Hagkvæmari rekstur
Fyrirtæki og stofnanir geta náð fram umtalsverðri hagræðingu með því að ná tökum á rekstri prentara og fjölritunartækja. Opin kerfi bjóða hágæða búnað og sveigjanlegar lausnir frá HP og öðrum samstarfsaðilum sem geta lækkað kostnað við prentun og fjölritun um allt að 30%. Staðreyndir tala sínu máli, ein stærð hentar ekki öllum og stórir prentarar skila ekki mestum afköstum á hagkvæmasta máta nema við ákveðnar aðstæður. Reyndir sérfræðingar Opinna kerfa veita ráðgjöf um rétta samsetningu prentbúnaðar með tilliti til staðsetningar, notkunar og rekstrarkostnaðar hverju sinni. OK Prentrekstur byggir á vélbúnaði og hugbúnaði frá HP og öðrum samstarfsaðilum, sem tryggir viðskiptavinum breitt úrval eininga og lausna á markaðnum.
Sérfræðingar Opinna kerfa:
• Greina umhverfi viðskiptavina • Veita ráðgjöf um samsetningu búnaðar • Veita ráðgjöf varðandi staðsetningu á búnaði • Framkvæma fyrirbyggjandi viðhald sem hámarkar uppitíma • Annast alla þjónustu og umsýslu með rekstrarvöru • Geta brugðist við 24/7
Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið? 25 ára Höfðabakka 9 | Sími: 570-1000 | Fax:570-1001 | www.ok.is | ok@ok.is
Auðkennisprentun
Eigðu eða leigðu
Greitt eftir notkun
Opin kerfi hafa um árabil boðið fjölbreyttar auðkennislausnir fyrir prentumhverfi í samstarfi við HP, Euroform og Equitrac. Með auðkennisprentun senda notendur prentskipun inn í prentaramengið og auðkenna sig á prentara þegar þeir sækja skjalið. Öryggi upplýsinga og gagna eykst með auðkennisprentun auk þess sem umsjónarmenn og hagsmunaaðilar eiga auðveldara með að greina kostnað vegna prentunar.
Hefðbundinn OK Prentrekstur felur í sér að sérfræðingar Opinna kerfa sjá um allan rekstur prentara hjá viðskiptavinum, allt frá fyrirbyggjandi viðhaldi til umsýslu á rekstrarvöru. Viðskiptavinir geta valið að eiga búnaðinn sjálfir eða leigja hann af Opnum kerfum. Sérfræðingar Opinna kerfa sjá um uppsetningu og stillingar á vél- og hugbúnaði sem er tilgreindur inni í þjónustusamningunum og bera ábyrgð á því að prentumhverfið sé starfrækt þegar á þarf að halda.
Með OK Prentrekstri er samið fyrirfram um fastan kostnað á hverja prentaða blaðsíðu. Náið samstarf Opinna kerfa við HP, Euroform og Equitrac tryggir viðskiptavinum sveigjanleika við útfærslu lausnarinnar. Reikningar berast í lok hvers mánaðar og enginn stofnkostnaður er við samninginn auk þess sem minna verður um óvæntar sveiflur í rekstri prentara og fjölritunartækja.
Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Finnbogason (thorvaldur@ok.is) hjá Opnum kerfum í síma 570-1000
Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið? Höfðabakka 9 | Sími: 570-1000 | Fax:570-1001 | www.ok.is | ok@ok.is