Netvik Eftirlit með net- og prentbúnaði Netvik er umsýslukerfi fyrir netbúnað og prentara þar sem búnaður er skráður á einfaldan máta (ip tala og snmp community). Netvik nær í helstu upplýsingar um búnaðinn m.a. serial númer, stærð minnis, stærð flash, stýrikerfi o.s.frv. Búnaðurinn er að lokum tengdur við starfsstaði annað hvort með Layer 2 korti sem sýnir myndrænt tengingar tækja með aðstoð CDP (Cisco Discovery Protocol) eða með því að byggja kort ofan á ljósmyndir. Kortin eru dynamísk og gefa góða mynd af netumhverfinu eða lagnaskápum. Um leið og búnaður hefur verið skráður fara af stað bakvinnslur sem stöðugt tengjast við búnaðinn með SNMP og safna upplýsingum um notkun á linkum, cpu álagi, minni o.s.frv. Búnaðurinn er einnig reglulega “pingaður” og með því er hægt að sjá í gröfum upplýsingar um búnað og samskipti. Netvik býður upp á afritun uppsetningarskráa (config) og auðvelt er að bera saman mismunandi útgáfur af config skrám.
Möguleikar Netvik:
Hægt er að vista ákveðin leitarskilyrði til að auðvelda síðar uppflettingu í kerfinu á tækjum eða skilyrðum. Kerfið býður líka upp á að kalla fram yfirlitsmynd yfir þær tengingar sem kerfið heldur utan um frá öðrum kerfum til að auðvelda eftirlit. • Boðið er upp á miðlæga “loggun” og auðvelt er að skoða atburðaskrá hvers tækis. • Miðlæg auðkenning með radius. • Mæling á portum í rauntíma til viðbótar við sögulega mælingu.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Stefánsson (stefan@ok.is) hjá Opnum kerfum í síma 570-1000
Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið? Höfðabakka 9 | Sími: 570-1000 | Fax:570-1001 | www.ok.is | ok@ok.is