Toolpack

Page 1

Á áætlun með Toolpack


Við brúum bilið milli tölulegra gagna og ákvarðana morgundagsins

Toolpack er góð lausn til áætlana- og skýrslugerðar og hentar hverju því fyrirtæki sem vill hafa góðan grundvöll til ákvarðanatöku. Toolpack er þróað af fjármálafólki fyrir fjármálafólk. Toolpack er danskt hugbúnaðarfyrirtæki og er vottaður Microsoft ISV samstarfsaðili, sem staðið hefur stöðugri þróun kerfisins frá 2002 við góðar viðtökur stjórnenda víðs vegar um heiminn.

Við aðlögum kerfið okkar að þínum þörfum – ekki öfugt Toolpack er byggt á Microsoft hugbúnaði og er viðbót við Excel. Eftir innleiðingu á Toolpack færð þú meiri skilvirkni í vinnuumhverfi sem að þú ert vanur. Toolpack hentar vel þeim fyrirtækjum sem eru í miklum vexti. Í samstæðuhlutanum tryggjum við góða fylgni gagna milli deilda og fjárhagslykla.

Gott yfirlit getur kostað mikla vinnu Með handvirkri vinnslu er hætta á innsláttarvillum og erfitt getur reynst að hafa yfirsýn yfir gögnin. Toolpack safnar saman skilgreindum gögnum og setur þau upp í aðgengileg yfirlit. Með því næst tímasparnaður svo hægt er að einbeita sér að þeim viðskiptatækifærum sem bíða okkar.


TOOLPACK GRUNNUR

Skilvirkari ferlar í lausn sem vex með þér

Grunnlausnin í Toolpack (Toolpack Standard solution) er verkfæri sem veitir þér alla þá virkni sem þú þarft fyrir áætlana- og skýrslugerð. Verkefnin eru leyst á auðveldan og fljótlegan hátt með sýnilegri fylgni í gögnunum.

Notendavænt vinnuumhverfi Hindranir sem minni fyrirtæki takast á við dags daglega eru alveg jafn viðamiklar og hjá stærri fyrirtækjum. Þú verður komin á fullt skrið með Toolpack eftir nokkra daga með innbyggð sniðmát sem eru auðveld í notkun og hafa fengið góða dóma frá öðrum notendum.

Hefðbundnar aðferðir, ótrúlegur árangur Toolpack byggir á Microsoft hugbúnaði sem flestir þekkja og tekur innleiðing aðeins nokkra daga. Þú heldur áfram með reksturinn, með aukna sjálfvirkni í daglegum verkefnum sem gefur þér meiri tíma til eftirfylgni.

TOOLPACK SAMSTÆÐA

Skalanleg lausn

Samstæðulausnin (Group solutions) í Toolpack veitir þér virkni sem þú þarft til að geta náð hámarks árangri í áætlana- og skýrslugerð, ásamt sjálfvirkum skalanleika yfir samstæðuna. Þú nýtir tímann betur með aukinni sjálfvirkni í vinnuferlinu frá áætlanagerð til reikningsskila.

Sveigjanlegar og snjallar lausnir

Utanumhald samstæðureikninga

Með Toolpack verður vinnslutíminn skemmri, jafnvel í flóknum skipulagsheildum, þar sem aðlaga þarf fyrir mismunandi gjaldmiðla, gengi, samstarfsaðila o.fl.

Auðveldara verður að halda utan um áætlunargerð og uppgjör samstæðunnar þegar gögn og ferlar hafa verið skilgreind og skipulögð. Mikilvægt er að geta leitað til trausta aðila sem skilja og geta greint þarfir viðskiptavina sinna. Við erum til þjónustu reiðubúin og veitum fúslega ráðgjöf sem getur bætt vinnuferla fyrirtækisins þíns.

Sveigjanleg lausn byggð með þarfir notenda að leiðarljósi Toolpack er í stöðugri þróun og bætir við eiginleikum til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir viðskiptavina sinna.

Toolpack

Toolpack

Grunnlausn

Samstæðulausn


ÁÆTLANAGERÐ

Fáðu yfirlit og nákvæma innsýn - hratt Toolpack hentar einstaklega vel til áætlanagerðar og eftirfylgni með framgangi þeirra. Hugbúnaðurinn byggir á Excel og því er unnið með þekktar aðgerðir. Toolpack aðstoðar við að koma verkefnum í framkvæmd með minni handavinnu og góðum yfirlitum.

Meiri athygli á reksturinn Með Toolpack er mögulegt að deila áætlanargerð til viðeigandi aðila í fyrirtækinu. Það gerir áætlunina raunhæfari ásamt því að auðveldara er að fylgja henni eftir og breyta út frá nýjum forsendum. Einfalt er að draga fram fylgni eða einstök tilvik sem standa upp úr.

Betri yfirsýn

Auðveld innleiðing

Með því að nota Toolpack gefst meiri tími til að greina tölurnar í stað þess að safna þeim saman og sannreyna þær. Einfalt er að færa tölur milli áætlana í rekstri yfir í sjóðstreymi. Einnig er hægt að aðlaga áætlunina miðað við lykiltölur rekstrarins og setja þær upp sem rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Þegar sýna þarf sjóðstreymi er auðvelt að stilla því upp á sjónrænan hátt.

Toolpack er byggt á kunnuglegum hugbúnaði, Microsoft Excel, sem tryggir notendavænar vinnuaðferðir ásamt einfaldari og skjótri innleiðingu.

Sjálfvirk áætlanagerð Toolpack er með tenginu við fjárhagsbókhald fyrirtækisins. Þar af leiðandi getur Toolpack, út frá tölum síðasta árs, sett sjálfkrafa upp tillögu að áætlun fyrir næsta ár. Þú getur svo auðveldlega aðlagað tölurnar að þeim forsendum sem fyrir liggja. Þetta getur sparað þér tíma í áætlunarferlinu og minnkar handvirkan innslátt í mismunandi Excel skjölum.


FJÁRMÁLAGREIND

Sparaðu tíma Með því að draga úr handvirkri áætlana- og skýrslugerð, sparar þú tíma og getur sinnt betur greiningu á þeim gögnum sem þú ert með. Toolpack fær rauntölurnar beint úr fjárhagsbókhaldinu, og gefur rétta mynd af rekstri fyrirtækisins frá degi til dags. Áætlanir sem unnar eru í Toolpack geta einnig verið lesnar inn í fjárhagskerfið.

Sveigjanlegur hugbúnaður Með Toolpack verður áætlunarferlið sveigjanlegra og auðveldar viðhald áætlana og gerð ársreikninga fyrir árið, með rekjanleika í öll fjárhagsleg gögn. Toolpack dregur gögnin saman, vinnur með og birtir þau án handvirkra aðgerða.

Þróað af fjármálafólki fyrir fjármálafólk Toolpack heldur utan um áætlana- og skýrslugerðarferlið sem er nauðsynleg undirstaða hvers fyrirtækis. Toolpack gerir ferlið sjálfvirkara og áreiðanlegra en áður með því að tryggja góða yfirsýn og sterkan grunn fyrir þær ákvarðanir sem þú þarft að taka. Toolpack hefur skipað sér sess hjá Frá grunni til hagnaðar stjórnendum Toolpack brúar bilið milli notenda og hugbúnaðar. Frá byrjun hefur Toolpack verið þróað til að bregðast við óskum notenda með því að innleiða nýja valmöguleika og virkni. Því hefur tekist að skapa einstaka lausn fyri fjármálasvið fyrirtækja.

Yfirlit yfir kostnað og tekjur Haltu vel utan um aðgerðir, kostnað og tekjur fyrirtækisins. Færðu rekstraráætlunina yfir í sjóðstreymisáætlunina. Toolpack veitir þér yfirlit yfir fjárhagsstöðu fyrirtækisins og greiningu niður á smæstu fjárhagseiningar.

Net Turnover aCtual 117%

MARGIN Ytd 102%

aCtuAl 128%

Það nýtir Excel og bókhaldskerfið til að safna saman tölulegum gögnum og setur þær upp á aðgengilegan hátt. Þar sem gögnin eru lesin inn í Excel er auðvelt að vinna með þau og lesa þau síðan inn í fjárhagskerfið. Toolpack veitir þér forskot í greiningum og góða yfirsýn yfir gögn áætlana. Einnig er einfaldara að breyta áætlunum samkvæmt nýjum forsendum og spara tíma og fyrirhöfn.

administration Costs Ytd 108%

actuAl 116%

Ytd 101%

employee costs actual 116%

ytd 101%


VIÐSKIPTAGREIND

Náðu takmarkinu með réttum upplýsingum

Vertu upplýst(ur) og taktu rétta stefnu

Toolpack nær í nýjustu sölutölur með einni aðgerð. Þú færð gott yfirlit yfir kostnað og þitt ábyrgðarsvið og getur á auðveldan hátt mælt frammistöðu starfsmanna.

Toolpack er einstakt verkfæri fyrir stjórnendur en býður jafnframt upp á lausnir fyrir millistjórnendur, vöru- og deildarstjóra. Lausnin er notendavæn og gerir ákvörðunartöku, eftirfylgni og vinnslu einfaldari. Gögnin eru síðan framsett á notendavænan máta.

Fljótvirkt og sveigjanlegt sölutæki

Fjárhagslegur hagnaður

Toolpack býður upp á uppsetningu og uppfærslu á áætlunum. Þú hefur möguleika á að áætla niður á vörur, viðskiptavini, sölu og þar fram eftir götunum og bera saman við rauntölur um leið og þær eru klárar. Á sama tíma getur þú auðveldlega unnið þá skýrslugerð sem til er ætlast og skilað af þér viðeigandi upplýsingum til starfsmanna og yfirmanna. Þessi fljótvirka skýrslugerð og samanburður á rauntölum og áætlun gefur glögga mynd af því hvort að einhver frávik séu að eiga sér stað sem þyrfti að huga betur að.

Fyrirtæki fjárfesta í viðskiptagreindarlausnum sem kalla á aðlögun fyrir fyrirtækið. Toolpack er byggt á hugbúnaði sem er þegar til staðar í fyrirtækinu. Innleiðingin tekur stuttan tíma og fljótlegt er að komast af stað í Toolpack. Okkar markmið er að bæta rekstarumhverfið þitt.

Fáðu yfirsýn Með Toolpack getur þú ákveðið hvernig skýrslurnar þínar eru uppbyggðar, og sniðið þær að þörfum hverju sinni. Þú getur auðveldlega fylgst með framgangi sölustarfseminnar, gert fylgni sjáanlega og haldið uppi stöðugri frávikagreiningu. Í stuttu máli getur þú skilað af þér frávikaskýrslum og haldið betur utan um árangur þinn.


Við erum til staðar fyrir þig Opin kerfi er leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á tölvu- og samskiptabúnaði, ráðgjöf, innleiðingu lausna og þjónustu. Opin Kerfi er traustur og góður samstarfsaðili sem hefur viðskiptavininn í fyrirrúmi. Reynsla og þekking starfsmanna tryggir viðskiptavinum ávallt bestu ráðgjöf og þjónustu sem völ er á hverju sinni. Á þessum þáttum hefur fyrirtækið byggt velgengni sína frá árinu 1985.

Opin kerfi ehf. Höfðabakki 9 110 Reykjavík s: 570-1000 toolpack@ok.is

www.toolpack.net


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.