Tækniborð Opinna kerfa 570-1060 5701060@ok.is Opin kerfi bjóða upp á öflugt tækniborð fyrir viðskiptavini sína. Tækniborð sinnir fjölþættu hlutverki þar sem m.a. er tekið við þjónustubeiðnum, þær skráðar í verkbeiðnakerfi og þeim komið í ferli, hvort sem þjónustan er unnin á staðnum eður ei. Tækniborðið hentar vel fyrir allar stærðir fyrirtækja og stofnana og getur tekið að sér fjölþætt hlutverk fyrir viðskiptavini. Þarfirnar geta verið breytilegar og hægt er að gera samninga um þá þætti sem henta hverjum og einum. Tækniborðið getur sinnt stökum málum en einnig getur það verið ígildi tölvudeilda ásamt vettvangsþjónustu. Fyrir fyrirtæki með tölvudeildir getur tækniborðið tekið ýmis verkefni að sér eins og vöktun, eftirlit eða staðgengilsþjónustu í fjarveru starfsmanna fyrirtækja t.d. við sumarfrí, veikindi eða fæðingarorlof. Hægt er að stofna þjónustubeiðnir á www.okbeint.is
Þjónustuþættir sem boðið er upp á:
• • • • • • •
Skráning verkbeiðna Eftirfylgni Notendaaðstoð Yfirtaka á vélum Eftirlit og vöktun Fyrirbyggjandi viðhald Öryggisuppfærslur
Kostir tækniborðs:
• • • • • • •
Skjótar úrlausnir mála Gott aðgengi að sérfræðingum Skráning verkefna Aðeins eitt símtal Ánægðir viðskiptavinir Traust samskipti Fagleg vinnubrögð
Tækniborðið er opið alla virka daga frá kl 8:30-17:00 Nánari upplýsingar veita Linda Hersteinsdóttir og Rakel Guðmundsdóttir hjá Opnum kerfum í síma 570-1000
Hefur þú færustu sérfræðingana þér við hlið? Höfðabakka 9 | Sími: 570-1000 | Fax:570-1001 | www.ok.is | ok@ok.is