Microsoft Team Foundation Server Þungamiðjan í allri hugbúnaðarþróun Microsoft Team Foundation Server er notaður við hugbúnaðarþróun af forriturum, arkitektum, prófurum og stjórnendum. TFS heldur utan um allar upplýsingar tengdar þróunarverkefnum og samræmir alla þætti á meðal þátttakenda í verkefnunum. TFS heldur utan um þann kóða sem er til og fylgir þróun á hugbúnaði alla leið frá þarfagreiningu til hönnunar og viðhalds.
Meginþættir TFS
TFS samanstendur af nokkrum meginhlutum sem hægt er að nýta til að einfalda þróun á hugbúnaði. • Build server þar sem hægt er að setja upp t.d. nightly build fyrir verkefnið. • Work Item, t.d. bug, task og risk. Hvert item geymir upplýsingar stöðu, lýsingu, viðhengi o.fl. Hægt er að nota Excel til að breyta Work Item. MS Project er mikið notað af stjórnendum til að tengja saman Work Item, áætla tíma o.fl. • Source Control, t.d. check-in check-out, branching o.fl. Hægt er að tengja kóðabreytingar við Work Item. • Sharepoint sem heldur utanum þau skjöl sem tilheyra verkefninu. • Skýrslur til að meta stöðu og árangur verkefnis. • TFS vöruhús sem geymir söguleg gögn.
Nánari upplýsingar veitir Árni Haukur Árnason (arnihaukur@ok.is) hjá Opnum kerfum í síma 570-1000
Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið?
Höfðabakka 9 | Sími: 570-1000 | Fax:570-1001 | www.ok.is | ok@ok.is
Þungamiðja í allri hugbúnaðarþróun
Ánægja með TFS
Microsoft Team Foundation Server má aðlaga að ferlum og stöðlum hvers fyrirtækis. Hugtök, vinnubrögð o.fl. geta því haldið sér eftir innleiðingu TFS. Microsoft Team Foundation Server samþættist fullkomlega Microsoft Visual Studio og það er því óþarfi að tileinka sér ný tól og tæki til þess eins að nýta virkni TFS. Opin kerfi hafa sérhæft sig í þjónustu á TFS til að hjálpa fyrirtækjum við að ná betri árangri í sinni hugbúnaðarþróun og hafa unnið náið með viðskiptavinum við uppsetningu og aðlaganir á TFS.
“Hugbúnaðardeild Íslandsbanka notast við TFS við alla sína innri þróun. Þar er fjölbreytilegt umhverfi, notast við mörg forritunarmál, mikið af aðkeyptum kerfum og mörg verkefni í gangi í einu. TFS er notaður til að halda utanum kóða, verkefni og annað sem tengist hugbúnaðarferlum bankans. Áður var kóði geymdur í SourceSafe, verkefnautanumhald og skráning verkefna var í nokkrum kerfum. Með innleiðingu TFS varð einföldun í því umhverfi, sem og betri stuðningur við hugbúnaðarferilinn. Opin kerfi hafa hjálpað okkur við að aðlaga TFS að okkar hugbúnaðarferlum og tengja við okkar umhverfi. Þetta hefur verið gert með góðum árangri og starfsfólk þeirra staðið sig mjög vel í allri þjónustu í tengslum við TFS.” Arnþór Ingi Hinriksson Íslandsbanka
Nánari upplýsingar veitir Árni Haukur Árnason (arnihaukur@ok.is) hjá Opnum kerfum í síma 570-1000
Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið? Höfðabakka 9 | Sími: 570-1000 | Fax:570-1001 | www.ok.is | ok@ok.is