Frettabref 3. tbl

Page 1

Fréttabréf 3. tbl. 21. árg. ágúst 2010

ÞÚ NÆRÐ LENGRA MEÐ TÆKJUM FRÁ HP!

OK afleysingaþjónusta bls. 2 Afmæli Opinna kerfa bls. 3 Red Hat Summit bls. 4 Office 2010 bls. 8

í tilefni af afmæli Opinna kerfa fóru starfsmenn í skemmtisiglingu. Einu flöskuskeyti var kastað útbyrðis fyrir hvert ár sem félagið hefur starfað og í þeim mátti finna bréf ásamt gjafabréfi í OK búðina.

Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið?


2

Frá forstjóra Opin kerfi leysa þig af Starfsfólk Opinna kerfa snýr nú hvert af öðru til baka úthvílt og endurnært eftir gott sumarfrí. Síðsumarið er hafið, skólar byrja og því fylgja mörg ævintýri. Umfjöllunarefni fjölmiðla valda undirrituðum þó áhyggjum. Fréttaflutningurinn endurspeglar því miður ennþá seinagang og stefnuleysi stjórnvalda. Umræðan og pólitísk afskipti af fjárfestingum í atvinnuuppbyggingu verður seint til að efla hagvöxt og lífskjör Íslendinga. Það er hagkerfinu hrein nauðsyn að fá innspýtingu fjármagns. Stjórnvöld verða að forgangsraða betur sinni verkefnaskipan og láta strax af afturhaldsstefnu og hægagangi í endurreisninni. Stefnuleysi og ákvarðanafælni er ekki til þess fallið að færa okkur aðgreiningu og yfirburði.

Fylgir vinnan þér þegar þú ferð í frí? Er erfitt að fá staðgengil? Við höfum lausnina. „Opin kerfi tóku að sér rekstur tölvukerfis Fosshótela á meðan ég var í feðraorlofi, bæði með fastri viðveru og svo í gegnum fjartengingu af þjónustuborði. Þetta gekk mjög vel og ég ákvað að nýta mér þetta aftur þegar ég fór í sumarfrí. Símtöl frá Fosshótelum voru fá. Þetta létti álagi af mér og gaf mér kost á því að einbeita mér að öðrum hlutum á meðan ég var fríi”. Kári Hlíðar Jósefsson - Fosshótelum

Ánægjulegur fyrri helmingur 2010 Fyrri helmingur þessa árs hefur verið ánægjulegur Opnum kerfum. Skemmtilegum tíma, jákvæðri orku og fjármunum hefur verið varið í að efla og endurreisa ímynd félagsins og markaðssókn á núverandi og nýjum mörkuðum, og hefur sú fjárfesting leitt af sér aukna sölu og sterka verkefnastöðu. Samhent átak liðsheildarinnar hefur styrkt og eflt félagið enn frekar og allar megin stoðir rekstrarins hafa skilað jákvæðri afkomu. Velta félagsins er umfram áætlanir á báðum fjórðungum og rekstrarhagnaður í takti við væntingar. Útlit á síðari hluta ársins er því gott og ljóst að starfsfólk og eigendur Opinna kerfa munu hafa næg verkefni í áframhaldandi virðissköpun fyrir alla hagsmunaaðila.

OK afleysingaþjónusta Opin kerfi bjóða fyrirtækjum og stofnunum upp á staðgengilsþjónustu og stuðning við rekstur upplýsingakerfa þegar lykilstarfsmenn eru í fríi. Þetta hentar vel í sumarleyfum, foreldraorlofum, námsleyfum, lengri veikindum og annarri fjarveru. Boðið er upp á tvö þjónustustig á þjónustuborðinu. Annars vegar er tekið á móti verkbeiðnum, þeim komið í farveg og fylgt eftir. Hins vegar er þjónustuborðið mannað sérfræðingum sem sjá m.a. um vöktun og afritun auk þess sem þeir geta yfirtekið vélar og leyst flest mál í gegnum fjartengingu eða ráðgjöf í síma. Okkar markmið er að viðskiptavinir fái sín mál í farveg með einu símtali. Notendaaðstoð í fjarþjónustu

Fjölbreytt lausnaflóra Upplýsingatækni er í dag samofin flestum þáttum í starfsemi íslenskra félaga. Þarfir viðskiptavina taka ávallt breytingum og í upplýsingatækni gerist það jafnvel hraðar en í öðrum atvinnugreinum. Opin kerfi, sem fulltrúi stærstu upplýsingatækni birgja heims, fjárfestir í miklum tíma og orku til að fylgja eftir lausnaframboði sinna birgja. Það lausnaframboð þarf svo í mörgum tilfellum að klæðskerasauma með einum eða öðrum hætti svo það henti íslenskum aðstæðum. Lausnaflóra Opinna kerfa er því fjölbreytileg og samanstendur jafnt af pakkalausnum sem sérsniðnum lausnum fyrir fyrirtæki af öllum stærðargráðum. Lausnaflórunni fylgir síðan víðtæk þekking, reynsla og ráðgjöf varðandi hönnun, þróun, innleiðingu og rekstur. Opin kerfi hafa undanfarið lagt mikla áherslu á að einfalda framboð sitt. Hafa starfsmenn lagt dýrmætan tíma í vöruþróun, innpökkun, aðlögun og fjölföldun lausna og viðeigandi þjónustu svo samlegðaráhrifin verði sem mest, bæði fyrir félagið og viðskiptavini þess. Sérhæfing og þjónustuvilji eru einkunnarorðin í þessari vinnu og munu starfsmenn félagsins heimsækja viðskiptavini á komandi hausti og kynna nánar nálgun okkar við betur framsett lausnaframboð. Aukin gæðavitund og skilvirk verkefnastýring Til að hámarka árangur af hnitmiðaðri lausnaflóru er ljóst að aðlaga þarf innviði Opinna kerfa hvað snertir aukna skilvirkni í verkefnastýringu og uppbyggingu gæðakerfa með vottunarhæft félag sem viðmið. Með skýru eignarhaldi og betri yfirsýn verkefna, samræmingu vinnubragða samkvæmt viðurkenndri aðferðarfræði, ítarlegri skjölun og markvissari áætlanagerð er það ætlun Opinna kerfa að tryggja eigendum verkefna ávallt þann árangur sem skilgreindur var í upphafi. Slík aðlögun á innviðum félagsins í takti við núverandi fyrirtækjamenningu félagsins mun setja Opin kerfi skrefi framar en alla aðra valkosti á okkar markaði. Með sól í hjarta siglum við með tilhlökkun inn í haustið með von um að gera gott félag enn betra. Baráttukveðja, Gunnar Guðjónsson

2

Opin kerfi bjóða einnig upp á fullkomna notendaaðstoð frá þjónustuborði. Hægt er að yfirtaka vélar og leysa flest vandamál í gegnum fjartengingar eða ráðgjöf í síma. Innifalin er notendaaðstoð frá þjónustuborði á dagvinnutíma sem hægt er að leysa í gegnum fjarvinnslu. Ef notendur lenda í vandræðum taka þeir bara upp símann eða senda tölvupóst og fá aðstoð frá sérfræðingum innan skamms. Engin langtímaskuldbinding, samningstímabil frá einni viku. Viltu kynna þér hvort samningur við þjónustuborðið hentar þínu fyrirtæki? Nánari upplýsingar veita Linda Hersteinsdóttir, hópstjóri þjónustuborðs í síma 570-1000 (linda@ok.is) og Íris Kristjánsdóttir, í síma 570-1000 (iris@ok.is).

Námskeið 2010 Það er leikur að læra hjá Opnum kerfum. Skráðu þig á námskeið í haust.

Nr.

Námskeið

Kennari

Lengd

Verð

Dags.

20.-23. sept.

í dögum RH033

Linux grunnur

Tómas Edwardsson

4

196.000

RH133

Linux kerfisstjórnun

Tómas Edwardsson

4

196.000

4.-7. okt.

RH253

Linux netumsjón og öryggi

Tómas Edwardsson

4

196.000

25.-28. okt.

RH300

Linux hraðnámskeið

Tómas Edwardsson

4

196.000

15.-18. nóv.

RH302

RHCE próf

Richard Allen

4

59.000

19. nóv.

RH202

RHCT próf

Richard Allen

4

35.000

22. nóv.

NAG101

Nagios grunnnámskeið

Tómas Edwardsson

2

125.000

29.-30. sept.

CIS101

Cisco Call Manager grunnnámskeið

Hafþór Hilmarsson O’Connor

4

196.000

18.-21. okt.


25 ára afmæli Opinna kerfa a Opin kerfi fögnuðu 25 ára afmæli þann 8. maí sl. Í tilefni þess var viðskiptavinum boðið til hádegisverðarráðstefnu í Gullhömrum. Gunnar Guðjónsson forstjóri Opinna kerfa og Frosti Bergsson stjórnarformaður buðu gesti velkomna og settu ráðstefnuna. Fyrirlesarar úr röðum yfirstjórnenda lykilbirgja félagsins, þeir Keld Jersild Olsen (HP), Erik Kaae (Microsoft) og Jorgen Myrland (Cisco), fjölluðu um helstu nýjungar og sýn þeirra á íslenskan markað. Einnig fjallaði Þorvaldur E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri TESCON um Gagnaver sem nýjan iðnað á Íslandi. Við þökkum gestum kærlega fyrir komuna sem og fyrirlesurum fyrir sín innlegg. Afmælisfagnaðurinn hélt áfram því stuttu síðar fóru starfsmenn Opinna kerfa ásamt mökum, í skemmtisiglingu með Hvalalífi ehf. Skipið Andrea beið okkar á sólbjörtum vordegi við Reykjavíkurhöfn og siglt var inn að ströndum Kjalarness og upp að Hvalfirði þar sem von var um að finna hvali. Þó hvalir hafi ekki látið sjá sig að þessu sinni var mikið fjör á skipinu og gleðin við völd og skemmtu starfsmenn sér konunglega. Eitt sem vakti mikla athygli og lukku í siglingunni voru 25 flöskuskeyti sem kastað var útbyrðis. Einu skeyti var fleygt fyrir hvert ár sem félagið hefur starfað og í þeim mátti finna bréf ásamt gjafabréfi í OK búðina. Unglingar frá Seltjarnarnesi hafa nú þegar fundið fyrsta skeytið og skilað því inn til OK búðarinnar. Þau nýttu sér gjafabréfið og fengu ásamt því lítinn glaðning að launum fyrir fundinn. Finnur þú flöskuskeyti?

3


Red Hat Summit 2010 Red Hat Summit 2010 fór fram í Boston vikuna 21.-25. júní sl.

Red Hat hefur í rúm 10 ár verið leiðandi afl í opnum hugbúnaði og drifkrafturinn

Ráðstefnan var ætluð viðskiptavinum og notendum Red Hat, ásamt

bak við margar opnar lausnir sem notaðar eru á fyrirtækjamarkaði í dag.

samstarfsaðilum um heim allan. Kynntar voru nýjungar í opnum hugbúnaði ásamt því sem er á döfinni í sýndarvélum og „cloud computing“.

Glærur og myndskeið af ráðstefnunni er hægt að nálgast á slóðinni http://www.redhat.com/promo/summit/2010/

Red Hat Enterprise Linux 6 Kynntar voru nýjungar í næstu útgáfu Red Hat Enterprise Linux 6 (RHEL 6) sem byggð er á Fedora 13 og kemur út í haust. Útgáfunnar hefur verið beðið með eftirvæntingu enda kynnir hún til sögunnar margar nýjungar og betrumbætur sem gera þetta að hraðvirkasta stýrikerfi frá Red Hat til þessa. Meðal nýjunga má meðal annars nefna: • Nýjan kjarna sem gefur möguleika á betri afköstum og áreiðanleika. • Nýja SELinux eiginleika sem gera kerfið að því öruggasta frá upphafi. • Betri þróunartól og betri tól fyrir vandamálagreiningu. • Stóraukinn sýndarvélastuðning. Meðhöndlun og afköst sýndarvéla nú “near bare-metal” Virtualization með KVM KVM sýndarvélin, sem kom fyrst í RHEL 5.4 hefur verið í mjög hraðri þróun og hefur verið mikið endurbætt með RHEL 6. Það má með sanni segja að KVM sé orðin ein af mest heillandi sýndarvélalausnum sem í boði eru í dag og því ekki að furða að meirihluti þeirra tölvuskýja (cloud) sem í boði eru í dag keyri á Red Hat og KVM. Mikil vinna hefur farið í að aðlaga RHEL þannig að hann keyri á hámarksafköstum bæði sem sýndarþjónn og sem sýndarvél. KVM sker sig frá öðrum sýndarvélalausnum að því leytinu til að lausnin er með öllu innbyggð inn í Linux-kjarnann sem þýðir að sýndarvélalausnin nýtir sér alla þá möguleika sem eru í boði í kjarnanum sjálfum.

OK búðin - glæsileg byrjun Þann 8. maí sl. opnuðu Opin kerfi nýja verslun, OK búðina

viðskiptavinum sem segja að aldrei hafi verið jafn auðvelt að taka ákvörðun um

Upphafsmánuðir OK búðarinnar hafa svo sannarlega verið glæsilegir. Hönnun

kaup á góðri vöru.

og uppsetning búðarinnar gekk mjög vel og má með sanni segja að útkoman sé ein glæsilegasta tölvuverslun landsins. Menn hafa haft á orði að hér sé um „2007

Spennandi tímar fara nú í hönd og mun OK búðin bjóða skólafólki og öðrum

style“ verslun að ræða en hún var reist með þröngum 2010 fjárhagsramma sem

viðskiptavinum gríðarlega öflugar HP og Apple tölvur á áður óþekktu verði.

gerir útkomuna enn ánægjulegri.

Vaxtalaus kjör bjóðast áfram, auk margskonar kaupauka og tilboða á ýmsum vörum. Á næstu misserum munum við svo taka mörg stór skref í átt að aukinni

Salan í búðinni fór vel af stað og er vel yfir væntingum. Þann árangur má

þjónustu við viðskiptavini með ýmsum nýjungum sem verða betur kynntar síðar.

þakka frábæru starfsfólki, góðu vöruúrvali frá HP, Apple, Microsoft og Cisco

Þessar nýjungar munu þjóna öllum núverandi sem og nýjum viðskiptavinum

og hnitmiðaðri markaðssetningu. Vaxtalausu tölvutilboðin hafa slegið í gegn hjá

okkar. Markaðssetning OK búðarinnar næstu vikur verður kröftug og lífleg með áherslu á góðar vörur á góðu verði. Það má því gera ráð fyrir mikilli gleði og fjöri í OK búðinni og bjóðum við viðskiptavini hjartanlega velkomna í heimsókn. Sjón er sögu ríkari. Við bendum á að allar vörur úr OK búðinni má einnig skoða á www.okbeint.is. Svo er um að gera að skoða www.okbudin.is og gerast vinur á Facebook. Það getur haft happafeng í för með sér. Sævar Haukdal Viðskiptastjóri PSG

Óskar og Ólafur, starfsmenn OK búðarinnar taka vel á móti viðskiptavinum.

4


Skjalastjórnun og SharePoint 2010 Með tilkomu Microsoft SharePoint 2010 hefur Microsoft stigið stórt skref í átt að hinu

SharePoint 2010 sameinar sveigjanleika í vistun skjala og skilvirkni

fullkomna skjalastjórnunarkerfi. Ýmsar breytingar hafa litið dagsins ljós sem miða

skjalageymslu þar sem starfsmenn vinna með skjöl og vista þau hver á

að því að auka sveigjanleika en jafnframt halda skilvirkni skjalavistunar frá því sem

sinn hátt, en kerfið heldur utan um vistun, útgáfur og líftíma skjala með

var í eldri útgáfu SharePoint (MOSS 2007).

sjálfvirkum hætti.

Nú getur notandi komið skjali í kerfið og sér þá kerfið sjálfkrafa um að vista skjalið á réttum stað með notkun sjálfvirkra reglna um skjalavistun. Einnig er til staðar mun betri skjalastýringarvirkni (e. Record Management) þar sem unnið er sjálfvirkt með líftíma skjala. Ekki þarf lengur að færa skjöl í sk. „Record Center“ heldur er hægt að skilgreina skjöl sem „Record“ þar sem þau eru. SharePoint 2010 uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til skjalavistunar og

Allar nánari upplýsingar veitir Benedikt Gunnar Ívarsson (benedikt@ok.is)

umsjónar með líftíma skjala hjá íslenskum fyrirtækum í dag.

hjá Opnum kerfum í síma 570-1000.

Nýir starfsmenn Ingvar Guðjónsson 01.06.2010

Þór Haraldsson 19.04.2010

Ingvar starfar sem sérfræðingur á tækniborði Opinna kerfa.

Þór sinnir þróun og þjónustu á Microsoft Share-

Ingvar er rafeindavirki að mennt og stundar grunnnám

Point lausnum og viðmótsforritun hjá Opnum

við upplýsinga- og fjölmiðlagreinar samhliða starfi sínu hjá

kerfum. Hann er lærður Margmiðlunarhönnuður

Opnum kerfum. Ingvar starfaði nú síðast hjá Innheimtu-

frá Vancouver Film School í Kanada og hefur því

lausnum og sá um tölvukerfið þar. Þar áður vann hann hjá

mikla reynslu af grafískri vinnslu. Þór hefur starfað

Opnum kerfum frá 2005 til 2008, fyrst á verkstæði en svo í þjónustudeildinni

undanfarin 3 ár sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Teris við þróun

og þjónustaði m.a. Alcatel símkerfi. Ingvar er því fyrirtækinu að góðu kunnur.

í SharePoint, Netbanka og að almennum vefmálum. Þar áður vann hann sjálfstætt og sinnti einnig verkefnum hjá RÚV sem hönnuður.

Velkominn heim. Við bjóðum Þór velkominn í hópinn.

Ný og hagkvæm lausn fyrir tölvuver HP Compaq MultiSeat er nýjung sem hentar tölvuverum sérstaklega vel. Ein HP

nýjum skjá eru allir gluggar og forrit opin líkt og var þegar hann stóð upp

Compaq MS6000 vél ásamt litlum skjátengiboxum leysir af hólmi allt að 10 aðrar

frá hinum skjánum.

vélar með tilheyrandi sparnaði í innkaupum og þjónustu. Þetta er því kjörin lausn þar

Með HP Compaq MultiSeat lausninni má ná fram miklum sparnaði.

sem fjármagn er takmarkað en þörf á tölvuaðgengi fyrir sem flesta. Í sumum tilfellum

Upphafsfjárfesting er minni, kostnaður við uppfærslur og þjónustu er lægri,

er hægt að setja upp HP Compaq MultiSeat MS6000 fyrir allt að 10 notendur á

kostnaður við uppsetningar er einnig lægri, og tryggir lausnin umtalsvert

verði fimm hefðbundinna tölvuuppsetninga.

lægri orkukostnað og einfaldari umsýslu kennara eða tölvuumsjónaraðila. Hægt er að skala lausnina eftir þörfum, byrja með grunnvélina sjálfa og

Uppsetning tölvunnar er einföld og fljótleg. Einungis þarf einn USB kapal á milli

bæta svo við tengiboxum eftir því sem fjölga á notendum. MultiSeat lausnin

tölvu og tengibox (útstöðvar). Við það tengist svo skjár, lyklaborð, mús, heyrnatól og

er kjörin í tölvuver skóla á öllum skólastigum og hentar einstaklega vel á

hljóðnemi. Einfalt er að stofna nýja notendur og geta þeir verið tugir eða hundruð

bókasöfn.

eftir þörfum og allir hafa sérstakt heimasvæði fyrir gögn. Eins er hægt að tengja vélina inn á núverandi netkerfi og þá þarf ekki að stofna notendur beint á tölvuna

HP MultiSeat lausnin inniheldur:

heldur er nýttur sá aðgangur sem þegar er búið að útbúa og hafa þá notendur

• HP Compaq MS6000 tölvu sem er sérstaklega hönnuð fyrir þessi not.

aðgang að öllum þeim drifum og gögnum sem þeir höfðu fyrir.

• HP MultiSeat T100 tengibox fyrir hvern skjá sem tengja á. • USB snúru, lyklaborð, mús, skjá og skjásnúru en einnig er hægt er að

Einstakt umhverfi fyrir kennara og nemendur

nota þennan búnað frá eldri uppsetningum.

Kennari getur með einföldum hætti stýrt aðgengi nemenda, hvers og eins eða allra samtímis. Nemendur geta í miðri kennslustund eða eftir stutt hlé skipt um sæti en

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Zebitz (zebitz@ok.is) vörustjóri

haldið sinni uppsetningu og gögnum líkt og áður. Um leið og nemandi tengist inn á

tölvubúnaðar í síma 570-1064

5


Reiknisstofa í veðurfræði Í rúm sex ár hefur Reiknistofa í veðurfræði/Belgingur (RV) reiknað nákvæmar veðurspár fyrir Ísland og nærsveitir, landi og þjóð til hagsældar. Spárnar eru birtar endurgjaldslaust á vefnum http://www. belgingur.is. Í upphafi var eingöngu reiknað í neti með 9 km möskvum fyrir Ísland, en að auki var suðvesturhornið reiknað með 3 km nákvæmni. Þessir reikningar voru, sællar minningar, unnir á tölvueykinu Sleggjunni. Í kjölfar hitabylgjunnar miklu er gekk yfir landið sumarið 2004 tók sú góða vél hitasótt mikla sem að lokum dró hana til örendis. Í framhaldi krankleika þessa voru veðurreikningar skornir niður við trog tímabundið. Þegar hér var komið við sögu var áhugi rannsóknaaðila á tölvueykjum vaknaður. Fór svo að umsókn var send til Bygginga- og tækjasjóðs RANNÍS. Að henni stóðu, auk RV, Hafrannsóknastofnun, Rannsóknasvið Orkustofnunar, Raunvísindastofnun HÍ, Veðurstofa Íslands og Verkfræðistofa HÍ. Skemmst er frá því að segja að frá RANNÍS fengust 18,3 milljónir til kaupa á tölvueyki. Var fénu skipt bróðurlega milli Suðurgötu og Grensásvegar. Að undangengnu útboði voru sérfræðingar Opinna kerfa fengnir til að hanna og setja upp tvö tölvueyki. Annars vegar var búið til eykið Bjólfur, sem hýstur var af HÍ og hins vegar varð til vélin Snjólfur, sem hýst var á Grensásvegi, segir ekki meir af Bjólfi í pistli þessum. Snjólfur samanstóð af 60 reikninóðum, hver með tveimur 2.4 GHz Intel Xeon örgjörvum. Höfuðvélin var með tvo 2.8 GHz Intel Xeon örgjörva og ennfremur var 900 GB RAID diskastæða undir heimasvæði notenda, en slíkt þótti nokkuð nýnæmi á þeim tíma. Á vormánuðum 2005 var Snjólfur settur upp og voru þar kerfisgúrúar Opinna kerfa að verki. Ákveðið var að notast við Red Hat Enterprise Linux stýrikerfið á bæði móðurtölvu og reikninóðum. Hvað varðar reikninóðurnar sjálfar þá var þeim ræst af neti og liggur rót skráakerfis þeirra miðlægt. Þetta fyrirkomulag einfaldar allt utanumhald og þarf því ekki lengur að viðhalda fjölda stýrikerfa uppsetninga. Einnig lágmarkar þetta áhættu með því að viðhalda mismunandi útgáfum af nóðustýrikerfum sem veitir möguleika á því að keyra prófanir á uppfærslum og bakka upp eftir þörfum.

Árið 2007 var farið að huga að endurnýjun á Snjólfi, bæði voru vélarnar komnar nokkuð til ára sinna og þóttu að auki full frekar til rafmagnsins. Á vormánuðum 2008 voru fengnar þrjár nýjar vélar með tvo 4 kjarna örgjörva (3 GHz) hver, var þessum vélum fljótlega fjölgað upp í sex. Síðla sumars var ákveðið að endurnýja líka höfuðvél Snjólfs, enda var eldri vél 32 bita en nýju nóðurnar 64 bita, og bæta við Infiniband háhraðanettengingu milli reikninóðanna. Hefur slík nettenging enda gefið mjög góða raun á tölvueykinu Svarki. Með þessari endurnýjun á Snjólfi gafst RV kostur á að bjóða upp á nýja gerð veðurspáa, svokallaðar klasaspár (http://klasi.belgingur.is). Klasaspár henta aðilum sem vilja fá veðurspár og líkindi á veðurþáttum lengra fram í tímann. Þær geta nýst við skipulagningu viðburða og ákvarðanatöku hverskonar þar sem veður hefur áhrif. Klasaspárnar eru unnar fyrir Landsvirkjun og knýja nýtt reitskipt rennslislíkan, þróað af Vatnaskilum, sem bætir nýtingu uppistöðulóna til muna. Uppbygging á vélbúnaði, og þeir auknu möguleikar á krefjandi útreikningum, hafa ekki bara skilað sér í bættum veðurspám fyrir Ísland.

Með tilkomu Snjólfs upphófust bjartari tímar á ný. Naut þá landslýður aftur afurða 3 km spánna og nú fyrir landið allt. Voru veður reiknuð sólarhring fram í tímann einu sinni á dag. Þessir reikningar voru þó það þungir að vélin var hátt í fjórar klukkustundir að stauta sig fram úr þeim. Í kjölfar samninga milli RV og Veðurstofu Íslands var í ársbyrjun 2006 ráðist í uppsetningu enn eins tölvueykisins, Svarks. Sem fyrr voru sérfræðingar Opinna kerfa hafðir með í ráðum við val á vélbúnaði og sáu þeir ennfremur um uppsetningu á vélinni. Með nýrri vél var nú reiknað á 64 bita Opteron graðjálkum, samantengdum yfir Infiniband net. En það net er þeim eiginleikum gætt að eftir því skjótast gagnabitar hraðar en RV reiknar nú að auki veðurspár fyrir N-Atlantshafið, vestur Noreg og Færeyjar. Um miðjan janúar barst beiðni frá björgunaraðilum sem voru að störfum á Haiti í kjölfar jarðskjálftans hörmulega. Þörf var á nákvæmari veðurspá fyrir svæðið. Sérfræðingar RV brugðust skjótt við og á innan við tveimur klukkustundum var háupplausnar veðurspá fyrir Haití komin á vefinn. Belgingur.is hefur haldið áfram að birta veðurspárnar fyrir björgunaraðila þótt rústabjörgunarsveitin íslenska sé komin heim. Ekki var hér látið staðar numið, í tengslum við nýtt byltingarkennt veðurspákerfi, sem þróað hefur verið í nánu samstarfi við Almannavarnir og Landsbjörgu (http://www.sarweather.com), þá eru nú reiknaðar daglegar veðurspár fyrir Viktoríuvatn. Þar er áætlað að yfir 5000 manns drukkni á ári hverju, og er slælegum veðurspám kennt um að miklu leiti. Í kjölfar eldanna á Fimmvörðuhálsi hefur ennfremur verið sett upp 1 km spásvæði fyrir Mýrdalsjökul og nærsveitir. Í þessum spám kemur m.a. glögglega fram hversu mikill breytileiki er í vindhraða og stefnu á svæðinu. hönd á festir, jafnt núll og einir! Svarkur skilaði 36 klukkustunda spám í 3 km neti af sér á rúmum klukkutíma og voru þær uppfærðar fjórum sinnum á sólarhring m.v. einu sinni áður. Þessi vél var tvöfölduð að afli 2007 og 2008 var fengin ný og öflugri móðurtölva. Í gegnum árin hefur diskastæðum ennfremur verið fjölgað jafnt og þétt, og er nú svo komið að diskapláss er um 30 TB.

6

Í SARWeather veðurspálausninni er falið mikið nýnæmi. Þar mun notandinn sjálfur geta skilgreint spásvæðið og pantað háupplausnar veðurspá í gegnum einfalt vefviðmót. Annað nýnæmi felst í því að kerfið er keyrt á reikniskýjum, en það tryggir nær óhefta skölun lausnarinnar.


OK-beint Nýr og endurbættur vefverslunar-

Þá er hægt að skrá inn þjónustubeiðnir og skoða lifandi þjónustubeiðnir.

og þjónustuvefur Opinna kerfa

Möguleiki er á að leita að raðnúmeri búnaðar, finna kaupdag og afrit af reikningi sé þess þörf ásamt ábyrgðartíma vörunnar.

Opin kerfi hafa um margra ára skeið haldið úti vefverslun og þjónustugátt fyrir viðskiptavini sína. Þar má með auðveldum hætti nálgast alla vöruflokka og

Á þjónustuvef geta notendur vistað innkaupakörfur og skýrt þær einkennandi

vöruúrval fyrirtækisins, ganga frá pöntun og fá vörur sendar. Verðið sem birtist

nöfnum til að endurtaka pantanir síðar, t.d. fyrir rekstrarvörur, fyrir prentara

innskráðum notanda á vefnum miðast við viðskiptakjör viðkomandi hverju sinni.

o.fl. Þessi möguleiki sparar tíma og fyrirhöfn séu ákveðnar vörur pantaðar

Þar má líka sjá yfirlit yfir þau tilboð sem eru í gangi á hverjum tíma, nýjar vörur

reglulega. Vefurinn hefur líka verið aðlagaður að þörfum endursöluaðila og

og það sem fréttnæmt er. Afhendingartími pantana í gegnum OK-beint er í

þar má finna virkni sem sniðin er að þeirra þörfum og hefur gefið mjög góða

95% tilvika innan við 4 klst. á höfuðborgarsvæðinu þar sem heimsending er frí

raun.

og vörum er daglega komið á flutningsaðila fyrir pantanir af landsbyggðinni. OK-beint er í stöðugri þróun og er nýjum eiginleikum bætt við reglulega. Samhliða því að vera vefverslun, er OK-beint þjónustuvefur þar sem fyrirtæki

Nýlega var unnið að því að færa útlit vefsins í nútímalegra horf. Við hvetjum

og einstaklingar geta nálgast ýmsar upplýsingar um viðskipti sín við Opin kerfi,

viðskiptavini okkar til að kynna sér OK-beint og þá þjónustu sem þar er í boði.

t.d. yfirlit yfir pantanir, tilboð, afrit af reikningum, gjaldfallna reikninga o.fl.

Slóðin er www.okbeint.is. Þeir sem ekki hafa, en óska eftir aðgangi að vefnum,

Starfsmaður fyrirtækis með stjórnendaaðgang getur sett upp aðgangsstýringar

er bent á að hafa samband við okkur í síma 570-1000 eða á netfangið ok-

fyrir aðra starfsmenn og stjórnað því hvað þeir geta pantað og séð á

beint@ok.is.

þjónustuvefnum.

Eldveggir Er þínu fyrirtæki ógnað? Vertu uppfærður. Flestir sem koma að rekstri tölvukerfa í dag eru sammála um mikilvægi eldveggja

Samningsverð eru árgjöld og reiknast út frá týpunúmeri ASA boxins og

í tölvukerfum. Hugbúnaðurinn sem stýrir eldveggnum er í raun vitræni hluturinn

viðbragði á samningi. Sem dæmi um árgjöld:

og það er hann sem skiptir mestu máli. Eins og með hvern annan hugbúnað

Fyrir ASA 5505 er árgjaldið frá 7.500 kr. m/vsk.

t.a.m. vírusvarnir þarf því að uppfæra þennan hugbúnað reglulega svo hann

Fyrir ASA 5510 er árgjaldið frá 55.000 kr. m/vsk.

þjóni hlutverki sínu sem best.

Fyrir ASA 5520 er árgjaldið frá 98.000 kr. m/vsk. *m.v. gengi USD 20.05.2010

Cisco sendir reglulega frá sér uppfærslur og viðbætur á stýrikerfi eldveggja. Til þess að tryggja það að eldveggurinn sé sem skilvirkastur, þekki ný árásarmynstur

Viðbót við 8.3: Cisco ASA Botnet filtering

o.þ.h., hvetjum við alla okkar viðskiptavini til að ganga úr skugga um að þeir

Nýjasta útgáfa af stýrikerfinu er 8.3. Til viðbótar er hægt að kaupa svokallaðan

séu með nýjustu uppfærslur, bæði meiriháttar sem og minniháttar. Fullyrða má

Botnet Filter eiginleika sem er ekki hluti af grunnhugbúnaði. Í dag er sífellt

að í dag þiggja nánast allir áskrift að vírusvarnarhugbúnaði fyrir útstöðvar

erfiðara að greina Malware og Spyware þar sem margar heimasíður sem

og netþjóna til að hindra að röskun verði á tölvukerfum vegna vírusárása og

notendur telja „löglegar“ eru sýktar af óværum eða eru falskar. Eigendur slíkra

annarra óværa, en hugsa minna um að uppfæra eldvegginn.

síðna nýta sér gjarnan samfélagsvefi og aðrar gagnvirkar síður til að koma fyrir hvers kyns hugbúnaði á tölvur viðkomandi og taka þær síðan yfir. Botnet

Hugleiðum hvaða áhrif það hefði á tölvukerfið ef hægt væri að setja eldvegginn

Traffic filterinn greinir hvaða tölvur innan tölvukerfis eru sýktar, hvert þær sækja

á hliðina. Hver er kostnaðurinn við að koma tölvukerfinu aftur í samt lag, eftir að

og hvaða síður eru ekki löglegar.

hakkarar hafa notfært sér veilur til að ráðast á það, samanborið við kostnaðinn við að hafa eldvegginn á uppfærslusamningi? Tvær leiðir eru í uppfærslu: Cisco

Viðbótin er seld í áskrift og greiða notendur árgjald af þessum hugbúnaði. Hér

þjónustusamningur um uppfærslur á hugbúnaði og staðkvæmdarþjónustu

skiptir máli hvaða stærð eldveggjar er í notkun líkt og með samningana hér

búnaðar, eða kaup á hugbúnaðarleyfinu einu og sér.

að ofan. Þessi viðbót gerir kröfu á meira innra minni en staðlað er og þarf því samhliða Botnet áskrift að kaupa minnisuppfærslu. Stofnkostnaður nemur því

Verð á hugbúnaðarleyfi er um 99 þúsund krónur* auk vsk. og er einskiptis

um þrjátíu þúsund krónum auk árlegs kostnaðar vegna samnings á eldvegginn.

uppfærsla en sú upphæð jafngildir kaupum á einum Windows Standard Server

Nánari upplýsingar veita Þórður Jensson thordurj@ok.is og Anna Lovísa anna@

óháð frá því hvaða týpu af ASA boxi þú ert að keyra.

ok.is í síma 570-1000.

Opin kerfi bjóða viðskiptavinum Cisco aðgengissamninga sem innifela: • Vélbúnaðarábyrgð á viðbragði frá næsta virka degi á skrifstofutíma og niður í 2 tíma 24/7 • Hugbúnaðaruppfærslur • Cisco.com aðgengi • TAC aðgengi

7


Opin kerfi – Umboðs- og þjónustuaðili Office - Stutt yfirlit HP2010 á Íslandi Einkenni Office 2010:

Hvernig það virkar:

NÝTT Samvinna Tímamótatækni sem tengir félaga í teymi saman um eitt verkefni.

Gerir fólki kleift að uppfæra og samnýta glósubók samtímis. Hver og einn í teyminu getur séð hver er að vinna við skjalið á netinu og hafið samræður við þann einstakling í rauntíma. Breytingar eru auðkenndar svo að hægt er að sjá hverju hefur verið breytt.

NÝTT Samtalsyfirlit Náðu stjórn á tölvupóstinum.

Auðveldar rakningu og umsjón tengdra tölvupósta og sparar dýrmætt rými í innhólfinu svo að auðveldlega er hægt að stýra miklu magni af tölvupósti. Einnig er hægt að fela heilar samtalslotur og þjappa þeim saman með örfáum smellum.

NÝTT Útsending skyggnusýninga Í einni svipan er hægt að senda út kynningar fyrir viðskiptavini og vinnufélaga sem eru ekki staddir á vinnustaðnum.

Sendu skyggnurnar þínar út til fjartengdra viðtakenda sem geta skoðað kynninguna þína á netinu og á öllum tækjum sem eru með vafra, jafnvel þótt þeir séu ekki með Microsoft PowerPoint® 2010.

NÝTT Vinnsla hreyfimynda Búðu til fagmannlegt efni sem skapar þér sérstöðu.

Þú getur breytt hreyfimyndum beint úr PowerPoint 2010, engin þörf á viðbótarhugbúnaði. Þú getur jafnvel sett hreyfimyndartengil af Internetinu inn í kynninguna til að fá meiri fjölbreytni og líf í hana án þess að það komi niður á skráarstærðinni.

NÝTT Microsoft Excel® 2010 örrit Taktu skjótari og betri viðskiptaákvarðanir.

Örrit eru lítil línurit í vinnublaðahólfum sem gefa skýra og hnitmiðaða mynd af gögnum þínum. Þú getur notað þau til að sýna leitni í röð gilda, svo sem árstíðabundna aukningu eða mánaðarlega eyðslu, eða til að auðkenna hámarkseða lágmarksgildi.

ENDURBÆTUR Microsoft Office Web Apps Betri og hraðari svörun, jafnvel þegar þú ert ekki á vinnustaðnum.

Mjög gott skoðunarumhverfi í vafra og þú getur gert lítilsháttar breytingar á skrám í Microsoft Word 2010, Excel 2010, PowerPoint 2010, og OneNote® 2010.

ENDURBÆTUR Microsoft Office Mobile 2010 Gerðu meira en bara að lesa tölvupóst í símanum þínum.

Office Mobile 2010 gerir samstarfsmönnum á mismunandi stöðum kleift að samnýta, breyta og gera athugasemdir við skjöl með Microsoft snjallsímum sínum, allt í kunnuglegu Office-umhverfi.

ENDURBÆTUR Microsoft Office OneNote Vertu með skipulagið og vinnuna á hreinu.

Hoppaðu hvert sem er í glósubókum þínum með OneNote Search. Bættar leitarleiðir gefa þér skjótan aðgang að upplýsingum með einum smelli. Þú sérð leitarniðurstöður jafnóðum og þú slærð inn og þrengir leitina.

Opin kerfi 3. tbl. ágúst 2010 Útgefandi: Opin kerfi ehf. Sími: 570-1000 Bréfsími: 570-1001 Veffang: ok@ok.is Ábyrgðarmaður: Gunnar Guðjónsson Ritstjóri og umsjónarmaður: Rán Bjargardóttir Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.