Fréttabréf 2. tbl. 22. árg. maí 2011
Opin kerfi tóku að sjálfsögðu þátt í Mottumars 2011 sem tókst með eindæmum vel.
Vorhugur hjá Opnum kerfum
Askja í Alrekstur bls. 2 Afleysingaþjónusta bls. 3 ITIL námskeið bls. 5 Breytingar í CoreCAL bls. 7
Frá forstjóra
Askja í Alrekstur Gengið hefur verið frá samkomulagi á milli Öskju og Opinna kerfa um Alrekstur á upplýsingakerfum Öskju. Einnig útvega Opin kerfi allan búnað og hefur uppsetningu verið lokið. Um er meðal annars að ræða netþjóna, sýndarvélar, netbúnað, varaafl, afritun, símkerfi og hugbúnað.
„Eftir að hafa farið yfir málið og metið þá kosti sem til boða stóðu þá ákváðum við að ganga til samstarfs við Opin kerfi. Teljum við að með samkomulaginu séum við að ná fram hagkvæmum rekstri upplýsingakerfa með mikið bakland og þekkingu sérfræðinga á bak við okkur“ segir Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri Öskju. „Við getum óskað eftir þjónustu hvenær sem er og samstundis getur tækniborð Opinna kerfa yfirtekið útstöðvar hjá okkur og sinnt notandaþjónustu þegar þörf er á. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af aukareikningum, að þekking sé ekki til staðar eða að starfsmaður sé fjarverandi.“ Með þessu getur Askja einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi en fyrirtækið sérhæfir sig i sölu og þjónustu á bifreiðum frá Mercedes-Benz og Kia. Askja þekkir vel til gæðaþjónustu því að fyrirtækið er þjónustufyrirtæki sem einsetur sér að vera í fararbroddi hvað varðar þjónustu til sinna viðskiptavina. Askja er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa ríflega 50 manns. Askja er til húsa í mjög vel búnu og glæsilegu húsnæði að Krókhálsi 11, Reykjavík. Þar er meðal annars að finna fullkomið bílaverkstæði og rúmgóðan og bjartan sýningarsal.
Þorvaldur Finnbogason hópstjóri hjá Opnum kerfum og Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri Öskju innsigla samkomulagið um Alrekstur.
Allar nánari upplýsingar um Alrekstur veitir Þorvaldur Finnbogason (thorvaldur@ok.is) hjá Opnum kerfum í síma 570 1000
2
Áhyggjulaust frí
- leyfðu okkur að leysa þig af
OK afleysingaþjónustu
OK vöktun
OK netafritun
• Notendaaðstoð • Vöktun og eftirlit með kerfum • Viðbrögð við frávikum • Staðgenglar sérfræðinga • Skuldbinding eftir þörfum • Samningstímabil frá einni viku
• Vöktun netþjóna • Aðgangur að Sysvik eftirlitskerfi • Eftirlit með álagi og þjónustum • Eftirlit með diskarými • Öryggisuppfærslur • Aðgengi að sérfræðingum
• Regluleg öryggisafritun • Afritun yfir net • Þægileg umsjón og stjórn • Skýrslugerð og skjölun • Einföld endurheimt gagna • Sjálfvirkar villumeldingar
Allar nánari upplýsingar veita Þorvaldur Finnbogason (thorvaldur@ok.is) og Íris Kristjánsdóttir (iris@ok.is) í síma 570 1000
Opin kerfi á Cisco Live í London Cisco Live er það sem áður hét Cisco Networkers, en undanfarin ár hefur Cisco Networkers verið að vaxa og þróast og er nýtt heiti í Evrópu hluti af því ferli. Í byrjun febrúar sl. fóru nokkrir starfsmenn Opinna kerfa á Cisco Live ráðstefnuna, en í þetta sinn var hún haldin í London, þar sem hún verður einnig haldin á næsta ári, en þá verður haldið upp á 20 ára afmæli ráðstefnunnar í Evrópu. Sama ár verða Ólympíuleikarnir haldnir í London. Cisco verður einn af stærstu samstarfsaðilum Ólympíuleikanna og mátti greina það strax á ráðstefnunni þetta árið.
Á Cisco Live var fjallað um helstu nýjungar sem Cisco er að koma með á markaðinn. John Chambers forstjóri Cisco hélt tölu fyrir troðfullum sal um hvert Cisco stefnir næstu árin. Cisco hefur alltaf haft það að leiðarljósi að vera númer eitt á sínum markaði og er óhætt að segja að með framtíðarsýn sinni og frábærri ráðstefnu stefnir Cisco í hæstu hæðir. Það verður því afar fróðlegt að fylgjast með Cisco á næstu misserum.
Við stöðuga þróun Networkers í átt að Cisco Live hafa bæst við nýjar námsleiðir á ráðstefnunni sem gerðu hana að einni umsvifamestu og fjölmennustu ráðstefnu hingað til í Evrópu. Til viðbótar við námskeið fyrir tæknimenn og kerfisstjóra og fyrirlestra um hugbúnaðargerð, var boðið upp á sérstaka fyrirlestra sniðna fyrir aðila sem eiga hlut að máli þegar kemur að ákvarðanatöku í upplýsingatækni, IT Management Program.
3
QlikView Opin kerfi bjóða nú QlikView sem hluta af sínum lausnum á sviði stjórnendaupplýsinga (BI). QlikView er skýrslu- og greiningartól sem hefur farið sigurför um heiminn og er talið eitt það allra besta af Gartner og Aberdeen Group. QlikView veitir betri yfirsýn í reksturinn sem sýnir sig í því að viðskiptavinir QlikView telja almennt að fjárfesting í hugbúnaðinum skili sér til baka á 3-6 mánuðum.
Þeir sem hafa áhuga á QlikView er bent á http://demo. qlikview.com.
Móttökurnar á Íslandi hafa verið góðar enda eru mörg fyrirtæki og stofnanir að reyna að finna leiðir til að nýta betur fyrirliggjandi upplýsingar. QlikView er einkar notendavænn hugbúnaður, en um 96 % þeirra sem nota kerfið samkvæmt IDC eru ánægðir með það, auk þess sem um 50% innleiðinga eru framkvæmdar á einum mánuði. Einn helsti kostur hugbúnaðarins er hraðinn, en notandinn getur velt gögnum á alla vegu og niðurstöðurnar skila sér strax á skjáinn. Opin kerfi, í samstarfi við IMIS, veita ráðgjöf og þjónustu við QlikView, aðstoða við að innleiða kerfið og bjóða kerfið til prufu sé þess óskað. Meðal íslenskra fyrirtækja sem nota kerfið eru Samskip auk þess sem kerfið er núna í prufu hjá nokkrum fyrirtækjum.
Félagslíf OK Félagslíf starfsmannafélags Opinna kerfa hefur ávallt verið mjög fjölbreytt og lifandi. Þann 8. apríl sl. héldu Opin kerfi sinn árlega Vorfögnuð. Í ár var ákveðið að taka hann með trompi og hefja daginn á tiltekt í öllum deildum. Hver deild valdi sér þema og starfsfólk mætti í mismunandi búningum. Á skrifstofunni þennan dag mátti m.a. sjá Rómverja sem buðu vínber úr silfurskálum, lækna í gervi starfsfólks Heilsubælisins í Gervahverfi sem buðu vítamínsprautur, nokkra eitursvala James Bond-a og fótboltamenn í öllu sínu veldi. Dagurinn var í alla staði frábær eins og andi Opinna kerfa er þekktur fyrir að vera og fyrirtækið skínandi hreint og fínt eftir frábær hreingerningastörf sem unnin voru. Deginum lauk svo á skemmtun í mötuneyti þar sem allir brugðu sér í betri fötin, gæddu sér á ljúffengum kræsingum og áttu saman ánægjulega kvöldstund.
4
Allar nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Stefánsson ráðgjafi hjá Opnum kerfum í síma 570 1000.
ITIL námskeið í september Hvað er ITIL? ITIL sem stendur fyrir „Information technology Infrastructure Libraryis“ er ein útbreiddasta aðferðafræði í heimi við stjórnun þjónustu í upplýsingatækni. ITIL býður upp á praktískan ramma í IT nálgun með því að skilgreina, áætla, skila og veita IT stuðning við viðskiptahlið fyrirtækja. Fyrir hverja er námskeiðið? • Starfsmenn sem þurfa grunnskilning á ITIL hugmyndafræðinni og hvernig hægt er að nota hana til þess að auka við gæði upplýsingatækniþjónustu innan fyrirtækja og stofnana. • Sérfræðinga í fyrirtækja/stofnana fræðina, þar sem með hana áfram
upplýsingatækni sem vinna innan sem hafa tileinkað sér ITIL aðferðaþeir þurfa að þekkja hana og vinna til að geta stöðugt bætt þjónustuna.
Markmið með námskeiðinu Eftir að hafa setið námskeiðið eiga þátttakendur að hafa náð grunnþekkingu og skilningi á ITIL hugmyndafræðinni, uppbyggingu og grunnskilgreiningum. ITIL prófið staðfestir eftirfarandi kunnáttu: • Service management as a practice (Comprehension) • Service lifecycle (Comprehension) • Key Principles and Models (Comprehension) • Generic Concepts (Awareness) • Selected Processes (Awareness) • Selected Roles (Awareness) • Selected Functions (Awareness) • Technology and Architecture (Awareness) • ITIL Qualification scheme (Awareness)
Hvenær: 20. - 22. september 2011 Hvar: Opnum kerfum, Höfðabakka 9. Skírteini eftir próf: ITIL® Foundation certificate in IT Service Management.
Fyrirkomulag Prófið er haldið án bókar í lok námskeiðsins og tekur um klukkustund. Prófið samanstendur af 40 krossaspurningum og þarf þátttakandi að ná 65% lágmarksárangri til þess að standast prófið. Kennsla fer fram á ensku og er í umsjá tveggja vottaðra ITIL sérfræðinga frá Danmörku. Kostnaður Kostnaður per þátttakanda er 250.000 krónur. Innifalið í því er kennsla, námsefni, prófgjald, aðstaða og uppihald í þá þrjá daga sem námskeiðið stendur yfir. Ef fyrirtæki sendir tvo eða fleiri starfsmenn þá lækkar kostnaðurinn í 225.000 per þátttakanda. Skráning Fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss fyrirfram geta sent póst á elin@ok.is en sendur verður út markpóstur á viðskiptavini Opinna kerfa um miðjan maí þar sem almenn skráning fer fram.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Gränz (elin@ok.is) í síma 570 1000.
Nýir starfsmenn Arna Kristjánsdóttir 07.04.2011
Rúnar B. Guðlaugsson 13.05.2011
Arna starfar sem aðstoðarmatráður í mötuneyti Opinna kerfa. Hún starfaði áður hjá Eldhúsi sælkerans. Við bjóðum Örnu velkomna í OK hópinn.
Rúnar starfar sem söluráðgjafi á notendabúnaði með áherslu á IPG lausnir. Hann starfaði áður m.a. sem innkaupastjóri flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og hjá Nýherja. Við bjóðum Rúnar velkominn í OK hópinn.
5
HP mælir með Windows® 7.
NÝ FARTÖLVULÍNA FRÁ HP – HÁGÆÐA FARTÖLVUR SEM UPPFYLLA MISMUNANDI ÞARFIR
HP PROBOOK OG HP ELITEBOOK
HP mælir með Windows® 7.
HÁGÆÐA FARTÖLVUR SEM UPPFYLLA MISMUNANDI ÞARFIR HP PROBOOK
PROBOOK S-LÍNAN – “Standard“
HP ProBook s-línan er fullbúin lína af fartölvum með öllum helstu eiginleikum. Hannaðar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki þar sem áhersla er lögð á hagstætt verð og góð afköst.
PROBOOK M-LÍNAN – “Mobility”
Þynnstu og meðferðilegustu fartölvurnar frá HP. HP ProBook m-línan er sérsniðin fyrir þá sem vilja létta fartölvu án þess að skerða afköst.
PROBOOK B-LÍNAN – “Business”
HP ProBook b-línan býður upp á fleiri faglegar aðgerðir og nýjustu þráðlausu tæknina. Uppfyllir flestar kröfur sem hægt er að gera til fartölva.
HP ELITEBOOK
ELITEBOOK P-LÍNAN – “Professional”
HP EliteBook p-línan samanstendur af glæsilegum og öflugum fartölvum. Hannaðar fyrir þá sem þurfa öryggi, hreyfanleika, mikla afkastagetu og góða grafík - öllu pakkað saman í fallega magnesium skel.
ELITEBOOK W-LÍNAN – “Workstation”
Fyrir mest krefjandi verkefnin bjóðum við okkar allra bestu fartölvu sem inniheldur mikla virkni. HP EliteBook w-línan sameinar mikil afköst og meðferðileika
© Copyright 2011 Hewlett-Packard Development Company, L.P. This information may change without prior notice. The only warranties for HP products and services described in the express warranty statements delivered with those products and services. Nothing in this document may be construed as constituting an additional warranty. HP assumes no liability for technical or editorial errors or omissions therein. This system may require upgraded or separately purchased hardware and / or a DVD burner to install Windows 7 software and take full advantage of Windows 7 features. See more on http://www.microsoft.com/windows/windows-7/. Celeron, Celeron Inside, Centrino, Centrino Inside, Core Inside, Intel, Intel Logo, Intel Atom, Intel Atom Inside, Intel Core, Intel Inside, Intel Inside Logo, Intel Viiv, Intel vPro, Itanium, Itanium Inside, Pentium, Pentium Inside , Viiv Inside, vPro Inside, Xeon, and Xeon Inside are trademarks of Intel Corporation in the U.S. and other countries. All other product names and trademarks are for informational purposes only and may be trademarks or registered trademarks of their respective owners. HP April 2011.
HP PROBOOK
VELDU FARTÖLVUNA SEM HENTAR ÞÉR m-línan
s-línan
HP ProBook 4330s • I ntel® Core™ i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni, eða i3 örgjörvi • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 33,7 cm (13,3”) LED skjár með glampavörn • Álumgjörð með bustaðri áferð • Vegur frá 2,0 kg • 1 árs ábyrgð**
Ef þú vilt stærri skjá: HP ProBook 4530s Ef þú vilt þynnri fartölvu: HP ProBook 5330m
HP ProBook 4530s • I ntel® Core™ i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni, eða i3 örgjörvi • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 39,6 cm (15,6”) LED skjár með glampavörn •Á lumgjörð með bustaðri áferð • Talnaborð • Vegur frá 2,36 kg • 1 árs ábyrgð**
Ef þú vilt stærri skjá: HP ProBook 4730s Ef þú vilt möguleika á tengikví eða auka rafhlöðu: HP ProBook 6560b
HP ProBook 4730s • I ntel® Core™ i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni, eða i3 örgjörvi • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 43,9 cm (17,3”) LED skjár með glampavörn • Álumgjörð með bustaðri áferð • Talnaborð • Vegur frá 2,92 kg • 1 árs ábyrgð**
Ef þú vilt öflugri vinnslu og betri grafík: HP EliteBook 8760w
VELDU ÞINN HUGBÚNAÐ:
HP ProBook 5330m • I ntel Core™ i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni, eða i3 örgjörvi • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 33,7 cm (13,3”) LED skjár með glampavörn • Þykkt aðeins 25 mm • Sterkbyggð álumgjörð • Baklýst lyklaborð • Möguleiki á innbyggðu 3G • Vegur frá 1,72 kg • 1 árs ábyrgð** ®
Ef þú vilt geisladrif: HP ProBook 6360b/6460b Ef þú vilt enn léttari fartölvu: HP EliteBook 2560p
b-línan
HP ProBook 6360b/ HP ProBook 6460b • I ntel® Core™ i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni, eða i3 örgjörvi • Windows® 7 Professional stýrikerfi •6 360b: 33,8 cm (13,3”) HD LED skjár með glampavörn •6 460b: 35,6 cm (14”) HD/ HD+ LED skjár með glampavörn •S terkbyggð álumgjörð • Möguleiki á LongLife rafhlöðu, auka rafhlöðu og tengikví • Möguleiki á innbyggðu 3G • Vegur frá 1,90/2,02 kg • 1 árs ábyrgð**
Ef þú vilt sterkari fartölvu, meiri afköst og betri grafík: HP EliteBook 8460p
Kauptu Office 2010 leyfislykil til þess að virkja meðfylgjandi Office 2010 pakka: Office Home and Student 2010, Office Home and Business 2010, Office Professional 2010. Nánari upplýsingar á office.com/productkeycard
HP ProBook 6560b • I ntel® Core™ i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni, eða i3 örgjörvi • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 39,6 cm (15,6”) HD/HD+ LED skjár með glampavörn •S terkbyggð álumgjörð • Talnaborð • Raðtengi • Möguleiki á LongLife rafhlöðu, auka rafhlöðu og tengikví • Möguleiki á innbyggðu 3G • Vegur frá 2,5 kg • 1 árs ábyrgð**
Ef þú vilt sterkari fartölvu, meiri afköst og betri grafík: HP EliteBook 8560p
HP ELITEBOOK
HP mælir með Windows® 7.
w-línan
p-línan
HP EliteBook 2560p • I ntel Core™ i7 eða i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 30,7 cm (12,5”) HD LED skjár með glampavörn •M agnesium álumgjörð • Innbyggður DVD brennari • Möguleiki á LongLife rafhlöðu • Möguleiki á innbyggðu 3G • Vegur frá 1,63 kg • 3 ára ábyrgð** ®
Ef þú vilt tablet fartölvu með snertiskjá: HP EliteBook 2760p Ef þú vilt stærri skjá: HP EliteBook 8460p
HP EliteBook 2760p
HP EliteBook 8460p
• I ntel® Core™ i7 eða i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni • Windows® 7 Professional stýrikerfi • Tablet fartölva með Multitouch skjá • 29,7 cm (12,1”) WXGA LED skjár með glampavörn • M agnesium álumbjörð • Möguleiki á LongLife rafhlöðu og auka rafhlöðu • Möguleiki á innbyggðu 3G • Vegur frá 1,79 kg • 3 ára ábyrgð**
• I ntel® Core™ i7 eða i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni • Windows® 7 Professional stýrikerfi • 35,6 cm (14”) HD/HD+ LED skjár með glampavörn •M agnesium álumgjörð • Möguleiki á innbyggðu 3G • Allt að 32 klst. rafhlöðuending* • Möguleiki á LongLife rafhlöðu, auka rafhlöðu og tengikví • USB 3.0 og USB hleðslutengi • Vegur frá 2,07 kg • 3 ára ábyrgð**
Ef þú vilt meiri afköst, hreyfanleika og geisladrif: HP EliteBook 2560p
Ef þú vilt vinna með betri grafík og þyngri forritum: HP EliteBook 8560p
HP EliteBook 8560p • I ntel Core™ i7 eða i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni • Windows® 7 Professional sýrikerfi • 39,6 cm (15,6”) HD/HD+ eða FHD LED skjár með glampavörn • Magnesium álumgjörð • Talnaborð • Raðtengi • Möguleiki á innbyggðu3G • USB 3.0 og USB hleðslutengi • Vegur frá 2,73 kg • 3 ára ábyrgð** ®
Ef þú vilt vinna með betri grafík og þyngri forritum: HP EliteBook 8560w
HP EliteBook 8560w • I ntel® Core™ i7 eða i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni • Windows® 7 Professional stýrikerfi • Vinnsluminni stækkanlegt í allt að 32 GB •3 9,6 cm (15,6”) HD+ eða FHD LED skjár með glampavörn • Veldu á milli NVIDIA Quadro® FX eða ATI skjákorts • OpenGL og DirectX 11 •M agnesium álumgjörð • Talnaborð • Möguleiki á innbyggðu 3G • USB 3.0 og USB hleðslutengi • 3 ára ábyrgð**
Ef þú vilt vinna með enn betri grafík í krefjandi verkefnum: HP EliteBook 8760w
HP EliteBook 8760w • I ntel® Core™ i7 eða i5 örgjörvi með Turbo Boost tækni • Windows® 7 Professional stýrikerfi • Vinnsluminni stækkanlegt í allt að 32 GB • Allt að þrír innbyggðir harðir diskar með möguleika á RAID 5 • 43,9 cm (17,3”) HD+ eða FHD LED skjár með glampavörn • Veldu á milli NVIDIA Quadro® FX eða ATI skjákorts • OpenGL og DirectX 11 •M agnesium álumgjörð • Talnaborð • Möguleiki á innbyggði 3G • USB 3.0 og USB hleðslutengi • 3 ára ábyrgð**
Ef þú vilt meiri árangur lestu þá um vinnustöðvar okkar á www.hp.dk
* Líftími rafhlöðu er breytilegur eftir tegund, stillingum, fjölda forrita, lögun, notkun, þráðlausri virkni og rafhlöðustillingum. Sjá rafhlöðuviðmið á www.bapco.com/products/mobilemark2007. ** Hægt að velja um 3, 4 og 5 ára ábyrgð með HP Carepack
Opin kerfi fá umboð fyrir Prophix Opin kerfi hafa fengið umboð fyrir áætlunarkerfið Prophix. Prophix var stofnað 1987 í Canada með höfuðstöðvar í Toronto og starfar nú í yfir 60 löndum um allan heim. Fyrirtækið starfar eingöngu á sviði áætlanargerðar og hefur þróað Prophix sem heildarlausn á sínu sviði. Kerfið tekur á öllum þeim þáttum sem varðar áætlunargerð og styður flest öll þau bókhaldskerfi sem eru í notkun í dag. Kerfið notar Microsoft SQL gagnagrunn og er samþætting kerfisins við þennan gagnagrunn svo mikil að leyfisgjöld fyrir Microsoft SQL eru innifalin í verði kerfisins. Kerfið státar af mjög auðveldum ferlum við alla vinnslu hvort sem það er að lesa gögn frá undirliggjandi kerfum, uppsetning áætlunarskjala, uppsetning á útreikningum, vinnuflæði áætlunar, aðgangsstýring, utanumhald við sjálfa áætlunargerðina eða stýring samþykktarferlis. Úrtak getur síðan verið með endurskrift niður í undirliggjandi kerfi, í skýrsluformi sem hægt er að stilla sjálfvirk ferli með aðgangsstýringum eða yfir í SharePoint 2010. Svo ekki sé talað um að samþætta gögn yfir í viðskiptagreindarhugbúnað sem býður upp á enn fleiri möguleika.
Microsoft Dynamics CRM 2011 Microsoft Dynamics CRM 2011 er komið út og er óhætt að segja að Microsoft hafi farið fram úr væntingum í þetta sinn. Unnið hefur verið að því að samræma kerfi hjá Microsoft í nokkurn tíma og nú er komin röðin að CRM. Kerfið hefur fengið nýtt útlit og er tækjastikan sem hefur einkennt viðmót Office kerfanna einnig komið í CRM. Um 500 viðbætur og breytingar hafa átt sér stað í kerfinu og ný virkni er talsverð. Þegar farið er yfir kerfið kemur í ljós að Microsoft er með þessari útgáfu að setja Microsoft CRM fram á svipaðan hátt og önnur Microsoft Dynamics kerfi Nav/AX þar sem gefinn er kostur á að bæta við kerfieiningum til að leysa ákveðnar þarfir í rekstri fyrirtækja, eins og lausnum fyrir SMS, tengingar við símkerfi, útsendingarkerfi fyrir markaðsherferðir, greiðslukerfi og margt fleira. Microsoft hefur komið upp vefsíðu þar sem hægt er að skoða hvaða lausnir eru nú þegar til frá samstarfsaðilum. Þar er hægt að sjá að hugbúnaðarhús sem hafa verið að þróa lausnir fyrir Microsoft CRM hafa verið fljót að uppfæra sínar lausnir til að notfæra sér þá nýju möguleika sem komu með þessari útgáfu. Nú svo komið að flest þeirra fyrirtækja sem Opin kerfi hafa verið að þjónusta með CRM hafa nú þegar uppfært í CRM 2011. Svo mikill er áhuginn. Fyrir þá sem hafa ekki kynnt sér Microsoft Dynamics CRM 2011 þá vijum við hvetja ykkur til að skoða kerfið og þá möguleika sem það hefur upp á að bjóða.
Til að fá betri sýn á hvað kerfið hefur upp á að bjóða hvetjum við þig til að gefa þér tíma til að skoða þetta myndband sem segir þér á 8 mínútum hvað Prophix er. Ef áhugi hefur vaknað fyrir þessari lausn þá höfum við hjá Opnum kerfum innleitt Prophix hjá okkur og getum kynnt fyrir þér hvað lausnin hefur upp á að bjóða. Allar nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Stefánsson (stefan@ok.is) ráðgjafi hjá Opnum kerfum í síma 570 1000
6
Allar nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Stefánsson (stefan@ok.is) ráðgjafi hjá Opnum kerfum í síma 570 1000
Breytingar á Core CAL Þann 1. ágúst verða breytingar á CoreCal tengileyfapakka Microsoft. Í dag samanstendur pakkinn af 4 tengileyfum: • Windows Server CAL • Exchange Server CAL • SharePoint Server CAL og • Configuration Mangager CAL. Í ágúst bætast svo Lync Standard Cal og ForeFront Endpoint í pakkann. Lync 2010 Standard CAL eru tengileyfi sem gefa rétt á tveggja manna samskiptum, viðveru, skyndiskilaboðum, myndbandi, hljóði og miðlun efnis.
skilaboð, fundir og miðlun efnis hefur hingað til verið keyrt á ólíkum lausnum frá ólíkum birgjum. Nú hefur Microsoft komið með nýja vöru sem sameinar allar þessar blokkir í eina lausn Microsoft Lync. ForeFront Endpoint Protection vírusvörn fyrir útstöðvar ForeFront Endpoint Protection 2010 gerir fyrirtækjum kleift að samræma öryggi og stjórnun til að bæta öryggi útstöðva og að sama skapi draga úr rekstrarkosntaði. ForeFront Endpoint Protection 2010 byggir á System Center Configuration Manager 2007 R2 og R3, sem gerir viðskiptavinum kleift að nýta núverandi rekstrarform á útstöðvum til að dreifa og viðhalda vírusvörnum á þeim. Þessi samræmdu rekstrarform á útstöðvum hjálpa til við að draga úr kostnaði og veita betri yfirsýn og stjórn á rekstri útstöðva og öryggi þeirra.
Microsoft Lync 2010 Samskiptaleiðum í rekstri hefur alltaf verið skipt upp í afmarkaðar blokkir. Tölvupóstur, myndband, sími, skyndi-
Allar nánari upplýsingar veitir Árni Haukur Árnason (arnihaukur@ok.is) í síma 570 1000
Vefpressan í Alrekstur Vefpressan hefur ákveðið að ganga til liðs við Opin kerfi og koma í Alrekstur en Vefpressan er ungt og ört vaxandi fyrirtæki sem á og rekur nokkur af stærstu vefsvæðum á Íslandi, eins og www.pressan.is, www.bleikt.is, www.menn.is, www.eyjan.is, vefverslanirnar www.butik.is og www.mona.is auk ferðabókunarvefsins www.elvesandtrolls.com.
Með þessu taka Opin kerfi að sér allan hefðbundinn rekstur á tölvukerfi Vefpressunnar og verða í raun tölvudeild fyrirtækisins. Vefpressan hefur með þessu tryggt sér aðgengi að tækniborði OK, sérfræðingum og ráðgjöf eftir þörfum.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu samstarfi. Tæknimál voru farin að trufla mitt starf verulega þannig að ég fór að skoða hverjir möguleikarnir voru í stöðunni. Það að geta úthýst öllum þessum verkefnum á einn stað fyrir fasta upphæð á mánuði var lang hagstæðasti kosturinn í stöðunni. Við þurfum bara að hringja í tækniborð OK og annað hvort er málið leyst fjarrænt þaðan eða tæknimaður mætir á staðinn. Engir aukareikningar og ekkert vesen“ segir Guðjón Elmar Guðjónsson, sölu- og markaðsstjóri Vefpressunnar.
Allar nánari upplýsingar um OK Alrekstur má finna HÉR
7
Opin kerfi, 2. tbl. 22. árg. maí 2011 Útgefandi: Opin kerfi ehf. Sími: 570 1000 Bréfsími: 570 1001 Veffang: ok@ok.is Ábyrgðarmaður: Gunnar Guðjónsson Ritstjórn og umsjón: Rán Bjargardóttir