum Það er margs að minnast þegar horft er til baka. 25 ár eru í raun langur tími í rekstri fyrirtækja á Íslandi. Við höfum upplifað bæði meðvind og mótvind á þessum tíma. Fyrirtæki eins og Opin kerfi þróa með sér fyrirtækisanda sem skiptir miklu máli þegar glímt er við aðstæður eins og nú eru.

Það að starfsfólk starfi þétt saman, fagni sigrum saman og tileinki sér jákvætt viðhorf til þeirra verkefna sem taka þarf á er forsenda góðs árangurs. Mikil aðlögunarhæfni starfsmanna á undanförnu ári hefur verið til fyrirmyndar, en margar breytingar voru gerðar til að aðlaga reksturinn að breyttum aðstæðum. Samskipti við lykilbirgja hafa verið mjög góð undanfarin ár. Stuðningur Hewlett Packard, Microsoft og Cisco við Opin kerfi og þá um leið íslenska markaðinn hefur verið forsenda þess að félagið hefur náð góðum rekstrarárangri á árinu 2009. Velta félagsins var um 3.6 milljarðar króna og rekstrarhagnaður tæpar 140 milljónir króna. Í gegnum tíðina hefur viðskiptavinum félagsins fjölgað jafnt og þétt. Mjög góð þekking starfsmanna félagsins og samkeppnisfær verð á þeim búnaði sem boðinn er skiptir miklu máli. Traust milli viðskiptavina og starfsmanna er hins vegar lykilatriði í því að geta viðhaldið viðskiptasambandinu. Það tekur tíma að byggja upp slíkt traust. Starfsmenn Opinna kerfa og eigendur félagsins munu hér eftir sem hingað til leggja sig alla fram við að vera traustsins verðir. Kveðja, Frosti Bergsson

Ásta Vilborg Njálsdóttir

Hjalti Ævarsson

Frosti Bergsson

Gunnar Þór Friðleifsson

n

rsso Örn Svava

Árni Magnússon

Opin kerfi fá vottunina „OCS 2007 R2-Ready Voice partner for Microsoft Unified Communication“ Opin kerfi fá vottunina „OCS 2007 R2-Ready Voice partner for Microsoft Unified Communication“. Vottunin kemur í kjölfar yfirgripsmikillar úttektar sem Microsoft gerir á þekkingu hjá starfsmönnum og innleiðingar á lausninni samkvæmt bestu venjum í innra umhverfi Opinna kerfa. Þessi vottun staðfestir þekkingu Opinna kerfa á Office Communication Server R2 lausninni með sérstakri áherslu á símkerfishlutann og samþættingu við símkerfi. Opin kerfi hafa unnið markvisst að því að byggja upp djúpa þekkingu á samskiptalausnum frá Microsoft á undanförnum misserum og hafa tekið þátt í á annan tug innleiðinga á OCS.

3


Nýjar fartölvur í fyrirtækjalínu HP HP kynnti fyrir stuttu tvær nýjar línur fartölva í fyrirtækjalínu HP. Annars vegar HP ProBook B línuna og hinsvegar uppfærða HP EliteBook línuna.

HP kynnti einnig fyrst allra tölvuframleiðenda nýja tækni í fartölvurafhlöðum sem eykur endingu þeirra margfalt í samanburði við hefðbundnar rafhlöður. HP Longlife rafhlaðan ber þriggja ára ábyrgð og hægt er að nota hana með öllum HP ProBook B og EliteBook fartölvulínum ásamt nokkrum eldri gerðum.

Það hefur verið keppikefli HP í áratugi að bjóða lausnir sem auðvelda vinnu og auka afköst, hvort sem er í véleða hugbúnaði. Það kemur því ekki á óvart að í nýju fartölvulínum HP er að finna margar nýjungar því tengdu. Það má segja að sú breyting sem nú varð á fartölvunum nú sé ein sú mesta s.l. 5 ár. Einhverjir gætu átt erfitt með að sjá muninn með berum augum en flestir finna hann þegar vélarnar eru prófaðar.

Skjáirnir í þessum nýju línum eru allir HD LED baklýstir sem bæði eykur skerpu og litadýpt auk þess sem LED skjáir þurfa umtalsvert minni orku en eldri gerðir. Fartölvurnar eru einnig búnar nýrri og hraðvirkari skjátengitækni, svokallað Displayport, sem bæði getur flutt hljóð og mynd.

HP EliteBook 2540p

HP hefur ávallt lagt mikið upp úr notagildi og öryggi sem sjá má í þessum nýju línum enda búnar öflugum öryggisbúnaði og hlaðnar hugbúnaði sem eykur framleiðni notenda og dregur úr kostnaði við rekstur og viðhald. Af öryggisbúnaði má helst telja TPM 2,1 öryggiskubb, HP Protect Tools sem heldur utan um helstu öryggismöguleikana, HP SpareKey sem aðstoðar við að endurheimta gleymd lykilorð, HP Disk og File Sanitizer sem býður örugga gagnaeyðingu og svo mætti lengi telja. Ýmis hugbúnaður, sem aðstoðar notendur við vinnu sína er einnig til staðar, svo sem HP QuickLook 3 og HP QuickWeb sem gefur kost á að skoða tölvupóst, dagatal, tengiliði, Internet og fleira án þess að ræsa upp stýrikerfi tölvunnar.

Meðal helstu kosta allra þeirra nýjunga sem finna má í fartölvunum er að ná má fram frábærri rafhlöðuendingu eða allt að 11 klst. og 45 mínútum og ef notuð er aukarafhlaða má lengja þann tíma í allt að 23 klst. sem er afar hentugt fyrir þá sem eru mikið á ferðinni.

HP ProBook 6540b

Í HP Probook B línunni kynnti HP bæði 14“ og 15,6“ fartölvur. Þær eru einstaklega hagkvæmar og framleiddar með allar helstu þarfir fyrirtækja í huga með tilliti til tækni, afls og kostnaðar. Við hönnun og framleiðslu HP EliteBook línunnar var haft í huga afl, áreiðanleiki og styrkur enda uppfyllir línan m.a. hernaðarstaðal bandaríska hersins um titring, ryk, raka, notkun í hæð sem og notkun við háan og lágan hita. Hægt er að fá þær í fjórum skjástærðum, 12“ til 17“, sem grafískar vinnustöðvar og öflugar fyrirtækjatölvur. Þessar vélar er jafnframt hægt að fá með innbyggðum 3G stuðningi sem eykur hreyfanleika til muna.

4

HP EliteBook 8540p

Nánari upplýsingar veitir Sævar Haukdal í síma: 570 1000 (saevar@ok.is )


Microsoft leyfisráðgjöf Opin kerfi hafa verið einn stærsti endursöluaðili Microsoft leyfa á Íslandi um árabil og hafa á að skipa reyndum sérfræðingum sem sérhæfa sig í ráðgjöf við Microsoft leyfissamninga. Sérfræðingar Opinna kerfa aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að hámarka virði Microsoft leyfissamninga með hliðsjón af mismunandi stærð, starfsemi og aðstæðum. Með öflugu teymi sérfræðinga á öðrum sviðum s.s. HP, Cisco, Vmware og opnum hugbúnaði geta sérfræðingar Opinna kerfa veitt viðskiptavinum heildstæða ráðgjöf varðandi hagræðingu í hugbúnaðarsamningum.

Er samningsformið rétt? Er samsetningin rétt? Er samningurinn nýttur? Eru öll hlunnindi nýtt? Er möguleiki á hagræðingu í tengdum hugbúnaði? Fastgengi Microsoft á Íslandi rennur út 1. júlí 2010. Hafðu samband við sérfræðinga í tíma og fáðu ráðgjöf varðandi Microsoft samninga í gegnum ms@ok.is eða í síma 570 1000.

Við bjóðum velkomna í okkar lið: Arnar Þór Kjærnested 1.3.2010 Arnar Þór er viðskiptafulltrúi á Innkaupa– og dreifingarsviði Opinna kerfa. Hann er menntaður framreiðslumaður og hefur einnig stundað nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og í hótelrekstrarfræðum í Edinborg. Arnar starfaði áður sem rekstrarstjóri hjá NQ ehf, kom að stofnun Títan ehf og var rekstrarstjóri og eigandi Tóner.is. Arnar er starfsmönnum Opinna kerfa að góðu kunnur þar sem hann starfaði áður í 10 ár sem vörustjóri á heildsölusviði félagsins. Velkominn heim Arnar.

Heiðar Þór Guðnason 1.3.2010 Heiðar Þór er ráðgjafi og verkefnastjóri á Lausnasviði Opinna kerfa. Heiðar er rafeindavirkjameistari og hefur unnið við mörg mismunandi verkefni í tölvugeiranum, unnið með og þjónustað margvíslegan tölvubúnað og tekið þónokkur Microsoft og HP Certification próf. Undanfarið hefur Heiðar starfað fyrir rannsóknarnefnd Alþingis og var þar áður hjá Kaupþingi þar sem hann starfaði meðal annars sem forstöðumaður, kerfis – og verkefnastjóri og stýrði fjölda verkefna innanlands sem utan.

Óskar Sæmundsson 2.3.2010

Rafrænir reikningar Til stendur að Opin kerfi hætti alfarið að senda út prentaða reikninga og sendi í staðinn „græna“ reikninga í tölvupósti á PDF formi. Stefnt er að því að gera þetta í byrjun sumars. Þeim viðskiptavinum sem nauðsynlega þurfa á útprentuðum reikningum í hefðbundnum pósti að halda verður gefinn kostur á því. Ef áhugi er fyrir reikningum á öðru formi en PDF má hafa samband við okkur og við munum leitast við að leysa það. Þetta er liður í að gera Opin kerfi enn umhverfisvænni.

Nánari upplýsingar gefur fjármáladeild Opinna kerfa. í síma 570 1000

Óskar er rekstrarstjóri OK búðarinnar. Hann er stúdent af hagfræðibraut frá Verzlunarskóla Íslands ásamt því að hafa tekið Rekstrar– og viðskiptanám við Endurmenntun Háskóla Íslands. Óskar hefur töluverða reynslu af sölu– og markaðsstörfum í verslunum og starfaði áður sem bæði sölu– og verslunarstjóri hjá Bræðrunum Ormsson. Þar áður var hann verslunarstjóri hjá Outlet 10/NTC og markaðsfulltrúi hjá Sóma.

Ólafur Rúnar Sigurðsson 6.4.2010 Ólafur er sölufulltrúi í OK búðinni. Hann starfaði áður í verslunum Omnis og Hljómsýn á Akranesi. Ólafur hefur 17 ára reynslu af sölu og þjónustu á tækja- og tölvubúnaði.

Ólafur Borgþórsson 2.3.2010 Ólafur er verkefnastjóri rafrænna viðskipta. Hann er Iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla Íslands auk þess að hafa lokið tveimur árum í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Ólafur er með blandaða reynslu af rekstri, markaðs-, hugbúnaðar- og tæknimálum og starfaði áður hjá Atómstöðinni núlleinum, Fastlandi auglýsingastofu og Góðu fólki McCann Ericsson.

5


zz

Heimilislína HP Á einstaklingsmarkaði er vörulínu HP skipt upp í þrjá flokka, Compac Presario, HP Pavilion og HP Envy. Kröfuharðir notendur fartölva hafa í auknum mæli farið fram á vandaðri og glæsilegri hönnun á fartölvum og hefur HP svarað því kalli með HP Envy en nú á vormánuðum verða Opin kerfi í fyrsta skipti með HP Envy á boðstólnum en þær verða til sýnis og sölu í OK búðinni.

HP MediaSmart Server

Það eru HP Pavilion og Compaq Presaro sem eru megin uppistaða í heimilislínu HP, bæði í borðtölvum og fartölvum. Fyrir fermingar 2010 var í boði Compaq

Af hverju MediaSmart Server?

Presario borðtölva og skjár í pakka með lyklaborði og mús sem sló í gegn og seldist upp á örfáum vikum og má segja að eftirspurnin eftir borðtölvum hafi komið nokkuð á óvart. Á sama tíma var einnig boðið upp á tvær týpur af Compaq Presario fartölvum sem hvor á sinn hátt höfðu upp á flest það að bjóða sem ungir fartölvunotendur gera kröfu um í dag. Viðtökur viðskiptavina á Compaq Presario fóru jafnframt fram úr björtustu vonum.

Nú standa heimilin frammi fyrir þeirri staðreynd að gríðarlegt magn af stafrænu efni safnist upp. Heimilismeðlimir eru með fleiri og fleiri tæki og styðjast við efni á stafrænu formi, sem þarf að geyma. HP býður upp á öflugan möguleika til að halda utan um allt það stafræna efni sem fjölskyldunni fylgir ásamt því að taka afrit af öllum tölvum á einfaldan máta.

Tónlist, ljósmyndir og myndbönd eru orðin partur af okkar daglega lífi en öllu þessu efni er oft dreift um tölvur heimilisins, á lausum hörðum diskum og öðrum stafrænum miðlum heimilisins. MediaSmart Server geymir öll gögn miðlægt og hægt er að nálgast efnið úr hvaða tölvu sem er hvar sem er svo framarlega sem netsamband sé til staðar og nauðsynlegar aðgangsheimildir. MediaSmart Server virkar hvort sem er með MAC eða PC tölvum og kemur með 1 TB hörðum disk en er stækkanlegur upp í 17 TB með viðbótum. HP MediaSmart Server er því frábær kostur fyrir nútímaheimilið.

Nánari upplýsingar veita Sævar Haukdal og Ólafur Tryggvason í síma 570-1000

6


Sigurjón Sindrason lítur um öxl Samleið félaganna Sigurjón Sindrason hefur verið starfsmaður Opinna kerfa frá upphafi og því þótti tilvalið að setjast yfir kaffibolla með honum og spjalla um ferðalag síðustu 25 ára.

Leiðir Sigurjóns og Frosta Bergssonar, stofnanda Opinna kerfa, lágu fyrst saman í námi þar sem þeir voru bekkjarbræður í símvirkjafræðum. Sigurjón segist hafa verið nokkuð hamingjusamur þegar hann útskrifaðist með titilinn símvirki en þá hafi Frosti fljótt haft á orði að fyrst að þessum titli væri landað þá væri næsta skref að landa forstjóratitlinum. Sigurjón áttaði sig fljótt á því að Frosti ætlaði sér stærri hluti í framtíðinni. Þeir félagarnir fylgdust svo óbeint að næstu árin og luku báðir gráðu í tæknifræði ásamt því að fara á sama tíma í nám til Danmerkur, annar til Árósa og hinn til Óðinsvéa. Eftir námslok fór Frosti að vinna hjá Kristjáni Skagfjörð og byggði þar upp heilmikla tölvudeild á meðan Sigurjón vann hjá Norrænu eldfjallastöðinni við uppbyggingu á ýmsum mælitækjum. Það var ekki fyrr en tíu árum síðar að leiðir þeirra félaga lágu saman aftur þegar Frosti auglýsti eftir starfsmönnum til þess að byggja upp HP á Íslandi. Síðan þá hefur Sigurjón verið starfsmaður Opinna kerfa (sem fyrst hétu HP á Íslandi).

Upphafsárin

Upphafsárin voru mjög skemmtileg að sögn Sigurjóns og var stærðarmunur HP á litla Íslandi og í Danmörku oft nokkuð kómískur. HP á Íslandi var útibú frá Danmörku og á meðan Sigurjón var t.d. starfsmaður númer þrjú á Íslandi var hann starfsmaður HP númer 134.140 í heiminum. Sigurjón var sendur á margra vikna námskeið erlendis þar sem mikið var lagt upp úr hugsuninni „The HP Way“ ásamt því að læra á kerfin. Ýmsar hindranir þurfti að yfirstíga og nefnir Sigurjón eitt eftirminnilegt verkefni; „Íslenskun á laserprenturum var með fyrstu vandmálunum sem dúkkuðu upp en við þurftum að útskýra fyrir Dönunum að það væri ekki sniðugt að selja laserprentara á Íslandi sem ekki gætu prentað séríslenska stafi. Við dóum auðvitað ekki ráðalausir og hófumst handa við það að rífa hvern og einn einasta prentara í sundur með tilheyrandi mausi. Það þýddi í sumum tilfellum að losa þurfti tugi til hundruð skrúfa, taka móðurborðið út og skipta út kubbnum sem innihélt stafasett með íslensku stafasetti (PROM), lóðun ásamt smá forritunarvinnu. Þessi tímafreka lausn reddaði málunum en HP studdi að sjálfsögðu ekki við vöruna eftir að búið var að eiga við hana.“ Sama vandamál kom upp varðandi skjái og man Sigurjón vel eftir því þegar nýbúið var að selja lífeyrissjóðunum stóra móðurtölvu með 200 skjám viðsvegar um landið, að í ljós kom að íslenska þurfti skjáina. „Með sterkri liðsheild leystust allar svona nýjar áskoranir og eftir 1990 var búið að gera ráð fyrir íslenskum stöfum í HP vöruflórunni.“ Gömlu HP móðurtölvurnar entust og endast alveg von úr viti og er til skemmtileg saga frá því að þegar móðurtölva bilaði hjá hópi endurskoðenda sem höfðu fjárfest í einni slíkri ásamt fjölda skjáa nokkrum árum áður. Tilkynning barst um að tölvan hefði bilað og var okkar maður Sigurjón mættur á svæðið. Sigurjón leitaði að tölvunni en fann hana hvergi og fór að spyrjast fyrir um staðsetningu hennar. Endurskoðendurnir bentu ítrekað á skjáinn og sögðu að tölvan væri biluð en hvergi fannst móðurtölvan. Eftir langa leit og umræður kom í ljós að smíðaður hafði verið veggur utan um móðurtölvuna sem þurfti að rífa í sundur svo hægt væri að gera við vélina.

Opin kerfi í þátíð og nútíð

Sigurjón segir uppvaxtarár Opinna kerfa hafa verið ákaflega ánægjuleg þar sem góður hópur manna hafi byggt upp skemmtilegt fyrirtæki og myndað sterk vinatengsl milli starfsmanna, birgja og viðskiptavina. Velgengni Opinna kerfa hefur byggst á flötu skipulagi þar sem allir eru á jafningjagrundvelli og vinna saman óháð titlum eða verkefnum. Það eru gersemar sem ekki mega glatast. Mikil fjölskyldumenning hefur einkennt fyrirtækið alla tíð þar sem áhersla hefur verið lögð á samverustundir fjölskyldunnar og þar hefur árleg sumarferð og árshátíðir skipað stóran sess ásamt öðru. Minnisstæðust er þó líklega ferðin til New York um árið þar sem m.a. var farið í kokteil í tvíburaturnana og snætt niðri við Hudsoná. Makar og börn þekkjast orðið vel innbyrðis og því tölum við gjarnan um okkur sem OK fjölskylduna. Að lokum segir Sigurjón að það séu traustir viðskiptavinir sem standa upp úr á síðustu 25 árum. „Það er dýrmætt að hafa stofnað til langtímasambanda og gengið í gegnum súrt og sætt með viðskiptavinunum sem margir hverjir eru orðnir góðir vinir manns. Þegar nýr viðskiptavinur kemur að borðinu þá er ekki um skyndikynni að ræða heldur upphaf að lengra sambandi þar sem gagnkvæm virðing og þjónustulund er höfð að leiðarljósi.“

7


SharePoint Saturday Þann 19. febrúar sl. buðu Opin kerfi í samstarfi við NTV og Microsoft á Íslandi upp á ráðstefnuna SharePoint Saturday. Ráðstefnur undir yfirskriftinni SharePoint Saturday eru haldnar út um allan heim. Á annað hundrað gesta sóttu ráðstefnuna sem heppnaðist einstaklega vel og gafst gestum einstakt tækifæri til þess að fá djúpa innsýn í þróun, rekstur og notkun á SharePoint 2010.

Við fengum til okkar frábæra fyrirlesara að utan, þá Michael Noel frá CCO og Peter Sornat frá Avepoint sem ásamt færustu sérfræðingum Opinna kerfa sáu til þess að ráðstefnugestir höfðu bæði gagn og gaman af deginum. Þéttri fundarskrá var skipt niður í þrjú svið sem gaf gestum kost á að velja sér efni eftir áhugasviði. SharePoint kerfisstjórum gafst tækifæri til þess að kynnast "Best Practices" við hönnun, uppsetningu og rekstur SharePoint 2010 og fá innsýn í rekstur SharePoint í Virtual umhverfi. SharePoint forritarar fengu kynningu á API og forritun í SharePoint 2010 og farið var yfir hvernig hægt er að þróa "Sandboxed" lausnir í SharePoint umhverfi. SharePoint notendur sáu nýja möguleika í gagna- og skjalavinnslu í SharePoint 2010 og kynntust því hvernig innleiðing á Viðskiptagreindarlausnum í SharePoint getur bætt árangur fyrirtækja.

Penninn velur Cisco CallManager símkerfi og Peter Connects skiptiborð og þjónustuver Penninn er eitt af rótgrónustu fyrirtækjum landsins og hefur verið leiðandi í sölu á skrifstofuhúsgögnum, ritfangaog rekstrarvörum á Íslandi um árabil. Hjá Pennanum starfa um 300 starfsmenn á rúmlega 20 starfsstöðvum um allt land. Í samkeppnisumhverfi nútímans þar sem hraðinn er mikill og tíminn er af skornum skammti, er vaxandi þörf á betri samskiptaleiðum, aukinni hagræðingu og einfaldari viðskiptaferlum. Með þessi markmið að leiðarljósi hefur Penninn fest kaup á Cisco CallManager símkerfi ásamt Peter Connects skiptiborði og þjónustuveri fyrir

starfsemi sína. Penninn og Opin kerfi hafa átt í áralöngu viðskiptasambandi þar sem góð samskipti og traust hafa verið einkennandi þáttur í samstarfinu. Róbert Dan Bergmundsson, deildarstjóri upplýsingatæknisviðs Pennans valdi því Opin kerfi sem þjónustuaðila, fyrst og fremst vegna góðrar þjónustu, öflugra sérfræðinga og þægilegra samskipta.

Róbert Dan Bergmundsson

8


HP prentarar HP hefur verið leiðandi í framleiðslu og sölu á LaserJet prenturum í yfir 20 ár og á þeim tíma hefur HP selt vel yfir 140 milljón LaserJet prentara. HP hafa verið fremstir í því að kynna nýjungar í LaserJet prenturum sínum og í apríl kynnti HP til sögunnar nýja prentara með nýrri tækni. Þessir prentarar koma til með að leysa af hólmi nokkrar gerðir sem Opin kerfi hafa haft í sölu um árabil. Um er að ræða borð- og reikningaprentara fyrir lítil fyrirtæki og þau fyrirtæki sem þurfa trausta prentara sem hægt er að stóla á. Einnig stóran litalaserprentara sem hentar fyrir stærri fyrirtæki og er sérstaklega hagkvæmur í rekstri. Í borð- og reikningaprenturum hefur HP boðið upp á breiða línu af prenturum sem hafa átt það sameiginlegt að vera hljóðlátir, hraðvirkir og áreiðanlegir en fyrst og fremst fljótir að skila frá sér fyrsta blaði útprentuðu og hafa 8 sekúndur verið algengur tími þökk sé “Instant On” tækni HP. Í verslun og viðskiptum þar sem reikningar eru prentaðir er það óásættanlegt fyrir alla aðila að þurfa að bíða í 1425 sekúndur eftir að reikningur skili sér úr prentaranum (algengur tími hjá samkeppnisaðilum HP) og þó að 1425 sekúndur sé ekki langur tími þá má segja að biðin sé orðin nokkrir tugir klukkutíma þegar horft er á 1-2 ár. HP skilur þessa þörf viðskiptavina sinna og með “InstantOn” tækni sinni hefur HP tekist að ná tímanum niður í allt að 7 sekúndur með nýja HP LaserJet Pro P1566 og HP Laserjet Pro 1606dn sem kynntir verða hér. Framtíð HP er græn. HP hjálpar þér að spara pappír, orku og peninga • • •

og vilja nýta sér tengimöguleika á þráðlausu neti, P1102 er einnig með “Instant On” og “Auto-On/Auto-Off” tækni sem gera HP prentara hagkvæma og hraðvirka. HP Color LaserJet Enterprise CP4525 er litaprentari sem ætlaður er fyrirtækjum sem þurfa hágæða útprentun hvort sem er í lit eða svarthvítu. Hann prentar allt að 42bls á mínútu og fyrsta síðan er útprentuð á 9.5 sekúndum þökk sé “Instant On” tækni HP.

HP LaserJet PRO P1102w

HP Color LaserJet Enterprise CP4525

Þú sparar pappír með sjálfvirkri tvíhliða prentun (duplex). Allt að 50% orkusparnaður með “Instant-On” tækni HP. Enn frekari sparnaður með HP “Auto-On/Auto- Off” tækni sem slekkur á prentaranum þegar hann er ekki í notkun (hefur ekki áhrif á hraða fyrstu síðu).

HP LaserJet PRO P1606dn, sem kemur í stað P1505n, er ætlaður fyrir notendur í litlum og meðalstórum fyrirtækjum þar sem að þörf er á hraðvirkum litlum netprentara og fyrir þá sem þurfa hraðvirkan reikningaprentara. P1606dn er með netkorti og prentar báðum megin á blaðsíðuna (duplex), skilar fyrstu síðu útprentaðri á 7 sekúndum frá “Auto-Off” með “Instant On” tækni HP. HP LaserJet PRO P1102w er ætlaður fyrir heimilisnotkun og litlar skrifstofur sem þurfa ódýran en góðan laserprentara

HP Color LaserJet Enterprise CP4525

Nánari upplýsingar veitir Jónas Hreinsson í síma 570 1000 (jonas@ok.is)

9


Cisco Ironport Web Usage Controls Óviðeigandi notkun Internetsins getur kostað fyrirtæki milljónir króna vegna glataðra vinnustunda starfsmanna auk þess sem hún eykur hættuna á brotum á reglum um örugga vefnotkun. Fyrirtæki geta jafnvel borið lagalega ábyrgð á ólöglegri notkun starfsmanna sinna. Nýleg könnun bendir til að íslenskt atvinnulíf gæti orðið af um 15 milljarða tekjum árlega vegna notkunar starfsmanna á Facebook á vinnutíma. Notkun á nýrri kynslóð vefforrita hefur leitt af sér sprengingu í aukningu efnis á Internetinu. Yfir milljarði nýrra vefsíðna er bætt við á hverjum einasta degi og meira en 30% léna breytast árlega. Þessar öru breytingar hafa það í för með sér að rúmlega 80% efnis er ekki rétt flokkað af þeim öryggislausnum sem fyrirtæki eru að nota. Cisco IronPort WUC er leiðandi lausn til þess að framfylgja notkunarreglum um vefaðgang, auka gegnsæi í vefumferð og auka framleiðni starfsmanna.

Nákvæm

Yfirgripsmikil

- Kraftmikil greiningarvél flokkar allt að 90% af varhugaverðu efni og útilokun slíks efnis eykst um allt að 50%.

- Býður upp á 65 flokka vefslóða sem ná yfir vefsvæði í yfir 190 löndum á yfir 50 tungumálum.

Örugg

- Gegnsæ lausn, leiðandi í greininni, ver fyrirtækið gegn brotum á vefnotkun með vefslóðarsíu sem byggir bæði á svart/ hvítlistum og virkri rauntímaflokkun.

Auðveld

Fljótvirk MPH

- Nýtir sér Cisco Security Intelligence Operations (SIO) og samsvörun við alþjóðlega gagnaveitur sem eykur hraða og greind Cisco IronPort-tækjanna.

- Fljótleg að taka í notkun og stjórna. Með einföldu notandaviðmóti getur þú stillt: WUC, öryggisstig, vefsíur og varnir gegn spilliforritum.

Nánari upplýsingar veitir Þórður Jensson í síma 570 1000 (thordurj@ok.is)

MS Office 2010 er væntanlegt Með sumrinu kemur ný útgáfa af þessum vinsælasta skrifstofuvöndli heims frá Microsoft. Með útgáfu Office 2010 hefur notendaviðmót verið uppfært og einfaldað, sem og samhæfni skjalategunda. Helstu aðgerðir líkt og útprentun sem og dreifing skjala hafa verið einfaldaðar enn frekar. Ein markverðasta breytingin frá fyrri útgáfum eru notkunarmöguleikar Office 2010 í gegnum vefinn með svokölluðu Office Web Apps. Notendur geta geymt Office skjölin á vefnum og sótt skjölin, unnið að helstu breytingum og miðlað til annarra í gegnum til dæmis Internet Explorer. Fyrir einstaklinga er Office Web Apps hluti af Windows Live án endurgjalds. Fyrir fyrirtæki er Office Web Apps háður uppsetningu Office SharePoint Server 2010. Breytingar hafa orðið á vörulínu Office 2010 frá fyrri útgáfum. Office Small Business heitir núna Office Home & Business en samsetningin er óbreytt. Fyrir magnkaupasamninga þá breytist Office Small Business í Office Standard en samsetning er óbreytt. Aðilar sem hafa Office 2007 Small Business á magnkaupasamningi,

10

öðlast fría uppfærslu í Office 2010 Professional Plus útgáfuna. Office 2010 er þegar til sem BETA útgáfa og hafa viðtökur notenda verið með eindæmum góðar. Viðskiptavinir sem keypt hafa Office 2007 eftir 5. mars 2010 fá uppfærslurétt í Office 2010 að skilyrðum uppfylltum. Nánari upplýsingar veitir Árni Haukur í síma 570 1000 (arnihaukur@ok.is)


Samfélagsvefir; góð dægradvöl og gróðrarstía fyrir „hakkara“ Úrdráttur úr Cisco Security report 2009: Allir Íslendingar þekkja notkun samfélagsvefja á borð við Facebook, MySpace, Twitter og LinkedIN.

Notkun þeirra hefur stóraukist og skiptir það engu máli hvort fólk er heima eða í vinnu til að halda sambandi við vini og kunningja. Íslendingar tóku Facebook vel og haustið 2008 varð algjör sprenging í notkun samfélagsvefjarins hér á landi. Vorið 2009 var ljóst að hlutfallslega voru flestir á Íslandi að nota vefinn eða um 46% þjóðarinnar með um 150 þúsund skráða aðganga. Núna ári seinna hefur ekki hægt á vextinum og er talið að um 177 þúsund Íslendingar séu með skráðan aðgang eða um 58% þjóðarinnar. Eina þjóðin sem kemst nálægt okkur eru Norðmenn.

Þann 1. janúar s.l. taldi Hagstofan Íslendinga vera ríflega 317 þúsund talsins en ef taldir eru allir Íslendingar á aldrinum 12-60 ára eru þeir 214.506. Ef við gefum okkur að þessi hópur „ætti“ að vera með Facebook síðu komumst við að því að dekkunin er um 80%, sem telst nokkuð gott. Sigurför Facebook á heimsvísu er mikil en í dag eru yfir 350 milljónir notenda á meðan þeir voru um 100 milljónir fyrir ári síðan. Tölulegar upplýsingar um Facebook má sjá á vefnum Facebakers.com.

sambærilegar þjónustur til að benda félögum og vinum á ýmsan fánýtan fróðleik og beina þá óafvitandi þeim aðilum inn á síður og vefsetur sem eru sýkt af ýmsum kvillum (Malware / Spyware) sem opna fyrir óvarðar öryggisholur. Öryggisholurnar eru nefnilega ekki endilega í stýrikerfinu eða í vefrápanum sem við notum alla jafna, heldur líka í t.d. Adobe Flash, Java og öðrum spilurum sem við erum ekki nauðbeygð til að uppfæra reglulega, með harðri hendi kerfisstjóranna. Á árinu 2009 er talið að ofangreindir framleiðendur hafi uppfært sín kerfi og lokað yfir 100 þekktum öryggisholum. Sem dæmi má nefna Koobface orminn sem kom fyrst fram 2008. Hann sýkti yfir 3 milljónir tölva á árinu 2009 en hann vann á Twitter samfélagsvefnum. Hann setti tíst inn á vefinn hjá sýktum notendum til þess eins að fá vini þessa notenda til að smella á hlekk sem beindi þeim inn á YouTube myndband. Í leiðinni þurfti að uppfæra Flash spilarann en í raun var um sýndaruppfærslu að ræða, því í uppfærslunni nýtti þessi ormur sér öryggisholu í Flash spilaranum og setti sig upp á vélina hjá hinum sýkta notanda, sem síðan smitaði þá Twitter síðu og svo koll af kolli. Kannski frekar saklaus ormur, en hvað ef hann væri í raun að veiða upp lykilorð og e.t.v. bankaupplýsingar?

Cisco vill því meina að notendur þurfi að vera meira meðvitaðir um þær hættur sem geta legið í notkun samfélagsvefja. Það verður að gæta vel að því hvaða hlekki og viðbætur verið er að „adda“ og „joina“ og kanna vel hvort ábyggilegur aðili sé á bak við þessar síður enda alls ekki víst að allar auglýsingar, síður, síðubútar og aðrir vefpartar séu það sem þeir segjast vera.

Auðvelt er að nálgast upplýsingar um aldur, notkun og samsetningu þjóðarinnar á Facebook og nýta sér sem markaðstæki. Mörg fyrirtæki hafa sótt fram á Facebook og eru komin með vinasíður og auglýsa þar sínar vörur eins og allsstaðar annars staðar. En ekki er allt sem sýnist. Samkvæmt Cisco er talsverð hætta á því að svona kerfi eins og Facebook séu ekki örugg, enda geta hverjir sem er nánast búið til leiki, síður, getraunir og hópa, án þess að við séum alveg örugg með að allt sem við „joinum“ og „öddum“ sé það sem það segist vera. Við hinsvegar trúum því góða um náungann og vonum að menn séu ekki að svíkja og pretta en við getum ekki alltaf verið örugg. Þekkt er að menn noti t.a.m. tinyurl og aðrar

11


Hversu hátt IQ hefur þitt fyrirtæki? Business Intelligence og Microsoft (3 af 4)

Í síðasta pistli var stiklað á stóru varðandi þau verkfæri sem standa til boða í Microsoft umhverfinu til að byggja upp samþætt kerfi gagna. Í þessum pistli skoðum við hvernig hægt er að nýta þessi gögn og breyta gögnum í þekkingu með Data Mining (DM). DM er lykilþáttur í BI svítunni ásamt OLAP, skýrslun og ETL og fjallar í grófum dráttum um að greina gögn til þess að finna falin mynstur í þeim. Í gegnum tíðina hefur safnast upp gríðarlegt magn gagna sem hafa leitt til þess að við erum orðin „data rich“ en „knowledge-poor“. Einn megintilgangur DM er að draga fram mynstur út úr gögnum og yfirfæra í þekkingu. Algeng verkefni eru:

Segmentation algrím eru sennilega mest notuðu algrímin. Þau finna mengi í inntaksgögnunum og flokka þau saman eftir því hvort þau hafa svipuð eða sameiginleg eigindi, t.d. aldur og tekjur einstaklinga. Dæmi um slíkt gagnasett væri mengi ungra einstaklinga með lágar tekjur á móti miðaldra einstaklingum með háar tekjur. Clustering er svokallað unsupervised DM algrím, þ.e. ekki er þörf á sögulegum gögnum til að þjálfa það og ekkert eitt eigindi er hærra sett enn annað gagnvart algríminu. Sequence analysis algrímið greinir og flokkar

inntaksgögn byggð á ákveðinni röð af aðgerðum. Til að mynda er ráp á vefsíðu röð aðgerða. Með sequence analysis algríminu er t.d. hægt að finna mynstur í rápi notenda á vefsíðunni og þannig tryggja að vörum eða þjónustu sé fyrirkomið þannig að notendur eigi auðvelt með að nálgast það.

Churn analysis: Hvaða viðskiptavinir eru líklegastir til að færa sig yfir til samkeppnisaðila og hvers vegna? Cross-selling: Hvaða vörur eru viðskiptavinir þínir líklegir

til að kaupa?

Customer segmentation: Hver er viðskiptavinaflóran mín?

Sales forecast: Hver er vöruþörfin á ákveðnum tímabilum og hver verður birgðastaðan á ákveðnum tímapunkti. Með SQL 2008 fylgja níu DM algrím sem hægt er að nýta til að leysa ýmis vandamál. Gróflega er hægt að skipta þeim í fimm flokka eftir því hvaða vandamál þarf að leysa. Þeir eru:

Classification algrím spá fyrir um eina eða fleiri breytur

og byggja á eigindum inntaksins. Classification algrímið er dæmi um algrím sem þarf gögn til þjálfunar og eru oftast kölluð supervised algrím. Til að þjálfa módelið þarf söguleg gögn, t.d. gagnasett um viðskiptavini sem inniheldur aldur, tekjur, hjúskaparstöðu, búsetu og eigindi sem skilgreinir flokkun viðkomandi viðskiptavinar s.s. Platinum, Gull, Silfur, eða Brons. Með því að keyra nýjan viðskiptavin í gegnum þjálfað módel getur það gefið upp með ákveðnum líkum hvaða flokk viðkomandi viðskiptavinur muni falla undir.

Regression algrím svipar til classification algríma nema þau spá fyrir um eina eða fleiri samfelldar breytur. Samfelldar breytur geta haft mörg gildi, t.d. árstekjur, aldur, fjarlægð frá vinnu, o.s.frv. Algrím sem tilheyra regression flokki þurfa að minnsta kosti eina inntaksbreytu sem er samfelld. Sem dæmi, ímyndum okkur að þú viljir selja húsið þitt og spá fyrir um söluverð þess (samfelld breyta). Söluverðið ræðst af mörgum þáttum, t.a.m. hversu stórt það er í fermetrum (samfelld breyta), póstfangi og tegund (einbýli eða raðhús) sem eru stakstæðar breytur.

Association algrím finna tengingar í gagnamengi en

dæmigerð notkun á því er „market basket analysis“, þ.e. að greina hvaða vörur eða þjónusta eru oftast keyptar saman. Til að hámarka árangur í DM verkefnum er mikilvægt að gögnin séu hrein. Vöruhús gagna er því góður grunnur því þar eru gæði gagna oft góð. Einnig er hægt að beita DM ofan á OLAP teninga t.d. association algrími ofan á sölutening eða classification algrími ofan á viðskiptamannavíddina. Að lokum er hægt að beita DM módelum í „business applications“, t.d. með því að bjóða upp á vörur sem viðskiptavinir eru líklegir til að kaupa. Í næsta og síðasta pistlinum púslum við öllum saman og byggjum upp heildstæða mynd af BI umhverfi fyrirtækja. Nánari upplýsingar veita Guðmundur Claxton og Grétar Árnason í síma 570 1000 Tekjur

Aldur

12


Lykla-Pétur

Við bjóðum velkomin í okkar lið:

Heildsala Opinna kerfa hefur tekið í endursölu íslensku vírusvörnina Lykla-Pétur og ritvilluvörnina Púka frá Friðriki Skúlasyni ehf., en Lykla-Pétur hefur verið í fremstu röð vírusvarna í heiminum í yfir 20 ár. Boðið er upp á lausnir fyrir bæði heimili og fyrirtæki. Verðið er mjög samkeppnishæft enda ekki um innflutningsverð að ræða heldur íslenskt hugvit sem hefur sannað sig rækilega í samkeppni við aðrar vírusvarnir. Fyrirtækjaleyfin eru seld í þrepum, allt frá 5 leyfum eða fleiri. Heildsala Opinna kerfa sér um að ganga frá samningi og panta hugbúnaðinn. Notandinn sækir svo hugbúnaðinn sjálfur á vefsetur Friðriks Skúlasonar. Eftir að ársleyfið rennur út getur notandinn endurnýjað áskriftina beint hjá framleiðanda vörunnar. Lykla-Pétur býður upp á: • Margverðlaunaða leitarvél Lykla-Péturs sem oftsinnis hefur fengið VB (Virus Bulletin) 100 gæðastimpilinn. • Frábæran leitarhraða ásamt því að nota minna vinnsluminni en flestar aðrar veiruvarnir. • Sívirka og vakandi vörn sem skoðar allar hreyfingar á skrám, tölvupósti, niðurhal af netinu og keyrslu á Active X skrám. • Fjarlægir sjálfvirkt eða setur í sóttkví; vírusa, orma, trójuhesta, bakdyraforrit og annan tölvuskaðvald. • Öflugt líkindanet sem vinnur með leitarvél og gagnaskrám Lykla-Péturs og stöðvar óþekkta skaðvalda. • Sjálfvirkar og örar uppfærslur á leitarvélinni og veirugagnaskrám hennar. • Háþróaðan skipanalínuskanna fyrir lengra komna notendur.

Árni Jón Eggertsson 9.2.2010

Ritvilluvörnin Púki leiðréttir stafsetningarvillur í íslenskum texta í öllum Microsoft Office forritum. Púki leiðréttir íslenskan texta jafnóðum og skrifað er, eða þegar textagerð er lokið, allt eftir því hvað valið er. Púki skiptir einnig orðum milli lína ásamt því að geta lært ný orð og hugtök. Púki býr yfir öflugu beygingarforriti þannig að hægt er að fletta upp öllum nafnorðum, sagnorðum og lýsingarorðum í orðasafni Púka og birta þau í öllum beygingarmyndum á skjánum. Púki hefur einnig að geyma samheitaorðabók og getur því flett upp samheitum orða í texta. Hugbúnaðurinn er mikið notaður hjá einstaklingum, fyrirtækjum og menntastofnunum um allt land.

Ólafur Tryggvason 26.2.2010

Nánari upplýsingar veitir Andrés Karl Sigurðsson hjá Opnum kerfum í síma 570 1000

Árni Jón er viðskiptastjóri og ábyrgur fyrir viðskiptaþróun í Viðskiptastýringu Opinna kerfa. Árni Jón er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur s.l. 14 ár starfað í upplýsingatæknigeiranum með áherslu á viðskiptastjórnun, ráðgjöf, verkefnastjórnun og viðskiptaþróun. Hann starfaði síðast hjá Skýrr sem ráðgjafi í Microsoft SharePoint, CRM og BI lausnum, en þar áður hjá TM Software ITP og Skyggni. Árni Jón er sjötti Árninn sem vinnur hjá Opnum kerfum.

Júlía Dröfn Harðardóttir 7.4.2010 Júlía Dröfn er innheimtufulltrúi Opinna kerfa. Júlía hefur lokið þremur árum af fjórum í þrívíðri módelhönnun frá Bandaríkjunum. Jafnframt hefur hún lokið þriggja ára listnámi við Iðnskólann í Reykjavík og Bókhaldi I og II við Nýja tölvu– og viðskiptaskólann. Júlía starfaði áður sem tækniteiknari hjá Lumex en þar áður við ýmis skrifstofu-, og bókhaldsstörf í upplýsingatæknigeiranum m.a. hjá Ax hugbúnaðarhúsi, Tæknivali og Digital Ísland.

Magnús Ómarsson 1.3.2010 Magnús er starfsmaður á lager Opinna kerfa og er starfsmönnun að góðu kunnur þar sem hann hefur tveggja ára starfsreynslu hjá félaginu. Nú síðast starfaði Magnús hjá Vélfangi við ýmis störf tengd vinnu og dráttarvélum og þar áður hjá BT tölvum og Pitstopp. Velkominn heim.

Ólafur er vöru– og viðskiptastjóri neytendalausna á Innkaupa- og dreifingarsviði Opinna kerfa. Ólafur er menntaður matreiðslumaður og hefur starfað við sölu– og markaðsmál s.l. 10 ár. Ólafur starfaði nú síðast sem sölu- og markaðsstjóri hjá Sjófiski en þar áður sem sölustjóri hjá Íslenska útvarpsfélaginu og söluog innkaupastjóri hjá Íslandssíma. Einnig var hann sölumaður og verslunarstjóri hjá BT/ Tæknival.

Rakel Guðmundsdóttir 25.2.2010 Rakel er þjónustufulltrúi á þjónustuborði Opinna kerfa. Rakel er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá HR og hefur einnig tekið námskeið í forritun og kerfisfræði hjá NTV. Rakel starfaði áður sem Navision ráðgjafi hjá Maritech og forritari í Lotus Notes hjá Nýherja. Rakel hefur nokkuð víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur unnið við ýmis markaðs- og kynningarstörf ásamt kennslu, m.a. hjá Chovi, Saladmaster og Enjo. Jafnramt hefur Rakel reynslu af skrifstofu- og bókhaldsstörfum m.a. hjá HP farsímalagernum og Arion banka.

13


Forstjórar MS, HP og Cisco

Jørgen Bardenfleth framkvæmdastjóri Microsoft í Danmörku

Keld Jersild Olsen forstjóri Hewlett Packard í Danmörku

Jørgen Myrland forstjóri Cisco Systems í Noregi

What are the main issues facing the IT environment?

As companies face increased economic pressure the IT environments are challenged to deliver more productivity at lower cost. The challenge includes implementing cost effective infrastructure and business processes that enable organizations to drive better outcomes. Most organizations have started rationalizing their infrastructure which includes consolidation of technology and servers in addition to set up operations models that are cost effective and easy to manage and maintain.

The complexity of IT has reached such a level, that large datacenters are very difficult to manage. What has been termed the "IT sprawl" is just continuing. IT managers are demanding solutions so that they can manage large IT installations and thus reduce cost and complexity. Standardization and software solutions are the driving factor behind the solution.

Most of our customers are looking towards virtualizing their data centers in order to reduce operational cost and speed up applications deployment. At the same time secure access to these resources is now required from a wider range of devices from outside the company walls. In fact, there is increasing demand to be able to connect anyone, anywhere, using any device, to any resource, securely, reliably and seamlessly.

Looking over the next few years, how will the industry change and how will your company adapt to those changes?

The industry is likely to offer increased number of services through Cloud Computing in combination with various products and solutions. Cloud Computing will play a major role, with both Public and Private clouds for various types of customers. It will change the way software is delivered to customers.

The "IT supermarket" is on rise again. We see major IT companies expanding into other areas and a lot of very large mergers taking place. Customers will increasingly be able to source complete data center solutions and services from single companies.

A new model of productivity based on collaboration is clearly emerging and we believe this may be the most profound opportunity for businesses in our 25 years as a company. In the coming quarter century, the role of the network will become even more important in driving growth, innovation, and productivity in industries such as healthcare, education and energy.

What expectations do you have for Iceland and the Icelandic market?

As we deal with the past by rationalizing, the Icelandic market will stay flat for some time to come, but it still presents an opportunity to deliver value to customers in the transition phase. The future will be built on a sustainable ecosystem of businesses and organic growth.

The Icelandic market will clearly bounce back. There is lot of energy in the Icelandic people and we have seen crisis before and bounced back. No country can today exist without efficient IT systems, and no companies can compete nationally or internationally without efficient use of IT.

We expect Iceland to bounce back as quickly as it went into recession and we are already starting to see the first signs of recovery in the Icelandic market. You have unique opportunities when it comes to data centers and green energy that we see Iceland capitalizing on going forward.

Sjáið svör samstarfsaðilanna við fleiri áhugaverðum spurningum á www.ok.is 14


2010

ð i e k s Nám

Það er leikur að læra – hjá Opnum kerfum. Skráðu þig á námskeið í haust.

Nr.

Námskeið

Kennari

Lengd í dögum

Verð

Dags.

RH033 Linux grunnur RH133 Linux kerfisstjórnun RH202 RHCT próf RH253 Linux netumsjón & öryggi RH302 RHCE próf RH300 Hraðnámskeið RH302 RHCE próf

Richard Allen 4 Richard Allen 4 Richard Allen Richard Allen 4 Richard Allen Richard Allen 4 Richard Allen

196.000 196.000 35.000 196.000 59.000 196.000 59.000

20.-23. sept. 4.-7. okt. 8. okt. 25.-28. okt. 29. okt. 15.-18. nóv. 19. nóv.

NAG101

Nagios grunnnámskeið

Tómas Edwardsson

2

125.000

29.-30. sept.

CIS101

Cisco Call Manager grunnnámskeið

Hafþór Hilmarsson O‘Connor

4

196.000

18.-21. okt.

Netvik Ný útgáfa af Netvik netumsjónarkerfinu kom út í apríl og er óhætt að segja að það sé búið að gera talsverðar endurbætur á kerfinu frá því sem var. Viðskiptavinir okkar hafa átt sinn þátt í þróun kerfisins og verið duglegir að koma með hugmyndir að nýjungum og lagfæringum. Nýja útgáfan hefur fjöldann allan af eiginleikum til viðbótar við þá sem fyrir voru. Helstu breytingar í nýrri útgáfu eru sem hér segir:

af netumhverfinu. Þessi möguleiki er frábær viðbót við Netvik þar sem myndræn framsetning er alltaf til góða. Starfsmenn Opinna kerfa vilja minna á að þeir eru ávallt tilbúnir til að taka á móti góðum hugmyndum varðandi þróun á Netvik. Að lokum viljum við óska Samskipum til hamingju með að vera komin í hóp ört stækkandi viðskiptavinahóps sem nota Netvik daglega við rekstur sinna upplýsingakerfa. Nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Stefánsson í síma 570 1000 (stefan@ok.is)

• Endurbætt viðmót þar sem framsetning á gögnum sem kerfið hefur að geyma og þeim aðgerðum sem kerfið býður upp á er gerð betri skil. • Nú er hægt að vista ákveðin leitarskilyrði til að auðvelda síðar uppflettingu í kerfinu. • Vistun mynda og tenging við starfsstaði er möguleg til að auðvelda yfirsýn yfir tæki og staðhætti í kringum lagnaskápa. • Möguleiki á að kalla fram yfirlitsmynd yfir þær tengingar sem kerfið heldur utan um frá öðrum kerfum til að auðvelda eftirlit. • Boðið er upp á miðlæga “loggun” og auðvelt er að skoða atburðaskrá hvers tækis. • Afritun á config skrám hefur verið bætt og auðvelt er að bera saman mismunandi útgáfur af config skrám. • Miðlæg auðkenning með radius. • Mæling á portum í rauntíma til viðbótar við sögulega mælingu. • Af nýjum viðbótum má nefna Layer 2 kort sem sýna myndrænt tengingar tækja með aðstoð CDP (Cisco Discovery Protocol). Hægt er að byggja kort ofan á ljósmyndum. Kortin eru dynamísk og gefa góða mynd

15


Opin kerfi – Umboðs- og þjónustuaðili Ný verslun Opinna - OK búðin HPkerfa á Íslandi Ný og stærri verslun

Þann 8. maí munu Opin kerfi opna nýja og stærri verslun í húsnæði félagsins að Höfðabakka 9. Nýja verslunin verður öll hin glæsilegasta með áherslu á fjölbreytt úrval á búnaði og þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lögð verður áhersla á upplifun viðskiptavina sem njóta munu framúrskarandi þjónustu. Nýja verslunin mun bera nafnið „OK búðin“ sem undirstrikar enn frekar þá stefnumörkun Opinna kerfa að leggja aukna áherslu á einstaklingsmarkað við hlið hins hefðbundna reksturs þar sem áherslan hefur verið sala og þjónusta við fyrirtæki og stofnanir.

Aukið vöruúrval

Með nýrri og glæsilegri verslun gefst félaginu kostur á að auka vöruúrval sitt verulega því þó HP vörulínan sé í um helmingi rýmisins þá munu viðskiptavinir njóta fjölbreyttara úrvals t.d. tölvubúnaðar og smávöru frá Apple, aukahluta og hugbúnaðar frá Microsoft, netbúnaðar og fleira frá Cisco, farsíma og símtækja svo fátt eitt sé nefnt.

Göngum lengra í þjónustu

OK búðin mun ganga lengra í þjónustu sinni við viðskiptavini en almennt þekkist því með haustinu er stefnt að opnun „Tæknibars“ þar sem viðskiptavinir fá aðgang að sérfræðingum til að hjálpa sér að leysa ýmiskonar vandamál án þess að þurfa að skrá vélina á verkstæði með tilheyrandi bið. Einnig mun verða boðið upp á röð örnámskeiða á Microsoft hugbúnaði í samstarfi við Microsoft á Íslandi. Þessum námskeiðum er ætlað að hjálpa viðskiptavinum Microsoft að þekkja betur og nota hugbúnaðinn meira.

Glæsileg hönnun og reynsla

Við hönnun OK búðarinnar var tekið mið af því sem HP, Apple og Microsoft eru að gera í sínum verslunum úti í heimi. Hugmyndir þeirra ganga út á léttleika, fallega framsetningu og góða þjónustu. Meðal nýjunga eru m.a að flestar vörurnar sem verða í OK búðinni verða tengdar og því auðvelt að prufa sig áfram í leit að réttri vöru. Til að styðja við þessa hugmyndafræði hefur bæst í öflugan hóp starfsmanna fólk með mikla reynslu af verslunarrekstri og þekkingu á upplýsingatækni til að starfa við rekstur verslunarinnar.

Spennandi opnunartilboð

Fjölmörg spennandi tilboð verða áberandi fyrstu vikurnar eftir opnun sem vert er að líta eftir. Þessi tilboð á búnaði verða jafnt fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Opin kerfi, 2. tbl. maí. 2010 Útgefandi: Opin kerfi ehf.

Sími: 570-1000 Bréfsími: 570-1001 Veffang: ok@ok.is Ábyrgðarmaður: Gunnar Guðjónsson Ritstjóri: Rán Bjargardóttir Prentvinnsla: Oddi


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.